Þjóðviljinn - 17.12.1991, Síða 3

Þjóðviljinn - 17.12.1991, Síða 3
IBAG 17. desember er þriðjudagur 351. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 11.18 - sólariag kl. 15.30. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Nýtt Dagblað: Gufuvélar teknar úr fiskiskipum og dieselvélar settar í stað- inn. Nú í dýrtíðinni og mannfæðinni, er verið að framkvæma það, sem þingmenn Sósíalista- flokksins lögðu til að væri gert fyrir stríð. fyrir 25 árum Mikið pex en hægur gangur á þingmálum. Ed- ward Heath á pressuballi. Tillaga um stöðvun flot- ans var dregin til baka í gær. Sjómenn hafa ein- róma mótmælt kjara- skerðingu. Sá spaki Hann var svo stundvís að það var hægt að stilla sól- ina eftir honum. (Cristopher Fry) á sameiningu Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinnar Jón Kjartansson, for- maður Verkalýðsfé- lags Vestmannaeyja Þessi sameining er til þess að bjarga fyrirtækjum frá því að fara undir hamarinn og sæ- greifamir voru knúnir til þessa vegna þrýstings frá Islands- banka. Ég hef verið fúllvissað- ur um að það komi ekki ti! fækkunar á okkar fólki. En því miður hafa bæði fyrirtækin verið að senda fólk heim vegna hráefnisskorts og ég ef- ast um að það breytist. Stjóm- armenn í þeim báðum eiga skip sem þeir láta aldrei landa í heimahöfn en flytja allt á er- lendan markað. Ég veit ekki hvort þetta breytir nokkm öðm en því að toppamir í Islandsbanka sofa rólegir á eftir. Verkalýðshreyfmgin barðist mikið fyrir því að verkafólk legði sitt sparifé í þennan banka sem er síðan að lemja á okkur sýknt og heilagt. Síðan hann varð að hlutafélagi hefur hann ekki gegnt skyldu sinni sem banki fyrir sjávarútveg og aðeins passað að taka enga áhættu. Auðvitað er það hagur verka- fólks ef fyrirtækin em fjár- hagslega sterk. En það er ekki þar með sagt að allt sem er stórt sé gott. Þórir Karl Jónasson skrifar Dagsbrún blæs til sóknar Samningar flestra laun- þega hafa verið lausir síðan í september og ekk- ert hefur þokast í sam- komulagsátt. Verkamannafélag- ið Dagsbrún hefur boðað til skyndiverkfalla nú í desember, sem eðlilegt er, því atvinnurek- endur hafa marglýst því yflr að samningar um aukinn kaup- mátt komi ekki til greina. Það á semsagt að reyna að bjóða Dagsbrúnarmönnum núll- samninga eina ferðina enn, á sama tíma og ríkisvaldið boðar hækkanir á öllum „þjónustu- gjöldum“ ríkisstofnana. Það sér hver heilvita maður að svona getur þetta ekki gengið öllu lengur, þessvegna blæs Dagsbrún til sóknar. Það er ekki líðandi að verkafólk þessa lands sé niðurlægt aftur og aftur og boðið uppá núll-samninga. Dags- brúnarmenn láta ekki bjóða sér þetta ástand öllu lengur og núll- samningar yrðu aldrei samþykktir í félaginu. Það hlýtur að vera krafa verkalýðshreyfmgarinnar að allir einstaklingar hafi sama rétt til náms og læknisþjónustu, og annarrar samfélagslegrar aðstoð- ar, óháð efnahag fólks. Þess vegna verður það að vera krafa í komandi samningum að sjúk- lingaskattur og námsmannaskatt- ur verði afnumdir. Af hverju er alltaf reynt að fara í vasa lág- launafólks? Vegna þess að verka- lýðshreyfíngin hefur ekki staðið sig nógu vel að verja kjör lág- launafólks, og er það mikið til fólkinu í verkalýðsfélögunum sjálfu að kenna. Launafólk al- mennt verður að sinna frum- skyldu sinni, sem er að taka þátt í störfum félaga sinna, því ef það er ekki gert getur maður ekki sak- ast við neinn annan en sjálfan sig. Það er ekki hægt að ætlast til þess að maður fái allt fært til sín á silf- urfati vegna þess að verkalýðs- pólitík er unnin af íjöldanum og er fyrir fjöldann. Verkalýðshreyf- ingin verður að gera það að kröfu sinni að ríkisvaldið geri rekstrar- skilyrði atvinnuveganna raunhæf