Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Síða 32
 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað 1 DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 Helgarblað DV: Ástfangið - listapar - Garðar Thór og Julia í helgarblaði DV á morgun kenn- ir margra grasa eins og venjulega. Heitasta listaparið í bænum er í við- tali og rætt er við Fordstúlkuna sem er á leið til Las Vegas. Hljóð er líka list, segir Kjartan Kjartansson hljóðmaður í viðtali við helgarblað- ið og vaxtarræktarmaðurinn Guð- mundur Bragason segir að fólk sé hrifíð af öfgum. Birtir eru bókakafl- ar, unglingasíðan er á sínum stað og ^Bama- DV. Flugumferðarstj órar: Störfin auglýst í næstu viku Halldór Blöndal samgönguráð- herra hefur samþykkt uppsagnir ílugumferðarstjóra. Störfin verða auglýst i næstu viku, bæði á íslandi og í útlöndum. Alls 82 flugumferðar- stjórar hafa sagt upp störfum frá og —-með áramótum en ekki liggur enn fyrir hvort uppsagnarfresturinn verður framlengdur um 3 mánuði eins og lög heimila. Fjalla á um mál- ið á fundi ríkisstjómarinnar í dag. í vikunni slitnaði upp úr samn- ingaviðræðum flugumferðarstjóra og ríkisins. Af hálfu ríkisins era launakröfur flugumferðarstjóra metnar sem 82 prósent kostnaðar- auki fram til aldamóta. Meðaltals- laun flugumferðarstjóra era um 320 þúsund krónur og hefur ríkið boðið þeim 7,8 prósenta hækkun. Takist ekki að manna stöður flug- umferðarstjóra er talin hætta á að sá hluti flugumferðarstjórnar, sem kostaður er af Alþjóðaflugmála- ^stofnuninni, flytjist úr landi. Stofn- unin greiðir 95 prósent af launum 38 flugumferðarstjóra. -kaa Ríkisendurskoðun með úttekt á Lánasjóði islenskra námsmanna: Vafasamt að krefja námsmenn um ábyrgðarmenn - eigið fé sjóðsins nægir fyrir skuldbindingum Lánasjóður íslenskra náms- manna getur staðið undir öllum nú- verandi skuldbindingum með eigin fé sínu. Á afskriftareikning útlána hafa verið lagðir 6,3 milljarðar til að standa undir affölum sem til þessa hafa þó verið óveruleg. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu Rikisendurskoðunar um fjárhagsstöðu sjóðsins. 1 skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að lánþegar LÍN era tæplega 32 þúsund. Útistandandi námslán nema um 38,5 milljörð- um. Um 70 prósent lántakenda skulda innan við 1,5 milljarða og um 1 prósent lántakenda skuldar meira en 6 milljónir. Umfang sjóðsins hefur vaxið verulega á undanfömum árum og að mati Ríkisendurskoðunar fyrirsjáanlegt aö fjárbinding í menntakerfinu eigi eftir að vaxa verulega á næstu árum. í skýrslunni er þeirri spurningu velt upp hvort réttlætanlegt sé að krefja námsmenn um ábyrgðar- menn á lánum sem þeir fá. Lánin séu veitt á öðrum forsendum en önnur lán og séu í raun námsað- stoð. Hætt sé við að þeir náms- menn sem ekki geti útvegað sér ábyrgðarmenn þurfi að hverfa frá námi þó svo að sjóönum sé ætlað að veita fólki tækifæri til náms án tillits til efnahags. Þó lítið hafi reynt á ábyrgðar- menn til þessa telur Ríkisendur- skoðun að á næstu árum kunni að reyna í auknum mæli á ábyrgðir þegar endurgreiðslur hefjast af lánum sem bera vexti. Gera megi ráð fyrir að samfara þyngri greiðslubyrði verði vanskilin meiri. -kaa Hálfum þriðja áratug eftir að Bítlarnir hættu formlega að starfa saman virðist nýtt bítlaæði vera að hefjast. Víða um veröld er verið að dreifa nýjustu afurð Bítlanna en eftirlifandi meðlimir hljómsveitarinnar standa að útgáfu nýjustu Bítlaplötunnar. Hörður Harðarson bílstjóri og Þór Hinriksson lagerstjóri hjá Skífunni eru hér að koma með fyrstu sendinguna af Bítlaplötunni beint frá Keflavíkurflugvelli í morgun. DV-mynd Sveinn Vatnsberamaðurinn: Dæmdur til að greiða tæpar 60 milljónir - fangelsi stytt Endanlegur dómur í máli Þór- halls Ölvers Gunnlaugssonar, fyrr- um framkvæmdastjóra Vatnsber- ans, kveður á um að hann skuli greiða ríkissjóði til baka þær tæpu 40 milljónir króna sem hann sveik út með 110 tilhæfulausum innskatts- skýrslum á árunum 1992-1994 og 20 milljónir króna í sekt. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna hætist eins árs fangelsi við þau tvö og hálft ár sem Hæstiréttur dæmdi hann til að sæta í gær. Eins og fram kom í dómi héraðs- dóms í maí síðastliðnum þótti Þór- hallur Ölver hafa sýnt einbeittan brotavilja og brotin verið framin með vítaverðum hætti. Á hluta tímabilsins sat hann í fangelsi á Litla-Hrauni en hann hélt þá áfram að fylla út innskattsskýrslur sem enginn fótur reyndist fyrir enda fyr- irtæki hans ekki í neinum teljandi rekstri. Krafan á hverri skýrslu reyndist nema hundruðum þúsunda króna og náði hann að svíkja féð út umyrðalaust af hálfu skattayfir- valda áður en málið sætti rannsókn. -Ótt Kjaramálin: Dagsbrún segir upp - fundahrina um helgina Verkamannafélagið Dagsbrún sagði í gær upp kjarasamningum frá og með áramótum. Vinnuveit- endasambandið mótmælir uppsögn- inni og segist muni vísa henni til Félagsdóms, þar sem fyrir er kæra þess á hendur Verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði vegna þess sama. Þá segir Vinnuveitendasamband- ið að umsamih launahækkun, upp á 2.700 krónur, sem koma á til greiðslu um áramót, falli niður hjá þeim félögum sem segja samningun- um upp. Mikil fundahöld verða um helg- ina bæði formleg og óformleg. Á sunnudaginn verður haldinn fund- ur formanna landssambanda innan ASÍ og sambandsstjórnarfundur ASÍ verður haldinn á mánudag og þriðjudag. Talið er að þar verði end- anlegar línur lagðar í kjaradeilunni. Vaxandi vilji er fyrir því innan verkalýðshreyfingarinnar að launa- nefndin segi kjarasamningunum upp fyrir hönd allra verkalýðsfélaga innan vébanda Alþýðusambands ís- lands en ekki að hvert félag um sig geri það. -S.dór L O K I Veðrið á morgun: Minnkandi frost Á morgun verður norðlæg átt, stinningskaldi allra austast framan af degi en annars gola eða kaldi. Dálítil él verða norð- austanlands en annars þurrt og allvíða léttskýjað. Heldur minnkandi frost, fyrst vestan til. Veðrið í dag er á bls. 36 Grensósvegi 11 Sfmi: 5 886 886 Fax: 5 886 888 Grœnt númen 800 6 886

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.