Þjóðviljinn - 08.10.1991, Qupperneq 5
íf
Engar sérstakar aðgerðir til
bjargar sjávarútveginum
Jóhann Ársælsson, Abl., gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega fyrir stefnu hennar i byggðamálum i utandagskrárum-
ræðu um sjávarútvegsmál á Alþingi ( gær. Mynd: Kristinn.
Umræða utandagskrár
um sjávarútvegsmál,
sem fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins báðu um,
snerust meira um efnahags- og
byggðamál en sjávarútvegsmál.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu stjórnina fyrir þá
stefnu að ætla ekki að styrkja
fyrirtæki og byggðarlög sem
ættu í erfíðleikum eða það sem
þeir kölluðu „kemur mér ekki
við“ stefnu stjórnarinnar, í um-
ræðunum sem fóru fram í gær.
Þorsteini Pálssyni sjávarút-
vegsráðherra varð tíðrætt um að
leiðin til að bregðast við vanda
sjávarútvegsins vegna aflasam-
dráttar væri að draga úr lánsfjár-
þörf hins opinbera og skapa þannig
svigrúm fyrir sjávarútveginn, sem
og að draga úr rikisumsvifum.
Hvorttveggja þyrfti til, svo treysta
mætti grundvöll atvinnuvegarins,
sagði Þorsteinn. Hann beindi orð-
um sínum einnig til sveitarfélaga í
þessu efni og talaði auk þess um
að draga þyrfti úr einkaneyslu.
Hann vill fara almennar leiðir, ekki
sértækar í þessum efnum.
Steingrímur J. Sigfússon, Abl.,
gagnrýndi hann og rikisstjómina
fyrir að vera nú að fara þá sömu
leið og var farin 1987-’88 og taldi
það mikið óhagræði fyrir þjóðina
að láta Sjálfstæðisflokkinn komast
upp með það reglulega að sigla
þjóðarskútunni í strand. Hann
spáði næsta strandi strax haustið
1992.
Steingrímur benti á að afkoma
sjávarútvegsins hefði verið góð á
ámnum 1989-’90 vegna þess að
ríkisstjómin þá hefði tekið á vand-
anum til dæmis með því að koma á
stöðugleika í efnahagsmálunum.
Hann sagði að hávaxtastefna ríkis-
stjómarinnar nú væri stór hluti
vandans, sem og gengisstefna sem
hefði árið 1988 siglt öllu í strand.
Þorsteinn hélt því hinsvegar fram
að síðasta ríkisstjóm hefði ffestað
vandanum, ekki læknað hann, auk
þess sem þá hefði verð á erlendum
mörkuðum verið gott og gengis-
þróun hagstæð.
Jóhann Arsælsson, Abl., sem
hóf umræðuna hvatti til hagræð-
ingar í sjávarútveginum og gagn-
rýndi sérstaklega kvótakerfið þar
sem það væri líklegt að vegna þess
kerfis væri miklum afla hent fyrir
borð. Hann boðaði að Alþýðu-
bandalagið myndi leggja fram
þingsályktunartillögu þess efnis að
allur afli yrði seldur á fiskmörkuð-
um hérlendis áður en hann yrði
fluttur út. Þorsteinn kvað þetta vel
athugandi, þó það gæti haft sína
ókosti, til dæmis að meiri afli færi
út óunninn vegna þess að ekki nyti
við Aflamiðlunar né aflaskerðinga
gegn sölu erlendis.
Jóhann vildi fá skýr svör um
hvemig stjómin ætlaði að bregðast
við vanda fyrirtækja, heimila og
byggðarlaga vegna aflasamdráttar-
ins. Hann fékk þau svör að draga
ætti úr lánsfjárþörf hins opinbera
og að á meðan ynni Byggðastofn-
xm að sínum verkum einsog stofn-
unni bæri. Þorsteinn var eini
stjómarliðinn er tók til máls í um-
ræðunni.
Anna Olafsdóttir Bjömsson,
Kvl., tók undir gagnrýni á byggða-
stefnu ríkisstjónarinnar og lagði til
að komið yrði á byggðakvóta til að
treysta byggð í landinu. Hún gagn-
rýndi stjómina fyrir að auka gjald-
töku á sjávarútveginn á sama tíma
og hann ætti í stórkostlegum vand-
ræðum vegna aflasamdráttarins.
