Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Síða 23
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 31 Kyrjálaeiði Þessi nýjasta bók Hannesar Sigfússonar geymir tæpa fimm tugi ljóða. Hannes hefur hér yfir- leitt sömu tök og hrifið hafa ljóð- vini í hálfa öld; hann lætur ljóð blómstra upp úr dulinni merk- ingu orða sem vitund vor hefur sljóvgast fyrir af hversdagslegri notkun. Þannig er t.d. hlaupárum líkt við hlaupandi menn sem koma þó seinna í mark en aðrir. Og í örstuttu ljóði endurvekur hann slitna líkingu í orðinu grasnál" og tengir öðrum orðum sem geta lýst fatnaði; „brydda, barð, slikjur" til að birta vorið í ferskri sýn: Hannyrðir Grasnálin bryddar upp á nýju sumri í skjóli rofabarðsins og jafnskjótt hylja grænar slikjur svarta mela Sjálft titilljóð bókarinnar lýsir þessum málgaldri einkar vel og likir við það að finna helli með myndlist steinaldarmanna. Og sú líking á vel við því einnig orðin birta óvænt skarpar myndir frá fjarlægum tíð- um, bergmála þaðan. Og í þessu eina orði finnur skáldið tvíræðni lið fyrir lið. Áhrifaríkar eru andstæðurnar frá snöggri hreyfmgu í fyrri hluta til kyrrðar í lokin: Kyrjálaeiði Tungumálið er lykill skáldsins að veröldinni Hann lýkur upp bergmálshellum innst í heilabúinu þar sem frumstæðar myndir villi- manna skreyta veggi og ljónstygg veiðibráð þýtur — um hugarfylgsnin Ylajali Ylajali ___ málseiður sprottinn af sulti En ég greini orðið Kyrjálaeiði sem — dæmi og greini þar lognkyrra ála og eiðstafatunguna á milli þeirra Sumir lesendur munu kannast við „Ylajali" sem nafn, sprottið af hugarórum sögumanns í Sulti Hamsuns. Sú sköpun er í stíl við fyrr- nefndar myndir steinaldarmanna af villibráð. Hamsun birtist einnig í löngu frásöguljóði; „Osló fjórum áratugum fyrr og síðar“. Það er að mestu undir ek. fornyrðislagi eins og sum hin elstu eddukvæði, stuðl un er þó breytt. En það fer út í upptalningu ósérkennilegra atriða í sambúð elskenda og stenst ekki samanburð við þau mörgu ljóð sem hér birta skarpa augnablikssýn. Ljúkum þessum pistli á einkar fallegu ljóði sem rekur í smámynd um hversdagslegt ferli sem sýnir lífgun náttúru og manna. Því er mjög áhrifaríkt að persónugera auðnina, m.a. teygir hún úr sér og klökkn- ar. En það orð á við náttúru, ekki síður en fólk, rrierkir að jarðvegur- inn verði gegndrepa. Leysing Seytlandi í fjalldrapakjarri... Og þyrrkingsleg auðnin klökknar og teygir úr kræklum og sinum og byltir steinum úr grópum í leit að margfætlufurðum og sumarfiðrildapúpum Og vatnsaginn kitlar örsmá íðilgræn músareyru og kveikir á glitrandi döggum og glæðir bjartsýnistjarnir á örfoka heiðum og tendrar fífukveiki á mýrum Og loks byrjar vatnið að syngja og streyma um æðar og vefi úrkula manns undir feldi sem skynjar draumvatnakliðinn sem fiskur í legvatni - og bíður endurfæðingar öldungs Hannes Sigfússon. Kyrjálaeiði Mál og menning 1995, 57 bls. Bókmenntir Öro Úlafsson AÍllH 9 0 4 • 1 7 0 0 Verð aðeins 39,90 mín (U Dagskrá Sjónv. [5| Myndbandagagnrýni Dagskrá St. 2 [6] ísl. listinn - topp 40 Dagskrá rásar 1 [2 Tónlistargagnrýni Menning Ekkert tónlistarhús í menningarborg Evrópu árið 2000 Nú eru að koma út einar átta eða níu geislaplötur með ungu tónlistarfólki. Fólkið er allt félag- ar i samtökunum Skref, sem hefur að markmiði að 'gefa út klassíska diska með lægri tilkostnaði en tíðkast hefur hingað til. Það kem- ur tónlistarunnendum svo sannar- lega til góða, því diskarnir