Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 Spurningin Færðu þér ný föt fyrir jólin? Guðni Hjörleifsson, netagerðar- maður af lifi og sál: Ég er búinn að fá mér þau. Jóhannes Ólafsson lögga: Já, að sjálfsögðu. Svanhildur Guðlaugsdóttir ræst- ingastjóri: Já, einhvern kjól eða góð- an samkvæmisjakka. Þórunn Lísa Guðnadóttir nemi: Já, skotapils og stutta peysu. Karitas Björgúlfsdóttir nemi: Já, pils. Hjördís Inga Pálsdóttir nemi: Ég veit það ekki. Lesendur Úthafsveiöisamningarnir: Uppstytta eða endanleg uppgjöf? Jóhannes Sigurðsson skrifar: Til skamms tíma hafa fiskveiði- málin, samningar okkar við ná- grannaþjóðirnar, Norðmenn og Rússa, verið ofarlega í umræðunni. - Þegar frá eru taldar hörmungar á innlendum vettvangi sem verða ávallt eins konar brimbrjótur og yf- irgnæfa allt annað. Þegar frá líður tökum við svo upp þráðinn þar sem frá var horfið. En nú skall skyndi- lega á deilan um uppsögn kjara- samninga og þá urðu fiskveiðimálin að láta undan. Hvað úr hverju fer svo deilan um úthafsveiðiréttindin af stað á ný ef að líkum lætur. En þó er á það að líta að það er eins og komin sé upp- stytta í þau mál. Sumir halda því jafnvel fram að við séum endanlega búnir að gefast upp í þessu máli eft- ir frumkvæði Norðmanna að kvóta- skiptingu á miðunum í Norðurhöf- um. Við Rússa eigum við ekkert er- indi og jafnvel standi okkur enn nokkur stuggur af þessum hluta fyrrverandi Sovétkerfisins frá því í kalda stríðinu. En hvað sem um þetta má segja erum við íslendingar líklega búnir að tapa því forskoti sem við þó höfðum fram yfir aðrar þjóðir hér á norðurslóðum (ásamt Færeyingum) og byggðist á að vera þjóð sem lifir á fiskveiðum mestan part. Fyrir mitt leyti get ég ekki séð neina aðra framvindu í þessum út- hafsveiðimálum frá okkar hendi en að vísa öllu til alþjóðadómstóls, og það sem allra fyrst. Ég sé ekki neina von til þess að íslenskir stjórnmála- menn leysi eitt né neitt úr þessu. „Og sífellt fækkar þeim sem vilja koma nálægt þessum atvinnuvegi," segir bréfritari m.a. Svo illa höfum við haldið á spilun- um að bæði Norðmenn og Rússar, jafnvel Kanadamenn líka, eru þess fullvissir að við okkur verði auðvelt að eiga og þessar þjóðir geti pakkað okkur saman hvenær sem er og á hvaða ráðstefnu sem haldin kann að verða. Umræðan hér á landi er nú líka komin i þann farveg að landsmenn eru miklu meira með hugann við innanlandserjur í beinum stjórn- málum, svo sem kaup og kjör, vinnudeilur og jafnvel komandi for- setakjör en að þeir hafi almennt áhuga á að fylgjast með hvort ein- hver danglar með annarri hendinni til Norðmanna eða Rússa út af út- hafsveiðisamningum. - Raunar er almenningur að verða frábitinn allri alvarlegri umræðu um fisk og fiskveiðar og sífellt fækkar þeim sem vilja koma nálægt þessum at- vinnuvegi, utan hvað sjómenn, sem hafa löngum krafsað hjarta og lungu aflaverðmætisins til sín, vilja ólmir viðhalda þeim hætti - og gera það óáreittir. A „Oþollandi“ í vanda Dóra Jakobsdóttir skrifar: Það er með ólíkindum hversu sannir listamenn megna að varpa nýju ljósi á mál í brennidepli þegar þeir vanda um við þjóð sína. - Þannig höfðum við „blævængjafrúr með Barbíhausa" ekki hugmund um að útvarpssaga Hrafns væri svona fyndin fyrr en Sverrir Stormsker benti á það í kjallagrein í DV þann 27. f.m. - Ákaflega gefandi lesning. Því miður var sagan ekki auglýst sérstaklega sem skopsaga, þótt full ástæða hefði verið til, í ríkisútvarpi svo illa gerðrar og ófyndinnar þjóð- ar. Meira að segja hárbeitt ádeila Sverris á borð við þetta: „Legg til að fyrri hluti þessa orðs „bókaþjóðin“ verði í eintölu: bókarþjóðin, með til- vísun í símaskrána“ fer fyrir ofan garð og neðan og er afgreidd í postu- línsdúkkusamkvæmum okkar með þeirri lágkúru að þetta sé óþarfa vafstur - símaskráin sé nú í tvennu lagi og við getum því haldið því fram með sanni að við séum bókaþjóð. Þá upplýsir Sverrir líka að Hrafn sé skemmtilegur og góður drengur. Það vissum við ekki heldur. Líkast til hefur því verið haldið vandlega leyndu eins og svo mörgu öðru í þjóðfélaginu. Hins vegar gæti það auðvitað hafa komið fram í Helgar- póstinum, eins og annað sem ekki fer hátt, en hann lesum við auðvitað ekki, siðprúðar kærleikskonurnar. - Þetta kom okkur sem sé mjög á óvart og vitum við nú ekki okkar ijúkandi ráð því kannski er þetta bara grín hjá Sverri. Friðsælast og farsælast fyrir jafn smáborgaralega, fáfróða og húmors- lausa þjóð og okkur íslendinga