Hafrannsóknastofhun er ætlað að
fjármagna sig með um 600 miljón
króna þjónustugjöldum teknum af
sjávarútvegsfyrirtækjum, en það
bætist ofan á 7-9 miljarða króna
tekjutap sjávarútvegsins vegna
minnkandi afla. Anna sagði að sá
peningur ætti greinilega ekki að
fara í pyngju starfsfólks fiskvinnsl-
unnar sem sannarlega þyrfti á því
að halda.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Frfl., varði kvótakerfið fyrir gagn-
rýni og sagði ekkert kerfi galla-
laust, en ekki þýddi í staðinn að
veifa töfralausnum einsog byggða-
kvóta, hann tók undir gagnrýni á
byggðastefnu stjómarinnar.
Umræðu varð ekki lokið er
kom að því að þingflokksfundir
ættu að hefjast og var henni frestað
um óákveðinn tima að beiðni
ffamsóknannanna. Beðið er eftir
Halldóri Ásgrímssyni fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra sem er er-
lendis, en von er á honum í kvöld.
-gpm
6* grein fjárlaga
Galopin
Yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings 1989 gagnrýna
svo kallaða 6. grein fjárlaga
og benda á að þar sé oft og tíðum
að finna heimildir til fjármála-
ráðherra og ríkisstjórnar til að
verja hundruðum miljóna króna
án þess að upphæða sé getið.
Þeir vilja að þessar opnu heim-
ildir verði þrengdar verulega og
sett verði hámark á hvern lið
fyrir sig.
Bent er til dæmis á heimild í
íjárlögum 1989 til að ganga til
samninga við Rafmagnsveitur rík-
isins og Orkubú Vestfjarða sam-
kvæmt samkomulagi frá árinu
1986 um niðurfellingu verðjöfnun-
argjalds á raforku. Þessi heimild
varð til þess að útgjöld rikissjóðs
jukust um rúmlega 3,5 miljarða
króna. Skoðunarmennimir og Rík-
isendurskoðun gagnrýna að fyrir
þessu var ekki gerð nein töluleg
grein í fjárlagafrumvarpinu.
Þessar heimildir gera það því
að verkum að áætlanir fjárlaga
verða óraunhæfar og erfitt að bera
saman fjárlögin og ríkisreikning
þegar hann kemur út.
í fjárlagafmmvarpinu fyrir
1992 er að finna ýmsar svona
heimildir. Fjármálaráðherra er
heimilt að kaupa Hótel Valhöll á
Þingvöllum og taka til þess nauð-
synleg Ián, honum er heimilt að
kaupa húseignir og lóðir í nágrenni
Amarhvols fyrir Stjórnarráðið,
kaupa og leigja skrifstofur fyrir
ráðuneytin og að kaupa eða taka á
leigu húsnæði ásamt nauðsynleg-
um innréttingum fyrir ósakhæfa,
geðsjúka afbrotamenn og taka til
þess lán, svo nokkur dæmi séu tek-
in.
Verði frumvarpið að lögum
verður einnig að lögum að fella
megi niður aðflutningsgjöld af sér-
búnum bifreiðum fyrir fatlaða, að
leita megi samninga um kaup á
steinbijót til að mylja nýmasteina
og gallsteina, svo dæmi séu tekin.
Einnig em fjölmargar heimildir til
ráðherra um að selja hinar og þess-
ar eignir ríkisins, svo sem hluta-
bréf í Gutenberg hf. og húsnæði
Sölu vamarliðseigna.
I 1. til 5. grein íjárlaga er að
finna áætlun um sundurliðuð gjöld
og tekjur rikissjóðs ásamt lána- og
fjármunahreyfingum ríkisins. En í
6. greininni, sem er sú síðasta í
frumvarpinu, er einungis að finna
almennt orðalag um fjárútlát án
þess að peningaupphæða sé getið
og gerir það þá grein gjörólika hin-
um.
-gpm
Hagur neytenda fyrir borð borinn
Stjórn Neytendasamtakanna
hefur mótmælt þeirri
ákvörðun samgönguráðu-
neytisins að hafna beiðni flugfé-
lagsins SAS um sex nátta far-
gjald til Norðurlanda og koma
þannig í veg fyrir að neytendur
geti keypt ferðir á lægra verði en
nú er. Að mati samtakanna er
þessi afstaða ráðuneytisins and-
stæð hagsmunum neytenda og
með öllu ósamrýmanleg sjónar-
miðum um frelsi í viðskiptum og
bann við samkeppnishömlum.
