Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
Iþróttir
Atli í
Leiftur
Atli Knútsson, varamarkvörö-
ur KR-inga í knattspyrnu, leikur
nær örugglega með Leiftri á Ól-
afsfiröi næsta sumar, samkvæmt
heimildum DV. Atli er tvítugur
og varði mark 21 árs landsliðsins
í Evrópuleikjunum í haust og
styrkir hópinn hjá Leiftursmönn-
um. Þar er fyrir í markinu Þor-
valdur Jónsson og því útlit fyrir
harða samkeppni um stöðuna.
-VS
Gassi verður kyrr
Paul Gascoigne, sem átt hefur í
ýmsum deilum bæði utan vallar
og innan, sagði í gær að hann
hefði ekki í hyggju að fara frá
Glasgow Rangers. Chelsea og
fleiri lið eru sögð hafa verið að
bera víurnar í hann. Gascoigne
sagði við fréttamenn í Glasgow í
gær að hann hefði ekki fram að
þessu sýnt sínar bestu hliðar,
hvorki í hegðun né í frammistöðu
sinni á leikvelli.
Stórleikuráítaliu
Stórleikurinn í ítölsku knatt-
spyrnunni um helgina verður án
efa viðureign meistaranna í Ju-
ventus og Parma. Þessi lið háðu
nokkrar rimmur saman á síðasta
tímabili. Ekki aðeins í deildinni
heldur einnig í bikar- og UEFA-
keppninni. Juventus vann þá
fleiri leiki en ýmislegt hefur þó
breyst síðan. Inter leikur gegn
Fiorentina sem er í þriðja sætinu.
Undir stjórn Roy Hodgson vann
Inter sinn fyrsta sigur um síðustu
helgi og er mikil pressa á Hodg-
son að fylgja þeim sigri eftir.
Verða hýrudregnir
UEFA og enska knattspyrnu-
sambandið líta uppákomuna
milli Greame Le Saux og Davids
Batty í Moskvu í fyrrakvöld mjög
alvarlegum augum. Það sló í
brýnu milli þeirra þegar Qórar
mínútur voru liðnar af leiknum
gegn Spartak Moskvu. Þeir félag-
ar eiga yflr höfði sér jafnvel bann
og Ray Harford, framkvæmda-
stjóri liðsins, ætlar að hýrudraga
þá sem nemur um tveggja vikna
launum.
HvaðgerirUEFA?
Talsmaður enska knattspyrnu-
sambandsins sagði að málið yrði
ekki úr sögunni þó Blackburn
beitti refsingum. Sambandið hef-
ur skorað á UEFA að grípa til
viðeigandi aðgerða, en refsing
UEFA mun byggjast á skýrslu
dómarans. Á þeim bæ eru sjón-
varpsupptökur ekki teknar gildar
í agabrotum.
RomariotilSpánar?
Talsverðar líkur eru á að brasil-
íski knattspyrnusnillingurinn
Romario snúi aftur til Spánar eft-
ir ársdvöl hjá Flamengo í heima-
landi sínu. Salamanca, botnlið
spænsku 1. deildarinnar, hefur
boðið Flamengo 250 milljónir í
markaskorarann en hann hefur
átt erfltt uppdráttar í heimaland-
inu.
Sjöundi sigur ÍS
ÍS vann í gærkvöldi sinn sjö-
unda sigur í jafnmörgum leikjum
í 1. deild karla í körfuknattleik.
Stúdentar lögðu Stjörnuna aö
velli, 88-66.
AðaHundurFram
Aðalfundur Knattspyrnudeild-
ar Fram verður haldinn í kvöld
í félagsheimilinu við Safamýri og
hefst klukkan 20.30. Dagskrá
fundarins verður samkvæmt fé-
lagslögum. Að loknum fundinum
verða veitingar fram bornar.
Sárasta tapið
síðan árið 1990
- sagöi Jón eftir ósigur Keflavíkur gegn KR
Þóröur Gíslason sknfar:
Það var darraðardans á lokamínút-
unum í sannkölluðum bikarslag á
Nesinu í gærkvöldi þegar KR-ingar
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Kefl-
víkinga, 75-74, en staðan í hálfleik
var 40-31.
