Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
11
r
Stuttar fréttir
Bill Clinton Bandarikjaforseti flutti stefnuræðuna í gærkvöldi:
Repúblikanarnir
púuðu ekki mikiö
Spánn
Fyrrum ráðherra
ákærður
Hæstiréttur Spánar hefur
ákært fyrrum innanríkisráð-
herra í ríkisstjóm Filipe Gonza-
lez fyrir aðild hans að „óhreina
stríðinu" gegn meðlimum í að-
skilnaðarhreyfmgu Baska, ETA,
á árunum 1983-87. Þá voru fram-
kvæmd sprengjutilræði, mann-
rán og morð þar sem 27 týndu
lífí. Ákæran þykir áfall fyrir
Gonzalez. Hefur stjórnarand-
staðan krafist þess að hann
dragi framboð sitt í komandi
þingkosningum til baka.
Handtekinn fyrir
kynmök við 13
ára „eiginkonu"
Átján ára gamall tyrkneskur
þjónn hefur verið handtekinn í
Tyrklandi sakaður um kynmök
við stúlku undir lögaldri. Um er
að ræða „eiginkonu" Tyrkjans,
13 ára breska stúlku að nafni
Sarah Cook. Þau hittust í sum-
arleyfi Söruh í fyrra og felldu
hugi saman. Fyrir hálfum mán-
uði voru þau gefin saman við
múslímska trúarathöfn með
samþykki foreldra stúlkunnar.
En stúlkur í Tyrklandi mega
fyrst gifta sig 15 ára. Læknir hef-
ur staðfest að Sarah er ekki
hrein mey. Hún segist mjög
hamingjusöm með manni sínum
en hann á fangelsisdóm yfir
höfði sér. Reuter
Repúblikanar í Bandaríkjaþingi
sátu á strák sínum í gærkvöldi þeg-
ar Bill Clinton forseti flutti stefnu-
ræðu sína. Þingmennirnir hlýddu
fyrirmælum leiðtoga sinna um að
púa ekki á forsetann en ekki klöpp-
uðu þeir heldur mikiö þar sem þeir
sátu ofan á höndum sér undir mest-
allri klukkustundar langri ræðunni.
Sá orðrómur hafði verið á kreiki að
ungu mennirnir í Repúblikana-
flokknum ætluðu að gera hróp að
Clinton. Samflokksmenn forsetans
voru hins vegar ósparir á lófatakið.
Forsetinn hvatti þingheim, þar
sem repúblikanar eru í meirihluta,
til þess að láta það ekki nokkum
tima koma fyrir aftur að loka þurfi
ríkisstofnunum eins og gerðist m.a.
fyrir jólin og sjá til þess að Banda-
ríkin haldi áfram að greiða reikn-
inga sína með því að heimila aukn-
ar lántökur ríkisins.
Ef ekki næst samkomulag milli
forseta og þings stefnir í að loka
verði einhverjum ríkisstofnunum
að nýju í vikulokin.
Clinton kynnti helstu baráttumál
sín í komandi slag fyrir forsetakosn-
Bill Clinton hlær með þeim Newt
Gingrich og Al Gore.
Símamynd Reuter
ingarnar í nóvember, lýsti því meö-
al annars yfir að „tími stóra jíkis-
báknsins væri liðinn“ og hvatti
menn til að treysta meira á eigin
mátt og megin.
Repúblikanar á Bandaríkjaþingi
eru bitrir út i forseta sinn vegna
þess hve lítið miðar í viðræðum
þeirra um að ná niður íjárlagahall-
anum á næstu sjö árum. Þá sækja
repúblikanar einnig ákaft að Hill-
ary forsetafrú vegna svokallaðs
Whitewater- máls. Clinton leit til
konu sinnar i þinginu í gærkvöldi
og stappaði í hana stálinu, sagði
hana „yndislega eiginkonu, stór-
kostlega móður og frábæra forseta-
frú.“
Hillary leit ánægð niður af svöl-
unum þar sem hún sat, stóð loks
upp og brosti. Demókratar, með
dóttur forsetahjónanna í broddi
fylkingar, klöppuöu Hilláry lof í
lófa.
Bob Dole, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni og sá sem þykir
líklegastur til að keppa við Clinton
um forsetaembættið í haust, svaraði
forsetanum og hæddist að yfirlýs-
ingum hans um að nýtt sögulegt
tímabil væri að hefjast. Hann sagði
forsetann fulltrúa aukins ríkis-
bákns og aukinna ríkisafskipta.
