Þjóðviljinn - 29.10.1991, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 29.10.1991, Qupperneq 2
Sambúð ríkis og kirkju ’irkjuþingi, sem staðið hefur undanfarna daga, er lokið. Umfjöllun um þingið í Ijölmiðlum hefur ver- Uð venju meiri og kemur þar margt til. Kirkjan og trúarbrögðin almennt séð hafa hlutverki að gegna í samfélaginu. í daglegum störfum sínum þurfa kirkiunnar menn að breyta þannig að trú manna glatist ekki oa trúnaðartraust ríki millum þeirra og þegna þjóðféíagsins. Biskup íslands vakti á Kirkjuþingi athygli á alvar- legu máli, sem bn/nt er að bæði kirkjan og veraldleg stjórnvöld takist á við, en það er mikill fjöldi sjálfsvíga, serstaklega ungra manna, undanfarin misseri. Rök hníga að því að kapphlaupið um veraldleg gæði eigi þar allnokkra sök. I ræðu sinni á þinginu sagði herra Ólafur Skúlason biskup m.a.: „...Við Dendum á það, að fleira stuðlar að velferð, heldur en það sem talið er í krónum eða vegið í tonnum... Við tökum því undir með séra Sigríði Guðmarsdóttur á Súgandafirði, þá hún kvartar undan áhrifum neikvæðrar umræðu á sóknarbörnin. Þar hefur skort reisn í krónuumfjöllun og virðingu fyrir manninum og framlagi hans og vilja, og ekki birtist aðeins í ytri kjörum, heldur innri líðan." Það vekur því furðu að fyrirferðarmesta umfjöllun af Kirkjuþingi snýst einmitt um krónur og aura, hin ver- aldlegu gæði, þar sem kirkjan ætti öðrum fremur að beina umræðunni á hærra plan. En því miður hafa sumar kirkjulegar athafnir snúist upp í kapphlaup um veraldlea gæði, þó það sé síður en svo ætlan kirkj- unnar. Nlægir þar að nefna til sögu fermingar sem í raun eru orðnar að geandarlausu peningaplokki og væri verðugt verkefni fyrir kirkjuna að sporna gegn þeirri óheillaþróun. Eða er það e.t.v. svo að fóík faist ekki lengur til að hugsa um andleg og kirkjuleg mál- efni nema því fýlgi von um veraldlegan ávinning? Alvarlegar voru ásakanir biskups á hendur stjórn- málamönnum er hann fjallaðj um fiárhagsleg tengsl ríkis og kirkju. Þegar biskup íslands sér ástæðu til að þjófkenna ráðherra, ekki einn heldur fleiri, en fyrirgefur yfirsjónina þá borgun er boðin, er illt í efni. Þá nljóta sambúðarmál ríkis og kirkju að verða tekin til rækilegr- ar umfjöllunar. Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra, sem ber stjórnskipulega ábyrgð á pví að markaðar tekjur kirkj- unnar skili sér ekki samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar, bauð í ræðu sinni á Kirkjuþingi að ríkið skilaði kirkjunni þeim jörðum sem teknar voru af henni fyrr á öldum. Biskup hefur faanað þessari yfirlýsingu ráðherrans, og talað er um allar kirkjujarðir frá siða- skiptum, sem munu vera um 400 talsins. Rétt er það að kirkjan réð á sinni tið yfir allmörgum jörðum, en spyrja má hvaða rétt kirkjumálaráðherra nefur til að skila kirkjunni þessum jörðum. Hvernig áskotnuöust kirkjunni þessar jarðir í upphafi? Á þá Akraneskaupstaður allur og Álftanesið að flytjast undir geistlega yfirstjórn? Er ekki rétt að staldra hér aðeins við? Biskup tók þessi fjármálalegu samskipti ríkis og kirkju til umfjöllunar a Kirkjuþingi og þá er eðlilegt að spurt sé: Er ekki rétt aö taka alla sambúð ríkis og kírkju til skoðunar? Á hinum Norðurlöndunum hafa biskupar sett fram þau sjónarmið að eðlilegt sé að ríki og kirkja verði skilin að og sumir þar telja reyndar lík- legt að sá skilnaður muni fara fram fyrir aldamót. Þeg- ar kirkjan óskar eftir meira sjálfstæði, ekki síst verala- legu, hlýtur hún að þurfa að svara þeirri spurningu sjalf hvort hún telur núverandi sambúðarform heppi- legt. Eða hvort hún vill e.t.v. sjálf hafa frumkvæði að aðskilnaði við ríkið. Kirkjumálaráðherra verður líka að svara því hvert hann ætlar sér með því að afhenda kirkjunni fornar kirkjujarðir. Er hann kannski,að stíga fyrsta skrefið að aðskilnaði ríkis og kirkju? Á einka- væðingarherferð ríkisstjórnarinnar að ná til þjóðkirkj- unnar? Eða var yfirlýsing hans á Kirkjuþingi einfald- lega bara aflátsbréf? ÁÞS Þíóðviliinn Málgagn sóslalisma þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páli Jónsson. