Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 5
MIÐVTKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 5 Fréttir Loðnusjómenn eru kátir þessa dagana enda veiðist vel. A myndinni er áhöfnin á Hábergi GK að kasta nótinni á miðunum út af Vestfjörðum. Frá því loðnan byrjaði að veiðast í síðasta mánuði hafa þeir þrisvar fengið í bátinn. DV-mynd Þorsteinn Loðnuveiðarnar út af VestQörðum ganga vel: Menn eru bjartsýnir á framhaldið - segir stýrimaðurinn á Hábergi GK „Það er töluvert af loönu að sjá á stóru svæði og ágætis loðnu að fá úr sumum lóðningunum. Gegnum- sneitt er þetta frekar blönduð loðna,“ segir Þorsteinn Símonarson, stýrimaður á Hábergi GK. Þegar DV ræddi við Þorstein í gær var hann á landleið til Grinda- vikur með um 650 tonna afla. Þetta er þriðji túrinn sem Háberg landar en alls er báturinn búinn að fá um 2 þúsund tonn af loðnu frá því hann byijaði loðnuveiðar í síðasta mán- uði. Þorsteinn segir að vel hafi veiðst í fyrrinótt og margir hafi ver- ið með 600 til 700 tonn eftir nóttina. Hann segir að nú biði menn þess að stóra loðnan taki sig út úr. „Þegar sú stóra fer að ganga aust- ur um þá situr smærri loðnan eftir. Menn eru því bjartsýnir á framhald- ið,“ segir Þorsteinn. Um 10 loðnuskip voru á miðunum um 80 sjómílur norður af Straum- nesi í gær samkvæmt upplýsingum Tilkynningarskyldunnar. -rt Visindaritgerð og afritinu stolið „Ég ætlaði að taka töskuna með tölvimni og afritinu með inn en gleymdi því. Svo þegar ég koni út í morgun var búið að stela öllu. Þama var vísindaritgerð sem ég hef verið að vinna að undanfarið og mikið tjón fyrir mig,“ segir læknir sem varð fyrir því í fyrrinótt að þjófur fór inn í bíl hans í Breiðholti og stal þar ómetanlegum gögnum. í töskunni voru einnig ýmis gögn varðandi umsókn um starf erlendis. Betur fór þó en á horfðist. Frétt um málið kom á Bylgjunni í hádeg- inu í gær. Skömmu síðar fór læknir- inn og leitaði nálægt heimili sínu. Gögnin fann hann í nálægum garði og hluta af afritinu. Tölvunni hafa þjófamir þó haldið. Læknirinn sagöi að það hefði ver- ið mikil vangá að hafa afritið á sama stað og frumgögnin. -GK Rannsóknarnefnd vegna Súðavíkur: Hef ekkert heyrt frá hreppsnefndinni - segir Arnmiindur Backman „Ég hef ekkert heyrt frá hrepps- nefndinni aftur,“ segir Ammundur Backman sem gerði samkomulag við forsvarsmenn Súðavíkurhrepps um að skipuð yrði tveggja manna óháð rannsóknarnefnd til að rann- saka framgöngu við hreinsunarstarf eftir snjóflóðin i janúar sl. Ammundur gerði samkomulagið fyrir hönd skjólstæðings síns, Haf- steins Númasonar, sem gagnrýnt hefur harðlega hvemig staðið var að hreinsunarstarfinu. Ammundur segir að hann hafi ritað hreppnum annað bréf þar sem hann ítrekar aö nefndinni verði komið á laggimar. Hann segist lýsa sérstaklega ánægju sinni með að barátta skjólstæðings hans hafi skilað sér í því að gengið sé fram af varfæmi í hreinsunar- starfi eftir hörmungamar á Flat- eyri. Lægsti stuðullinn táknar líklegustu úrslitin og eftir því sem stuðullinn hækkar þykja úrslitin óhklegri. En það getur margborgað sig að taka séns! Einfaldlega vegna þess að 1, X og 2 tákna alltaf úrsUt eftir venjulegan leiktíma, ekki framlengingu - og stuðlamir margfalda vinninginn ef spá þín reynist rétt! Vinningar eru greiddir út rúmum sólarhring eftir leik. Dæmi: Leikur fer fram aðfaranott miðvikudags; vinningar eru greiddir út eftir hádegi á fimmtudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.