Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 21
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
21
Galakvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara:
Klúbbur matreiðslumeistara er
skipaður öllum helstu listakokkum
landsins. Einu sinni á ári heldur
klúbburinn galakvöld þar sem mat-
reiðslumeistarar og þjónar bjóða
gestum að bragða á ljúffengum rétt-
um. Að þessu sinni voru níu réttir í
hátíðarkvöldverði matreiðslumann-
anna ásamt eðalvínum sem hæfðu
hverjum rétti. Prúðbúnir gestir,
margir sem aldrei láta sig vanta á
hátíð þessa, nutu þess að bragða á
öllum þessum góðu réttum. Þess má
geta fyrir þá sem telja að erfitt sé að
koma fyrir níu réttum að þeir voru
allir smáir og fallega skreyttir. Þeir
fóru því vel í maga.
Forysta á Norðurlöndum
Klúbbur matreiðslumanna er í
Norðurlandasamtökum matreiðslu-
meistara og einnig í heimssamtök-
um matreiðslumeistara. Á síðasta
ári var íslendingur, Jakob H. Magn-
ússon, formaður Klúbbs matreiðslu-
meistara, valinn forseti Norður-
landasamtakanna og Friðrik Sig-
urðsson, matreiðslumeistari og hót-
elstjóri á Hvolsvelli, kjörinn ritari.
Að sögn Jakobs eru félagar í Klúbbi
matreiðslumeistara ákaflega stoltir
yfir þessu trausti. Eitt helsta verk-
efni Norðurlandasamtakanna er
svokallað Norrænt eldhús sem hef-
ur það markmið að auka samskipti
milli Norðurlandanna með matar-
gerðarlistina í öndvegi, meðal ann-
ars með norrænum matreiðslu-
keppnum og útgáfu norrænnar mat-
reiðslubókar. Þá var islenskur mat-
reiðslumaður, Bragi Ingason, sæmd-
ur heiðursorðu Norðurlandasam-
takanna.
Það er ávallt mikið um að vera
hjá íslenskum matreiðslumeistur-
um og sjálfsagt hafa þeir verið
ánægðir með að fá að spreyta sig á
vandlátum matgæðingum í gala-
veislunni sl. laugardagskvöld. í maí
á þessu ári mun Sturla Birgisson,
matreiðslumaður í Perlunni, taka
þátt í Norðurlandamóti í matreiðslu
sem fram fer í Áiasundi fyrir ís-
Tolli Morthens myndlistarmaður bjó
til listaverk á matardiska.
DV-mvndir Teitur
í
ARMORCOAT-ORYGGISFILMAN
ER LÍMDINNAN Á VENJULEGT GLER
• Breylir rúðunni í öryggisgler
(innbrot, fárviðri, jarðskjáiftar)
• Sólarhiti minnkar um 75%
• Upplitun minnkar um 95%
• Eldvarnarstuðull F-15
ARMORCOAT
SKEMMTILEGT HF.
SÍMI587-6777
BÍLDSHÖFÐA B
lands hönd. Hann var einmitt kos-
inn matreiðslumaður ársinS 1995
hér á landi.
Ólympíuleikar í Berlín
Stærsta verkefni Klúbbs mat-
reiðslumeistara á þessu ári er þátt-
taka í alþjóðlegri keppni mat-
reiðslumanna, svokallaðri ólympíu-
keppni í matreiðslu, sem haldin
verður í Berlín í Þýskalandi í sept-
ember. Þess má geta að í síðustu al-
þjóðlegu keppninni sem keppnislið
frá klúbbnum tók þátt í vann það til
gullverðlauna fyrir heita matinn.
Þá tók Klúbbur matreiðslumeist-
ara þátt í að gera samnorræna
kokkabók í Ósló og komust í heims-
metabók Guinnes enda var hún
gerð á aöeins 46 klukkustundum.
Það er því óhætt að segja að islensk-
ir matreiðslumenn séu að gera garð-
inn frægan víðs vegar um heiminn.
Þá er reyndar ónefnt átakið
World Cooks Tour for Hunger en tíu
félagar munu taka þátt í því á Flór-
ída í júli á þessu ári. Þeir hafa áður
tekið þátt í þessu átaki sem er fjár-
öflunarverkefni til stuðnings svelt-
andi börnum í þriðja heiminum.
Lystug listaverk
Gestir á galakvöldinu sl. laugar-
dag fóru ekki tómhentir þaðan út
frekar en svangir þvi karlmenn
fengu matardisk með áprentuðum
gylltum matseðli og vínlista kvölds-
ins og dömurnar fengu disk með
listaverki eftir Tolla Morthens en
hann var gerður sérstaklega fyrir
þetta kvöld.
Meðal þess sem gestum var boðið
upp á var reykt önd, villt gæsa-
bringa, kjúklingur Calvados, en þá
uppskrift er að finna á Sælkerasíðu
blaðsins í dag, rauðsprettutoppur
með humri, krabbaseyði og laxa-
hrogn með piparmyntusósu, svo að
eitthvað sé nefnt.
Um hundrað gestir voru í veisl-
unni, sem haldin var í Oddfellow-
húsinu, og um þrjátíu matreiðslu-
menn og þjónar sáu um að gera
veisluna sem glæsilegasta. Yfirmat-
reiðslumeistari kvöldsins var Eirík-
ur Friðriksson en yfirþjónn Kjartan
Ólafsson. Baldvin Jónsson var
kynnir kvöldsins og heiðursgestur
Geir Zoéga.
-ELA
Kokkar kvöldsins voru vígalegir: Eiríkur Friðriksson yfirmatreiðslumeistari, Eiríkur Ingi Friðgeirsson og Hilmar B.
Jónsson.
Jakob H. Magnússon, formaður Klúbbs matreiðslu-
manna og formaður Norðurlandasamtaka matreiðslu-
meistara, ásamt eiginkonu sinni, Valgerði Jóhannsdótt-
ur.
Baldvin Jónsson veislustjóri og hinn landskunni mat-
reiðslumeistari, Sigurður Hall.
Afsláttardagar í JHVMETRÓ
15-50% afsláttur
Parket, 1. gæðaflokkur
- Quick-Step parket, 1. gæðaflokkur
- gólfdúkar - gólfteppi - filtteppi ¥©Hdnétl WfUrHiT
_ - stök teppi - baðmottur - dyramottur á lága verðinu
gúmmímottur - blöndunartæki
* hreinlætistæki - baðkör - sturtubotnar
N; ýmsar gjafavörur - málning veggfóðursborðar
flísar, úti og inni - ísskápar þvottavélar frystikistur
Opið öU kvöld og allar helgar
illkMETRO iWiMETRO
Reykjavík Reylqavík
Málarinn, Skeifunni 8 Hallannúla 4
sími 581 3500 sími 553 3331
Reykjavík
Lynghálsi 10
sími 567 5600
iWMETRÓ
Akureyri
Furuvöllum 1
sími 461 2785/2780
i%\METRO
Akranesi
Stillholti 16
sími 431 1799
ísafíröi
Mjallargötu 1
sími 456 4644