Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 23
stórmóti ársins
TRYGGING HF.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum. Bifreiðamar verða seldar í
því ástandi sem þær eru í og kaupendur skulu kynna sér á
staðnum.
Skoda Favorit 1993
MMC Colt 1992
GEO Metro 1992
Honda Civic GL 1991
Renault Clio 1991
Peugeot 309 1989
MMC Lancer 1989
Ford Orion 1987
Mazda 323 1987
VW Polo 1990
- forseti FIDE hitti Bobby Fischer í Búdapest
Á árinu 1995 náðu ellefu alþjóð-
leg skákmót sextánda styrkleika-
flokki eða meira, sem merkir að
meðalstig keppenda voru yfir 2625.
Síðasta stórmóti ársins lauk 30. des-
ember í Groningen í Holiandi. Mót-
ið vakti athygli sökum þess að með-
al keppenda voru bæði Anatoly Kar-
pov og Gata Kamsky en einvígi
þeirra um heimsmeistaratitii FIDE
er fyrirhugað í Montreal i Kanada í
sumar.
Innbyrðis skák þeirra í Gron-
ingen lauk með jafntefli, eftir að
Karpov mistókst að vinna vænlegt
tafl með peði meira. Hermt er að
Kamsky hafi sést brosa að loknu
taflinu og var bersýnilegt að þungu
fargi var af honum létt. Karpov lét
þetta þó ekki á sig fá og náði foryst-
unni með góðum endaspretti. Er
yfir lauk hafði hann hálfum vinn-
ingi betur en Kamsky, sem varð
einn í 2. sæti.
Karpov má vel við skákárið 1995
ana. Hann bar sigurorð af Gelfand í
iskorendaeinvígi í febrúar, varð í 2.
sæti í Linares í mars (á eftir Ivant-
sjúk), sigraði í Dos Hermanas, 2.
sæti í Dortmund (á eftir Kramnik)
og nú síðast efstur í Groningen.
Lokastaðan:
1. Karpov 7,5 v.
2. -3. Kamsky og
Ivan Sokolov 7 v.
4. Svidler 6,5 v.
5. Adams 6 v.
6. -7. Van Wely og Lekó 5,5 v.
8. Tivjakov 5 v.
9. Almasi 4,5 v.
10. -11. Curt Hansen
og Piket 4 v. v
12. Lautier 3,5 v.
Hér er skemmtileg skák frá mót-
inu, þar sem berlega kemur í ljós að
þótt taflmennskan sé ekki kórrétt
getur árangurinn orðið býsna góð-
ur.
Hvítt: Jeroen Piket
Svart: Michael Adams
Nútíma Benónívöm.
1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rf3 c5 4. d5
exd5 5. cxd5 Bd6!?
Svona er byrjendum kennt að eigi
skuli leika - biskupinn er settur fyr-
ir framan peð, sem verður til þess
að hinn biskupinn lokast inni.
Hugmyndin er sú að flytja bisk-
upinn til c7 og skjóta svo drottning-
arpeðinu fram. í nýjum heimkynn-
um hefur biskupinn auga með e5-
reitnum, .þar sem hvítur brýst
gjarnan fram, auk þess sem Ba5 er
möguleiki og taka virkan þátt í at-
lögu svarts á drottningarvæng.
Þetta hefur eflaust átt að koma Pi-
ket á óvart en hann svarar þó von
bráðar í sömu mynt.
6. Rc3 Bc7 7. g4!?
Nútímaleg herfræðin heldur
áfram. Ef nú 7. - Rxg4 8. d6 og næst
9. Hgl, svo fellur á g7 og hvítur opn-
ar taflið sér í hag.
7. - d6 8. g5 Rd7 9. h4 a6 10. a4
De7 11. Bh3 0-0 12. Dd3 Re5 13.
Rxe5 Dxe5 14. a5 Dd4? 15. Dg3
Db4?
Frumleg taflmennska svarts hef-
ur ekki borið árangur sem erfiði en
þessir tveir síðustu drottningarleik-
ir eru afleitir. Svartur kastar með
þeim dýrmætum leikjum á glæ, auk
þess sem Hal-a4 vofir yfir sem gef-
ur hvítum kost á að bæta stöðuna
enn frekar.
16. h5 Rd7 17. g6 Rf6 18. gxh7+
Kh8 19. Hgl Rxh5 20. Dg5 Bxh3
21. Dxh5?
Frá og með þessum leik missir
hvítur þráðinn. Rétt er 21. Ha4! og ef
21. - Db3 22. Dxh5 Bd7 23. Dg5 og
svartur er varnarlaus.
21. - Bd7 22. Dg5 Dd4! 23. Bf4
Bd8!
Biskupinn snýr til baka á elleftu
stundu. Hann stefnir til f6, þar sem
hann valdar g7-reitinn viðkvæma
og gerir sókn hvíts að engu.
24. Dg3 Bf6 25. Hdl Dc4 26.
Bg5?! Be5 27. f4? Bd4 28. Hg2
Hae8 29. Hd3 Bf5
Síðustu leikir hvíts hafa einungis
veikt stöðu hans og nú standa
svörtu mennirnir á óskareitum.
