Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Síða 33
33 "V LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
37
í Grábrókarhrauni eru víða snotrir leyndardómar skammt frá þjóðveginum sem dyljast vegfarendum.
DV-mynd Olgeir Helgi
Náttúruperlur í Borgarfjarðarháraði:
Grábrókarhraun
DV, Borgames:_____________________
Grábrókarhraun gleöur ætíð
augu vegfarenda sem fara um Norð-
urárdal en þjóðvegurinn liggur á
löngum kafla í gegn um hraunið.
Grábrókarhraun er úfið apalhraun
sem runnið hefur úr gjallgígum sem
blasa við af þjóðveginum. Grábrók
er sýnu stærst þessara gíga og skor-
in að vestanverðu af göngustígum
en fyrir fáum árum voru gerðir
þægilegir og lítt áberandi stígar á
fjallið að austanverðu sem rétt er að
benda fólki á að nota. Gígarnir voru
friðlýstir sem náttúruvætti árið
1962 en þá hafði verið grafið eftir of-
aníburði i þeim. Grábrókarhraun er
á náttúruminjaskrá. Grábrókargoss-
töðvarnar eru á gosbelti sem kennt
er við Snæfellsnes og nær frá Grá-
brók og vestur til Snæfellsjökuls.
Auk þess að vera tilbreyting í
sjóndeildarhring vegfarenda geymir
Grábrókarhraun ýmsa litla leyndar-
dóma sem ekki sjást þegar ekið er
um þjóðveginn. Þegar hraunið rann
hefur það stíflað Norðurá og mynd-
að stöðuvatn. Þar er nú flatlendi
austan hraunsins og kallast það
Desey. Hreðavatn hefur einnig orð-
ið til við að hraunið stíflaði framrás
vatnsins. Nokkuð er um hella í Grá-
brókarhrauni, flesta litla en a.m.k.
einn þeirra er á annað hundrað
metrar á lengd og liggur þvert und-
ir þjóðveginn um Norðurárdal.
Hægt er að fara í gegn um hellinn
en hann er mjög þröngur á kafla.
Neðarlega í hrauninu, nokkru
neðan fossins Glanna í Norðurá, er
ákaflega falleg laut. Þar kémur lind
fram úr hrauninu milli hraun-
klettanna og rennur i litla tjörn. Þar
er sannkölluð paradís enda ber stað-
urinn nafn með rentu og er kallað-
ur Paradís.
Víða hafa verið lagðir göngustíg-
ar um hraunið og þar eru skemmti-
legar gönguleiðir og það er þess
virði að staldra við í Grábrókar-
hrauni á leið um þjóöveginn.
Olgeir Helgi Ragnarsson.
Karatedeild HK
Karatefélag Vesturbæjar Símar: 555-3435 og 555-3436
KARATE Revkjav?k
Reykjavik-Vesturbæ
Byrjendanámskeid
eru að
hefjast!!!
Barnaflokkar
frá fimm ára
Unglingaflokkar
Fullorðinsflokkar
Fæst í betri
snyrtivöruverslunum
og apótekum
Arshátíðartilboð:
varalitur og naglalakk
kr. 990
Langarþig í
Bridgehátíð 1996
Fimmtánda Bridgehátið Bridgesambands íslands,
Bridgefélags Reykjavíkur og Flugleiða verður haldin
á Hótel Loftleiöum dagana 16.-19. febrúar. Sveita-
keppnin er opin eins og áður en spilað verður nýtt
form í tvímenningnum, Monrad- barómeter, 90 spil og
fjöldi para verður hámark 120. Eins og undanfarin ár
áskilur bridgesambandsstjórn sér rétt til að velja pör
í tvímenning bridgehátíðar. Keppt verður um einhver
sæti í tvímenning bridgehátíðar í vetrarmitchell BSÍ
föstudagskvöldiö 10. febrúar.
Verðlaunin verða samtals 18.000 dollarar. Sex er-
lendum pörum hefur verið boðið tfl keppninnar, þar
á meðal verða ítölsku Evrópumeistararnir og Zia Ma-
hmood með sveit og hafa þegar staðfest komu sína.
Skráning i mótið er á skrifstofu BSÍ (Sólveig) í síma
587 9360 og er skráningarfrestur í tvímenninginn til
miðvikudagsins 31. janúar. Bridgesambandið þarf
margt starfsfólk á Bridgehátíð við dreifingu spila og
ýmislegt fleira. Þeir sem vilja leggja hönd á plóginn
hafi.samband við skrifstofu BSÍ og öll sjálfboðavinna
er vel þegin.