Birgir Þorgilsson formaður
Flugeftirlitsnefhdar segir að helsta
röksemd þeirra gegn umsókn SAS
sé einfaldlega sú að með því að
fallast á hana hefði það veikt stöðu
Flugleiða. Birgir segir að til langs
tíma litið sé mikilvægt fyrir Islend-
inga að hafa öflugt innlent flugfé-
lag í stað þess að horfa einatt til
skammtímasjónarmiða, eins og
mótmæli Neytendasamtakanna
bera vitni um. Formaður Flugeftir-
litsnefndar segir jafnframt að þó
svo að nefndin hafi ekki fallist á
beiðni SAS
var hin endanlega ákvörðun
þar að lútandi tekin af hálfu sam-
gönguráðuneytisins.
Stjórn Neytendasamtakanna
telur að með þessari ákvörðun
sinni hafi samgönguráðuneytið
komið í veg fyrir að neytendur geti
keypt ferðir á lægra verði en nú er
og hamlað gegn eðlilegri sam-
keppni í millilandaflugi. Samtökin
telja það óhæfu að stjómvöld skuli
banna breytingar á verðlagningu í
millilandaflugi til að halda uppi
verði og um leið hindra eðlilega
samkeppni. Þess í stað eigi sam-
gönguráðuneytið að sjá til þess að
Islendingar sitji við sama borð og
aðrir, en ekki að stuðla að því að
takmarka samkeppni, banna hana
og halda uppi háu verði á þessari
þjónustu.
-grh
Össur Skarphéöinsson þingflokksformaöur Alþýðuflokksins styður ekki fjár-
lagafrumvarpiö, a.m.k. ekki þá liöi sem kveöa á um skólagjöld. Mynd: Kristinn.
Ekki meirihluti fyrir
skólagjöldum
Ekki er þingmeirihiuti fyrir
fjárlagafrumvarpinu einsog
það er, en klofningur er í
stjórnarliðinu um skólagjöld. „Ef
menn vilja láta reyna á þingstyrk
í þessu máli þá er það þeirra
mál,“ sagði Össur Skarphéðins-
son þingflokksformaður Alþýðu-
flokksins varðandi þá staðreynd
að kveðið er á um skólagjöld í
frumvarpi til fjárlaga þrátt fyrir
skýra og ótvíræða andstöðu fjög-
urra þingmanna Alþýðuflokksins.
Greiði þau ekki atkvæði með
ákvæðum í frumvarpinu um
skólagjöld er ekki meirihluti fyrir
þeim á Alþingi.
„Við munum standa við það
sem við höfum sagt, afstaða okkar
er óbreytt. Við erum á móti því að
það sé verið að taka skólagjöld í rík-
ari mæli til að standa undir rekstri
skóla. Það er gert i ákveðnum mæli
með efhis- og innritunargjöldum og
við höfum ekki lagst gegn því,“
sagði Össur og minnti á bókun þar
sem hluti þingflokks Alþýðuflokks-
ins áskildi sér rétt til að taka af öll
tvímæli varðandi skólagjöld með
því að leggja fram frumvarp á þingi
sem bannaði skólagjöld. Um er að
ræða skólagjöld í framhaldsskólum
iandsins og háskólum allt að 250
miljónum króna á næsta ári, sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu.
Hann sagðist mjög óánægður
með að skólagjöld væru inni í frum-
varpinu nú sérstaklega þar sem hann
hefði skýrt Ólafi G. Einarssyni
menntamálaráðherra frá andstöðu
sinni og annara þingmanna bæði
munnlega og skriflega.
Það ætti þannig ekki að koma
neinum á óvart að við munum vera
á móti þessu. Við spyijum að leiks-
lokum, sagði Össur. Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra hefur lýst því
yfir að hann telji að ekki sé meiri-
hluti fyrir fjárlagafrumvarpinu
óbreyttu. Össur vildi engu svara um
hvort vinna við frumvarp um bann
við skólagjöldum væri farin af stað
eða ekki. -gpm
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. október 1991