Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
Fréttir
Skoðanakönnun DV um fylgi borgarstjórnarflokkanna:
Sjálfstæðisflokkur tekur
fylgi frá öðrum flokkum
- einkum Alþýðuflokki og Þjóðvaka
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæö-
ismanna í Reykjavík, D-listinn, sæk-
ir 11,3 prósent af fylgi sínu til kjós-
enda sem sem styðja aðra flokka í
alþingiskosningum. Reykjavíkur-
listinn, R- listinn, sækir hins vegar
4,2 prósent af fylgi sinu til kjósenda
Sjáífstæðisflokksins í alþingiskosn-
ingum. Þetta má lesa út úr skoðana-
könnun sem DV gerði í síðustu
viku.
Af þeim sem afstöðu tóku í könn-
un DV sögðust 60,7 prósent kjósa D-
lista sjálfstæðismanna ef gengið
yrði til borgarstjórnarkosninga
núna en 39,3 prósent R-lista Reykja-
víkurlistans. Úrtakið var 434 kjós-
endur í Reykjavík, þar af 222 karlar
og 212 konur.
í könnuninni var einnig spurt um
hvaöa stjórnmálaflokk viðkomandi
myndi kjósa ef gengið yrði til þing-
kosninga núna. Af þeim sem tóku
afstöðu í Reykjavík sögðust 14,5 pró-
sent styðja Alþýðuflokkinn, 7,2 pró-
sent Framsóknarflokkinn, 55,7 pró-
sent Sjálfstæðisflokkinn, 12,3 pró-
sent Alþýöubandalagið, 6,4 prósent
Kvennalista og 3,8 prósent Þjóð-
vaka.
Sé afstaða reykvískra kjósenda til
borgarstjórnarflokkanna borin sam-
an við stuðning þeirra við flokka í
alþingiskosningum kemur í ljós
ákveðið flökt milli stórnmálahreyf-
inga. Þótt kjósandi styðji Sjálfstæð-
isflokkinn í alþingiskosningum þarf
svo ekki að vera í borgarstjórnar-
kosningum. Sama er að segja um
stuðningsmenn þeirra flokka sem
standa að Reykjavíkurlistanum.
Taka verður þó öllum tölum í þessu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Árni
Sigfússon takast á um fylgi
kjósenda. í skoðanakönnun DV er
Sjálfstæöisflokkurinn með yfir-
höndina og sækir fylgi sitt meðal
annars til kjósenda þeirra flokka
sem standa að Reykjavíkurlistan-
um. DV-mynd GVA
sambandi meö varúð vegna smæðar
úrtaksins.
Flökt milli stjórnmálaafla
í könnun DV kom í ljós að 44,1
prósent þeirra sem kjósa Alþýðu-
flokkinn i alþingiskosningum styð-
ur D- lista sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, 50,0 prósent Reykjavíkur-
listann en 5,9 prósent eru óákveðin
eða neita að gefa upp afstöðu sína.
Stuðningsmenn Framsóknar-
flokks í alþingiskosningum skiptast
þannig í afstöðu til borgarstjórnar-
flokkanna að 88,2 prósent styðja
Reykjavíkurlistann, 5,9 prósent D-
lista sjálfstæðismanna en 5,9 pró-
sent eru óákveðin eða neituðu að
svara.
Hvað varöar stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokks í alþingiskosningum
kom í ljós í könnun DV að yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra styöur D-lista
sjálfstæðismanna í borgarstjóm, eða
94.7 prósent. Á hinn þóginn styðja
4,6 prósent þeirra Reykjavíkurlist-
ann en 0,8 prósent voru óákveðin
eða neituðu að gefa upp afstöðu sína.
Stuðningsmenn Alþýðubandalags-
ins í alþingiskosningum styðja upp
til hópa Reykjavíkurlistann, eða 93,1
prósent. D-lista sjálfstæðismanna
styðja 3,4 prósent en 3,4 prósent eru
óákveðin eða neituðu aö svara.
í hópi stuðningsmanna Kvenna-
listans í alþingiskosingum segjast
86.7 prósent styðja Reykjavíkurlist-
ann og 13,3 prósent D-lista sjálfstæð-
ismanna. í hópi stuðningsmanna
Þjóðvaka var þessu öfugt farið því
þar á bæ sögðust 66,7 prósent styðja
D-lista sjálfstæðismanna og 33,3 pró-
sent Reykjavíkurlistann.
í könnun DV kom í ljós að þeir
kjósendur sem eru óákveðnir eða
neita að gefa upp afstöðu sína til
flokka í alþingiskosningum skiptast
nokkuð jafnt á milli borgarstjórnar-
flokkanna. Ríflega þriðjungur sagð-
ist styðja D-lista sjálfstæðismanna,-
tæplega þriðjungur Reykjavíkurlist-
ann en tæplega þriðjungur sagðist
áfram óákveðinn eða neitaði að gefa
upp afstöðu sína. -kaa
Borgarstjórnarflokkarnir
Til hverra sækja borgarstjórnarflokkarnir fylgi?
