Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 JjV
Tsjetsjensku uppreisnarmennirnir enn viö landamærin:
Leystu átta konur
og börn úr haldi
Uppreisnarmenn frá Tsjetsjeníu,
sem rússneskar hersveitir hafa um-
kringt í þorpi við landamæri
Dagestans og Tsjetsjeníu, leystu átta
af um tvö hundruð gíslum sínum úr
haldi í gær, konur og börn.
Alexander Míkhaílov hershöfð-
ingi, talsmaður rússnesku hersveit-
anna sem umkringja þorpið Per-
vomajskaja, sagði að í hópnum
hefðu verið íjórar konur, þijú böm
og einn táningur. Hann sagði ekki
hvort samið hefði verið við mann-
ræningjana.
Blaðamenn á staðnum sáu gísl-
ana ekki en Míkhaíiov sagði að þeir
hefðu verið fluttir í varðstöð hers-
ins.
„Við viljum fá hina gíslana lausa
og við viljum ekki að neinar upplýs-
ingar berist út sem gætu komið í
veg fyrir það,“ sagði Míkhaílov við
fréttamenn utan við Pervomajskaja.
Samningamenn reyna hvað þeir
geta að fá alla gíslana leysta úr haldi
en nokkur svartsýni ríkir meðal
þeirra um að það gangi. Uppreisnar-
mennimir kreijast þess að fá að fara
aftur inn til Tsjetsjeníu og hafa beð-
ið um að fá þekkta rússneska þing-
menn, blaðamenn og fulltrúa mann-
úðarstofnana til að fylgja sér.
Sérfræðingar í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum sögðu í gær
að tíminn væri hugsanlega að renna
út fyrir tsjetsjensku uppreisnar-
Rússneskur hermaður fylgist með óbreyttum borgurum sem hafa safnast saman við varðstöð hersins þar sem
samningamenn reyna að fá gísla tsjetsjensku uppreisnarmannanna lausa. Símamynd Reuter
Mitterrand valdi dánardægrið
Afeitrun er
ekki lækning á
áfengisfíkninni
Afeitrunarmeðferð sem mjög
víöa er notuð í baráttunni gegn
áfengissýki og eiturlyfjafíkn
læknar ekki fiknina.
Þetta kemur fram í grein sem
ástralskir læknar skrifa í
nýjasta hefti breska lækna-
blaðsins Lancet. Þar segir að
meirihluti alkóhólista og eitur-
fikla sem gangast undir afeitr-
unarmeðferð muni halla sér að
fyrri iðju fái þeir ekki annars
konar meðferð i bland.
Læknamir segja að mörg
lönd byggi meðhöndlun sína á
alkóhólistum og eiturlyfjasjúk-
lingum á afeitrun en það sé á
misskilningi byggt að slíkt sé
lækning.
Major hafnar
hægriráðlegg-
ingum
Thatcher
John
Major, for-
sætisráð-
herra Bret-
lands, magn-
aði óeining-
areldana inn-
an íhalds-
flokksins í
gær þegar hann hafnaði alfarið
þeim ráðleggingum Margaretar
Thatcher, fyrirrennara sins, að
taka upp hægristefnu hennar
að nýju.
Thatcher lagði þetta til í
hvassyrtri ræðu sem hún hélt á
fimmtudag, fyrstu stóru ræðu
sinni um innanríkismál frá því
hún var hrakin úr embætti árið
1990. Major vísaði einnig á bug
staðhæfingum hennar um að
flokkurinn hefði svikið stuðn-
ingsmenn sína innan millistétt-
arinnar. „Hvatningin og tæki-
færin eru til staðar,“ sagði
Major við fréttamenn í kjör-
dæmi sínu í austurhluta Eng-
lands.
Enginn frestur
fyrir Serba
Javier Solana, framkvæmda-
stjóri NATO, útilokaði i gær að
tafir yrðu á því að Serbar skil-
uðu hverfum sínum í Sarajevo í
hendur ríkisstjórn landsins,
þrátt fyrir hótanir um stórfellda
fólksflutninga.
