Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 25
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
25
DV-mynd Brynjar Gauti
Sigurður Valgeirsson tekur ekki alvarlega þó skopast sé að honum í grínþáttum.
Dagsljósþættirnir í Sjónvarpinu:
Engar breytingar
á dagskrá
- segir Sigurður Vaigeirsson, ritstjóri þáttanna
„Samkvæmt mínum heimildum
standa ekki til neinar breytingar
með Dagsljósþættina. Ég veit ekki
be’tur en þeir verði fram að sum-
ardeginum fyrsta, eins og undanfar-
in ár. Ég hef hins vegar ekki hug-
mynd um hvort þættirnir verða
teknir upp næsta haust en vona
það,“ segir Sigurður Valgeirsson, rit-
stjóri Dagsljósþáttanna í Sjónvarp-
inu, í samtali við DV. Þetta er þriðji
veturinn sem Dagsljós er á dag-
skránni en í vetur hefur formi þátt-
arins veriö breytt þannig að hann er
bæði fyrir og eftir fréttir. Þetta virð-
ist hafa tekist vel, að minnsta kosti
eru þættirnir mun meira í umræð-
unni manna á meðal en áður.
Raddir hafa þó heyrst um að
Dagsljós sé dýrt í framkvæmd og í
sparnaðarskyni muni það verða tek-
ið af dagskrá. Sigurður kannast
ekki við það. Einnig hefur verið
rætt um aö Dagsljósið hirði alla þá
peninga sem ætlaðir séu til inn-
lendrar dagskrárgerðar í Sjónvarp-
inu. Sigurður segir það heldur ekki
rétt. „Samkvæmt mínum heimild-
um eru það tæp 20% af því fé sem
ætlað er til innlendrar dagskrár-
deildar sem varið er í þessa þætti.
Það virðist vera útbreiddur mis-
skilningur að meirihluti þess fjár,
sem innlend dagskrárdeild hefur til
umráða, fari í Dagsljós. Þátturinn
er fyrirferðarmikill og áberandi og
þetta er bara ein af þeim sögusögn-
um sem komið hefur verið af stað.
Hins vegar er þetta stór vinnustað-
ur, margir hafa unnið hér lengi og
hafa afdráttarlausar skoðanir á dag-
skrárgerð. Það má vel vera að ég
fari í taugamar á einhverjum en
það er þá allt í lagi. Mér finnst þó
samvinnan vera góð og ég hef ein-
ungis fundið stuðning frá mínum
yfirmönnum.“
Jón Viðar verður áfram
Dagsljósþátturinn hefur kannski
verið meira í umræðunni undan-
farna daga en oft áður vegna þeirr-
ar ákvörðunar þjóðleikhúsráðs að
óska eftir að Jón Viðar Jónsson,
leiklistargagnrýnanda þáttarins,
fjalli ekki um sýningar leikhússins.
„Töluvert hefur verið fjallaö um það
mál í fjölmiðlum og mér hefur fund-
ist sú umræða gagnrýninni í hag.
Fjölmiðlar eiga sjálfir að velja sína
gagnrýnendur. Það er alveg ljóst að
Jón Viðar mun halda áfram að
gagnrýna í þáttunum. Hann verður
að vísu frá uro tíma, þar sem hann
er að verja doktorsritgerð sína í
leikhúsfræðum, en heldur síðan
áfram. Hins vegar finnst mér sjálf-
sagt að skoða þá gagnrýni sem upp
kemur hverju sinni. Ég hef átt fund
með þjóðleikhússtjóra þó engin nið-
urstaða hafi orðið af honum. Jón
Viðar mun ekki framar fá boðsmiða
frá Þjóðleikhúsinu en hann fer á
sýningar þar engu að síður.“
Áttundi dvergurinn
í Áramótaskaupi Sjónvarpsins
var Dagsljósþátturinn fyrirferðar-
mikill og Sigurður er ánægður með
það. „Ég hefði orðið svekktur ann-
ars,“ segir hann. „Ég var reyndar
talsvert tekinn fyrir, fékk að fljóta
með Jóni Viðari og hafði gaman af.
