Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
9
Utlönd
OJ. Simpson
að semja um
viðtal við CNN
O.J. Simp-
son stendur í
samningavið-
ræðum við
sjónvarps-
stöðina CNN
um fyrsta
meiri háttar
viðtalið frá
því hann var sýknaður af ákæru
um að hafa myrt fyrrum eigin-
konu sina og vin hennar.
Talsmaður CNN staðfesti frétt
blaðsins Atlanta Joumal-
Constitution um að viðræður
færu fram. Endanleg ákvörðun
um viðtalið liggur hins vegar
ekki fyrir.
Blaðið skýrði einnig frá því
að O.J. væri jafnframt að undir-
búa myndbandsspólu þar sem
hann segir sögu sína og á aö
selja hana milliliðalaust til
áhugasamra.
Eyrnabítur
lætur til skarar
skríða í
Londonderry
Eyrnabítur gengur laus í
jólaösinni í Londonderry, næst-
stærstu borg Norður-írlands, og
gerir íbúunum lífið leitt.
Lögreglan sagði í gær að árás-
armaðurinn hefði látið þrisvar
sinnum til skarar skríða gegn
nætursvöllurum í miðborginni
undir lok nóvember.
Ódæðismaðurinn beit stykki
úr eyrum tveggja fórnar-
lambanna og gátu læknar ekki
saumað hin afbitnu stykki aftur
á. Þriðja fórnarlambið slapp
óskaddað frá hildarleiknum.
„Við teljum að sami maður-
inn hafi verið að verki í öll
skiptin. Við höfum þungar
áhyggjur af þessu og gerum allt
sem hægt er til að handsama
hann,“ sagði lögreglan.
Framkvæmda-
stjóri Sony í
Ameríku hættur
Michael Schulhof, fram-
kvæmdastjóri Sony í Ameríku,
sagði starfi sínu skyndilega
lausu í gær og er jafnvel talið að
þetta sé aðeins fyrsta stóra
breytingin af mörgum í yfir-
stjóm fyrirtækisins.
Orðrómur um afsögn Schul-
hofs hafði verið á kreiki í nokkr-
ar vikur en hann hefur verið
ósammála stjórn fyrirtækisins.
Sumir heimildarmenn segja að
hann hafi verið óánægður með
að þurfa að heyra undir fram-
kvæmdastjóra móðurfyrirtækis
Sony í Ameríku, Nobuyuki Idei.
Norömenn fá
leyfi til að taka
veiöiþjófa
Úthafsveiðisáttmáli Samein-
uðu þjóðanna, sem íslendingar
og fleiri ríki undirrituðu á
mánudag, gefur Norðmönnum
leyfi til að færa til hafnar skip
sem veiða ólöglega í Smugunni í
Barentshafi og Síldarsmugunni.
Togstreitan um reglugerðarsetn-
ingu heldur hins vegar áfram.
Sáttmálinn setur reglur sem
eiga að koma í veg fyrir
rányrkju á úthöfunum og sömu-
leiðis að koma í veg fyrir deilur
af því tagi sem hafa verið um
Smuguna, Síldarsmuguna og
hafsvæðið undan austurströnd
Kanada. Samkvæmt sáttmálan-
um fá strandríki leyfi til að
framfylgja veiðistjómun utan
efnahagslögsögu sinnar.
Tuttugu og sex riki hafa þegar
undirritað sáttmálann en hann
tekur þó ekki gildi fyrr en 30
ríki hafa staðfest hann. Það mun
taka um tvö ár. Reuter, NTB
Óeiröir eftir mótmælagöngur í Frakklandi í gær:
Eldsprengjunum
varpað á lögguna
Ekki sér enn fyrir endann á verk-
fóllunum sem hafa lamað almenn-
ingssamgöngur í Frakklandi í tsepar
tvær vikur. Hundruð þúsunda
manna gengu um götur borga lands-
ins til að mótmæla fyrirhuguðum
niðurskurði á velferðarkerfinu en
ríkisstjórnin sagði að hún mundi
hvergi hvika.
