Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 Uppkaup netalagna í Hvítá í Borgarfirði í hættu: Hnútur kominn á samninga fyrir næsta sumar „Enda þótt landeigendur séu formlegir samningsaðilar í þessu - svo gæti farið að netaveiðin hæfist aftur máli þá erum það við, leigutakarnir, sem borgum. Okkur þykir hlutur NiÐURSTAÐA Hvort viltu karl eða konu sem forseta? MMHj ,r ö d d FOLKSINS 904-160u 59% Kona Þverár í greiðslum fyrir upptöku laxaneta í Hvítá, of hár miðað við hvað hún hefur fært okkur í auk- inni laxagengd. Það eru Norðurá og Gljúfurá sem hafa mestan ávinning haft af upptöku netanna. Það er deg- inum ljósara að upptaka laxanet- anna er verulegur ávinningur fyrir allt vatnasvæðið en það er ekki sama hvað það kostar,“ sagði Jón Ingvarsson, forsvarsmaður leigu- taka Þverár í Borgarfirði, í samtali við DV. Leigutakar borgfirsku laxveið- iánna hafa greitt þeim bændum sem rétt eiga á netaveiði í Hvítá 12,2 milljónir á ári fyrir að leggja ekki laxanet. Af þessari upphæð hafa leigjendur Þverár greitt 34,7 pró- sent, Norðurár 27,3 prósent og Grímsár 23,4 prósent. Leigjendur minni ánna skipta svo hinu á milli sín. Kristján Axelsson, bóndi í Bakka- koti, er talsmaður netabænda. Hann segir að það sé rétt að hlutur Þver- ár og Grímsár hafi ekki orðið jafn- mikill hvað laxagengd varðar og hlutur Norðurár og Gljúfurár við upptöku netanna. Hann segir að ef til vill þurfi aö endurskoða skipting- una. „Ég vona að þetta leysist nú fyrir komandi sumar en hver framtíöin verður er óráðnara. Við vorum komnir af stað með að gera ótíma- bundinn samning, sem þyrfti að segja upp með árs fyrirvara, en framlengdist frá ári til árs ef honum væri ekki sagt upp. Ég sé ekki að það muni fara í gegn núna en ef til vill einhver samningur fyrir næsta sumar,“ sagði Kristján í samtali við DV. Hann var spurður hvort hætta væri á að netin færu aftur niöur í vor? „Þegar ég fór af fundi á mánudag- inn sá ég ekki annað í stöðunni en að netabændur myndu hætta við allt saman og leggja netin aftur í vor. En svo hef ég aðeins heyrt í mönnum í dag og er nú að vonast til að leiðir finnist til lausnar deilunni. Hitt er ljóst að netabændur taka ekki á sig neina skerðingu á greiðslu fyrir upptöku netanna. Þeir setja þau þá bara niður aftur ef ekki takast samningar," sagði Kristján Axelsson. -S.dór Fréttir Skrautlegur ferill Ragnars Jónssonar, tónlistarkennara, organista og forsetaframbjóðanda: Sakaður um að nýta sér stolna mynd á styrktarkort - segist hafa fengið myndina að gjöf - hefur „flækst“ í mörg mál víða um land Ragnar Jónsson, forsetaframbjóð- andi og organisti, á að baki skraut- legan feril og virðist hafa komist upp á kant við heimamenn hvar sem hann hefur verið við kennslu eða önnur störf úti á landi. í Reyk- hólaveit flæktist hann inn í „mörg leiðindamál“ eins og heimamenn orða það. Hann er sakaður um stuld á listaverkum, undarlega framkomu í kennslu og á Þórshöfn bíður hans ólokið mál vegna brotthvarfs á bif- reið frá hreppnum. Umdeild mynd eftir Mugg „Ég hef ráðið mér lögmann til að annast málið fyrir mig. Ég á þessa mynd og þrjár aðrar sem Ragnar Jónsson stal af mér. Ég hef vitni sem geta sannað mitt mál og síst af öllu hef ég gefið honum myndina," segir Svava Þórólfsdóttir í Króks- fjarðarnesi en hún hefur undanfar- in ár átt í deilu við Ragnar Jónsson, organista og forsetaframbjóðanda, um teikningar eftir listamanninn Guðmund Thorsteinsson - Mugg. Eina þessara mynda notaði Ragn- ar á jólakort sem hann gaf út nú fyr- ir jólin og seldi til styrktar þeim sem lentu i hörmungum snjóflóðs- ins á Flateyri. Á forsíðu kortsins er frumteikning Muggs af myndinni „Kristur læknar sjúka“ en málverk eftir teikningunni er á altaristöflu Bessastaðakirkju. Kortið var gefið út í 4000 eintökum. Svava segir að hún hafi falið gall- eríi i Reykjavík að geyma myndina eftir að hún keypti hana. Ragnar var á þessum tíma tónlistarkennari á Reykhólum og var trúnaðarvinur Svövu eftir því sem hún segir. Hún sakar Ragnar um að hafa fengið myndina úr geymslunni með því að segjast vera að ná í hana fyrir rétt- an eiganda. Gjöf en ekki þjófnaður Ragnar Jónsson sagði í samtali við DV að hann hefði fengið um- rædda mynd að gjöf en vildi ekki segja frá hverjum. Hann sagði þó aö „komiö hefði til orðræðna milli sín og Svövu“ um eignarhald á mynd- inni. „Það er alveg á hreinu að ég á þessa mynd og ég er búinn að gera grein fyrir hvernig ég eignaðist hana. Ef Svava heldur einhverju öðru fram þá er það bara skáldskap- ur. Gjöf er gjöf,“ sagði