„Fara veröur eftir friðarsam-
komulaginu og enginn mun
breyta því,“ sagði Solana á fundi
með fréttamönnum í fyrstu
heimsókn sinni til Bosníu.
Margir Serbar hafa þegar
grafið upp látna ættingja sina og
flutt eigur sínar á brott. Sumir
hafa jafnvel brennt hús sín.
Solana lýsti yfir vonbrigðum
með að Bosníustjórn skyldi ekki
reyna að sannfæra Serba um að
þeim yrði engin hætta búin eft-
ir valdaafsalið. Reuter
Olíuverö erlendis:
Mesta fall
í fimm ár
Verð á olíu á heimsmarkaði féll
verulega sl. fimmtudag. Fallið hefur
ekki verið meira í fimm ár eöa frá
því Persaflóastríðið stóð sem hæst.
Ástæða fallsins er einkum spá um
hlýnandi veður á norðurhveli jarð-
ar og þar með snarminnkandi eftir-
spurn eftir eldsneyti. Það er einkum
hráolía og gasolía sem hefur lækkað
í verði. Lækkun á bensíni hefur ver-
ið óveruleg undanfama viku.
Hlutabréfavísitölur í London,
Tokyo og Frankfurt náðu sögulegu
hámarki í vikunni en fjárlagadeilan
í Washington m.a. hefur lækkað
hlutabréfaverð í Wall Street.
Verð á kaöi hefur lækkaö tölu-
vert í ársbyrjun en sykurverð helst
svipað á erlendum mörkuðum.
Reuter
Frangois Mitterrand, fyrrum
Frakklandsforseti, sem var borinn
til grafar á fimmtudag, bjó sig vand-
lega undir dauða sinn, valdi jafnvel
daginn sem hann dó, að sögn vina
og samstarfsmanna hans.
„Nokkrum dögum fyrir dauða
sinn sagði hann við mig: „Núna hef
ég öðlast hugarró“,“ sagði Roland
Dumas, náinn vinur Mitterrands og
fyrram utanríkisráðherra, í viötali
við franska sjónvarpsstöð.
Dagblaðið Le Monde skýrði frá
því í gær að síðastliðinn laugardag
hefði Mitterrand spurt líflækni
sinn, Jean- Pierre Tarot, hvað
mundi gerast ef hann hætti að taka
öll lyf nema þau verkjastillandi.
Tarot svaraði því til að hann mundi
deyja innan þriggja daga. Mitt-
errand dó síðan á mánudagsmorg-
un.
Daginn fyrir dauöa sinn kom Mit-
terrand handskrifuðu þriggja síðna
bréfi til Andrés Rousselets, gamals
félaga síns, þar sem var að finna ná-
kvæm fyrirmæli um tilhögun útfar-
arinnar.
Mitterrand var mikill bókamaður
og jafnframt var hann sískrifandi.
mennina og gísla þeirra vegna mik-
ils viðbúnaðar Rússa.
„Þetta er svo stór hópur einarðra
hryðjuverkamanna að ég tel að ekki
sé mikið hægt að gera án þess að til
mikils blóðbaðs komi,“ sagði Yigal
Carrnon, fyrram ráðgjafi stjórn-
valda í ísrael.
Paul Wilkinson, prófessor við há-
skólann í St. Andrews í Skotlandi,
sagði að ef Salman Radújev, leiðtogi
uppreisnarmanna, og menn hans
yrðu ekki teknir eða drepnir, gæti
það leitt til þess að fleiri hópar færu
að herma eftir þeim. Slíkt gæti jafn-
vel komið i veg fyrir að Jeltsín for-
seti nái endurkjöri í júní i sumar.
Reuter
Að sögn útgefanda hans vann hann
að endurminningum sínum til
hinstu stundar.
„Hann vann að þeim fram á síð-
asta dag sem hann lifði og hann
lauk við verkið," sagði útgefandi
hans í viðtali við blaðið France-
Soir.