Um fimm hundruð ungmenni
veltu bílum í París í gær og tuttugu
lögregluþjónar slösuðust í átökum
við námsmenn í borginni Nantes í
vesturhluta landsins.
Sveitir óeirðalögreglu reyndu að
dreifa hópi ungmenna sem höfðu
velt tuttugu bílum í höfuðborginni,
flestum fyrir utan Saint-Lazare
járnbrautarstöðina þar sem mót-
mælagöngu, sem á annað hundrað
þúsund manns tóku þátt í, lauk fyrr
um daginn. Lögreglan handtók tæp-
lega þrjátíu manns.
í Nantes átti lögreglan í höggi við
nokkur hundruð stúdenta eftir að
þeir eyðilögðu strætisvagnamiðstöð
að lokinni mótmælagöngu sem í
tóku þátt sextán þúsund manns.
Stúdentarnir vörpuðu bensín-
sprengjum að lögreglunni sem svar-
aði með því að skjóta á þá táragasi.
Alain. Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, sagði í þinginu í gær að
stjóm sín mundi ekki falla frá fyrir-
huguðum niðurskurði á velferðar-
kerfinu. „Frakkland getur valið
milli breytinga og afturfarar," sagði
Juppé við þingheim. Hann sagði að
umbótunum á velferðarkerfinu
hefði verið slegið á frest of lengi og
þær væru nauðsynlegar ef Frakk-
land ætlaði að vera áfram í fyrstu
deild Evrópuríkja, eins og hann orð-
aði það.
Vinsældir Chiracs forseta hafa
aldrei verið minni en einmitt nú,
samkvæmt skoðanakönnun sem
birt var í gær. Forsetinn nýtin1 að-
eins stuðnings 28 prósenta kjós-
enda.
Sósíalistar á þingi lögðu fram
vantrauststillögu á stjórnina en hún
var felld með miklum meirihluta at-
kvæða í gærkvöldi. Reuter
Tii snarpra átaka kom milli lögreglu og ungmenna eftir mótmælagöngur í Frakklandi í gær þar sem verið var að for-
dæma fyrirhugaðan niðurskurð á velferðarkerfi landsins. símamynd Reuter
Ekki allir hrifnir af hugmyndum Díönu um framtíðarstarf:
Ekki nóg aö geta brosað
til að verða sendiherra
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Elísabet drottning
ræddu framtíð Díönu prinsessu í
gærkvöldi en prinsessan hefur lýst
áhuga sínum á því að gerast eins
konar farandsendiherra Bretlands.
„Við skýrum aldrei frá því sem
fram fer í áheyrn hjá drottning-
unni,“ sagði talsmaður Majors eftir
fundinn i gærkvöldi.
Konungsfjölskyldan og ríkis-
stjórnin verða að finna leið til að
verða við óskum Díönu um ákveðn-
ara hlutverk en hún hefur haft að
undanfömu svo binda megi enda á
deilur hennar og Karls opinberlega.
Nokkrir stjórnmálamenn hafa
hins vegar lýst yfir efasemdum um
að Díana geti staðið undir þeirri
ábyrgð sem fylgir þvi að vera sendi-
herra.
„Það er furðulegt að hugmyndin
hafi verið tekin alvarlega," sagði
David Howell, formaður utanríkis-
málanefndar þingsins, í viðtali sem
Díana prinsessa og framtíðarhlut-
verk hennar eru ofarlega á baugi.
Símamynd Reuter
birtist í blaðinu Times í dag.
Sir Anthony Parsons, fyrrum
sendiherra Bretlands hjá SÞ, sagði
ekki leika vafa á að Díana ætti að
hfa einhverju hlutverki að gegna en
ekki hlutverki sendiherra.