Ragnar. „Það eru ósannindi ef hann held- ur því fram aö ég hafi gefið honum myndina. Ragnar sveik sig hins veg- ar inn á mig. Ég varð fyrir missi og Kortið umdeilda með myndinni eftir Guðmund Thorsteinsson - Mugg. Ragnar er sakaður um að hafa tekið myndina ófrjálsri hendi. Ragnar Jónsson, tónlistarkennari, organisti og forsetaframbjóðandi, hefur vtða komið við á ferli sínum við tónlistarkennslu. DV-mynd Rasi sorg, hann fékk mig tU að læra hjá sér og við urðum vinir. Ég trúði honum og treysti en hann sveik það allt saman," segir Svava. Deilan um myndina hefur borist til sýslumannsembættisins á Pat- reksfirði. Þórólfur Halldórsson sýslumaður sagði við DV að málið væri þar til meðferðar enda hefðu komið fram ásakanir um þjófnað. Rannsókn væri hins vegar ekki lok- iö. Ragnar Jónsson hefur greitt út 100 þúsund krónur af söfnunarfénu sem fékkst fyrir kortið. Hann sagði í gær að uppgjöri vegna þess væri ekki lokið. „Þetta var mitt einkaframtak og á mína ábyrgð. Ég þarf ekki að gera grein fyrir uppgjörinu en.ef þess verður óskað er það ekkert mál,“ sagði Ragnar. Rekinn frá Reykhólum Ragnar hefur verið tónlistarkenn- ari víöa um land. Hann var við kennslu á Reykhólum frá haustinu 1992 og fram til ársins 1993. Þá var hann rekinn úr starfi. Stefán Magn- ússon, þáverandi oddviti Reykhóla- hrepps, staðfesti í samtali við DV að hann heföi rekið Ragnar vegna „ým- issa mála“ en vildi ekki greina frá hver þau voru. Viðskipti Ragnars og Svövu Þór- ólfsdóttur voru eitt þessara mála en einnig hefur DV öruggar heimildir fyrir því að störf Ragnars hafi verið tekin upp hjá barnaverndarnefnd hreppsins án þess þó að hann væri kærður. Hljómsveitin Box Áöur en Ragnar réðst til starfa í Reykhólasveit var hann tónlistar- kennari á Tálknafirði og Bíldudal. Haustið 1991 kenndi hann á báðum stöðum en eftir áramótin á Tálkna- firði. „Hann var ekki ráðinn aftur," var það eina sem Brynjólfur Gísla- son, sveitarstjóri á Tálknafirði, vOdi segja um starfslok Ragnars á Tálkna- firði. Vegna verunnar þar vestra spannst dómsmál vegna uppgjörs eft- ir spilamennsku á áramótadansleik fyrir iþróttafélagið Hörð á Patreks- firði. Þrír félagar Ragnars í hljóm- sveit, sem kölluð var Box, kærðu hann fyrir að hafa tekið út greiðsl- una fyrir dansleikinn frá íþróttafé- laginu en ekki greitt þeim sinn hlut. Málinu lauk svo að Ragnar var sýknaður af að hafa svikið pening- ana út úr íþróttafélaginu en hann hefur enn ekki staðið hljómsveitarfé- lögunum skil á þeirra hlut. Einn þeirra sagði í samtali við DV að ákveðiö hefði verið að láta málið nið- ur falla vegna þess að ekki hefði svarað kostnaði að halda mála- rekstri áfram. Lögreglumál á Þórshöfn Lögreglan í Þingeyjarsýslum vinnur nú að rannsókn kæru Þórs- hafnarhrepps á hendur Ragnari vegna þess að hann á í sumar að hafa tekið traustataki bifreið í eigu hreppsins, ekið henni út fyrir þorpið og skemmt. Hefur hreppurinn lagt fram skaðabótakröfu vegna skemmda á bílnum. Ragnar vann siðasta sumar sem handlangari hjá verktaka við múrverk á Þórshöfn. Þröstur Brynjólfsson, yfirlögreglu- þjónn á Húsavík, segir að rannsókn málsins á Þórshöfn sé ekki lokið. Ragnar þræti fyrir að hafa tekið bif- reiðina en málið verði senn sent rík- issaksóknara tO umsagnar. -GK Stuttar fréttir Farin aö ræða saman? Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhanna Sigurðardóttir áttu saman fyrstu viðræður um sam- einingu Þjóðvaka og Alþýðu- flokks í gær, skv. Alþýðublaði. Biskup úrskurðar Biskup hefur gefið sóknar- presti og organista í Langholts- kirkju viku tO að skfia greinar- gerð. Biskup úrskurðar síðan í málinu, að sögn Útvarps. Borga lægstu skattana íbúar í Garðabæ og á Seltjarn- arnesi greiða lægstu skattana til sveitarfélagsins í landinu. Fjórir kaupstaðir leggja á 8,4% útsvar. Viðskiptablaðið greindi frá. Rækja færir hagnað Hagnaður er af sjávarútvegi í heild og stafar hann af góðri af- komu í veiðum og vinnslu á rækju og loðnu. RÚV sagði frá. Flogið beint til Kanada Kanadískt flugfélag fær leyfi tO að selja flugmiða tíl Kanada. Daglegt flug byrjar í vor. Flogið verður til Vancouver, Calgary og Winnipeg. RÚV greindi frá. Landsfundi frestað? Landsfundi Sjálfstæðisflokks verður hugsanlega frestað til hausts. Framkvæmdastjórn á að leggja fram tiOögu í febrúar, að sögn Útvarps. Samið við röntgentækna Röntgentæknar og stjórnend- ur Ríkisspítala hafa skrifað und- ir samning. Röntgentæknar vinna 15 yfirvinnutíma. Vakta- kerfi verður tekið upp. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.