Mitterrand sem skrifaði einungis
með lindarpenna ætlaði að vinna
frekar að verkinu sama morgun og
hann dó en hann var ekki nógu
hress til að geta það. Hann fór því
aftur að sofa. Hann vaknaði ekki
aftur. • Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
JíÆiiiiiW
5400 5200 5000 4800 Dow Jones FT-SE 100
fs£/ 3700 3600 3500 /f
«bUU 5065,10 3654,9
U N D J 0 N D J
310|
1
'314,0
1724
2400 DAX-40 rjk
2200 /tfi
/-1UU" . 2329,51
D N D J
20377,82
N D J
mmmmm
jl60
$/t 0 N
.. 176
$/1 0 N D J
■
HangSeng
10427,20
0 N D J
$/ A
|tunna U
DV
stuttar fréttir
Sjálfsmorð aldraðra
Sjálfsmoröum aldraðra í
Bandaríkjunum fer nú fjölg-
andi og er þunglyndi, áfengis-
misnotkun, félagslegri einangr-
un og veikindum kennt um.
Víst er helvíti til
Helvíti er til en þar búa þó
ekki árar og djöflar, eins og
kennt hefur verið, segir í
skýrslu ensku þjóðkirkjunnar.
Chirac upp á við
Franskir
kjósendur
virðast vera
aðeins sátt-
ari við
frammistöðu
Jacques
Chiracs í for-
setaembætt-
inu en þeir hafa verið um nokk-
urt skeið, ef marka má skoð-
anakönnun sem birtist í viku-
ritinu Valeurs Actuelles, en 41
prósent aðspurðra sagði hann
standa sig vel.
Átök í Bahrain
Lögi-egla í Persaflóaríkinu
Bahrain skaut táragasi og
gúmmíkúlum til að dreifa um
eitt hundrað ungmennum sem
reyndu að safnast saman í sjíta-
mosku.
Banaslys í Saír
Um 35 manns létu lifíð þegar
fólks- og vöruflutningabíl
hvolfdi rétt norðan Kinshasa,
höfuðborgar Saír, í gær.
Sænskir gagnrýndir
Sænsk stjómvöld og lögregla
sæta harðri gagnrýni fyrir að
vísa tveimur kúrdískum fjöl-
skyldum úr landi til Tyrklands
eftir fimm ára baráttu þeirra til
að fá að vera i Svíþjóð.
Út í óvissuna
ítalskir kjósendur fengu þau
boð frá stjórnmálamönnum sín-
um í gær, eftir afsögn Dinis for-
sætisráðherra, að landið stefndi
út í óvissuna og hugsanlega
þyrfti að boða til kosninga fyrr
en ætlað var.
í farbanni
Hæstiréttur Spánar hefur úr-
skurðað fyrrum innanríkisráð-
herra landsins í farbann vegna
rannsóknar á svokölluðu
„skítugu stríði" stjómvalda
gegn aðskilnaðarsinnum
Baska.
Svíar segja frá
Umfangsmesta könnun á
kynlífi Svía í nærri 30 ár hefst í
næstu viku og munu fimm þús-
und frændur okkar skýra frá
þvi sem þeir aðhafast við rúm-
stokkinn.
Gore til viöræöna
A1 Gore, varaforseti Banda-
ríkjanna, heídur til Mið-Austur-
landa í næstu viku til.viöræðna
við .Mubarak Egyptalandsfor-
seta og Peres, forsætisráðherra
ísraels.
Hræddir um Díönu
Tæplega
fertugur karl-
maður var
handtekinn í
gær fyrir
utan heilsu-
ræktarstöð-
ina sem
Díana
prinsessa venur komur sínar til
og var hann ákærður fyrir að
spilla friði á almannafæri.
Díana var ekki á staönum.
Falsari deyr
Enski listaverkafalsarinn
Eric Hebron lést af völdum höf-
uðáverka i Róm á fimmtudag.
Meiri snjór vestra
Allt athafnalíf lamaðist á
austursti-önd Bandaríkjanna í
gær vegna frekari snjókomu en
menri voru ekki enn búnir að
jafna sig eftir áhlaupið fyrr í
vikunni. Reuter