Þjóðviljinn - 02.10.1991, Side 1
188. tölublað Miðvikudagur 2. október 1991 56. árgangur
■■ÍlTriBl
Mynd: Jim Smart.
fp ms i i, ’■ . lí 'BíMÍ |f!3 j
Engin skólagjöld
- enga vexti!
Þúsundir námsmanna söfnuðust saman framan við Alþingis-
húsið þegar Alþingi var sett í gær og hrópuðu: Engin skóla-
gjöld! Engin skólagjöld! Mótmælastaðan var skipulögð af Fé-
lagi framhaldsskólanema og samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna þriggja í þeirn tilgangi að vekja athygli á og mótmæla
hugmyndum ríkisstjórnarinnar um skólagjöld og áformum um ný
lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem gera ráð fyrir að vextir
verði á lánum og endurgreiðslutími verði styttur mjög.
Námsmenn þögðu á meðan
þingmenn gengu frá kirkju í þing-
húsið en hófú síðan söng og hróp-
uðu: „Engin skólagjöld!" og
hvöttu menntamálaráðherra til að
koma út.
Reiður námsmaður kastaði
tveimur eggjum í þinghúsið
skömmu eftir að þingmenn höfðu
gengið inn.
Mótmælastaðan varði í tæpa
ldukkustund en þá var útséð um að
ráðherrann sýndi sig og hurfu
námsmenn þá á braut.
„Samstaðan var gífúrleg og við
erum ánægð með hvemig til tókst.
Meiningin var ekki að vera með
nein iæti heldur vildum við með
þessu sýna fram á samstöðu nem-
enda,“ sagði Ingvar Sverrisson,
formaður Nemendafélags Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, en það-
an komu um 7-800 nemendur á
Austurvöll.
Áður en mótmælastaðan hófst
afhentu formenn tíu skólafélaga
Ólafi G. Einarssyni menntamála-
ráðherra mótmæli sem voru undir-
rituð af um 5500 framhaldsskóla-
nemum.
í yfirlýsingu frá samstarfs-
nefnd námsmannahreyfinganna
segir að hugmyndir um skólagjöld
gangi þvert á rikjandi stefnu i
menntamálum og vegi beinlínis að
rótum velferðarkerfisins. Þá er
bent á að vandi LÍN eigi rót að
rekja til þess að lán sem veitt hafi
verið á meðan þau voru ekki verð-
tryggð hafi ekki skilað sér og í
öðru lagi hafi ríkisvaldið fjármagn-
að sjóðinn æ meira með lántökum í
stað ríkisframlags.
Námsmenn segja óþolandi að í
hvert sinn sem skipt sé um ríkis-
Baldvin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri hins nýja fyrirtækis,
segir að starfsmenn þess verði
samtals eitthvað um 130 í tveimur
deildum, vefnaðar- og fatadeild.
Það eru nokkuð færri starfsmenn
heldur en þegar mest var að gera
hjá Álafossi hf. á sínum tíma, en
þá unnu hjá fyrirtækinu nyrðra um
200 manns. Stefnt er því að hlutafé
Foldu hf. verði um 60 miljónir
króna og hafa þegar safnast hátt í
40 miljónir.
stjóm eigi þeir yfir höfði sér
grundvallarbreytingu á sínum hög-
um. Öll lög þurfi tíma til að virka
og lögin um LÍN frá 1982 séu eng-
in undantekning þar á.
„Það eru tæp tiu ár síðan sett
vom ný Iög um sjóðinn en hann
fær aldrei þann tima sem til þarf til
að það sjáist hvað í lögunum felst,“
segir Bjami Ingólfsson, formaður
Bandalags íslenskra sérskólanema.
„Ríkisendurskoðun hefúr í sinni
skýrslu sagt að staða sjóðsins sé
ekki svo slæm. Aðalvandinn liggur
í gömlu óverðtryggðu lánunum og
að fjármögnunin hefur verið
rammvitlaus. En námsmenn fá
ekki einu sinni að láta í ljós skoð-
anir sinar eða hafa áhrif á eigin
Framkvæmdastjórinn segir að
Folda hf. muni ekki verða eins háð
Rússlandsmarkaði með,sölu fram-
leiðslunnar og var hjá Álafossi hf.
því ætlunin sé að einbeita sér í
vaxandi mæli að vestrænum mörk-
uðum. Baldvin sagði að þótt mikil
bjartsýni ríkti í herbúðum hins nýja
fyrirtækis væri Ijóst að enn væm
mörg ljón á veginum og mörg
vandamál sem þyrfti að takast á
við. Hann sagði að Folda hf. yrði
að sjálfsögðu rekin með hagnaði,
mál. Við eigum engan fulltrúa í
hópnum sem er að vinna tillögur
að nýjum lögum og það eru vinnu-
brögð sem við fordæmum.“
„Það alvarlegasta í tillögum
um ný lög er að endurgreiðslutím-
inn verði styttur í tíu ár og að end-
urgreiðslur hefjist strax ári eftir
námslok. Með því er ungu fólki
sem er að koma úr námi gert
ókleift að koma sér þaki yfir höf-
uðið. Fólk lendir inni í húsbréfa-
kerfinu með þessa skuldabyrði og
matið þar byggist á því,“ segir Sig-
þór Ari Sigþórsson stúdentaráðs-
fúlltrúi.
enda gerðu rekstraráætlanir ekki
ráð fyrir öðru.
Stærsti hluthafi í Foldu hf. er
Framkvæmdasjóður Akureyrarbæj-
ar með tæpar 20 miljónir króna og
jafnframt er þess vænst að
Byggðastofnun leggi fram 12 milj-
ónir króna en ákvörðun þar að lút-
andi var frestað á stjómarfundi
stofúunarinnar í fyrradag. Aðrir
hluthafar í hinu nýja fyrirtæki em
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, sem
hefur haft veg og vanda að stofnun
þess, Lífeyrissjóður Iðju, KEA,
Iðja, Stéttarsamband bænda, Höld-
ur, Samskip, Islenskur skinnaiðn-
aður, ÚA og Eyjafjarðarsveit.
-grh
-vd.
Folda tekin til starfa
•^gær tók til starfa á Akureyri nýtt ullarvinnslufyrirtæki, Folda hf.
IFyrirtækið tekur yfir þann rekstur sem Landsbankinn hefur haft
á sinni könnu frá því Álafoss hf. varð gjaldþrota, en áður höfðu
samningar tekist við bankann um kaup á tækjum, búnaði og
leigu á húsnæði undir starfsemina.
Lífskjör
á Vestur-
löndum verst
í Banda-
ríkjunum