Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 32
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 Trúi því hver sem viil: Honum er haldið frá eldhúsinu með rimlum - því hann er með Prader-Willi-sjúkdóminn!!! Glen í faðmi fjölskyldu sinnar. Foreldrar hins unga Glen Shannon hafa gripið til örþrifa- ráða til að bjarga honum frá dauða vegna sjúklegrar átsýki hans. Þau hafa komið fyrir riml- um í kringum heldhúsið til að koma i veg fyrir að hann komist í isskápinn. Frá þessu er greint í breska dagblaðinu The People en það blað er líklega þekkt fyrir allt annað en ást á sannleikanum. Fréttin er engu að síður athygli- verð fyrir það hugmyndaflug sem sumir hafa. í fréttinni segir enn fremur að hengilás sé á ísskápnum, frystikistan sé falin í kjallaran- um, rimlar séu fyrir svefnher- bergishurð Glen og stiganum sem liggur frá svefhhæð heimil- is hans. Loks ætla foreldrar Glens að Glen er haldið frá eldhúsinu með rimlum. koma fyrir aukalás á bakdyrum -A/n hliðin_____________________________________________________________ heimilis hans sem eru aö eld- húsinu. Foreldrar Glens, Eddie og Kat- hlenn Shannon, þurfa að koma fram við son sinn eins og fanga en hann þjáist af því sem People kallar Prader-WiIli-sjúkdómnum sem þýðir að hann er alltaf svangur. Segir enn fremur að fimmtán þúsundasta hvert barn í Bretlandi þjáist af þessum sjúkdómi. „Glen gæti borðað fyrir alla Breta. Hann er aldrei saddur og hatar þessi höft sem við verðum að setja á hann. Ef hann borðaði hins vegar það-sem hann vildi myndi það ganga af honum dauðum," Hefur „blaða- maður“ The People eftir föður Glens á heimili þeirra í Dumfries í Skotlandi. „Blaðamaðurinn" segir enn fremur að þess séu dæmi aö fórnarlömb sjúkdómsins borði hundamat eða jafnvel teppi og húsgögn ef venjulegur matur sé ekki á boðstólum. Glen er sagður 140 sentímetra hár og vegur 72 kUó. Hann er vigtaður reglulega I skólanum til að koma í veg fyrir að hann nái hættulega mikilli þyngd. Bekkjarfélagar hans ku vera mjög skilningsríkir og styðja hann í baráttunni gegn sjúk- dómnum og eru ekki að bera í hann sælgæti. Foreldrar hans þurfa hins vegar alltaf að vera á verði og móðir hans getur ekki lengur talið þau skipti sem son- E33 Mel kemur frá með sonum tveimur með Með mikla bíladellu - segir markaðsstjóri Sam-bíóanna Um jólin voru margar nýjar og „heitar“ biðmyndir teknar til sýn- inga í bíóhúsum borgarinnar. Sam- bíóin hafa t.d. fengið mjög mikla aðsókn á kvikmyndirnar Ace Ventura og James Bond myndina Goldeneye. Árni Samú- elsson er löngu kunnur fyrir bíó- rekstur sinn en sonur hans, Alfreð Ásberg Árnason, er kannski minna þekktur en hann sér um öll markaðsmál fyrir Sam-bíóin. Það er einmitt. Alfreð sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Alfreð Ásberg Árnason. Fæðingardagur og ár: 2. mars 1967. Maki: Magnea Snorradóttir. Börn: Ámi Ásberg Alfreðs- son. Bifreið: Toyota Corolla, ár- gerð 1995. Starf: Markaðsstjóri Sam- bíóanna. Laun: Góð. Áhugamál: Kvikmyndir og mikil bUadella að auki. Hefur þú imnið í happdrætti eða lottói? Ég spUa ekki í neinu slíku. Hvað finnst skemmtilegast að gera? Horfa á góöa kvikmynd. Hvað finnst þér leiöinlegast að gera? Bíða eftir ein- hverjum sem er óstundvís. Uppáhaldsmatur: Pasta og fiskur í raspi. Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn (bjór um helgar). Hvaða íþróttamað- ur stendur fremst- ur í dag að þínu mati? Magnús Scheving. Uppáhaldstímarit: Premier. Hver er fallegasta kpna sem þú hefur séð fyrir utan maka? s Alfreð Asberg Arnason er markaðsstjóri Sam-bíóanna. Sandra BuUock. Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjórninni? Hlynntm-. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? David Letterman. Uppáhaldsleikari: Robert Di Nero. Uppáhaldsleikkona: Sandra BuU- ock. Uppáhaldssöngvari: Pálmi Gunnarsson. Uppáhaldsstjórnmálamað- ur: Davíð Oddsson. Uppáhaldsteiknimynda- persóna: Simpsons. Uppáhaldssjónvarpsefni: Central Park West sem er væntanlegt í sjónvarpi á íslandi. Uppálialdsmatsölustað- ur: Ivy í Los Angeles. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Enga sér- staka. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? FM 957. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þórhallur Guðmundsson. Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Ég horfi mest á Stöð Uppáhaldssjónvarpsmaður: David Letterman. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Astro. Uppáhaldsfélag í fþróttum? Val- ur. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíð- inni? Gera betur og sinna göl- skyldunni. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég var í Los DV-mynd Angeles. Biblfu í hendi. Kirkjurækið kyntákn hans, Robyn, sækja sunnudags- messu ásamt sonum sínum sex í kapeUu nálægt heimili þeirra í Malibu. Það er af sem áður var að fréttir bárust af því að Mel Gibson væri si- feUt að reyna að slíta sig frá flösk- unni en gengi illa. Nú er haft eftir vini hans að hann sé í raun mjög gamaldags. „Mel er þeirrar skoðunar að mað- ur eigi ekki að nota getnaðarvarnir, að staður móðurinnar sé heimilið og hlutverk hennar sé að ala upp börnin og svo framvegis. í raun er hann afar óvenjulegur af stór- stjömu í Hollywood að vera.“ Söguságnir herma að kyntáknið Mel Gibson sé í raun svo trúaður að hann leiki ekki í kvikmynd nema prestar lesi áður yfir handritið og samþykki það. „Tveir prestar lásu yfir handritin að Lethal Weapon myndunum áður en tU þess kom að hann lék í þeim. Þrátt fyrir aUt ofbeldið í þeim sam- þykktu prestarnir að hann léki í þeim þar sem það góða ber það slæma ofurliði í þeim,“ sagði maður nákominn Gibson í samtali við bandaríska fjölmiöla. Gibson, sem er 39 ára og strang- trúaður kaþólikki af gamla skólan- um, sækir ekki messu nema þær fari fram á latínu. Hann og kona ur hennar hefur ráðist á ísskáp- inn um leið og hún snýr við hon- um baki. Skiptir þá engu máli hvað verður á vegi hans: frosnar steikur, matarleifar frá því vik- una áður eða annað óæti. „Við rétt ráðum við vanda- málið núna meðan hann er svona ungur og höfum því mikl- ar áhyggjur af því hvað gerist þegar hann verður eldri. Nú þeg- ar töfrar hann þá sem vita af veikindum hans til að gefa sér sælgæti og kökur. Því miður er þetta fólk ekki að gera honum gott því þetta getur valdið dauða hans.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.