(slandsmót í
parasveitakeppni
Skráning er hafin í fjórða Islandsmótið í para-
sveitakeppni sem verður haldið í Þönglabakka 1,
helgina 27.-28. janúar. Eins og fyrri ár verður spiluð
Monrad-sveitakeppni með 16 spÖa leikjum. Miðað er
við að keppnin sé um 110 spÖ. Spilamennska hefst
klukkan 11 báða dagana. Keppnisgjald er 10.000 krón-
ur á sveit og verður spilað um gullstig í hverjum leik.
Skráning er á skrifstofu BSÍ og er skráð til fímmtu-
dagsins 25. janúar.
-ÍS
Svæðamót N-vestra
á Siglufirði
Dagana 20. og 21. janúar verður svæðamót N-vestra
i sveitakeppni haldið á Siglufirði. Mót þetta er kjör-
dæmamót en gefur jafnframt 3 efstu sveitunum rétt
tO þátttöku í undanúrslitum íslandsmóts í sveita-
keppni 1996. Mótið hefst klukkan 10 á laugardags-
morgun og mótslok eru áætluð um klukkan 19 á
sunnudagskvöld. Spflað verður um sflfurstig í hverj-
um leik auk þess sem sérstök uppbótarstig verða gef-
in, 42 fyrir hvern spilara í fýrsta sæti, 30 fyrir annað
sæti og 21 fyrir þriðja sætið.
Gert er ráð fyrir aö spiluð verði um það bO 140 spil,
allir við alla eða monrad ef þátttaka verður mikfl.
Hægt er að reikna út butler ef mikfll áhugi er fýrir
því, en þá hækkar gjald á hverja sveit lítiUega. Þátt-
tökugjald er krónur 8.000 á sveit. Það kæmi sér vel
fyrir mótshaldara ef skráning bærist sem fyrst og í
síðasta lagi 17. janúar. Jón Sigurbjörnsson (vs. 467
1350 og hs. 467 1411) og Sigurður Hafliðason (vs. 467
1305 og hs. 467 1650) taka við skráningu og veita nán-
ari upplýsingar.
sálarransóknarskóla ?
□ Vissir þú að í Sálarrannsóknarskólanum eru vandaðir
fyrirlestrar og kennsla af hálfu flestra bestu sérfræðinga
hér á landi varðandi framhaldslíf okkar, sem og allar
þær rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið í veröld-
inni í dulsálarfræðinni og almennum sálarrannsóknum á
þessu afar merkilega máli? - Nefnilega því hvort og
hvers konar líf bíði okkar eftir dauðann? - Einnig því
hvað raunverulega gerist á þeirri merkilegu stund í lífi
hvers manns þegar hann yfirgefur þennan heim hér?
>■' '■' ,/
□ Vissir þú að iniklu meira er vitað um hvað raunverulega
bíður okkar eftir þetta líf heldur en almennt og opinber-
lega er viðurkennt í þjóðfélögum Vesturlanda í dag - af
ástæðum sem vart er hægt að kalla neitt nema ótrúlega
fordóma og þröngsýni þeirra sem skoðanamynduninni
ráða á Vesturlöndum nú á tímum?
Hafir þú ekki vitað það sem og fjöldamargt annað sem raunverulega er
vitað um miðilssamband við framliðna, orkustöðvar líkamans, „hirnnariki
og hel“, og hvemig Idtnir ástvinir okkar raunverulega hafa það þá átt þú
ef til vill samleið með okkur? Því að i Sálarrannsáknarskólanum er boðið
upp á vandað nám fyrir mjög hófleg skólagjöld um allt er lýtur að hand-
anheimafrceðum íþeirra viðustu merkingu. Tveir byrjunarbekkir hefja
brátt nám í Sálarrannsóknum I nú á vorönn 96. - Skráning stenduryfir.
Hringdu ogfáðu allar nánari upplýsingar um mest spennandi skólann
sem í boði er í dag. - Yfir skráningardagana út janúar er að jafnaði svar-
að í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14.00 til 19.00.
Sálarrannsóknarskólinn
- Skemmtilegur skóli -
Vegmúla 2
Sími 561 9015 og 588 6050