Þjóðviljinn - 20.12.1991, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 20.12.1991, Qupperneq 8
Veljir þú íslenskt jólatré gróðursetjum við þrjátíu ný í staðinn! Gefðu íslandi skóg í jólagjöf Með því að kaupa íslenskt jólatré leggur þú íslenskri skógrækt lið. Fyrir hvert selt jólatré fær Skógræktin fé til að gróðursetja þrjátíu ný í staðinn. íslensk jólatré eru í langflestum tilvikum ódýrari en þau erlendu, en framleiðsla og sala íslensku jólatrjánna er þó mikilvæg íjáröílunarleið fyrir skógrækt í landinu. íslensk jólatré fást á helstu sölustöðum. Við þökkum stuðninginn við íslenska skógrækt og bjóðum ykkur velkomin í skóglendi okkar til að njóta þar útivistar í fögru umhverfi. Í66Í SKÓGRÆKT RÍKISINS Sororicide 8 NÝTT HHLGARBLAÐ Ferlíki vaknar Sororicide-The Entity, Platonic 1991 Sororicide er sú unglingabíl- skúrssveit sem mest og best hefiir dafnað á síðustu árum. Piltamir byrjuðu að æfa árið 1990, sigruðu í síðustu músíktilraunum Tónabæjar með glæsibrag (undir nafninu Infu- soria) og nú er fyrsta breiðskífan loksins komin. Sororicide spila dauðarokk. Dauðarokk er ekki fyr- ir alla; það byggir á örum takt- skiptingum, miklum þunga og keyrslu inn á milli. Það er því skiljanlegt að þeir sem eru aldir upp við hlýjan tón harmónikkunn- ar haldi sig komna í víti ef dauða- rokk berst þeim til eyma. En dauðarokkarar landsins leynast í skúmaskotum og rífa eflaust út plötu Sororicide enda er hér komin þung, kraflmikil og ffábær frum- smíð. Eg veit að það er halló að vera með eitthvert málvemdunarvæl en platan hefði nú samt verið skemmtilegri ef sungið hefði verið á íslensku. Um leið hefðu Sororici- de fengið annan blæ, sékenni smá- þjóðarinnar, og eflaust gengið enn betur í erlenda dauðarokkmarkaði. Ensku textamir em líka hálfgert klúður, stafsetning og málfræði er oft út í hött, en hægt hefði verið að redda þvi versta með því að prenta textana ekki með því „textafram- burður“ Boga er, e-hemm, heldur óskýr í öllum rymjandanum. I dauðarokki er nauðsynlegt atriði að söngvarinn sé rámur, hás og djúp- ur, og Bogi er sannarlega rámur; miðað við hann hljómar Siguijón í HAM eins og kjúklingur. Sororici- de-piltar em ungir, meðalaldur meðlima er um 17 ár, svo það er óhætt að segja að þeir eigi ffamtíð- ina fyrir sér. Þeir hafa æft stíft og komið mikið ffam, og spilast sam- an í frábærlega þétta einingu. Þess vegna væri móðgandi að segja að þeir væm bara efnilegir; spila- mennskan á The Entity er tipptopp, ákafmn og áhuginn skín í gegn og miðað við þann sáralitla tíma sem fór í upptökur er hljómurinn pott- þéttur. Meðlimimir em með allt á hreinu; Karl trommari er fjölbreytt- ur og þéttur í hamagangi sínum, Gísli bassaleikari hefur þetta í hendi sér og rymur vel með Boga í nokkmm lögum og gítarleikaramir Fróði og Guðjón vinna vel og markvisst saman og skapa góða heild sem kemur sífellt á óvart. The Entity er besta rokkplata ársins, reyndar eina rokkplatan sem eitthvað mark er takandi á. Aðrar jólaplötur virðast sem laf- hræddar mýs við hliðina á þessu ferlíki. Við þá sem ætla að leiða plötu Sororicide ffam hjá sér vegna einhverra fyrirfram myndaðra for- dóma hef ég bara eitt að segja: Þið eigið ekki skilið að hafa eyru. Gunnar L. Hjálmarsson Bjartur og frú Emilía verðlauna Þórunni Tímaritið Bjartur og frú Emilía - tímarit um bókmenntir og leiklist - efndi í haust til ör- verkasamkeppni meðal áskrif- enda sinna. Alls bámst 268 ör- verk, ýmist leikrit eða sögur, frá tæplega 70 höfundum. Dómnefnd hefur komist að niðurstöðu og vom úrslit keppninnar tilkynnt á samkomu á Hótel Borg sl. miðvikudags- kvöld. Fyrstu verðlaun, 50.000 kr. í ávísun, hlaut Þómnn Valdimarsdóttir fyrir örsögu. Ragna Sigurðardóttir hlaut önn- ur verðlaun og Ásta Olafsdóttir þau þriðju. Aðrir vinningshafar vom Haraldur Jónsson, Nökkvi Elíasson, Pjetur St. Arason, Harpa Amardþttir, Ingunn Jónsdóttir og Ólína Jóhanns- dóttir. Verk þessara höfunda verða birt í janúarhefti tímarits- ins ásamt öðmm útvöldum verkum. Verðlaunaverk Þórunnar hljóðar svo: Saga Gamall maöur er að slá meö Ijá í gamla kirkjugaröinum. Grasið fer I litlar heysátur, eina á hveiju leiöi. Sá gamli slær síðasta blett- inn og fer heim að hvíla sig. Sólin tekur að skina glatt og himinninn er ákaflega blár. Skýin eru loðnir boltar, nákvæmlega hringlaga, sem höfðingjarnir fjórir I höfuðáttunum kasta ofurhægt á milli sín. Koma þá svört lömb gangandi inn garöinn, meö litla vængi sem þau geta ekki flogið á. Þau eru jafnmörg og heysáturnar. Þau ganga létt, misstíga sig stundum, en þeim er stýrt svo vel að þau hitta hvert beint á sitt leiöi. Þau borða heysáturnar og verða södd. Grasið I garöinum er hætt að vaxa. v U uUVU ' l 4 - VI y'jotvii'ca'u . •- /n/.y/i X'j 'Ul l L t i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.