væri að spaugarar og fjöllistamenn á borð við Sverri og sálufélaga hans kæmu verkum sínum á framfæri hjá er- lendum, upplýstum menningarþjóð- um sem kynnu að hafa betri erfða- fræðilegar forsendur tO að meta verk þeirra. Við, Pollýönnurnar, megum ekki til þess hugsa að menn búi hér í ósátt við sína ófullkomnu þjóð og leggi á sig, og okkur hin, ómældar pislir við að þola hér við. Eitt tónlistarhús, takk Svanhildur skrifar: Nokkur hópur fólks stóð nýlega á Austurvelli og afhenti menntamála- ráðherra skjal eða beiðni um eitt stykki tónlistarhús. Svo stillti það ráðherra upp við innganginn á Al- þingi, lét lúðrasveit spila lagstúf og þar með hefur ráðherra víst átt að skilja hvað að honum snýr. - Gefa loforð um stuðning ríkisins. Varla hefur það nú búist við að ráðherra töfraði fram svona byggingu á [LlÍliEMÞj ónusta allan sólarhr^ Aöeins 39,90 mínútan - eða hringið í síma 550 5000 milli kl. 14 og 16 Frá tónleikum í Háskólabíói stundinni! Og þó, maður veit aldrei. Þrýstihópurinn gaf hins vegar ekki upp hvað hann vildi spara á móti, kæmi ríkið til aðstoðar. Held- ur þetta fólk virkilega að það geti stillt ráðamönnum upp við vegg og beðið um ríkisaðstoð? Því gerir þetta fólk ekki sjálft eitthvað í mál- unum? Það gerði Albert heitinn Guðmundsson þegar hann byggði Valhöll, hús sjálfstæðismanna. Hann virkjaði íjöldann í flokknum í vinnu og fjármunum. Það eru til miklu fleiri tónlist- arunnendur í landinu en sjálfstæðis- menn í Reykjavík. Tónlistarmenn geta farið á stúfana og aflað fjár. Hefur það e.t.v. ekkert gengið? Þá dugar líka Háskólabíó áfram til stór- tónleika. Abyrgð Hús- næðisstofn- unar? Gréta skrifar: Þaö er ef til vill ekki tiltökumál þegar menn misnota svo aðstöðu sína sem raun ber vitni hjá Hús- næðisstofnun. Yfirmaður stofnun- arinnar talaði um „viðkvæmni". Því fólki sem lent hefur í greiðslu- efriðleikum vegna heimskulegra aðgerða þessarar sömu stofnunar hefur ekki verið sýnd viðkvæmni. Fólki sem t.d. byggði á árunum 1987-93. í heilu hverfunum, t.d. í Mosfellsbæ og Grafarvogi, hafa orðið húseigendaskipti vegna þess að fólkið sem byggði lenti í hrika- legum affollum af húsbréfunum eða var með óraunhæft greiðslu- mat upp á vasann. Hver ber ábyrgðina, eða á reglunum um greiðslumatið? Hveijir stóðu fyrir húsbréfunum sem mokað var út á markaðinn svo að þau urðu verð- lausir pappírar? Hvar er faglega ábyrgðin? Húsnæðisstjórn eða yfirstjóm hennar hlýtur að bera ábyrgð Greitt fyrir at- vinnuleyfi Þórður P. hringdi: 1 kjölfar uppþots hér á landi vegna pólskra verkamanna og kvenna sem hingað komu og áttu að hafa orðið að greiða um 1000 dollara í heimalandinu áður en þeir fóru hingað má spyija hvort það sé eitthvaö óeðlilegt. Ég veit ekki betur en hér á landi starfl þjónustufyrirtæki sem taka gjald fyrir að vera milligöngumenn um ráöningar í störf. Hver er munur- inn? Hafi Pólverjar innt gjald af hendi í sínu heimalandi fyrir milligöngu um vinnu hér þurfa þeir ekki að greiða fyrir sömu þjónustu aftur hér. Eða þykjast ís- lenskir aðilar vera að missa spón úr sínum aski? Vísa Gunnars Thoroddsens J.M.K. skrifar: í spurningakeppni laugardags- blaðs DV er spurt um stjórnmála- mann og fyrsta vísbending er eft- irfarandi vísa sem viðkomandi orti: Að vera eða vera ekki, William Shakespeare orti forð- um. Að vera eða vera ekki, er vinstri stjórn í fáum orðum. - Þarna er ekki rétt meö fariö og skeikar orðinu sem lýsir tilefni vísunnar. - Seinni hendingin er á þessa leið og hefur í engu tapað gildi sínu: Að vera og að vera ekki er vinstri stjórn í fáum orðum. Rislítið nafn á sjónvarpsstöð Jóhann Kristófer Helgason skrifar: Ég lýsi undrun minni yfir ris- lítilli nafhgift á nýju sjónvarps- stöðinni, Stöð 3. Bókmennta- og söguþjóðin hlýtur að hafa fundið eitthvað frumlegra í samkeppn- inni um nýja nafnið. Þetta hljóm- ar eins og 3. flokks stöð! Hvað kemur svo? Stöð 4 og Stöð 5? Bændur og gróðureyðing H. Ó. skrifar: Fjcflmiðlar hafa kjamsað á því að bændur séu að eyða gróðri landsins. - í nýlegu fréttabréfi Landgræðslunnar segir m.a. á bls. I, undir fyrirsögninni „Bændur græða landið": „Þúsundir hektara lands af melum, flagmóum, rofa- börðum o.fl. eru í uppgræðslu hjá bændum". - Þetta er nú öll land- eyðingin sem bændur stunda! Gróðrinum á hálendi landsins verður ekki haldið við nema með hóflegri beit, sem er hagabót. Þar dugar enginn friðunarvaðall, hvað sem menn segja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.