til þess að þeir geti borgað mann- sæmandi laun, keyri niður vextina sem allt eru að drepa. Núverandi ríkisstjóm beitir niðurskurðar- hnífnum mikið þessa dagana og er sem fyrr fjármagnseigendum hampað og verðbréfabröskurum. Einnig hefur hún lýst því yfir að hún ætli að selja hin ýmsu ríkis- fyrirtæki, og ekki em það skussa- fyrirtækin sem þeir ætla að selja heldur eingöngu þau fyrirtæki sem skila hagnaði í ríkiskassann og þá þarf að skera ennþá meira niður af velferðarkerfinu. Það á sem sagt að slátra mjólkurkúnni í þágu einkaframtaks. Og hvaða einstaklingar hafa efni á að kaupa hlut í þessum fyritækjum? Er það hinn almenni launþegi, sem það mun gera? Aldeilis ekki. Kol- krabbi fjölskyldnanna fjórtán er sá eini sem hefur fjármagn til slíkra Qárfestinga, og á þetta fólk nóg fyrir svo ekki sé meira sagt. Það verður að myndast um það pólitísk samstaða að koma núver- andi ríkisstjóm frá, því hún er þjóðhagslega hættuleg almenn- ingi þessa lands í öllum gmnd- vallar atriðum. Flestir ráðherrar hennar em rúnir trausti almenn- ings, því hún ætlar að reyna að þvinga þjóðina inn í EB án þess að spyija hana um það. Þar er reynt að beita sömu bolabrögðum og þegar Island gekk í Nato, og einhvem tímann hefði það flokk- ast undir landráð. Auðvitað bera kjósendur nú- verandi rikisstjómarflokka þama mikla ábyrgð því einhverjir hljóta að hafa kosið þá til valda. Verkamannafélagið Dagsbrún er gamalt og sterkt félag, og hefur meðal annars átt stóran þátt i því að byggja upp velferðarþjóðfélag á Islandi. Það hefúr kostað mikla baráttu og mikið strit og Dags- brún getur aldrei þolað það að uppbygging veelferðarþjóðfélags- ins sé brotin á bak aftur með einu pennastriki i þágu auðmagnsins. Nú blæs Dagsbrún til sóknar á ný og ætlar að standa vörð um hagsmuni alþýðunnar, og hafnar samningum um ekki neitt. Þess má geta að Dagsbrún gengur sem ein heild í komandi átök, og hefúr gömlum erjum verið ýtt til hliðar til að tryggja samstöðuna meðal félagsmanna. En Dagsbrún getur ekki ein dregið klafann og önnur verkalýðsfélög verða að sýna samstöðu og samfylkja með Dagsbrún. Sam- fylkja gegn þeim öflum sem vilja ekki semja við verkalýðs- hreyfinguna. Ég skora á öll verkalýðsfélög að hrinda árás- um ríkisstjómar- innar og sækja fram á við fyrir bættum lífskjör- um og réttlátara þjóðfélagi. Tíma undanhalds er Iokið. Það verð- ur að reyna að tryggja pólitíska samstöðu um að koma núverandi rikisstjórn frá sem allra allra fyrst. Dagsbrúnar- menn og annað launafólk, sigur fæst með samstöðu. Höfundur er Dags- brúnarmaður. Verkamannafélagið Dagsbrún er gamalt og sterkt félag, og hefur meðal annars átt stóran þátt í því að byggja upp velferðarþjóðfélag á Islandi. Það hefur kostað mikla baráttu og mikið strit og Dags- brún getur aldrei þolað það að uppbygging velferðarþj óðfélags - ins sé brotin á bak aftur með einu pennastriki í þágu auð- magnsins. ÞlÁMPUR SKEIFAK Heimaskítsmát Nú er eina ferðina enn komið rutl á strákana í Brussel. Eftir margra missera japl og jaml og fuður átti að vera kominn á samningur um evr- ópskt efnahagssvæði. Til að koma þessum samningi saman eyddu margir menn mikilli orku, ómældum tíma og álit- legum fúlgum fjár. Ekki þarf að fara mörgum orðum um ár- angur íslensku samningamann- anna. Samkvæmt skilningi sjálfs utanríkisráðherrans unnu samningamenn slíkt af- rek við samningaborðið, þar sem EB-menn sátu hinum meg- in, að til einskis er að jafna. Við fengum bókstaflega allt fyrir nákvæmlega ekki neitt, að sögn ráðherrans, og er ekki vitað til þess að fyrr í mann- kynssögunni hafi verið gerðir slíkir samningar milli þjóða. Nú er sem sagt komið í ljós að utanríkisráðherrann hafði lög að mæla. Það er ekki