Fátt fær nú bjargað hvíta taflinu.
30. Hf3
30. - Be4!
- Og Piket kaús að gefast upp. Þar
sem 31. Rxe4 er svarað með 31. - Dcl
mát, en að öðrum kosti tapar hann
hrók fyrir biskup og staðan er hrun-
in.
FIDE-forsetinn
hitti Fischer
Willy Icklicki, gjaldkeri FIDE,
hefur skýrt frá því á Internetinu að
Kirsan Iljumzhinov, forseti samtak-
anna, hafi hitt Bobby Fischer að
máli í Búdapest 15. desember sl.
Fundur þeirra stóð í 12 klukku-
stundir.
Að sögn Icklicki samþykkti fljum-
zhinov að greiða Fischer 100 þúsund
dali, sem Fischer hefur krafið Rússa
um, vegna óleyfilegrar útgáfu bóka
hans í Sovétríkjunum fyrrverandi.
Jafnframt þáði Fischer landskika í
Kalmikíu að gjöf.
Fischer lofaði að endurskoða af-
stöðu sína til FIDE en var að öðru
leyti tregur í taumi. Hann vildi
t.a.m. ekki hvika frá þeirri afstöðu
sinni að nýjar skákreglur yrðu
teknar upp á skákmótum FIDE en
þar á hann væntanlega við þá hug-
dettu að taflmönnunum verði raðað
handahófskennt upp í byrjun tafls.
FIDE-forsetinn nýi hefur þegar
haldið sinn fyrsta fund með stjórn
samtakanna og er að sögn gjaldker-
ans með margt á prjónunum. Hann
hefur þegar hrundið af stað markað-
sátaki í Moskvu í þeim tilgangi að
finna bestu leiðina til þess að auka
vinsældir skáklistarinnar um allan
heim. Þá hefur hann lagt hart að
Kasparov að hann snúi aftur til
FIDE.
Umsjón
Jón L. Árnason
Forsetinn hefur gert tillögu um
breytingu á heimsmeistarakeppn-
inni, í árlegt útsláttarmót. Fyrsta
mótið er fyrirhugað í lok árs 1996 og
verða fyrstu verðlaun væntanlega 5
milljónir Bandaríkjadala. Verði
þessi hugmynd að veruleika fellur
millisvæðamótið í Armeníu í apríl
sjálfkrafa niður.
Jóhann
með
fullt hús
Stórmeistararnir Jóhann Hjartar-
son og Hannes Hlífar Stefánsson
taka nú þátt í alþjóðlegu opnu móti
í skákbænum sögufræga Linares á
Spáni. Að loknum þremur umferð-
um hafði Jóhann fullt hús vinninga
en Hannes Hlífar hafði unnið tvær
skákir en gert eitt jafntefli. Alls
verða tefldar 9 umferðir á mótinu.
STEIKHÚS ADRÍA
Strandgötu 30, Hafnarfirði
Sími 555-3777
HÁDEGISTILBOÐ
Á HVERJUM DEGI
Laugardagskveðjan
- Þú pantar og
sækir fjóra
skammta af mat og
færð ódýrasta
réttinn frítt
AUSTURLENSKUR
MATUR
TAKE - AWAY
kl. 7:30
kl. 16:20
kl. 20:30
Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 15. janúar 1996
í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast
skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar hf., Laugavegi
178, 105 Reykjavík, sími 562 1110.
Máttur Faxafeni 14 • Sími 568 9915 • Máttur kvenna Skipholti 50a
Sími 5814522 • Fax 588 9297
Þú velur þér tíma sem hentar þér.
Býrjendanámskeið I Kripalujóga
- fyrir kortur
Fiefst mánudaginn 15. janúar kl. 19:30 í Mætti Skipholti 50a.
Stuðningstímar
Stuðningstímar eru fyrir sérstaka þjálfun t.d. fyrir þá sem eru
að ná sér eftir slys, sjúkdóma eða eru nýkomnir úr endur-
hæfingu. Sjúkraþjálfarar stjórna þessum tímum.
Tímarnir eru kl. 10:30 á þriðjudögum og fimmtudögum í
Mætti kvenna Skipholti 50a og kl. 14:00 mánudaga og
miðvikudaga í Mætti Faxafeni 14.
Hópþjálfun fyrir fólk með gigt
Kl. 12:15, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Sérhæfðir
tímar fyrir þá sem eru með verki og eymsli í liðum, vöðvum og
festum þeirra, einnig fyrir þá sem þjást af bakverkjum.
Kennari: Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari
- nýtt 8 vikna namskeiö
Innihald námskeiðsins er
Þolmæling, blóðþrýstingsmæling, húðfitumæling og
vigtun fyrir og eftir.
Vinnubók um mataræði, aðhald.
► Tveir fastir þjálfunartímar á þriðjudögum og fimmtu-
dögum með íþróttakennara ásamt frjálsri mætingu í
tækjaþjálfun og leikfimi á öðrum tímum.
Föstu tímarnir eru
I