■ Sjálfstæðisflokkur -a. 5,9 4,
B Reykjavíkurlisti
Oákveðnir, svara ekki
Oákveðnir,
svara ekki
Dagfari _____________________
Sannir karlmenn
Auglýsingatækninni fleygir
fram. Menn eru sífellt að finn upp
nýjar aðferðir til að auglýsa upp
söluvöru sína. Enda veitir ekki af í
allri samkeppninni og fjölbreytn-
inni. Maður veit ekki einu sinni af
nærri því öllu sem á boðstólum er
og Dagfari hrekkur upp með and-
fælum á hverri nóttu yfir þeirri til-
hugsun að hann sé hugsanlega að
missa af einhverju. Nú er jólavert-
íðin að ganga í garð og auglýsinga-
flóðið magnast dag frá degi og mað-
ur verður að hafa sig allan við til
að fylgjast með nýjungunum og til-
boðunum sem berast hvaðanæva.
Það þarf hugmyndaríka kaupmenn
til að standa sig í þessum harða
slag. Þeir sem ekki auglýsa, og aug-
lýsa vel, eru dæmdir til að tapa og
það jafnvel þótt þeir hafi finustu
vörurnar og nýjustu uppfinning-
arnar.
Þeir bara veröa undir ef þeir
auglýsa ekki og auglýsa ekki betur
og meir heldur en aðrir. Þetta verð-
ur æðisgengið kapphlaup. Ekki að-
eins milli viðskiptavina heldur
einnig fyrir kaupsýslumenn og
búðareigendur. Verslunarráð á að
verðlauna menn fyrir góða
frammistöðu á auglýsingamark-
aðnum og sennilega ættu fjölmiðl-
ar að taka þátt i þeirri verðlaunaf-
hendingu því auðvitað hagnast fjöl-
miðlarnir á auglýsingunum og nú
er um að gera að standa sig og
trekkja.
Besta framlagið til þessarar til-
tölulegu nýju atvinnugreinar átti
sér stað í fyrradag þegar verslunar-
eigandi í Austurveri auglýsti að
þeir sem kæmu naktir í búðina
fengju ókeypis GSM-síma. Við-
skiptavinirnir brugðust fljótt við,
enda láta þeir sér fátt fyrir brjósti
brenna þegar ókeypis varningur er
á boðstólum. Tugir naktra karl-
manna stilltu sér upp fyrir framan
dyr verslunarinnar löngu áöur en
opnað var og voru þar mættir
sannir karlmenn, sannir fulltrúar
sterka kynsins, kviknaktir í föngu-
legri röð. Gilti þá einu hvort þeir
voru feitir eða mjóir, vöðvastæltir
eða álappalegir. Hver og einn
gegndi skyldu sinni af karl-
mennsku og fórnarlund í þágu þess
málstaðar að ná sér í ókeypis síma.
Bæði er að sannir karlmenn láta
sig ekki muna um að ganga klæða-
lausir til viðskipta ef svo ber undir
og svo er hitt aö enginn er lengur
sannur karlmaður nema hann hafi
GSM-síma hvort heldur er klæddur
eða nakinn.
Það fer saman að sýna manndóm
sinn berstrípaður og geta hringt i
GSM-síma undir þeim kringum-
stæðum og þess vegna kom það
ekki á óvart hversu vel hinir
sönnu karlmenn brugðust við þeg-
ar kallið kom í Austurveri. Það er
enginn lengur maður með mönn-
um nema eiga GSM-síma í fartesk-
inu.
Hitt er merkilegt að engar konur
skyldu láta sjá sig í nektarröðinni í
Austurveri, enda hefði það verið
ólíkt betra myndefni. En kannski
eru konur ekki eins ginnkeyptar
fyrir GSM-símum og karlar. Hing-
að til hafa þó konur þurft á símtól-
um sem öðrum tólum að halda og
verður ekki fundin önnur skýring
á fjarvistum kvennanna en með-
fædd blygðunarsemi gagnvart nekt
sinni á almannafæri. Sú blygðun
er hins vegar bæði óviðeigandi,
óþörf og úrelt og hefur það eitt i for
með sér að konur munu í framtíð-
inni missa af margs konar ókeypis
vörutilboðum og gjafakaupum ef
þær þora ekki að fækka klæðum
þegar auglýst er. Það fer nefnilega
ekki milli mála að þessi nýbreytni,
að hvetja kúnnana til að mæta
nakta, hefur slegið í gegn og mun
sannarlega verða fordæmi fyrir
aðra örvæntingarfulla verslunar-
eigendur, sem ella sitja uppi með
viðskiptavini sína í fullum klæð-
um. Það verður fljótlega púkó í
jólaösinni.
Viðskiptavinir jafnt sem versl-
unareigendur verða að tolla í tísk-
unni. Næst er kannski á dagskrá
að afgreiðslufólkið standi strípað
við afgreiðsluborðiö? Dagfari
Smærri þegnar landsins til
sjávar og sveita!
Clairbois traktorarnir eru komnir
í mörgum stærðum og gerðum.
VÖNl UÐ f lKFÖNG GERA
gæfumuni N
Heildverslunih
Bjarkey
S: 567 4151