Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
e útiðnd
Clinton skammar
<►
helsta ráðgjafann
stuttar fréttir
IKoníakið flæðir
Koníaksunnendur létu kjarn-
orkusprengingar Frakka ekkert
á sig fá á síðasta ári og drukku
lítið minna en áður.
Kapphlaup um líkið
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
hefur gengið
í lið með
þeim löndum
sínum sem
vilja að ljóð-
skáldið Jósef
Brodskí, sem lést í útlegð í
Bandaríkjunum um daginn,
verði jarösett heima í Sankti
Pétursborg en ekki i New York.
Kerfísbreytingar
Efhahagsspekingar segja að
grundvallar kerfisbreytingar í
Evrópu og aukinn sveigjanleiki
séu lykillinn að lausn atvinnu-
leysisvandans, en ekki aukinn
hagvöxtur.
Múrinn fundinn
ísraelskir fornleifafræðingar
hafa fundið leifar veggjar sem
þeir segja að hafi verið syðri
mörk hinnar fornu borgar Ses-
aríu á tímum Heródesár.
Með rautt fés
Lögregla í Esbjerg leitar nú
þjófs sem reyndi að ræna kjöt-
Ibúð en datt ofan í tunnu fulla af
rauðu pylsulitarefni.
Skotið á iöggu
Skotið var 50 skotum á heim-
ili norður-írsks lögregluþjóns
og leikur grunur á að skærulið-
ar hafi verið þar að verki.
írakar þjálfaðir
íraskir kjarnorkuverkfræð-
ingar fengu þjálfun í Þýska-
landi og öðrum vestrænum
ríkjum fyrir Persaflóastríðið.
Metkuldi í Minnesota
Fróst í bæ einum í norður-
hluta Minnesota í Bandaríkjun-
um fór niður í 51 gráðu á Celsi-
us í gær og hefur meiri kuldi
ekki mælst í fylkinu.
Hinsta kveðja
Miklar biðraðir mynduðust
við Prag-kastalann I gær þegar
íbúar Tékklands flykktust til að
votta látinni forsetafrú landsins
hinstu virðingu sína.
Hvetur til einingar
Helmut
Kohl Þýska-
landskansl-
ari varaði við
því í gær að
ef ekki ríkti
meiri ein-
drægni og
eining innan
Evrópusambandsins væri
hætta á að mikil afturfór yrði á
öllum sviðum í löndum þess.
Reuter
Allt vitlaust í Wall Street:
Dow Jones fór
yfir 5.400 stig
Fjárfestar, ekki síst spákaup-
menn, í kauphöllinni við Wall
Street í New York fóru mikinn í vik-
unni. Viðskipti voru í hámarki og
fór Dow Jones hlutabréfavísitalan í
fyrsta sinn yfir 5.400 stig sl. fimmtu-
dag i sögu Wall Street. Þrálátur orð-
rómur um yfirvofandi bakslag i við-
skiptunum hefur orðið til þess að
fjárfestar kaupa og kaupa hlutabréf.
„Á meðan slíkt ástand er þá kemur
að sjálfsögðu ekkert bakslag," sagði
verðbréfamiðlari í Wall Street.
Hlutabréfavísitölur í öðrum
helstu kauphöllum heims náðu
einnig sögulegu hámarki, hvort
heldur sem var London, Frankfurt,
Tokyo eða Hong Kong.
Eldsneytisverð á heimsmarkaði
breyttist lítið sem ekkert í vikunni.
Reuter
Bill Clinton Bandaríkjaforseti tók
einn helsta pólitíska ráðgjafa sinn
ærlega í karphúsið fyrir að gefa
kosningastjórum Bobs Doles, leið-
toga repúblikana í öldungadeild
Bandarikjaþings og forsetáfram-
bjóðanda, leynilegar upplýsingar
um skoðanakannanir til að reyna að
fá Dole til að gera samning um af-
greiðslu fjárlaganna.
Sá sem fékk að finna fyrir reiði
Clintons var hinn umdeildi Dick
Morris sem ráðlagði honum að feta
Leiðtogar breska Verkamanna-
flokksins réðu sér ekki fyrir kæti í
gær eftir sigur flokksins í auka-
kosningum á fimmtudag en um leið
sögðust þeir eiga von á að baráttan
fyrir næstu þingkosningar yrði
óvægin. Þingmeirihluti Johns Maj-
ors forsætisráðherra og íhalds-
flokks hans er nú aðeins fjögur sæti
eftir ósigurinn í fyrradag.
Verkamannaflokkurinn, sem
heldur því fram að skoðanakannan-
ir sýni stöðugt minnkandi fylgi
íhaldsmanna, ætlar að koma upp
meðalveginn milli hægri arms repú-
blikanaflokksins og vinstri arms
demókrataflokksins í kosning-
aslagnum sem er fram undan.
„Hann sagði Morris hreint út að
hann væri bæði reiður og vonsvik-
inn,“ sagði Mike McCurry, talsmað-
ur Hvíta hússins, í gær.
