Þjóðviljinn - 20.12.1991, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 20.12.1991, Qupperneq 4
Mennt er máttur Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN). Frumvarpið gerir ráð fyrir umtalsverðum breytingum á hinu opinbera námslánakerfi. Meginbreytingarnar frá gildandi lögum eru þessar: - gert er ráð fýrir að námslán verði ekki einungis verð- tryggð eins og nú er, heldur beri þau 3% vexti frá náms- lokum, - endurgreiðslur eiga að hefjast einu ári eftir námslok í stað þriggja ára, - lánstími verði fjórfaldur námstími með ákveðnu hámarki í stað 40 ára nú, - félagslegt tillit er að mestu fellt niður, - hætt verður að lána námsmönnum undir tvítugu til sér- náms, þ.m.t. iðnnáms. Auk þessa eru margar minni háttar breytingar sem þó eru allar til þess fallnar að veikja stöðu námsmanna. Ástæða er til að fjalla um frumvarp þetta með tvennum hætti. Annars vegar þær efnislegu breytingar sem mennta- málaráðherra gerir tillögur um á LÍN og hins vegar máls- meðferð ráðherrans. ( sumar skipaði ráðherrann nefnd þriggja Sjálfstæðis- manna og tveggja Alþýðuflokksmanna til að endurskoða lög um námslán og námsstyrki. Sú nefnd skilaði niðurstöð- um sínum í október. Var ráðherra eðlilega harðlega gagn- rýndur fyrir að hafa ekki samráð við stjórnarandstöðuna og námsmannahreyfingarnar við svo ítarlega endurskoðun á mikilvægum málaflokki, líkt og gert var þegar núgildandi lög voru samin veturinn 1981-82. Ákvað ráðherrann að stækka nefndina og bauð samstarfsnefnd námsmanna- hreyfinganna að tilnefna einn fulltrúa en jafnframt skipaði hann einn fulltrúa frá Vöku, liðsmönnum sínum í Háskóla íslands. Nefndin fékk örfáa daga til að semja frumvarp, og reyndar fór það svo að ekkert tillit var tekið til tillagna námsmanna og liðu aðeins tíu dagar frá því nefndin var stækkuð þar til fullbúnu frumvarpi var skilað. Þessi vinnubrögð menntamálaráðherra eru vægast sagt ámælisverð og hann getur ekki ætlast til að það verði nein sátt um framtíðarskipan í málefnum Lánasjóðsins. Náms- menn höfðu sýnt það raunsæi að gera tillögur um niður- skurð á framlögum til LÍN og framkoma menntamálaráð- herra í þeirra garð er hneisa. Þær efnislegu breytingar sem menntamálaráðherra leggur til að verði gerðar á opinberri námsaðstoð eru tvenns konar. Annars vegar er um að ræða menntapólit- ískar breytingar en hins vegar breytingar sem einungis er ætlað að fylla upp í fjárlagagatið. Hingað til hefur verið litið svo á að námslán ættu ekki að bera vexti vegna þess að menntunin sem slík væri fjárfesting samfélagsins og því eðlilegt að samfélagið tæki á sig vaxtakostnaðinn. Við ákvörðun um upphæð námslána er í núgildandi lögum gert ráð fyrir að tekið sé tillit til framfærslubyrði viðkomandi námsmanns, þ.m.t. fjölskyldustærðar, námskostnaðar, en einnig tekna hans. Þetta félagslega tillit á að láta fyrir róða með því að gera það að heimildarákvæði í stað skyldu og er þá ekki lengur um það að ræða að Lánasjóðurinn sé fé- lagslegur jöfnunarsjóður. Tillagan um að endurgreiðslur hefjist strax ári eftir námslok í stað þriggja kemur sér afar illa fyrir fólk sem er nýkomið út á vinnumarkaðinn og er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Niðurfelling á lánum til sér- náms sýnir best hug núverandi stjórnarherra til slíks nám, m.a. iðnnáms og verknáms hvers konar, og er síst til þess fallin að hvetja ungt fólk til að hasla sér völl á þeim starfs- vettvangi. Allar þessar meginbreytingar á LÍN eru í and- stöðu við þann tilgang sjóðsins að tryggja öllum jafnan rétt til náms. Fjórða meginbreytingin, þ.e. tenging endur- greiðslutíma við námstíma og upphæð láns, er hins vegar ekki óeðlileg, en útfærslan eins og hún er skýrð í greinar- gerð ber þess merki að eiga fyrst og fremst að skila ríkis- sjóði einhverjum miljónum. Frumvarp menntamálaráðherra er í öllum meginatriðum fjandsamlegt menntun. Ráðherrann hefur augljóslega enga tilfinningu fyrir því að mennt er máttur