munu þá kosta helmingi minna en venjulega. „Loksins, loksins" hugsa væntanlega margir; tilvist Skrefs þýðir að einhver hefur mót- mælt hinu óheyrilega geislaplötu- verði sem hér viðgengst og gert eitthvað í málunum. íslenskir diskar eru nefnilega rándýrir og seljast þá auðvitað illa. Til að fagna útgáfunni héldu að- standendur hennar tónleika í Borgarleikhúsinu síðastliðið þriðjudagskvöld. Það er miður, því Borgarleikhúsið er hreint af- leitur tónleikasalur. Sviðið er risastórt og bókstaflega gleypir allan hljómburðinn. Tónlistar- flutningur þar hljómar eins og maður sé með eyrnatappa eða eitt- hvað þaðan af verra. Reyndari tónlistarmenn - eins og Kristinn Sigmundsson - vara sig á þessu og hafa bara hærra en venjulega. En aðrir sem eru saklausari lenda í vondum málum og nánast neyða okkur hin til að hlera tónlistina í gegnum trekt. Hér er ekkert pláss til að fjalla um hvert og eitt atriðið efnis- skrárinnar. Margir komu við sögu og má þar nefna Kammerhópinn Camerarctica, en á leik hans hófust tónleikarnir. Hann skOaði sínu með mikilli prýði, en það var þáttur úr kvartett fyrir flautu og strengi, KV 285 b eftir Mozart. Sami hópur var líka síðastur á efnisskránni, með hluta úr kvin- tett fyrir klarínettu og strengi, KV 581, einnig eftir Mozart. Leikurinn þar var hinn þokkalegasti, þó ein- stakir hljóðfæraleikarar hafí ekki Þórunn Guðmundsdóttir söngkona og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari voru meðal flytjenda í Borgarleikhúsinu. alltaf spilað af nægOegri ná- kvæmni. Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari var með óvenjuleg- asta atriðið umrætt kvöld, sem fólst í því að flytja Syrinx eftir Debussy í kolniðamyrkri. Túlkun hennar var ágæt, bæði ástríðufull og seiðandi. Ólafur Elíasson - for- sprakki Skrefs - var líka með sitt á hreinu, en hann flutti hluta úr tilbrigðum eftir Brahms við stef um fina drætti, enda enginn al- mennilegur salur hér á landi. Nú stendur til að Reykjavík verði menningarborg Evrópu árið 2000. Það er erfitt að ímynda sér þegar hér er ekkert tónlistarhús. . . Tónlist Jónas Sen eftir Hándel. Það gerði hann yel og af miklum tilfinningahita. Ár- mann Helgason klarínettuleikari og David Knowles píanóleikari sýndu einnig mikil tOþrif í sónat- ínu eftir Arthur Honegger. Þetta hefðu því orðið hinir bestu tónleikar ef hljómburðurinn hefði verið betri. Því miður er fátt LEDURVÖRUVERSLUN xós NÝTT! Opíð á sunnudögum kl. 13-17 Jakkar, buxur, vesti, kápur, kjólar, töskur, hanskar. Gjafavörur góðar Lítið inn - góð tilboð 10% staðgreiðsluafsláttur Póstsendum fritt um allt land LEÐURVÖRUVERSLUN XðS Laugavegi 41 Sími 551 9040 Samsung SV-140 X er vandað fjögurra hausa Nicam Hi-Fi Stereo- myndbandstœki. Það með aðgerðastýringum á skjá sjónvarps, sjálfvirkri stafrœnni sporun, sem tryggir skarpari mynd, þœgilegri þráðlausri fjarstýringu, upptökuminni fram í tímann, Jog-hjóli til að spóla bœði áfram og afturábak, 2 Scart-tengjum, tengi fyrir sjónvarpsmyndavél, Show View-kóda, Long Play-upptökumöguleika, hraðhleðslu, Intro Scan, Video Index Searc System, hœgmynd, tvöfaldri og nífaldri hraðspólun með mynd, barnalœsingu o.m.fl. fr ni- '!JjliT=T5TS^=TSl [.LMyMliÍ TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA TIL ÁLLT AÐ 24 MÁNAOA Hraðþjónusta við landsbyggðina: — —snt númer: (Kostar innanbœjarsímtal og vötumar eru senclor somdœgurs) msásvegi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.