Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Page 52
Sunnudagur
Mánudagur
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Fremur hæg breytileg átt
Á morgun verður fremur hæg breytileg átt, sums staðar skúrir eða slydduél, hiti 0 til 5 stig.
Á mánudaginn verður vaxandi sunnanátt, rigning eða slydda þegar líður á daginn sunnan- og vestanlands., hiti 2 til 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 53
HANN VIRÐIST HAFA
ÁTT SÍNAR SÆLUSTU
STUNDIR Á
„HEIMAVISTINNI."
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. JANUAR 1996
Flæmski hatturinn:
Klettur SU
fékk trollið
í skrúfuna
- í vonskuveðri
„Klettur SU er ekki skuttogari
heldur tekur trollið inn á siðunni.
Hann fékk trollið í skrúfuna í gær
og Otto Wathne NS kom honum til
aðstoðar og tók hann í tog og er á
leið með hann til hafnar á Ný-
fundnalandi. Þetta leit heldur illa út
í gær vegna þess að spáð var miklu
verra veðri en síðan varð. Nú er allt
í lagi hjá þeim og ferðin gengur
vel,“ sagði Hallur Heimisson, stýri-
maður á Dalborg EA, í samtali við
DV í gær.
Hann sagði að alveg frá áramót-
um, að þeir komu á Flæmska hatt-
- inn, heföi verið afar leiðinlegt veð-
ur. Hver lægðin á fætur annarri hef-
ur gengið yfir svæðið og svona
fimm til átta vindstig upp á hvern
dag. Einstáka sinnum hefur vindur-
inn komist í 10 vindstig eða meira.
„Eins og gefur að skilja hefur afl-
inn hjá skipunum hér á miðunum
verið eftir þessu enda afar erfitt að
athafna sig í svona veðri,“ sagði
Hallur.
Hann sagði að íslensku veiðieftir-
litsmennirnir, sem áttu að fara um
borð í íslensku fiskiskipin á svæð-
inu og sem mestar deilur hafa stað-
ið um, væru nú um borð í
kanadísku varðskipi á leið til Ný-
fundnalands. Varðskipið bjargaði
áhöfn af grísku flutningaskipi sem
lenti í sjávarháska á Flæmska hatt-
inum í gær. Nú er það á leið til
lands með skipbrotsmenn.
„Jú, við urðum varir við eftirlits-
mennina. Þeir höfðu samband við
einhver skip, þó ekki okkur hér á
Dalborginni. Nú eru þeir á leið til
lands og ég veit svo sem ekki hvert
framhaldið verður, hvort þeir gera
aðra tilraun til að koma um borð til
okkar,“ sagði Hallur Heimisson.
-S.dór
brother
Litla
merkivélin
Loksins
meö ÞogÐ
Nýbýlavegi 28-sími 554-4443
Donald Feeney segir Playboy frá ævintýrum sínum á Islandi:
Fékk peninga og gull-
kort í pósti á Hraunið
- Feeney segist hafa haft ný áform um að ná íslensku stúlkunum
Bandaríski ævintýramaðurinn
Donald Feeney segir í viðtali við
Playboy að hann hafi fengið pen-
inga og American Express gullkort
sent vestan um haf frá Judy, eigin-
konu sinni, í fangelsið á Litla-
Hrauni þar sem hann sat fanginn á
árinu 1993. Judy faldi peningana og
gullkortið í þykkum heillaóskakort-
um sem hún sendi manni sínum.
Feeney segir í viðtali við blaðið
að þegar hann var búinn að safna
2000 dollurum eða um 130 þúsund
íslenskum krónum ög kominn
með gullkortið í hendur hafi hann
ákveðið að brjótast út úr fangels-
inu sem hann og gerði.
Fjármunina notaði Feeney sið-
an til að koma sér úr landi með
leiguflugvél sem stefnt var til Fær-
eyja en varð að hætta við lendingu
þar og var þá lent í Vestmannaeyj-
um þar sem Feeney var handtek-
inn og færður á ný í fangelsi.
Atburðir þessir urðu sumarið
1993 en Feeney hafði í upphafi
þess árs reynt að nema á brott frá
íslandi tvær dætur Ernu Eyjólfs-
dóttur og flytja þær til Bandaríkj-
anna til feðra sinna þar. Var
James Grayson, faðir annarrar
stúlkunnar, með í ráðum eins og
kunnugt er af fréttum. Voru þeir
félagar dæmdir fyrir tiltækið og
fékk Feeney tveggja ára dóm en
Grayson þriggja mánaða. Feeney
segir að þetta hafi verið fyrstu og
einu mistökin sem hann hafi gert
á ferli sínum.
Feeney líkir fangelsinu á Litla-
Hrauni við „heimavist" og segir
að hann hafi getið gengið þaðan út
hvenær sem honum sýndist. Pen-
inga til að nota á flóttanum hafi
hins vegar skort því hafi hann
orðið að reiða sig á konu sína með
peningasendingar. Hann segist
hafa laumast út meðan fa,ngaverð-
irnir voru að horfa á sjónvarp.
Fangelsið segir hann vera á „eyði-
legri sléttu nærri smábæ“.
Feeney sat í einangrun hér á
landi fram á árið 1994 en slapp þá
eftir að hafa afplánað helming
fangavistarinnar eða eitt ár. Hann
hélt þá á ný til Bandaríkjanna og
segist í viðtalinu við Playboy þeg-
ar hafa hafið undirbúning að
nýrri tilraun til að ná dætrum
Ernu Eyjólfsdóttur. Ekki greinir
hann þó frá hvað hann gerði og
ekki heldur hvort öll áform um að
ná stúlkunum hafa verið lögð á
hilluna. -GK
QD
©DQDDQm
Danshópurinn Anaké frá Tahiti kom hingað til lands í gær vegna vínsýningarinnar sem stendur yfir í Perlunni um
helgina. Það þótti nauðsynlegl að koma við í Bláa lóninu og æfa sporin áður en dansað væri í Perlunni. Nafn hóps-
ins er dregið af nýjum drykk sem er sólskinsblanda af koníaki og ástríðuávexti. -em/ DV-mynd GS
Flóttamenn frá Bosníu:
Koma
ekki
fyrr en
í sumar
Búist er við að flóttamennirnir
25, sem íslendingar hyggjast taka
við frá Bosníu, komi ekki hingað til
lands fyrr en í maí eða júní, að sögn
Sesselju Árnadóttur, lögfræðings
hjá félagsmálaráðuneytinu, ekki í
ársbyrjun eins og áður var gert ráð
fyrir.
Sesselja segir að starfsmenn
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna í Bosnlu séu nú að kanna
hvaða flóttamenn geti snúið heim til
sín og hverjir þyrftu að komast til
annars lands. í framhaldi af því fari
fulltrúar íslenskra stjórnvalda, trú-
lega frá Rauða krossi íslands, til
Bosníu til að ræða við þá sem hafa
áhuga á að koma hingað. Þeir munu
velja þá sem eru líklegastir til að
spjara sig í íslensku þjóðfélagi.
-GHS