Þjóðviljinn - 01.10.1991, Qupperneq 7
Eklenðar
Sovétstjómin fagnar
frumkvæði Busn
eirri ákvörðun Bush Banda-
ríkjaforseta að láta eyða öll-
um skammdrægum kjarna-
vopnum Bandaríkjahers á
landi og öllum stýriflaugum með
kjarnorkuvopn um borð i banda-
rískum kafbátum og herskipum
hefur verið fagnað af stjórnvöldum
um aUan heim.
Viðbrögð Gorbatsjovs Sovétfor-
seta þóttu þó varkár, en hann sagði
þetta jákvætt skref, þótt óljóst væri
hver áhrif það hefði á áframhaldandi
tilraunir með kjamorkuvopn eða víg-
búnað annarra kjamorkuvelda eins og
Frakklands og Bretlands.
Vladiniir Petrovsky aðstoðamtan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna lýsti því
hins vegar yfir í gær, að Sovétríkin
væm reiðubúin að bregðast við þessu
frumkvæði Bandaríkjastjómar með
sambærilegum niðurskurði vopna.
Sagði utanríkisráðherrann að í
þessu máli skiptu yfirlýsingar þó ekki
mestu máli, heldur það að láta verkin
tala. Hann sagði jafnframt að Sovét-
ríkin væra reiðubúin að setjast að
samningaborði með Bandaríkjamönn-
um um bann við tilraunum með kjam-
orkuvopn og að tilraunir með kjam-
orkuvopn neðanjarðar yrðu takmark-
aðar þegar f stað.
Petrovsky sagði að Boris Pankin,
hinn nýskipaði utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, hefði þegar skipst á skila-
boðum við Baker utanríkisráðherra
Bandaríkjanna varðandi framkvæmd
niðurskurðar kjamorkuvígbúnaðar.
Sovétrikin eiga nú mikið magn
skammdrægra kjamorkuvopna og
stýriflauga á landi og um borð f kaf-
bátum. Upplausn Sovétríkjanna og
efnahagslegt hmn hefur valdið
áhyggjum manna um afdrif þessa vig-
búnaðar og i hverra hendur hann
kunni að lenda. Er Ijóst að þessar nýju
aðstæður hafa kallað á frumkvæði
Bush forseta, en sovéski vamarmála-
ráðherrann, Jevgeni Shaposhnikov,
lýsti því yfir í viðtali við japanskt dag-
blað í fyrradag, að fmmkvæði Bush
sýni að Washington líti eklri lengur á
Moskvu sem höfuðandstæðing sinn i
heiminum. ólg/reuter
EB opnar austur
Utanríkisráðherrar EB
náðu í gær samkomulagi
um að opna fyrir innflutn-
ing landbúnaðarafurða
frá Póllandi, Ungverjalandi og
Tékkóslóvakiu. Er áformað að
landbúnaðarafurðirnar verði síðan
nýttar til matvælaaðstoðar við Sov-
étríkin.
Samkomulag ráðherranna felur í
sér að þær 600 miljónir Bandaríkja-
dala, sem þegar hefur verið ákveðið
að ráðstafa til matvælaaðstoðar við
Sovétríkin, megi einnig nýta til inn-
kaupa f fyrrgreindum A-Evrópurikj-
um.
Landbúnaður Evrópubandalags-
ríkjanna hefur sem kunnugt er notið
viðtækra vemdartolla og styrkja. Engu
að síður hafa evrópskir bændur búið
við rýmandi kjör og vaxandi óróa hef-
ur gætt meðal þeirra, einkum i Frakk-
landi. Á sama tima hafa umframbirgð-
ir landbúnaðarafurða hlaðist upp.
Samkvæmt hinni nýju ákvörðun
utanríkisráðherranna mun kvóti sá
sem Ungverjum, Pólverjum og
Tékkóslóvakliu er úthlutaður fyrir kjöt
og nautgripi á fæti hækka um 10%
næstu 5 árin. Það vom skilyrði Frakka
fyrir þessari samþykkt, að innflutning-
urinn yrði háður lögreglueftirliti til
þess að koma i veg fýnr að farið yrði í
kringum heilbrigðiskröfur og kvóta-
reglur.
ólg/reuter
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Ragnar Aðalsteinsson, hrl.,
Othar Örn Petersen, hrl.,
Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl.,
Viðar Már Matthíasson, hrl.,
Tryggvi Gunnarsson, hrl.,
tilkynnir að
JÓHANNES SIGURÐSSON hdl.,
hefur flutt lögmannsstarfsemi sína frá Laugavegi 178 og gerst
meðeigandi í málflutningsskrifstofunni frá 1. október 1991 að
telja. Er heiti skrifstofunnar frá þeim degi
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Ragnar Aðalsteinsson, hrl.,
Othar Örn Petersen hrl.,
Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl.,
Viðar Már Matthíasson, hrl.,
Tryggvi Gunnarsson, hrl.,
Jóhannes Sigurðsson, hdl.,
Borgartúni 24, Sími 627611
Pósthólf 399, Telefax 627186
121 Reykjavík Telex (051) - 94014175 BORG G
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
Sturlu Sigfússonar
vélstjóra,
Frostafold 105
Anna Soffía Guðmundsdóttir
Guðmundur Gísli Víglundsson
Sigfús Sturluson
Valborg Sturludóttir
Guðlaug Pétursdóttir
Valborg Siguröardóttir
og systkini hins látna.