Þegar hálf mínúta var til leiksloka
kom Bow KR-ingum yfir, 75-74, Kefl-
víkingar hófu sókn en Hermann
Hauksson fiskaði boltann og missti
hann svo út af. Þegar þrjár sekúndur
voru eftir komst Bow inn í sendingu
og Keflavík fékk innkast þegar ein
sekúnda var eftir. Falur átti glæsi-
sendingu á Burns beint yflr körfunni
en boltinn vildi ekki ofan í og bar-
áttuglaðir KR-ingar fógnuðu inni-
lega.
„Þetta er allt á réttri leið, við höfum
bætt sóknarleikinn og menn eru til-
búnir að leggja meira á sig. Þetta
þýðir að við förum alla leið í bikarn-
um,“ sagði Ingvar Ormarsson, KR-
ingur, en hann lék mjög vel eins allir
sex leikmenn KR sem Benedikt,
þjálfari KR, notaði í leiknum.
„Þetta er sárasta tapið frá því ég
byrjaði að þjálfa Keflavíkurliðið 1990.
Á þeim tíma höfum Við aldrei dottið
út í sextán liða úrslitum. Þetta var
ekta bikarleikur og spurningin var
hverjir fengju síðasta skotið, það vor-
um við en því miður fór boltinn ekki
ofan í,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálf-
ari Keflvíkinga, vonsvikinn að leik
loknum.
Stig KR: Ingvar Ormarsson 25, Ós-
valdur Knudsen 19, Jonathan Bow
17, Hermann Hauksson 8, Óskar
Kristjánsson 3, Lárus Árnason 3. Stig
Keflavíkur: Lenear Burns 19, Guðjón
Skúlason 18, Albert Óskarsson 13,
Davíð Grissom 10, Falur Harðarson
8, Sigurður Ingimundarson 4, Jón
Kr. Gíslason 2.
Tvímenning-
arnir áfram
- Valur sigraöi Skallagrím, 71-70
Valur, eða öllu heldur tvimenn-
ingarnir Ronald Baylis og Ragnar
Þör Jónsson, eru komnir í 8 liða
úrslit bikarkeppni KKÍ eftir sigur
á Skallagrimi að Hlíðarenda í gær-
kvöldi. Valur sigraði í miög spenn-
andi leik, 71-70.
Leikurinn var lélega leikinn af
beggja liða hálfu en spennandi all-
an tímann. Sigur Vals var óvæntur
en liðið er gersamlega laust við
breidd og þar drottna tveir leik-
menn, umræddur Baylis og Ragnar
Þór Jónsson. Aðrir voru varla með
S gærkvöldi. Tvímenningarnir
skoruðu 57 af 71 stigi Vals og aðrir
stóðu þeim langt að baki.
Þegar um 8 sekúndur voru til
leiksloka fékk Ermolinski tvö víta-
skot og staðan 69-68 fyrir Val. Hann
skoraði úr báðum skotunum og
Baylis, sem er með hittnari mönn-
um, æddi upp völlinn og skoraði
sigurkörfuna með öruggu lang-
skoti.
• Stig Vals: Baylis 38, Ragnar Þór
19, Guðni 7, ívar 4 og Bjarki Gú-
stafsson 3.
• Stig Skallagríms: Ermolinski
27, Bragi 16, Tómas 10, Grétar 9 og
Sveinbjörn 8.
-SK
Rondey Robinson, Njarðvikingur, sækir að körfu Hauka í gærkvöldi. íslandsmeistan
keppninni en Haukar komust í 8 liða úrslitin með eins stigs sigri i hörkuspennan
Selfyssingar vilja Hauka
Selfyssingar eru komnir í 8 liða úrslit bikarkeppninnar í körfuknattleik í
fyrsta skipti'eftir sigur á Leikni úr Reykjavík, 89-83, í gærkvöldi. Heima-
menn voru yfir allan tímann, 43-36 í hálfleik. Malcolm Montgomery skoraði
27 stig fyrir Selfoss, Sigurður Einar Guðjónsson 18 og Gylfi Þorkelsson 16.
