Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 Það árangursríkasta í baráttunni við aukakíióin: mínútur að morgni, aðrar tíu mín- útur í hádeginu, og í sama tíma að kvöldi. Hálftíma hreyfing þrjá daga i viku hjálpar mikið. Gangið upp stiga í stað þess að taka lyftu. Spergilkál, gulrætur og nokkur blöð af hvítkáli er mjög gott að borða því grænmetið hreinsar lík- amann og er mjög heilsusamlegt. Sagt er að spergilkál geti komið í veg fyrir krabbamein og hjartasjúk- dóma. Allir vita að allt grænmeti hefur að geyma litla fitu og kólester- ól. Það sama má segja um ávexti sem yfirleitt eru mjög vítamínríkir. í hnetum og möndlum er mikið af E-vítamíni. Fólk þarf að borða mik- ið af þeim til að fá nægilegt magn af vítamíninu en hnetur og möndlur eru ákaflega fltandi svo ekki er það ráðlegt. Þess vegna hefur fólk frekar kosið að taka E-vítamín inn í töflu- formi. Borðið vel á morgnana Sagt er að morgunverðurinn sé nauðsynlegasta máltíð dagsins. Sjálfsagt eru margir hverjir sem sleppa morgunverði og láta sér nægja svart kaffl þegar í vinnuna er komið. Mikilvægt er að vakna nokkru áður en lagt er af stað í vinnu og gefa sér tima til að borða hollan og næringarríkan morgun- verð. Flestir vita það nú að fljótvirk- ir megrunarkúrar eru ekki til. Það tekur líkamann tíma að grennast og þolinmæðin ræður þá ríkjum. Ef fólk hefur tekið þá ákvörðun að létt- ast verður breytt mataræði að vera efst á listanum ásamt hreyfingunni. Morgunverður fyrir þá sem ætla að léttast getur verið þannig: 1 glas léttmjólk, hálf gróf brauðssneið með skinku (ekki smjör) og hálf með létt- marmelaði, ein hrökkbrauðssneið með léttum osti og hálf appelsína. Ef menn vilja ekki brauð geta þeir búið sér til hafragraut og borðað epli með eða musli með léttmjólk, eða sýrðri mjólk. Góður kostur Hægt er að spara sér heilmikinn pening með því að taka matarpakka með sér i vinnuna. Ein gróf brauð- sneið með áleggi og paprikuskífu, léttjógúrt, ein gulrót og kaffi er einn kostur. Annar kostur er þrjár hrökkbrauðssneiðar með áleggi eða léttum osti, ein appelsína og kaffi. Einnig er hægt að búa sér tii gott ferskt salat. Það er engin ástæða til að sleppa máltíðum þó mann langi að léttast. Góð fiskisúpa í kvöldmat með grófu brauði þarf ekki að vera fitandi auk þess sem allir ijölskyldumeðlimir geta þá borðað sama matinn. Mag- urt kjöt er ákjósanlegt með hrígrjónum eða grænmeti. Aðalat- riðið er að gæta hófs og ef einhvern langar að narta milli mála þá er allt í lagi að boröa ávexti eða grænmeti og drekka vatn eins og hver getur í sig látið. -ELA Margir eru þeir sem hafa fyllst sektarkennd gagnvart vigtinni í byrjun ársins enda desember mikifl matmánuður. Sumir hafa þegar tek- ið til hendinni, farið út að hlaupa, ganga, í leikfimitíma eða breytt mataræðinu. Um leið og menn byrja að hreyfa sig eru þeir komnir af staö í megrunarkúrnum. Allir sér- fræðingar eru sammála um að hreyfing, hvort sem hún fer fram í líkamsræktarstöðvum eða bara úti á götu, sé besti megrunarkúrinn. Þá eru allir sammála um að vatn gerir kraftaverk fyrir þá sem vilja grenn- ast. Menn eiga að drekka mikið vatn, frá einum upp í þrjá litra á hverjum degi. Hreyfing og vatn skipta því mestu máli. Annað sem er mjög mikilvægt, vilji menn grenna sig, ér að sleppa allri fitu í mat svo og minnka sykur- neyslu. Næringarfræðingar vilja meina að menn eigi að borða reglu- lega en gæta hófs. Ekki er viturlegt að svelta sig. Þá er gótt að auka grænmetisneyslu á kostnað t.d. kjöts. Veljið rátta hreyfingu Það ætti enginn að fara í leikfimi og láta sér leiðast. Mun frekar á fólk að finna sér hentuga leið til hreyf- ingar - eitthvað sem því þykir skemmtilegt. Gott mataræði og hreyfing yngir fólk. Fyrir ungt fólk er kröftugt eró- bikk ágætis lausn því það á að svitna og púla. Sagt er unga fólkið eigi að eyða 20 mínútur þrisvar í viku í hreyfingu. Rannsóknir sýna að göngur, hlaup eða dans halda beinunum sterkum og koma í veg fyrir að þau verði stökk. Trimm af margvísleg- um toga, líka nýtískulegt, seinkar því að líkaminn hrörni, að fólk fitni með aldrinum, kemur í veg fyrir hátt kólesteról og háan blóðþrýst- ing. Það þarf ekki að leggja mikið á sig. Til dæmis nægir að ganga í tíu Breytt um lífsstíl Bandarísk kona að nafni Pepper Herman, sem er sextug, ákvaö þeg- ar hún stóð á fertugu að gera eitt- hvað róttækt í málum sínum, jafnt hreyfingu sem mataræði, svo henni liði betur. Pepper las allt það sem hún gat komist yfir varðandi hreyf- ingu og mataræði og lagaði að sín- um þörfum. Pepper þessi byrjaði á megrunar- kúr og borðaði einungis baunir, hýðishrísgrjón, spergilkál, græn- metissúpur, svokallaðar hrískökur með tómötum, papriku og kjúkling. Þessi kúr heppnaðist svo vel að Pepper grenntist á skömmum tíma og ekki nóg með það heldur yngdist í útliti og losnaði við of hátt kól- esteról sem hafði þjáð hana. Hún ætlaði að láta þetta nægja en þá fékk vinkona hennar þá hug- mynd að þær færu saman í eróbikk, sem Pepper leist alls ekki á. „Það litu allir út eins og kvikmynda- stjörnur i fallegum göllum en ég var gjörsamlega útslitin þegar tíminn var á enda. Pepper fannst eróbikkiö ekki henta sér og ákvað að prófa eitthvað annað. Hún fór í langa göngutúra tvisvar í viku og byrjaði að æfa golf. Það leið ekki á löngu þar til hún sá vigtina hrapa niður og líkaminn varð stinnari. Reyndar fannst Pepper að henni liði betur en þegar hún var tvítug. Hún byrjaði auk þess að taka vít- amín, sérstaklega C og E og að auki „beta-karoten“, sem er t.d. í gulrót- um. Hún tuggði tyggigúmmi sem hafði kalsíum og lærði hvernig á að slaka á. í dag trúir því enginn að hún sé sextug. Ákjósanlegur morgunverður. Eftir jól og áramót eru menn varla glaðir með vigtina og þá er um að gera að taka sér tak. Melónur eru vatnsmiklar og því ákjósanlegar með mat eða einar sér ef fólk vill léttast. Hin ameríska Pepper er sextug að aldri en hún gjör- breytti lífsstíl sínum þegar hún var fertug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.