Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 Viðskipti DV Formannskosning í fyrsta sinn hjá Verslunarráðinu: Kolbeinn í Myllunni gefur kost á sér - á aðalfundi ráðsins 15. febrúar Hækkandi vísitölur Víðtæk dreifing Visa-debet- korta í Evrópu Samkvæmt könnun ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtækisins Coopers & Lybrand í Evrópu á viðtöku debetkortanna Visa El- ectron og Maestro, sem Eurocard er með, kemur í ljós að Visa er með talsvert meiri út- breiðslu. í árslok 1995 var áætl- að að viðtökustaðir Visa Electr- on væru um 513 þúsund í Evr- ópu en viðtökustaðir Maestro um 333 þúsund. Maestro debet- kortin eru algengari í S-Evrópu, í löndum eins og Spáni og Portú- gal þar sem 75% viðtökustaða þeirra í Evrópu eru. VKS fær gæða- vottun Nýlega veitti Vottun hf. Verk- og kerfisfræðistofunni, VKS, vottun samkvæmt hinum alþjóð- lega staðli ISO-9001. VKS er fyrsta íslenska hugbúnaðarfyrir- tækið og jafnframt fyrsta ís- lenska ráðgjafarfyrirtækið sem fær gæðavottun en áður hafa 11 íslensk fyrirtæki í ýmsum grein- um fengið slíka vottun. Forráðamefin VKS telja þetta merkan áfanga í því að auka möguleika íslenskra hugbúnað- arfyrirtækja á að taka að sér verkefni erlendis, sérstaklega á EES-svæðinu. Fleiri hugbúnað- arfyrirtæki stefna að gæðavott- un enda hafa tekjur þjóðarbús- ins af útflutningi hugvits og hugbúnaðar aukist ört undan- farin misseri. Er talið að útflutn- ingsverðmætið hafi numið 1 milljarði á síðasta ári. -bjb Þriðja bakaríið á Skagann DV, Akranesi: Þriðja bakaríiö á Akranesi verður opnað um mánaðamótin þegar Ráðhúsbakaríið tekur til starfa á neðri hæð stjórnsýslu- hússins. Eigendur bakarísins eru Áki Jónsson bakari, Heimir Jónasson og Hafsteinn Gunnars- son. Fimm manns fá vinnu i bakaríinu. Það verður því nægt bakkelsi á borðum Skagamanna á næstunni. -DÓ Aðalfundur Verslunarráðs ís- lands fer fram 15. febrúar næstkom- andi. Fundurinn markar tímamót í sögu ráðsins að því leyti að í fyrsta sinn verður formaður þess kosinn sérstaklega af félagsmönnum í al- mennum kosningum. Til þessa hefur framkvæmda- stjórnin tilnefnt formann úr aðal- stjóm sem aðalfundarmenn hafa samþykkt. Einar Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra, hef- ur verið formaður Verslunarráðs síðustu fjögur ár en hann gefur ekki kost á sér áfram. Sömu sögu er að segja um Kristin Björnsson, forstjóra Skeljungs, sem verið hefur varafor- maður. Frestur til að skila inn fram- boði til for- manns rennur út á morgun. í gær var aðeins vitað um einn mann sem ætl- aði að gefa kost á sér en það er Kolbeinn Krist- insson, fram- kvæmdastjóri Myllunnar. Kolbeinn staðfesti í sam- tali við DV að hann hefði áhuga á að taka að sér embætti formanns Verslunarráðs. Hann hefur verið í aðalstjórn ráðsins undanfarin sex ár og setið í fimm manna fram- kvæmdastjórn síðustu fjögur ár. Kolbeinn hefur verið framkvæmda- stjóri Myllunnar um nokkurra ára skeið. „Ég þekki Verslunarráðið nokkuð vel. Það eru mörg áhugaverð mál í gangi og á aðalfundinum verður mótuð ný stefna til næstu ára. Margt er í deiglunni varðandi sam- keppnismál, einkum milli hins op- inbera og einkageirans, sem ég hef mikinn áhuga á að vinna að. Mín helstu baráttumál tengjast sam- keppnismálunum. Ég nefni fjar skiptamál og landbúnaðinn þar sem draga þarf úr afskiptum hins opin- bera,“ sagði Kolbeinn. -bjb Byggingarvísitalan hefur hækkað um 1,5% frá því í des- ember en Hagstofan hefur reikn- að nýja vísitölu eftir verðlagi um miðjan janúar. Talan reynd- ist vera 208,5 stig og gildir hún fyrir febrúar nk. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn er 667 stig. