Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 Menning - segir Jósafat um bókina sem nefnist Óttalaus „Ég hef alltaf haft áhuga fyrir skriftum og skrifa mikið sjálfur. Ég á miklu meira efni til en birtist í þessari bók. Ég gerði tilraun til að láta annan gera þetta fyrir mig en það var svo skáldlegt að ég var heil- lengi að leiðrétta. Þess vegna ákvað ég að gera þetta bara sjálfur og tala beint frá eigin brjósti. Þetta eru stuttir kaflar, ég er ekkert að orð- lengja hlutina eins og pólitíkusarn- ir,“ sagði Jósafat Hinriksson, hinn landskunni vélsmiður í samnefndri smiðju í Súðarvoginum, í léttu spjalli við DV en út er komin ævi- saga hans, rituð af honum sjáifum og nefnist Óttalaus. Útgefandi er Skerpla. Bókin er um 300 blaðsíður að stærö með yfir 160 stuttum og kjarn- yrtum köflum. Nafnaskrá með hátt á 800 mönnum og konum fylgir með auk skipaskrár. Fjöldi mynda úr einka- og atvinnulífl Jósafats prýðir bókina. Jósafat sagði að af nógu hefði ver- ið að taka í bókina, enda er hann bú- inn að standa í mörgu í gegnum æv- ina, rétt rúmlega sjötugur að aldri. „Ég hef verið í góðum skólum og átt litríkan feril, unnið hjá Tryggva Ófeigssyni, Bjarna Ingimarssyni, Lúðvík Jósepssyni og fleiri þekktum útgerðarmönnum og skipstjórum," sagði Jósafat sem var til sjós fram á miðjan aldur er hann söðlaði um og setti á stofn vélsmiðju. Vélsmiðjan hefur hlotið heimsfrægð, ekki síst fyrir toghlerana og blakkirnar. Þá hefur Jósafat komið upp myndar- legu minjasafni í fyrirtæki sínu. Tryggva Ófeigssyni svarað Aðspurður um atburði sem sætu ofarlega í huga nefndi Jósafat þegar Tryggvi Ófeigsson tilkynnti honum að það ætti að fara á Neptúnusi til Aberdeen i Skotlandi til að fá nýja eins og á öðrum skipum, togvindan hlyti að vera orðin lúin og þreytt. Ég sagði honum að hann væri líka orð- inn gamali. „Þú og togvindan stand- ið ykkur vel, eruð í góðu lagi,“ sagði ég við Tryggva. En það var farið til Aberdeen og skipt um togvindu. Sú gamla var síðan sett í systurskipið Mars og dugði alla tíð vel,“ sagði Jósafat. í einum kaflanum segir Jósafat frá því þegar hann, á síldveiðum á Rauða torginu á Helgu Guðmunds- dóttur, fór út á ljóslausri björgunar- jullu út að endabauju til að ná upp öðrum enda nótarinnar. Það tókst eftir að Jósafat hafði kastast til á öldutoppunum, óbundinn við jull- una. Þegar um borð í Helguna kom segir Jósafat þannig frá í bókinni: „Þakklætið sem ég fékk þegar ég var kominn úr þessari svaðilför kom frá Ólafi Magnússyni, 2. stýri- manni, manninum sem átti að fara á jullunni í stað 1. vélstjóra en hafði ekki kjarkinn. Hann sagði: „Þú varst hræddur.“ „Já, en þú varst hræddari," sagði ég þá. „Þú þorðir ekki i julluna.