Gagnbyltingartilraun
í Rúmeníu?
Petre Koman, forsætisráð-
herra Rúmeníu, sagði I
viðtali við Reuters-frétta-
stofuna síðastiiðinn
sunnudag að uppþotin við þing-
húsið í Búkarest í síðustu viku
hafl verið gagnbyltingartilraun
gerð að undirlagi kommúnista í
því skyni að koma honum frá
völdum, snúa við markvissri
þróun í átt til markaðsbúskapar
og endurreisa hið gamla forrétt-
indakerfl, sem ríkt hefði á dög-
um Ceausescu.
Óeirðimar bmtust út á mið-
vikudag og stóðu fram á föstudag.
Þúsundir kolanámumanna frá vest-
urhluta landsins flykktust til höf-
uðborgarinnar og settust um þing-
húsið og stjómarráðið, þar sem
Petre Roman sat. Að minnsta kosti
2 létu lífið og 450 særðust í óeirð-
unum, sem urðu til þess að lliescu
forseti lét undan og tilkynnti af-
sögn Romans.
Roman hefiir síðan dregið af-
sögn sína til baka, en Iliescu for-
seti leitar nú leiða til myndunar
nýrrar þjóðstjómar er gæti leyst
stjóm Þjóðfylkingarinnar af hólmi,
en Roman er leiðtogi hennar.
í millitíðinni hefur það svo
gerst, að rúmenska þingið hefur
hafið rannsókn á því, hver hafi í
raun og vem staðið á bak við upp-
reisnina. „Ef námuverkamennimir
vom aðeins tæki í höndum ákveð-
inna afla, þá verðum við að finna
nákvæmlega hveijir stóðu að baki
þeim og leiða þá fyrir dómstóla,“
var haft eftir fjármálaráðherra
stjómarinnar.
Þótt vafi geti leikið á um pólit-
iska upphafsmenn uppreisnarinnar,
þá er nærtækustu skýringarinnar
að leitá í bágum efnahag og um
200% verðbólgu.
RJkisstjómin var hins vegar í
miðjum klíðum við að hrinda i
framkvæmd umfangsmiklum
skipulagsbreytingum í eftiahagslífi
landsins þegar uppreisnin var gerð.
Þannig haföi ríkisstjómin áformað
að setja rúmenska gjaldmiðilinn á
fijálsan gjaldeyrismarkað þann 27.
september. Unnið var markvisst að
því að koma 6000 ríkisfyrirtækjum
í einkarekstur. Búið var að afnema
tvöfalt verðlag á bensíni og ýms-
um vamingi, þar sem útlendingar
og forréttindastéttin gátu verslað á
sérstöku dollaragengi. Og ríkis-
stjómin hafði sagt um helmingi af
stjómendum í ferðamannaþjónustu
upp störfum vegna spillingar og
gjaldeyrissvika. Þá haföi rikis-
stjómin nýlokið því verki að end-
urúthluta landi til smábænda til
einkareksturs.
Um leið vora að opnast nýjar
leiðir til efhahagssamstarfs og að-
stoðar við önnur ríki, en Petre Ro-
man þurfti meðal annars að aflýsa
mikilvægri heimsókn sinni til
Austurrikis vegna uppreisnarinnar.
Uppreisnin mun að sögn ráða-
manna hafa alvarlegar afleiðingar
fyrir þær efnahagsiunbætur sem nú
em í gangi og teQa fyrir nauðsyn-
legum umbótum um ófyrirsjáan-
legan tíma.
Yfirmaður rúmensku leyni-
þjónustunnar var hrópaður niður í
umræðum í rúmenska þinginu í
gær, þar sem hann lagði til að rík-
isstjómin segði af sér vegna upp-
reisnarinnar.
Petre Roman hafði áður lýst
því yfir að leyniþjónustan heföi
brugðist rikisstjóminni með því að
láta hana ekki vita fyrirfram um
uppreisnartilraunina. Hins vegar
þakkaði hann hemum fyrir að hafa
staðið með rikisstjóminni.
Umræðu um málið var ekki
lokið í rúmenska þinginu í gær, og
því óljóst um framtíð ríkisstjómar
Petre Romans.
ólg/reuter
Skútuvogi 10a - Sími 686700
t--------------------------------------------v
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Til leigu er frá 1. desember n.k. skrifstofuhæð
neðst við Laugaveginn.
Hæðin er um 250 fm. og leigist í einu lagi.
Tilvalið húsnæði fyrir lögmenn, vegna nálægðar
við væntanlegt dómhús.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 681993
eftir kl. 17:00 á daginn.
V 4
Siða 7
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. október 1991