„Hann er helsti þrándur í götu
hallalausra fjárlaga. Hann er svo til
sá síðasti sem heldur uppi vörnum
fyrir úbreytt ástand sem allir hafa
skömm á,“ sagði Dole. Reuter
Undir þrýstingi
Samningamenn Sýrlands og
ísraels ræða saman um frið
vestra og eru undir þrýstingi frá
Bandaríkjastjórn um að ná
áþreifanlegum árangri.
Safnar
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
gaf til kynna í
gær að hann
væri enn las-
burða eftir
hjartaáfallið í
fyrra og sagð-
ist mundu
vilja ná fullu þreki aftur áður en
hann staðfestir hvort hann sæk-
ist eftir endurkjöri í sumar.
Lofa fangalausn
Stjómvöld í Bosníu lofaði að
láta fleiri serbneska fanga lausa
eftir að Bandaríkjamenn höfðu í
hótunum um að skera niður
margháttaða aöstoð.
Uppstokkun hjá
Chrétien
Jean Chrétien, forsætisráð-
herra Kanada, ætlar að stokka
upp í stjóm sinni á morgun, í
fyrsta sinn frá því hann komst
til valda 1993.
Óvissa um gísla
Óvíst var um örlög 50 gísla
tsjetsjenskra uppreisnarmanna
sem ekki fengu frelsi í gær, eins
og lofað hafði verið. Reuter
kroftum
Fyrirsætur gera sig til fyrir Ijósmyndara þegar árlegt baðfatablað tímaritsins
Sports lllustrated var kynnt í Bandaríkjunum í gær. Baðfatablaðsins er ávallt
beðið með eftirvæntingu og keppast fyrirsætur um að komast á síður þess.
Símamynd Reuter
^ Lögmenn „grilla“ Simpson:
Osamræmi
í svörum
„Við höfum fengið svör sem
stangast á við hluti sem hafa áður
komið fram í málinu," sagði einn
lögmannanna sem „grilluðu" eið-
svarinn O.J. Simpson fyrir luktum
dyrum í gær. Lögmenn aðstandand-
enda Nicole Brown og elskhuga
hennar, sem Simpson var ákærður
fyrir að hafa myrt í fyrra en var síð-
an sýknaður, voru ánægðir eftir
yfirheyrslumar í einkamálinu gegn
honum. Þær fara fram frammi fyrir
kviðdómi. Töldu þeir stöðu sína
mun betri en áður. Simpson bar
ekki vitni í máli ákæruvaldsins
gegn hnnum og er þetta því í fyrsta
skipti sem lögmenn gagnaðilans fá
tækifæri til að spyxja hann. Simp-
son var spurður spjönmum úr án
hlés í átta klukkustundir, meðal
annars um hvar hann hefði verið
morðnóttina og um fjarvistarsann-
anir sinar. Simpson forðaðist að
horfa í andlit aðstandenda hinna
myrtu meðan á yfirheyrslunum
stóð. Yfirheyrslumar em liður í
undirbúningi fýrir réttarhöld sem
hefjast 2. april. Til að sakfella Simp-
son fyrir morðin þurfa sönnunar-
gögn að vera yfirgnæfandi en ekki
hafm yfir allan vafa eins og í opin-
berum málum. Simpson á ekki fang-
elsisdóm yfir höfði sér en getur
þurft að greiða svimandi háar upp-
hæðir í skaða- og miskabætur.
Reuter
ísk tónlist
háttar
mm n bw n
1
l Ml -M._ JLm.
Skífunnar
er í fullum
gangi að
Laugavegi 96
Kassettur
islaplötum
lassiskri
list.
frá 99 kr.
, Alvöru
\ rýmingarsala.
:■
Myndbönd
299 kr.
Mörg hundruð titlar -
margir mjög nýlegir!
Afsláttur af öllum
nýjum titlum. Meðul uniiurs:
Tlie Dlfi, llth limir, Tic Flahler Cotl,
Hcbel Amm II. Sluumrn, Htmu'keep, Grmul
Prix Mnnager. /mm Ridern, X-Winn, I*<1A
Golf '96, Intly Cur tl, l'huntmimuitoriu, Wormn,
-------s ’ Bevlí mtd Biilllicml, Ftule to Blaelt
istar-