Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995
Útlönd______________________________________________________________
Ekkja Itzhaks Rabins ómyrk í máli 1 bandarísku sjónvarpsviðtali:
Kennir stjórnarand-
stöðunni um morðið
Benjamin Netanyahu, leiðtogi
stjómarandstöðunnar í ísrael, lét aö
því liggja í gær að gagnrýni Leuh
Rabin, ekkju hins myrta forsætisráð-
herra ísraels, Itzhaks Rabins, í sinn
garð ætti rætur aö rekja til „tilfinn-
ingaólgu" hennar vegna missis eigin-
mannsins.
Leah Rabin virtist róleg og yfirveg-
uð í gær, daginn eftir útfór eigin-
manns síns, og gaf fjölda viðtala þar
sem hún kenndi Likudbandalaginu
og Netanyahu um að kynda undir
ofsafengið andrúmsloft í ísraelskum
stjórnmálum með hatursáróðri sín-
um.
„Auðvitað kenni ég þeim um,“
sagöi Leah Rabin í viðtah við banda-
rísku sjónvarpsstöðina ABC frá Tel
Aviv þar sem ísraelskur laganemi,
andvígur afsali lands í skiptum fyrir
frið, myrti forsætisráðherrann á frið-
arfundi á laugardagskvöld.
Leah Rabin, ekkja Itzhaks, var
ómyrk í máli I gær. Simamynd Reuter
„Ef þú hefur einhvern tíma heyrt
ræður þeirra í þinginu mundirðu
skilja hvað ég á við. Þeir tóku mjög
svo harkalega til orða: „Við emm að
fara með landið í íiundana. Það verð-
ur ekkert Ísraelsríki eftir þessa frið-
arsamninga." Þetta var tryllings-
legt,“ sagði Leah Rabin.
Benjamin Netanyahu sagði í viðtali
við CNN sjónvarpsstöðina seint í
gærkvöldi að hann hefði ávallt barist
gegn slíku oíbeldistali.
„Fjölskyldur, sem hafa misst ást-
vin, ganga í gegnum mikla tilfinn-
ingaólgu og við eigum mjög gamalt
og spaklegt orðatiltæki í ísrael sem
segir: „Ekki dæma fólk af sorg þess.“
Ég ætla ekki út í rökræður við fjöl-
skyldu sem hefur misst ástvin," sagði
Netanyahu.
Á undanfornum mánuðum höfðu
stuöningsmenn Likud birst á fjölda-
fundum með myndir af Rabin í ein-
kennisbúningi Gestapolögreglu nas-
ista eða með hefðbundiö höfuðskraut
araba.
„í hvert skipti sem við heyrðum
þessi hróp um að hann væri svikari
eða morðingi sagði ég við fólkið:
„Nei, hann er ekki svikari“,“ sagði
Netanyahu.
Símoni Peres, starfandi forsætis-
ráðherra ísraels, var mikið í mun í
gær að sannfæra umheiminn um að
morðingi Rabins hefði ekki gengið
af friðinum dauðum. „Ég mun halda
áfram friöarferhnu sem við hófum,"
sagði Peres við fréttamenn.
En ýmsir andstæðingar stjórnar-
innar hétu því að stöðva friðarferlið
hvað sem það kostaði.
í Jerúsalem mátti sjá slagorð krot-
að á vegg: „Rabin er fómarlamb frið-
arins og Peres er næstur í röðinni."
Reuter
Alexandrafékk
minkapels
Alexandra Manley, verðandi eigin-
kona Jóakims prins og prinsessa
Dana, tók í gær á móti einni af fyrstu
brúðkaupsgjöfum sínum, forláta
minkapels sem verslun í útjaðri
Kaupmannahafnar gaf henni. Pels-
inn, sem 'er svartur, síður og aðskor-
inn og með silfurhnöppum, kostar
um 700 þúsund íslenskar krónur.
Mikill fjöldi blaða- og fréttamanna
fylgdist með þegar Alexandra tók á
móti pelsinum og létu spumingum
rigna yfir hana. Hún svaraði mörg-
um en sagði fátt þegar spurt var
hvort henni fyndist hún ekki vera
að auglýsa verslunina og ógna dýra-
verndunarsinnum. Alexandra segist
vera að læra dönsku og sagði, reynd-
ar á enSku, að hún læsi svolítið í
dönsku dagblöðunum.
Ritzau
Meiri bætur
■ Thule
Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið
að Danir, sem ráðnir voru hjá banda-
rískum fyrirtækjum en tóku þátt í
hreinsunarstarfinu eftir að
sprengjuvél hlaðin kjamorkuvopn-
um hrapaöi við Thule á Grænlandi
1968, fái fjárhagslegar bætur eins og
aðrir sem unnu aö hreinsun og björg-
un. Er þetta í þriðja sinn sem ríkis-
stjómin skiptir um skoðun í málinu
en hún lét endanlega undan þrýst-
ingi frá Sósíalíska þjóöarflokknum.
Samanlagðar bætur verða hækkaðar
úr 75 í 85 milljónir danskra króna.
Fær hver og einn um 600 þúsund ís-
lenskar krónur í sinn hlut.