og ekki verður betur séð en honum þyki mikilvægara að standa vörð um skammtímahagsmuni ríkissjóðs en langtímahagsmuni í þágu menntunar íslensku þjóðarinnar. Þess vegna er brýnt að frumvarp hans um LÍN nái ekki fram að ganga. Jafn nauðsynlegt og það er að taka lögin um LÍN til sanngjarnr- ar endurskoðunar með fullri og marktækri þátttöku allra stjórnmálaflokka og námsmannahreyfinganna. ÁÞS Uelgar i Þjóðviijinn^^ Útgefandi: Útgáfufélagiö Bjarki h.f Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar: Árni Berg- mann, Helgi Guðmunds- son. Ritstjórnarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Á. Friðþjófsson Umsjónarmaður Helgarblaðs: Bergdis Ellertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Afgreiðsla: rr 68 13 33 Auglýsingadeild: « 68 13 10-68 1331 Simfax: 68 19 35 Verð: 170 krónur í lausa- sölu Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Aðsetur: Siðumúla 37, 108 Reykjavik Bókmenntir Hinar mörgu raddir Dostojevskíjs Fjodor Dostojevskíj Karamazovbræður Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi Mál og menning 1991. Þá er sagan öll - út kominn seinni hlutinn af einhverri frægustu skáldsögu allra tíma, Karamazov- bræðrum. Og út i hött náttúrlega að rekja tíðindi hennar: það er i þessum hluta sögunnar að foður- morð er ffamið og Mítja fer á lengsta og hrikalegasta svall heimsbókmenntanna og endur- heimtir sína Grúshenku - til þess eins að vera færður í fangelsi að morgni. Og það fara fram mikil og merkileg rétarhöld sem velta við hveijum steini i öllum þeim spum- ingahaug sem tengjast boðorðinu: þú skalt ekki mann deyða. Milan Kundera er stundum að mæla með skáldsögum sem rúmi allt, skáldsögur Dostojevskíjs eru af þeim toga. Einn af feðrum Do- stojevskífræða, Leonid Grossman, komst svo að orði á sínum tíma, að þessi mikli Rússi geri sér það að meginreglu að binda saman það sem aðrir telja ekki eiga saman. Tengja til dæmis heimspekilegar játningar við sakamálaþætti, reka trúarlegt drama inn í ástarróman- inn, segja heilagra manna sögur við hlið spennusögu. Þetta rætist allt saman í Kar- amazovbræðrum. Og Dostojevskíj gerði meira en að tengja saman margar tegundir texta. Það hefur verið haft að orði, að þeir sem lesa Dostojevskíj og um hann fjalla hafi oftar en ekki numið staðar við það, að rífast við helstu persónur hans - til dæmis (van Karamazov eða þá Raskolnikov. Frekar en þeir telji sig vera að glíma við höfund- inn og hans lævísa sefjunarverk. Þetta skýrði Bakhtín og fleiri góðir menn með þvi, að Dostojevskíj hefði búið til hina margrödduðu skáldsögu, þar sem hver og einn (amk af helstu sögupersónum) fengi að tala fullum hálsi, án þess að höfundurinn væri mjög að hefta málfrelsi þeirra með sinni íhlutun. Árni Bergmann skrifar um bækur Um þetta mætti margt segja - en víst er að það er ekki síst í Kar- amazovbræðrum sem við njótum góðs af „margröddun" Dostojev- skís. Til dæmis í viðureign guð- leysingjans Ivans við Aljosha bróður hans sanntrúaðan: svo sannarlega talar hver með sinni raust og þá ekki síður sá guðlausi, Qandmaður þess sem skáldinu er heilagast. í Karamazovbræðrum kemur margröddunin líka fram í því, að við heyi um margar raddir í einni persónu. Sá fyrirlitlegi Smerdjakov til dæmis, hann nær tökum á þeirri rödd ívans sem ívan sjálfur vill helst ekki við kannast, röddinni sem hvíslar: það er rétt og skynsamlegt að losa sig við karl- helvítið hann föður þinn! Til hvers lifir slíkur maður! Áður en lýkur er svo komið að sá partur ívans sem hann vill síst við kannast tekur sig til og „verður hold“ - verður að panda þeim sem sest andpænis Ivani og hrellir hann með tvíræðu tali. Allt fylgir þetta okkur um vegi þessarar merku bókar. Og líka sú hugsun, að hvað sem allri marg- röddun líður, þá er höfundurinn alltaf nálægur, sá höfundur sem vill endilega koma því inn í haus- inn á okkur, að hver sá sem gleym- ir guði í dag er meira en líklegur morðingi á morgun. Höfundur