„Það er einfaldlega ekkert vit í
því og það mundi ekki ganga,“ sagði
Parsons.
Díana fór nýlega til Argentínu
þar sem hún þótti standa sig vel en
samskipti landanna hafa verið erfið
frá því i Falklandseyjastríðinu 1982.
Jill Knight, þingmaður Ihalds-
flokksins og varaformaður áhrifa-
mikillar þingmannanefndar, efast
um hæfileika prinsessunnar til að
gegna sendiherrahlutverki.
„Það er ekki nóg að brosa til fólks
og klappa því á bakið. Ég er viss um
að hún hefur hæfileika til að hugga
fólk en til að verða sendiherra þarf
margra ára reynslu," sagði Jill
Knight við fréttamenn. Reuter
Stuttar fréttir
Koma undirbúin
Hersveitir NATO eru komnar
til Bosníu og undirbúa komu 60
þúsund manna herliðs sem enda
á það sem utanríkisráðherrar
NATO kalla eitt myrkasta tíma-
bil í sögu Evrópu nútímans.
Mikilvægt skref
Breska rík-
isstjórnin,
sem er langt
á eftir stjórn-
arandstöð-
unni í skoð-
anakönnun-
um, fékk
stuðning við
fjárlagafrumvarp sitt í þinginu.
Person næstur
Goran Person, fjánnálaráð-
herra Svía, skipti um skoðun í
gær og verður því forsætisráð-
herra í mars.
Óttast ofbeldi
Egyptar undirbúa aðra um-
ferð þingkosninga sem óttast er
að einkennist af ofbeldi og kosn-
ingasvikum.
Skartgripum
stolið
Skartgrip-
um, sem El-
ísabet drottn-
ing gaf
Fergie,
tengdadóttur
sinni, var
stolið er sú
síðamefnda
var á leið frá Bandaríkjunum.
Dularfull
sprenging
Eftir sprengingu á skrifstofu
þjóðernissinna í Moskvu er ótt-
ast að kosningar til neðri deild-
ar rússneska þingsins muni ein-
kennast af ofbeldi.
49 farast
49 fórust og 33 slösuðust i flug-
slysi í Aserbaídsjan. Reuter
• • * • •
LJOMA
VINNIN GSH AFAR
5. DESEMBER 1995
KITCHENAID HRÆRIVÉL
Ester Jónsdóttir, Miöengi 23, Selfossi
EI.DHÚSVOGIR
Sigrún Ásta Gunnarsdóttir, Háhæð 15, Garðabæ
Elín Harðardóttir, Klappholti 5, Hafnarfirði
SODASTREAM TÆKI
Lillý Guðmundsdóttir, Möðrufelli 15, Reykjavík
Ingibjörg Snorradóttir, Silfurgötu 9, ísafirði
Ástríður Erlendsdóttir, Hraunvegi 8, Ytri-Njarðvík
24 I. AE SAEA AÐ EIGIN VAI.I
Guðbjörg Marteinsdóttir, Klapparstíg 4, Njarðvík
Hrafnhildur Brynjarsdóttir, Sólvallagötu 46, Keflavík
Erla Ragnarsdóttir, Kambaseli 40, Reykjavík
Hreiðar Ársælsson, Haukanesi 19, Garðabæ
Sóley Sævarsdóttir, Jörundarholti 212, Akranesi
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Stórateigi 29, Mosfellsbær
Gyða Ólafsdóttir, Hjarðarhaga 58, Reykjavík
Hulda Gunnarsdóttir, Reykjabraut 21, Þorlákshöfn
Guðrún Brynjólfsdóttir, Tjarnarmýri 15, Seltjarnarnesi
Sigurborg Jónsdóttir, Þorsteinsgötu 9, Borgarnesi
VINNINGA MÁ VITJA í SÓL HF.,
ÞVERHOLTI 19-21, SÍMl 562 6300
« • • • •