Einnig höfum við orðið fyrir barð-
inu á Hauki Haukssyni á rás tvö,
maður þarf því að þola ýmislegt
grín um sjálfan sig og umfjöllun.
Haukur sagði að ég hefði verið ráð-
inn til að leika áttunda dverginn í
Þjóðleikhúsinu."
Auk þess sem útsendingartíma
Dagsljóss var breytt í haust var ein-
um útsendingardegi bætt við. í fjöl-
miðlakönnun, sem gerð var í októb-
er, kemur fram að áhorf á Dagsljós
næstum þrefaldast eftir fréttir. Sig-
urður segist hafa velt þessu fyrir
sér. „Við erum á mjög erfiðum tíma
fyrir fréttir enda í samkeppni við
19:19 á Stöð 2. Fréttir eru sterkasta
efnið sem boðið er upp á. Við reyn-
um þó að berjast með því að bjóða
fréttatengd viðtöl og gagnrýni á
þeim tíma enda er það vinsælasta
efnið okkar. Eftir fréttir erum við á
besta útsendingartíma og bjóðum þá
upp á léttara efni. Reyndar höfum
við gert smávegis lagfæringar á
þættinum í vetur, sem voru nauð-
synlegar, en þær eru gerðar í
laumi.“
Kröfuhart starf
Sigurður Valgeirsson hefur haft
umsjón með Dagsljósþáttunum frá
upphafi en hann hafði áður starfað
í rúm fimm ár hjá bókaútgáfunni
AB. Þar á undan hafði hann starfað
við blaðamennsku, m.a. verið rit-
stjóri Vikunnar. Hann segist ánægð-
ur í þessu starfi. „Ég hef verið hepp-
inn með fólk, sami kjarninn hefur
verið öll árin. Fimmtán manns
starfa við þáttinn en einnig fáum
við aðstoð frá m.a. hljóð-, ljósa- og
tökumönnum. Allir sem vinna við
þáttinn hafa mikið að segja um efni
hans. Við höldum fundi reglulega
þar sem menn koma með nýjar hug-
myndir og ræða hvað má lagfæra.
Það verða allir að leggja sig fram
því starfið er mjög kröfuhart. Um-
sjónarmenn þáttarins eru verktakar
og þegar sýningum verður hætt í
vor taka viö önnur störf, þannig að
hér er um tímabundið verkefni að
ræða.“
Sigurður segir að á þessum þrem-
ur árum hafi hann öðlast mikla
reynslu og segist finna mikinn mun
á því. „Þaö byrjuðu allir óvanir,
sem var bæði kostur og galli, þetta
var mikil eldraun en um leið kemur
alltaf eitthvað nýtt með nýju fólki.
Þessu fylgdi líka ákveðinn land-
nemaandi sem er mjög skemmtileg-
ur - við vorum að vinna brautryðj-
endastarf. Þessi áhugi hefur haldist
enda væri þetta varla hægt öðru-
vísi. Auk þess reynum við að taka
okkur ekki of hátíðlega,“ segir Sig-
urður Valgeirsson.
-ELA
Hæsti
vinningur
2,5 milljónir!
- mglega
(nema sunnudaga)
Hæsti vinningur er
2,5 milljónir,
óháð fjölda þátttakenda!
leiri en einn geta hlotið
5 milljónir króna
hverjum útdr<
Vinningar skiptast ekki!
fJÍÍ haminíj/yjJ
Dóhnoh g&éö'pá óóhm
lnhhulnyim jj.lummjóhíi
ilí híimluj/ju mróú
mllf/jo-u fuiáun
uluuluíýuu um ólOllúíll uóÍjlí
.
KIN
■A