sem gleymir því svo sjálfur hve létt menn hafa jafnan farið með það að telja sig sanntrúaða á guðs vilja og fara um leið fram með yfirgangi og drápum. En það er svo önnur saga. Ingibjörg Haraldasdóttir hefur nú þýtt þijú helstu verk Dostojev- skíjs á íslensku og er leitt til þess að vita að aldrei skuli gefast tóm til að skoða það þarfa starf sem vert væri. Að því er heildarsvip varðar, þá er hann góður og nálægt karlin- um, um leið og skorið er aðeins ut- an af bruðli hans eins og vert er. Vitanlega koma fyrir slys: á einum stað rekst ég allt í einu á það, að Grúshenka er að minnast þess að elskhugi hennar pólskur var eitt sinn sem fálki fagur en er nú orð- inn „dreki“. Nei, hann er ekki dreki, heldur barasta steggur. Yngsta skdldiö Þorvaldur Kristjánsson Við enda sléttunnar Listhús hf 1991 Þegar fjórtán ára gamall piltur gefur út Ijóðabók þá vekst fyrst upp forvitni sem maður veit ekki einu sinni hvort er góðkynjuð. Maður vill skoða „fyrirbærið". Og hugsar sem svo: Er þetta ekki bölv- uð vitleysa? Hvað liggur á að kom- ast á prent? Sem betur fer eru ljóðin í þess- ari bók þannig að allri gerð, að les- andinn gleymir gjania fáheyrðum aldri skáldsins. Með öðrum orðum: Þorvaldur Kristjánsson er ekki bamslegur. Efiir því sem lengra sækir inn efiir röð Ijóðanna sjáum við að hann á ýmissa kosta völ: frá bcinum og tiltölulega „rökvísum" náttúrulýsingum („Við cnda slétt- unnar“), til tilrauna með sígildar andstæður lífs og dauða og hlið- stæðu mannlífs við aðra hringrás (,,Skím“) og siðan til óreiðu sem kannski er skyld súrrealisma með hrollvckjutilraunum (,,Bæn“). Það er hvorki auðvelt né skyn- samlegt reyndar að reyna að greina frá því hvað er á seyði í ljóðunum, það er í þeim óvissa og leit, birta og þó meira um það myrkur sem hcimtar að lokakvæðið heiti hvorki meira né minna en „Feigðarlykt". En hitt skiptir mcim að þetta em furðu þroskaðir textar. Sjaldan sjá- um við eitthvað sem er of sjálfsagt („aðcins hjartað skilur/ tungumál sálarinnar" er dæmi sem reyndara skáld mundi líkast til forðast.) Og Þorvaldur gætir sín líka betur en margir þeir sem eldri em á því að það cr ekki nóg að „láta sér detta eitthvað í hug“ og vaða áfram með það. Hér er annað og meira á ferð: Froða hafsins, blik stjamanna kjarni plómunnar, drambsemi rósarinnar þetta er það sem fær klukkumar til að hljóma. Um naulabanann i „Dulin Ást“ segir að Hrós Jjöldans strýkur létt yfir hár hans Ljóðin em lotulöng og partar þeira höfða misjafnlega sterkt eða skýrt til lesandans. En hann er meira en sáttur við ævintýrið og vill gjama taka undir með stefnu- skrá eins og þessari hér: Lífið er heiti þessa Ijóðs Þið biðjið um frumlegan titil en livað er frumlegra en Jjölbreytni blómsins, Ijúfleiki hörpunnar, hrœðsla hins dauðadœmda, Þorvaldur Kristjánsson ragmennska sverðsins, sem hylur andlit sitt í sveittum lófa böðulsins, einfaldleiki ástarinnar sem krefst aðeins orðanna „égelska þig“.— í helqreipum harðTínumanna Fróði hf. hefur sent frá sér bókina I helgreipum harðlínu- manna efiir Gunnar Stefán Wat- hne Möller. Bókin fjallar um hina efiirminnilegu ágústdaga sl. sumar er harðlínumenn reyndu að lirifsa ti sín völdin í Sovétríkj- unuin og komu umbótasinnum þar af valdastóli. Höfundur bókarinnar, Gunn- ar Stcfán Wathne Möller, stundar nú nám í stjómmála- og Sovét- fræðum við Harvard-háskólann í Boston í Bandaríkjunum. Hann hefur dvalist langdvölum í Sov- étríkjunum undanfarin ár. Bókin skiptist í fjóra megin- kafla. í fyrsta kaflanum er fjallað um valdaránsmennina, bakgrunn þeirra og undirbúning valdaráns- ins. í öðrum kafla er fjallað um hina sögufrægu þijá daga sem byltingartilraunin stóð yfir. Þriðji kaflinn fjallar um viðhorf til valdaránsins og í fjórða kaflan- um er sagt frá því hvemig bylt- ingaröflin voru kveðin í kútinn og fyrri valdhafar tóku við völd- um. Bókin er 178 bls. NÝTT HELGARBLAÐ 4 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.