Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MIÐVIKUDAGUR 8. NÖVEMBER 1995. færdvalarleyfi Angelicu Olteanu, 22 ára frá Rúm- pnín hefur veriö veitt fullt dvalar- leyfl og lögheimili á íslandi. Rauði kross Islands mun aðstoöa konuna félagslega eins og kostur verður og er m.a. stefnt að því að koma henni í íslenskunám. Konan hefur fengið atvinnutilboð, boð um búsetu í sveitum á Norður- landi og Suðurlandi auk bónorðs sem hún lítur á sem aðferð ungs íslend- ingstilaðsýnamannúðíverki. -Ótt Fyrstifundur launanef ndar í gær Launanefndin kom saman til fyrsta ___fundar síns í gær. Samkvæmt um- mælum nefndarmanna eftir fundinn var hér um kurteislegan kynningar- fund að ræða. í dag verður vísitala neysluvöruverðs birt en við hana styðst nefndin þegar hún kannar hvort forsendur kjarasamninganna eru brostnar eða ekki. Þá er einnig ljóst af ummælum Benedikts Davíðs- sonar og Þórarins V. Þórarinssonar að reynt verður að jafna þann ágrein- ing sem uppi er í kjaramálunum á vettvangi launanefndar næstu vik- umar. -S.dór Árás í Vesturbergi 1 morgun: Maður sleginn í höfuðið með felgulykli - árásarmaðurmn komst undan Maður í Breiðholti var sleginn fórnarlamb sitt heldur stökk í höfuðið með felgulykli er hann strax á flótta um leið og hann var á leiö til vinnu sinnar laust haíði veitt höggið. Sá er fyrir eftir klukkan átta í morgun. At- árásinni varð fékk skurð á höfuð- burðurinn átti sér stað í anddyrí iö og var fluttur á slysadeild fjölbýlishúss í Vesturbergi þar Borgarspítalans. sem fómarlambið býr. Hann kveðst ekki hafa kannast Þar virðist árásarmaðurinn, við árásarmanninn og gat ekki sem komst undan, hafa beðið með gefið greinargóða lýsingu á hon- felgulykilinn. Árásarmaðurinn um. gerði enga tilraim til að ræna -IBS Lestur á DV Fj ölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar: Helgarblað DV í stórsókn - aukinn lestur flesta daga DV sækir í sig veðrið flesta daga vikunnar og unga fólkinu í lesenda- hópi blaðsins fjölgar stöðugt. Sér í lagi hefur unga fólkið aukið lestur sinn á helgarblaði DV. Þannig hefur lestur á helgarblaðinu ekki verið meiri í rúm tvö ár. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri fjölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans sem gerð var dagana 13. til 19. októb- er síðastliðinn. Könnunin, sem er dagbókarkönn- un, nær til notkunar sjónvarps og útvarps og lesturs dagblaða. Tekið var 1.500 manna úrtak úr þjóðskrá á aldrinum 12-80 ára af öllu landinu. Svörunin var góð eða um 72%. Sé htið til heildarlesturs á DV alla þá daga sem blaðið kemur út þá hef- ur orðið aukning frá síðustu könnun. Hlutfallslega jókst lestur mest á helg- arblaði DV á laugardögum, eða um 12 prósent. Heildarlestur þess blaðs fór úr 50% í mars í 56% nú í októb- er. Lestur á mánudagsblaði jókst úr 47 í 51%, þriðjudagsblaðið fór úr 40 í 43%, miðvikudagsblaðið úr 41 í 45% og fóstudagsblaðið úr 45 í 48%. Með- allestur á hvert eintak í vikunni var 48% miðað við 45% í marskönnun- inni. Þetta má sjá betur á meðfylgj- andi grafi. Ef lestur helgarblaðs DV er skoðaö- ur eftir aldri þá kemur sterklega í ljós mikil aukning á lestri unga fólks- ins á blaöinu frá könnuninni í mars. Þannig fór lestur aldurshópsins 12-19 ára úr 50 í 59%, 20-24 ára hóp- urinn jók lestur sinn úr 56 í 63% og aukningin hjá 25-34 ára lesendum var úr 46 í 57%. í öðrum aldurshóp- um hefur einnig orðið aukning á lestri helgarblaðsins frá síðustu könnun. í könnuninni í mars var lestur 68-80 ára lesenda 42% en fór núnauppí51%. -bjb Veðriðámorgun: Kaldi eða stinnings- kaldi Á morgun verður norðlæg átt, kaldi eða stinningskaldi og slydda eða éljagangur á norðan- verðu landinu en léttir til sunn- anlands. Hiti -1 til +5 stig, hlýjast syðst á landinu. Veðrið í dag er á bls. 36 Snjóflóðahætta á Engjavegi: Rannsókn stendur enn yf ir Rannsókn stendur enn yfir á því hvort snjóflóð hefur fallið á Engjaveg í kringum 1950. Lögregla hefur skilað sýslumanni hluta rannsóknar sinnar á málinu. Nokkrir aðilar hafa verið yfirheyrðir vegna málsins. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður vildi ekki tjá sig um málið í samtali við DV og sagði að rannsókn stæði enn. Samkvæmt gildandi hættumati telst ekki vera snjóflóðahætta á þess- um slóðum en hættulínan liggur skammt ofan við efstu götur á eyr- inni. -rt/-GK LOKI Hann kemst þetta á sínum fjallabíl! fslendingar eiga þjóða mest af bílum ef miðað er við höfðatöluna margfrægu. Þrátt fyrir miklu bílamenningu gleym- ast ökumönnun gjarnan góðir siðir og eiga til að sýna gangandi vegfarendum dónaskap með þvi að leggja bílum upp á gangstétt. Gangandi vegfarendur verða að fara af stéttinni á götuna til að komast leiðar sinnar. DV-mynd GVA Lffl# alltaf á Miðvikudögxun Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888 Grœrrt númer: 800 6 886

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.