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guðmundsson Ritstjómarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Á. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiðsla, augiýsingar: Síðumúla 37, Rvík. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu: 110 kr. Nýtt Helgarblað: 170 kr. Áskriftarverð á mánuöi: 1200 kr. UPPT & SKOMÐ Ungmeyjaball í París Hvað eigum við að gera við öll þau ósköp sem yfir okkur ryðjast í fjölmiðlum? Satt best að segja spyijum við sjaldan að því. Þetta er svo mikill flaumur og þungur, að maður tek- ur svosem ekki eftir mörgu. Það er að segja: það er fátt sem vekur viðbrögð. Allt er orðið að ein- hverskonar veðurfari, einhvers- konar náttúrulögmali sem enginn nennir að bregðast við. Svona er þetta og svona verður þetta, og jamm og jæja. Nefnum lttið dæmi. Það var kona að segja okkur frá glæsilega myndskreyttri ffásögn í ffönsku blaði. Tilefnið var ungmeyjaball hjá flnu fólki í París. Fimmtán eða tuttugu stúlkur voru leiddar ffam í sviðsljósið sem „byrjendur“ i sam- kvæmislífi. Þetta er gamall siður, ættaður ffá aðlinum sjálfsagt. Til- gangurinn var sá, að minnsta kosti hér áður fyrr, að benda á ungar meyjar sem nú væru komnar á giftingarmarkað og draga til þeira athygli ungra manna úr réttri stétt og stöðu. Miljón króna kjóll Parísarstúlkumar voru í sínu besta skarti vitanlega. Þess var getið sérstaklega að hver kjóll væri sérhannaður og kostaði svo- sem miljón krónur. Og kjóll er vit- anlega barasta partur af fjárfest- ingunni í þessari ungmeyjakynn- ingu: menn geta svo bætt við skartgripum og veisluhaldinu sjálfu og mörgu fleiru. Þetta ungmeyjaball í París er svosem ekkert sérstakt. Drjúgur hluti blaða heimsins lifir á sam- kvæmisleikjum af þessu tagi. Það eina sem heita má óvenjulegt í þessu dæmi er það, að einhver kona fann ástæðu til að nema stað- ar og spyrja: Er þetta bruðl ekki hneyksli? Er það ekki rangt? Og hún hafði þá hugann við neyð og fátækt heimsins (og margra í Frakklandi sjálfu) og herfilegar andstæður milli þess heims og þess feiknadýra glingurs sem hengt er utan á nokkrar stúlku- kindur til að sýna að þær tilheyri þeim sem eiga Frakkland (og heiminn). Það undarlega Það undarlega er semsagt ekki það að í höfuðborgum sé haldið ungmeyjaball, að efht sé í „veislu meðan plágan geisar“. Það er eitt- hvað sem allir eru vanir. Það skrýtna er að einhver skuli taka sig til og hneykslast. Því svo vel tamdir eru notendur fjölmiðla nú til dags, að þeim dettur ekkert slíkt i hug lengur. Meira en svo: það er líklegast að þeir eða þær sem aldrei munu nálægt munaði „ung- meyjaballa" koma, þau séu hrifn- ust af sjónarspilinu. Og ef að nokkur þanki kviknar meðan flott- ar myndir eru skoðaðar, þá væri það helst Öskubuskuþankinn: Ein- hver okkar mun kannski komast í þennan félagsskap - ef prinsinn og heppnin eru með. Efnilegur rekstur Nú er rnikið rætt um það hvaða atvinnugreinar eru líklegar til að dafna og eflast. I því sam- hengi er ekki úr vegi að benda á viðtal sem birtist nýlega í þýska blaðinu Spiegel. Það er við for- stjóra fyrirtækis sem gengur vel. Forstjórinn, sem