nóg með það að við höfúm fengið allt fyr- ir ekkert, heldur tókst okkar mönnum að narra yfir til okkar part af sjálfstæði Évrópubanda- lagsins, hvorki meira né minna. Hér heima hefur stjómarandstað- an verið að halda hinu gagn- stæða fram. Samkvæmt kenning- um hennar tókst Evrópubanda- laginu að gabba okkur til að láta af hendi svo og svo mikið af okkar sjálfstæði, meðal annars góðan part af dómsvaldinu í landinu. Þegar dómarar Evrópubanda- lagsins fóru að glugga í plöggin sem undirrituð voru og áttu að skapa EES þá kom margt skrýtið í ljós. EFTA-ríkjunum hafði tek- ist að svæla yfir til sinna dómara drjúgan part af dómsvaldi EB. Þetta mislíkaði hinum skykkju- klæddu mönnum í Brússel stór- lega sem vonlegt er. Það er ann- að en gaman að vera allt í einu kominn með menn úr öðrum sóknum inn á gafl til sín að gramsa í pappirunum, þar sem öll samanlögð dómaraviska Evr- ópu er samankomin. Samkvæmt síðustu fréttum hafa dómaramir sett æðstu mönnum EB stólinn fyrir dymar og sagt: þið verðið að gera annað af tvennu, breyta Rómarsáttmálanum (sjálfri stjórnarskrá Evrópubandalags- ins) ellegar að endursemja við EFTA- löndin um EES-skrímsl- ið. Þegar betur er að gáð þá hlaut að fara svona. Einhvers- staðar í þessu mikla pappírs- og reglugerðarferlíki, sem Evrópu- bandalagið er, hlutu að finnast menn sem sáu að það gengur ekki að láta Jón Baldvin, Hannes Hafstein og félaga fara svona með verðandi heimsveldi. Að láta allt og fá ekkert í staðinn er of mikið fyrir dómara sem hafa ekkert annað að gera en að skera úr um það sem er rétt eða rangt. Er nú svo komið að embættis- menn og pólitíkusar í Briissel eru sestir á rökstóla einu sinni enn um EES-skrímslið sem engum heilvita manni dettur í hug að nokkur not séu fyrir lengur. - Strákar, hvað eigum við að gera við strákana hjá EFTA eftir dóminn? segir nú hver við annan í Briissel og verður fátt um svör. Einhversstaðar í hópnum leynist þó slyngur refur sem hefur stungið upp á því að þeir sem vilji komast almennilega inn úr kuldanum, og ganga í EB, verði að sækja um fyrir vorið. Þar með verður EES- dellan úr sögunni, því hver nennir að vesenast með efnahagssvæði, sem engin leið er að koma á koppinn, þegar mark- miðið er hvort sem er að komast í Evrópubandalagið? Með þessu gerðu þeir EB- menn sum EFTA-ríkin heldur betur heimaskítsmát. Nú verða þau að sækja um aðild að banda- laginu á næstu mánuðum og verður ekki betur séð en samn- ingum um inngöngu þeirra ljúki um svipað leyti og evrópska efnahagssvæðið verður til. Eins og gefur að skilja er mikið uppi- stand í þeim EFTA- löndum þar sem strákana hefur lengi langað til að komast í klúbbinn hjá strákunum í Brussel. Æfingin sem fólst í EES er að renna út í sandinn og ekki um annað að gera en sækja um inngöngu í klúbbinn nú þegar, ef menn ætla að vera með á annað borð. EES verður aldrei að veruleika úr því sem komið er. Við Islendingar þurfum á hinn bóginn ekki að hafa miklar áhyggjur, að minnsta kosti ekki stjómarandstaðan sem hefúr ver- ið að dubba sig upp í að vera á móti. Nú verður sennilega ekki neitt úr neinu, og þarf ekki einu sinni að hafa fyrir því að greiða atkvæði á Alþingi Islendinga. Er þá loks komið að þvi að átta sig á raunverulegum árangri samn- ingastrákanna okkar: Það er greinilegt að þeir fengu ekki allt fyrir ekkert, ekki einu sinni sumt eða dálitið fyrir ekkert. Þegar öllu er á botninn hvolft fengu þeir nákvæmlega ekki neitt fyrir afar mikla vinnu, næturlangar vökur og hetjudáðir sem hvergi verða skráðar. Og það sem meira er: þetta var langbesta niðurstað- an. - Þrándur Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. desember 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.