Hjá Leikni voru Birgir Guðfinnsson og Falur Daöason allt í öllu og gerðu
27 stig hvor. „Nú er draumurinn að fá heimaleik gegn Haukum,“ sagði
Sveinn Ægir Árnason, formaður körfuknattleiksdeildar Selfoss, við DV í
gærkvöldi. -VS
Hólmarar réðu el
Þórsarar unnu tiltölulega öruggan
sigur á 1. deildar liði Snæfells, 88-74,
í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar i
körfuknattleik á Akureyri í gær-
kvöldi. Liðin voru þó yfir til skiptis
fram eftir fyrri háltleik en Þór komst
í 47-36 fyrir hlé. Snemma í seinni hálf-
leik breyttist svo staðan úr 49^0 í 64-44
og þar með var mótspyrna Hólmara
fyrir bí.
Fred Williams skoraði 43 stig fyrir
Þór og réðu Snæfellingar ekkert við
Bikarkeppni í sundi um helgina:
Ægir gæti fengið keppni
frá Hafnfirðingum
Bikarkeppnin í sundi fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Keppnin hefst í kvöld og verður síðan
framhaldið á laugardag og sunnu-
dag. Keppni í 2. deild verður haldin
samhliða 1. deildinni á sama stað. 2.
deildin verður á morgnana og 1.
deildin eftir hádegi.
Allt okkar besta sundfólk verður á
meöal keppenda að undanskildum
þeim Loga Jes Kristjánssyni og Arn-
ari Frey Ólafssyni sem báðir eru í
Bandaríkjunum viö æfmgar og
keppni. Áð sögn kunnugra er ekki
taliö ólíklegt að einhver íslandsmet
líti dagsins ljós á mótinu. Þó verður
að hafa í huga að þetta tímabil er
öðruvísi en önnur að því leytinu til
að ólympíuleikar eru á næsta ári.
Okkar besta sundfólk mun kannski
reyna á öðrum tíma en um helgina
við lágmörk fyrir ólympíuleikana
næsta sumar. Vitaö er að nokkrir
muni reyna við lágmörkin á móti í
Þýskalandi í byrjun febrúar og hvíla
ef til vill ekki fyrir bikarkeppnina.
Ægir oftast orðið
bikarmeistari
Ægir hefur oftast orðið bikarmeist-
ari eða alls 17 sinnum og hefur félag-
iö unnið bikarinn síðustiFþrjú ár. ÍA,
HSK og Keflavík hafa einnig orðið
bikarmeistarar og oft blandað sér í
harða baráttu um bikarinn eftirsótta
við Ægi. Að þessu sinni hallast flest-
ir að því aö slagurinn um helgina
verði á milli Ægis og Sundfélags
Hafnarfjarðar. Miklar framfarir hafa
átt sér stað hjá Hafnfirðingum og
ekki ólíklegt að þeir veiti Ægi harða
keppni.
Ægir hefur það fram yfir önnur liö
í keppninni að vera með góða breidd
en hún vegur þungt þegar upp er
staðið í móti sem þessu. Víst er að
keppnin getur orðið býsna jöfn og
spennandi í Sundhöllinni um helg-
ina. Hörð keppni gæti einnig orðið
um sæti í 1. deild að ári og veðja flest-
ir á að lið Ármanns beri sigur úr
býtum í 2. deildinni.
Hroðalegur
körfubolti
Pjetur Sigurösson skriÉtr:
Breiðablik tryggði sér sæti í 8 liða úrslitun
i bikarkeppni KKÍ með því að leggja b-lii
Njarðvíkinga, 107-82, í hroðalegum körfu
boltaleik í Smáranum í gærkvöldi. Staðan
hálfleik var 63-40, Breiðabliki í vil. Leiku:
liðanna var á afskaplega lágu plani og ein
kenndist af miklum fjölda mistaka beggji
liða, sendingar rötuðu oftar en ekki á and
stæðinga og hittnin léleg. Blikar höfðu yfir
höndina nær allan tímann, en þeir verði
svo saimarlega aö hugsa sinn gang, því lii
sem leikur í úrvalsdeild á svo sannarleg;
að geta betur en þeir sýndu í gær.
Michael Thoele var skástur Blika, en ham
gerði 31 stig. Einar Hannesson var næst
stigahæstur með 16 stig og Agnar Olsei
gerði 13 stig. Skúli Sigurðsson var stiga
hæstur Njarðvíkinga með 19 stig, Magnú
Már Þórðarson gerði 13 stig og Hafsteim
Hilmarsson gerði 12 stig.