er kona, rekur nefnilega dýra vændisþjónustu. Hún hefur á boðstóluni úrvalskon- ur, vel menntaðar, mæltar á tvö- þrjú tungumál. Þær kosta þúsund dollara minnst og 1500 fyrir heila nótt. Oft niun meira. Forstjórinn var nijög bjartsýn á ffamtíðina. Hún taldi sig vera á réttu róli i rekstri og fjárfesting- um. Það er nóg af ríkum körlum á sveimi, sagði hún, og þeir hafa all- ir svo mikið að gera að þeir mega ekki vera að því að standa í ástar- ævintýrum sér til dægradvalar. Þeir vilja fá sína vöm, sína kyn- ferðislegu þjónustu, í besta gæða- flokki, og það strax. Geta bara hringt og sagt: Eg verð í New York í þijá daga: sendu mér eina flugleiðis. Peningar eru ekkert vandamál (enda hægur vandi að koma útgjöldum undir risnu eða annan kostnað eins og hver maður getur sagt sér sjálfúr). Forstýran segir:, „Eg tel að ástin plumi sig best eflir minni formúlu. Hún stendur stutt, hún er æsileg, leikræn (svið- sett), og því finnst karlmönnunum að þeir hafi upplifað eitthvað al- veg spes.“ Vændi án kynlífs En nú er frá því að segja að í samtalinu kemur það einmitt í Ijós að þetta pöntunarkynlíf er ekki endilega „æsilegt". Gefum rekstr- arstjóranum hamingjusama (hún tekur sjálf 30% af viðskiptunum) orðið: „Það er tölvert af körlum sem vilja ekkert kynlíf, heldur bara samtöl. Þeir vilja fá stúlku í þrjá- fjóra daga meðan þeir eru í bisness í París, Tokío eða New York og þeir fá enga kynlífslyst. Um það bil 30% viðskiptavinanna vilja hafa fallega konu við hlið sér og sýna hana. En ekkert sex. Það er ekki alltaf vegna þess að þeir vilji þetta sjálfir. Á síðustu árum er komin ný tegund viðskiptavina. Það er Uppinn. Þessir menn á upp- leið eru kannski hálffertugir og þeir eru undir feiknastressi við að standa sig og halda sér oft uppi á kókaíni. Og kyngetan er sem næst i núlli. En einmitt þeir leggja mikla áherslu á makalaust fallegar stúlkur." Imyndin og veruleikinn Nú geta einhveijir illkvittnir menn glott út í annað munnvik eða bæði: þetta finnst þeim mátu- legt á þotuliðið - það getur ekki einu sini hafit ánægju af því kynlífi sem það kaupir sér. Svo má halda áffam út og suður með þetta efni: hér erum við enn og aftur komin að því, að eins og Milan Kundera hinn tékkneski segir, þá lifúm við í heimi ímyndana. Veruleikinn skiptir ekki máli, heldur sú ímynd sem hver og einn vill hafa. Til dæmis þarf bisnessmaður á upp- leið að sanna sinn status út á við með því að láta sjá sig á dýrum stað með fallegri stúlku. Hvað er á bak við, skiptir ekki máli. Ung- meyjaballið sem áðan var á minnst, það er lika eitt tilbrigðið við ímyndanasti iðið - samkvæmið er haldið til þess að minna á það fyrir ffaman myndavélar að til- teknar fjölskyldur eru í tilteknum gæðaflokki: sönnunin er í upp- hæðinni sem fer í að sauma kjól á gjafvaxta dóttur. Og svona marsérar vitleysan, sagði meistarinn. Eins gott að við mörlandar fýlgjumst vel með, við stígum nú orðið svo merkileg menningarspor. Við erum á hraðri leið til að sameinast heiminum og út úr sveitamennskunni sem hefúr ekki ráð á alminnilegum kjól og hefúr enn ekki náð skikkanlegum verðflokkum í vændi. Ef mönnum fmnst þessi síðasta setning ókurt- eisi, þá skal minnt á það, að tima- ritið Frelsi (sem nú mun dautt) birti ekki alls fyrir löngu grein þar sem það var útlistað fynr okkur sveitamönnunum að vændi, mútur og eiturlyfjasala væru eins og hver önnur þjónusta á markaði, sem engin sérstök ástæða væri til að meta eftir öðru en framboði og eft- irspum. ÁB ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. október 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.