Ritzau
Þrettán voru handteknir vegna mótmæla I Auckland á Nýja-Sjálandi I gær þegar fjöldi manns safnaðist saman
og lokaði götunni fyrir framan bygginguna sem hýsa mun ráðstefnu leiðtoga samveldislandanna á föstudag. Hópur-
inn mótmælti stuðningi breskra stjórnvalda við kjarnorkutilraunir Frakka á Kyrrahafi. Simamynd Reuter
Bill Clinton f ékk rúmlega helming at-
kvæða í óformlegum forsetakosningum
Bill Chnton forseti og Cohn Powell
hershöfðingi fengu flest atkvæði í
óformlegum forsetakosningum sem
voru skipulagöar í sautján borgum
Bandaríkjanna í gær.
Kosningum þessum, eða skoðana-
könnun, var ætlað að þvinga fram-
bjóðendur frá öhum flokkum til að
beina sjónum sínum aö málefnum
borganna. Þátttakan varð hins vegar
mun minni en skipuleggjendur höfðu
gert sér vonir um. Búist hafði verið
viö aö um 200 þúsund manns mundu
taka þátt í þessari óformlegu at-
kvæðagreiöslu um leið og þeir
greiddu atkvæði í bæjarstjómar-
kosningum.
Þegar búið var að telja nærri fjöru-
tíu þúsund atkvæði frá sex borgum,
hafði Clinton fengið 53 prósent at-
kvæða. Colin Powell var í öðra sæti
með rétt rúm 15 prósent atkvæð-
anna, á undan öhum tíu yfirlýstum
frambjóðendum repúblikanaflokks-
ins. Samstarfsmenn Powehs sögðu í
gær að hann mundi skýra frá því á
næstu tveimur sólarhringum hvort
hann byði sig fram í forsetakosning-
unum á næsta ári.
í þriöja sæti í þessari óformlegu
könnun var Bob Dole, leiðtogi repú-
blikana í öldungadeildinni, með 9,6
prósent atkvæða. Það er töluvert
meira en nokkur hinna frambjóð-
enda repúblikana fékk. Rúm tíu pró-
sent þátttakenda greiddu óháöum
frambjóöendum atkvæði sitt og var
auðkýfingurinn Ross Perot þar
fremstur í flokki með 3,4 prósent.
Reuter
Stuttar fréttir
VonumBosníu
Embættismaður kunnugur
friðarviöræöunum um Bosniu
segist vongóður um aö árangur
náist eför einnar viku fundahöld
til viðbótar.
Vantar meiri stuðning
Forseti stríðsglæpadómstóls SÞ
vih meiri aðstoð víð að elta uppi
striösglæpamenn í Bosníu og
koma þeim undir manna hendur.
Berst fyHr blaðaman n
Warren Chri-
stopher, utan-
ríkisráöherra
Bandaríkjanna,
sneri sér tíl Mi-
losevic Serbíu-
forseta til að fa
bandarískan
blaöamann,
sem Bosníu-Serbar hafa fangels-
að, látínn lausan.
Sýknaðiraf vopnasölu
Breskur áfrýjunardómstóh ó-
gilti i gær sakfelhngu fjögurra
kaupsýslumanna vegna vopna-
sölu til íraks og þykir það áfah
fyrir stjórn Majors.
KonafærBookerinn
Enska skáldkonan Pat Barker
fékk hin eftirsóttu Booker bók-
menntaverðlaun í gær fyrir
þriggja binda verk um heims-
styijöldina fyrri.
Hohenskur læknir, sem batt
enda á líf alvarlega fatíaörar ný-
fæddrar stúlku í samráði viö for-
eldrana, breytti rétt, að mati hol-
lensks dómstóis.
Juppéfærnýjastjórn
Alain Juppé,
sem myndaði
nýja og fá-
mennari sijóm
í Frakklandi i
gær, á ekki von
á góðu frá
verkalýðsfé-
lögum og fleir-
um þegar reynt verður að koma
spamaðaráformum og endur-
skipulagningu velferðarkerfisins
í gegn.
Sjónvarpsstjóri fekinn
Stjórnarformaður stærstu
einkareknu sjónvarpsstöövar-
innar í Frakklandi var i haldi lög-
reglu í gær vegna rannsóknar á
svikamáli í tengslum við þjóöar-
happdrættí Frakka.
Forstjóraryfirheyrðir
Forstjórar þriggja stærstu fyr-
írtækja Suður-Kóreu verða yfir-
heyrðir í dag vegna ólöglegs sjóðs
fyrrum forseta landsins.
Styðjaskipasmíðar
ESB mun halda áfram að styðja
við bakið á skipasmiðum þar tíl
Bandaríkin, Japan og Suður-
Kórea staðfesta samninga OECD
ríkja um stöðvun ríkísstyrkja til
skipasmíöa.
Langfiákvörðun
Poul Nyrup
Rasmussen,
forsætisráð-
herra Dana,
segiraðþaðgeti:
höið margar
vikur áður en
ákveðiö veröur
hver taki við
stöðu frmakvæmdasijóra NATO.
Möguleikar Uffe Ellemanns-
Jensens eru þó taldir hverfandi
þar sem stórþjóðir Evrópu styðja
Ruud Lubbers th starfans.
Raunir kvenpresta
Um helmingur kvenpresta í
Smálöndum í Suður-Svíþjóð segj-
ast eiga í erfiðleikum í starfi
vegna andstöðu við kvenpresta.
Karlkyns prestar hunsa messur
þeirra og þær fá ekki að þjóna
við altarisgöngur.
Reuter/Ritzau/TT