““ Eins og áður sagði nefnist bókin Óttalaus. Jósafat var spurður um til- urð titilsins. Aldrei verið hræddur „Þegar ég var polli á Neskaupstað fór ég einn upp á bryggju þegar var komið myrkur og enginn nærstadd- ur. Ég gekk fram af bryggjunni og fór á bólakaf í sjóinn. Ég fór á hundasundi I land og beint heim til mín. Ég varð ekkert hræddur og það kemur víða fram í bókinni að ég hef aldrei verið hræddur. Ég er kaldur i öllu,“ sagði Jósafat. Aðspurður sagðist hann vera ánægður með bókina. Hann ætti nóg eftir og lumaði á ýmsu í aðra bók. -bjb Hinn landsfrægi vélsmiður og vélstjóri, Jósafat Hinriksson, hefur skrifað ævisögu sína. Hér er afraksturinn í öruggum höndum. DV-mynd GVA togvindu i skipið. þetta því ég passaði vel upp á tog- „Ég var ekkert ánægður með vinduna. Tryggvi hélt að þetta væri Jósafat Hinriksson hefur skrifaö ævisögu sína: í góðum skólum og átt litríkan feril Ný bók með 5 þúsund íslenskum tilvitnunum: Hef gaman af því sem vel er sagt - segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem safnaði efni í bókina „Þetta er bók sem ég hef verið að taka saman á síðustu fimm árum eða svo. Ég hef skrifað hjá mér margar skemmtilegar tilvitn- anir, fleyg orð, fræg tilsvör, snjall- yrði og kjamyrði af ýmsu tagi. Úr þessu er orðin 544 blaðsíðna bók þar sem safnað er saman tilvitnun- um í klassíska höfunda eins og Hómer, grísku harmleikjaskáldin, Egil Skallagrímsson, Snorra Sturluson, Hallgrím Pétursson, Jón Vídalín, William Shakespeare, Halldór Laxness, Gunnar Gunn- arsson, Einar Benediktsson og ýmsa aðra en einnig tilsvörum annarra sem varðveist hafa bæði i munnlegri geymd á íslandi og í mannkynssögunni," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, dósent í stjómmálafræði, en út er komin bók eftir hann sem ber heitið ís- lenskar tilvitnanir. í bókinni, sem gefin er út af Al- menna bókafélaginu, er að finna 5000 tilvitnanir í innlenda sem er- lenda karla og konur. Hannes seg- ir að þetta efni hafi orðið fyrir val- inu þar sem hann hafi sjálfur mjög gaman af því sem vel er sagt og hljómar vel - af mælskulistinni. „Síðan er líka ákveðinn skemmtilegur og gagnlegur fróð- leikur fólginn í þvi að vita að margt af því sem við segjmn á upp- runa sinn í Biblíunni, leikverkum Shakespeares eða íslenskum fom- bókmenntum - þetta er sem sagt í senn gagn og gaman, en umfram allt er það ánægjan með það sem vel er sagt - yfir því sem fær á sig vængi - sem veldur því að ég réðst í þetta. Við getum tekið sem dæmi það sem Tómas Guðmundsson sagði: „Það má áfengið eiga að það hefur aldrei gert neinum manni mein að fyrra bragði." Þetta er skemmtileg setning en hún felur líka í sér talsverða athugun og skarplega greiningu. Við getum lika tekið ógleymanlegar mannlýs- ingar eins og Áma Pálssonar þeg- ar hann sagði um Jón Þorláksson: „Hann hafði allra lifandi manna mest vit á dauðum hlutum.“ Við getum tekið fræga setningu eins og þá sem Þórður Þórðarson, jafn- aðarmaður í Hafnarfirði, sagði í ábúðarfullri ræðu: „Það er 1. maí um land allt.“ Þetta er umfram allt bók sem var ánægjulegt að taka saman.“ Hannes er þess fullviss að ís- lendingar hafi gaman af bókinni. Þeir hafi alltaf verið hallir undir það sem vel er sagt. Þeir hafi til dæmis haft yndi af skemmtilegum sögum. Vísar Hannes í þeim orð- um í Pál Jónsson eða Púlla, lífs- listamann í Reykjavík, sem var með afbrigðum latur maður og sagði: „Sá maður sem ekki getur sofið til hádegis hlýtur að hafa slæma samvisku.“ Jónas Jónsson frá Hriflu, sem var illkvittinn, var eitt sinn spurður um það hvort hann gæti ekki sagt eitthvað gott um Hermann Jónasson. Svarið kom: „Jú, jú! Hann er heilsugóð- ur.