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,6% verðbólgu á ári. Miðað við meðallaun i desem- ber hefur Hagstofan einnig reiknað nýja launavísitölu. Hún er 141,8 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Samsvar- andi launavísitala, sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána, er 3098 stig. 200 milljóna krani Eimskip hefur gengið frá samningum um kaup á nýjum hafnarkrana í Sundahöfn fyrir 200 milljónir króna. Þessi fjár- festing er í tengslum við breyt- ingar á siglingakerfi félagsins sem koma til framkvæmda í maí á þessu ári. Kraninn verður tek- inn í notkun um það leyti. Kraninn er færanlegur á hjól- um og verður notaður bæði á Kleppsbakka og Sundabakka. Hann er mjög afkastamikill og getur þjónað skipum allt að 9 gámaraðir á breiddina og híft allt að 80 tonn. Alþjóða lif- tryggingarfé- lagið þrjátíu ára Samtök iðnaðarins afhentu í annað sinn Silfurskelina við opnun umbúðasýningar sem haldin var í Perlunni um síð- ustu helgi. Silfurskelin er veitt þeim aðila sem stendur að bestu íslensku vöruumbúðunum. Alls bárust að þessu sinni 90 tilnefningar um 300 umbúðir. Silfurskelina hlutu Kjötiðja KÞ á Húsavík og hönnuðurinn Jón Ásgeir Hreins- son fyrir Gjafaumbúðir fyrir Húsavíkurhangikjöt. Norðurpóll á Húsavfk framleiddi umbúðirnar. Á myndinni eru, frá vinstri, Páll G. Arnar frá Kjötiðju KÞ, Jón Ásgeir og Sigmundur Hreiðarsson frá Kjötiðju KÞ með verðlaunin sem Har- aldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins, afhenti. DV-mynd GS Kolbeinn Kristinsson. Enn lækkar alverðið Álverð á heimsmarkaði hefur fariö lækkandi síðustu daga. Staðgreiðslu- verðið var 1.536 dollarar tonnið í gær- morgun þegar viðskipti hófust í London. Þaö er ríflega 4% lægra verð en fyrir viku. Frá því fyrir jól hefur álverðið lækkað um tæp 10%. Lækk- unin er einkum komin til vegna sí- aukinna birgða hjá stærstu framleið- endunum og um leið hefur framboðið aukist verulega. Þannig jukust birgð- irnar um 48 þúsund tonn milli mán- aðanna nóvember og desember. Markaðssérfræðingar reikna með enn lækkandi verði næstu vikurnar. Hlutabréfaviðskipti í síðustu viku námu alls um 40 milljónum króna. Þar af voru viðskipti um kerfi Verð- bréfaþings, VÞÍ, og Opna tilboðs- markaðarins, OTM, upp á um 36 milljónir króna. Utanþingsviðskipti námu því aðeins um 4 milljónum. Af þeim viðskiptum sem fóru fram um VÞÍ og OTM var mest höndlaö með bréf Þormóðs ramma eða fyrir 11,6 milljónir. Þar á eftir komu bréf Útgeröarfélags Akureyringa með 5,2 milljónir, Flugleiðabréf með 3,7 millj- ónir og hlutabréf Haraldar Böðvars- sonar fyrir 3,2 milljónir. Hlutabréfaverð hefur verið að hækka ef marka má þingvísitölu hluta- bréfa sem náðu sögulegu hámarki sl. mánudag, 1411 stigum. Þingvísitala húsbréfa hefur sveiflast upp og niður, var síðast 144 stig á mánudag. Einn togari, Haukur GK, landaði í erlendum höfnum í síðustu viku, sam- kvæmt upplýsingum Aflamiðlunar LÍÚ. Haukur seldi 161 tonn í Bremer- haven fyrir tæpar 30 milljónir króna sem er nokkuð góð sala miðað við það sem á undan hefur gengið. t gámasölu í Englandi seldust 190 tonn fyrir tæp- ar 28 milljónir króna. Undanfarna viku hefur gengið doll- ars og jens hækkað en pundið hins vegar lækkað. Þýska markið hefur haldist svipað, sölugengi þess var 45,29 krónur í gærmorgun. Dollarinn var skráður á 66,70, pundið á 100,95 og jenið á 0,6321 krónu. -bjb Skipasölur 155,66 200 Dollar Gámaþorskur Mark 150 45,29 Jen 1350 1300 Þingvísit. húsbr. Alþjóða líftryggingarfélagið er 30 ára um þessar mundir. Félag- ið var stofnað 22. janúar 1966 í samvinnu íslenskra aðila og breska líftryggingafélagsins The International Life Insurance Company, sem var samtarfsaðili félagsins fyrstu árin. Félagið er nú alfarið í eigu islenskra aðila. í byrjun ársins voru á tíunda þúsund einstaklingar tryggðir hjá félaginu. Markaðshlutdeild félagsins í líftryggingum er um 22%. Á síð- asta ári hóf félagið, fyrst ís- lenskra líftryggingafélaga, sölu á Sjúkdómatryggingu. Hún hef- ur hlotið góðar viðtökur en tryggingin greiðir bætur vegna stórra aðgerða eða við greiningu á alvarlegum sjúkdómum eins og krabbameini og hjartaáfalli. -bjb Fyrsti „kúnninn" Hér afhendir Sigurður S. Bjarna- son, framkvæmdastjóri bflaleig- unnar Hassó-ísland, til vinstri, fyrsta viðskiptavininum bíl- lyklana að Fiat Punto, einum af 10 bílum leigunnar sem tók til starfa í síðustu viku .DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.