“ Hannes segir að í bókinni sé saftiað saman öllum perlunum í ís- lenskum bókmenntum á einn stað. -PP Lofthræddi örninn hann Orvar t heimsókn hjá Barnaspítala Hringsins. Lofthræddi örninn Örvar: Heimsótti Barnaspítala Hringsins Nýlega fór Bjöm Ingi Hilmarsson leikari á vegum Þjóöleikhússins 1 heimsókn á Bamaspítala Hringsins og flutti einleikinn Lofthræddi örn- inn hann Örvar. Höfðu börnin beðið komu hans með mikilli eftirvænt- ingu og mátti sjá gleðina skina úr hverju andliti meðan á sýningunni stóð, að því er segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Það hefur verið fastur liður hjá leikhúsinu, þegar því hefur verið við komið, að leikarar í barnaleik- ritum heimsæki börn á sjúkrahús- um og reyni að stytta þeim stund- irnar með einhverju móti. -bjb Pétur, Guðrún og Martial. Serenade með spænskri og franskri tónlist Út er komin ný geislaplata, Serenade, með franskri og spænskri tónlist fyrir flautur og gítar. Verkin á plötunni eru flest frá ámnum í kringum aldamótin síðustu og er þar að finna margar perlur franskra og spænskra tón- bókmennta, m.a. eftir Ravel, Satie, Fauré, Rodrigo og De Falla. Það eru Pétur Jónasson gítar- leikari og flautuleikaramir Mart- ial Nardeau og Guðrún Birgis- dóttir sem flytja tónlistina. Japis gefur plötuna út en upptökur fóm fram í Garðakirkju í júni sl. undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar. Hljómdiskasjóður Fé- lags íslenskra tónlistarmanna styrkti útgáfuna. Karlakórinn Heimir með geislaplötu Örn Þórarinsson, DV, Fljótum: Karlakórinn Heimir í Skaga- firði hefur sent frá sér nýja geislaplötu með 21 lagi. Nafn plöt- unnar og jafnframt titillag er Dís- ir vorsins eftir Bjarka Ámason. Á plötunni er að finna létt lög, hefðbundin karlakórslög og óp- emtónlist. Nokkur laganna hafa áður verið gefin út en önnur em ný. Margir kórfélaga syngja ein- söng, tvísöng og þrísöng með kómum á plötunni. Undirleik önnuðust Thomas Higgerson og Jón Gíslason, einn- ig Friðrik Halldórsson og Eiríkur Hilmisson í nokkrum lögum. Söngstjóri var Stefán Gíslason. Sigurður Rúnar Jónsson annaðist upptöku sem fram fór í félags- heimilunum Höfðaborg og Mið- garði. Útlitshönnun er eftir Sig- urlínu Eiríksdóttur og Þorvald Óskarsson. Áður hefur karlakór- inn Heimir gefið út þrjár plötur. Sú síðasta, Undir bláhimni, sem kom út 1991, varð mjög vinsæl og er nú nánast uppseld. Theater með listakvöld í Djúpi Hornsins Leik- og listafélagið Theater, sem setti upp rokkóperuna Lind- indin nú í haust, hefur ákveðið að vera með listakvöld í Djúpi Homsins við Hafnarstræti öll fimmtudagskvöld til áramóta. Þar verða flutt smáleikrit, ljóða- lestur, tónlist og aðrir gjömingar af ungu listafólki. Listakvöldin era öllum opin og allir geta látið ljós sitt skina. í framhaldi af listakvöldunum verður gefin út bók með verkum ungra skapara með titlinum „Sautján salernissögur og ljóð“. Bókin er ætluð til lestrar á bað- herbergjum og á hana verður settur hanki til þess að hengja hana upp við hliðina á þvottapok- anum og handklæðinu. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.