Morrís hafði samband við kosn-
ingastjóra Doles á laun og sagði
þeim að Dole ætti að stefna að sam-
komulagi um hallalaus fjárlög með
eða án stuðnings annarra repúblik-
sérstakri sveit sem á að einbeita sér
að því að svara neikvæðri kosninga-
baráttu af hálfu stjórnar Majors.
„Næstu kosningar verða barátta
milli vonarinnar og óttans. Við
bjóðum von og jákvæða sýn, þeir
reyna að hræða fólk í burt frá
Verkamannaflokknum,“ sagði Tony
Blair, formaður Verkamannaflokks-
ins, á fundi með helstu þingmönn-
um flokksins. „Við verðum að beina
athygli okkar að afrekaskrá íhalds-
manna og lygum þeirra.“
John Trickett, frambjóðandi
ana. Morris vísaði i skoðanakann-
anir sem sýndu að. Dole mundi
græða mikið á því pólitískt að gera
samning við Clinton. Kosningastjór-
ar Doles sögðust hafa vísað þreifing-
um Morris frá sér þegar í stað og
ekki einu sinni rætt þær við fram-
bjóðandann.
Að sögn blaðsins Washington Post
sagði kosningastjóri Doles að þetta
staðfesti fullyrðingar repúblikana
um að Clinton væri í pólitískum leik
með fjárlagagerðina. Reuter
Verkamannaflokksins í Hemsworth
í norðurhluta Englands, jók fylgi
flokksins í 71,92 prósent í aukakosn-
ingunum á fimmtudag úr 70,84 pró-
sentum sem hann fékk í þingkosn-
ingunum 1992.
Þótt Verkamannaflokkurinn hafi
allajafna alltaf betur í Hemsworth
var sigurinn engu að síður mikill
léttir fyrir Tony Blair, sem óttaðist
að innanflokksdeilur um mennta-
mál og klofningsframboð Sósíalíska
verkamannaflokksins mundu taka
fylgi frá flokkinum. Reuter
1 Brennuvargar
ráðast á bíl
Ashdowns
Breski
| þingmaðurinn
Paddy As-
hdown, leið-.
togi flokks
frjálslyndra
3 demókrata, á
sér greinilega
einhverja
óvildarmenn því eldur var borinn
að bíl hans í fyrrinótt og hann
eyöilagður. Þetta er þriðja árásin
á Ashdown frá því í desember.
Ashdown er þingmaður fyrir bæ-
inn Yeovil í suðvesturhluta Eng-
lands. Bíll hans var einnig
skemmdur í síðasta mánuði.
„Það sem veldur áhyggjum er
að þetta kom ekki á óvart þar sem
Paddy hefur verið að rannsaka
kynþáttahatur í Yeovil, heimabæ
.. sínum, um nokkurt skeið og hann
; hefur fengið hótanir um að svona
nokkuð mundi gerast,“ sagði tals-
maður hans við breska útvarpiö
BBC.
Danir banna
1 sölu á krafta-
verkahormóni
Heilbrigðisyfirvöld í Dan-
mörku hafa fyrirskipað lyfjabúö-
akeðju aö hætta að selja „krafta-
verkahormónið" melatónín sem á
að lækna alla heimsms kvilla, eða
svo gott sem, ef eitthvað er að
marka auglýsingar. Bannið gildir
þar til melatónín hefur fengið
samþykki danskra yfirvalda eða
ESB.
(Melatónín, sem er náttúrulegt
, efni framleitt af heOakönglmum,
hefur valdið miklum deUum í
Bandaríkjunum þar sem því er
m.a. haldið fram að efnið filefli
neytendur kynferðislega og lengi
þar að auki lífið.
Óskráðir
serbneskir
stríösfangar
Ifinnast
Starfsmenn Rauða krossins
fundu 88 serbneska stríðsfanga í
fangelsi Bosníustjórnar í borginni
Tuzla í gær.
Yfirmaður Rauða krossms í
borginni, Laurent FeUay, sagðist
eiga von á því að þeir yrðu leyst-
ir úr haldi ems og aðrir stríðs-
fangar en sagði ekki hvenær það
yrði.
| „Við fengum fuUan aðgang að
þeim hluta fangelsisins í Tuzla
; sem herinn ræður yfir og okkur
tókst að skrá 88 serbneska fanga,“
sagði Fellay.
Atvik þetta er hálfvandræða-
legt fyrir stjómvöld í Bosníu þar
sem þau höfðu áður meinað eftir-
litsmönnum Rauða krossins að-
gang að fangelsinu.
ISegir yfirvöldum
í Rio aöhafa
ekki áhyggjur
Bandaríski
kvikmynda-
leikstjórinn
Spike Lee seg-
ir að borgaryf-
irvöld í Rio de
l Janeiro i Bras-
Uíu þurfi ekki
að óttast að
; áform hans
um að taka upp nýtt myndband
með Michael Jackson í einu af fá-
■ tækrahverfum borgarinnar muni
skaða ímynd hennar.
„Við ætlum ekki að ferðast í
l tólf tíma tU Rio til að sýna fátækt
| þegar við gætum sýnt fátækra-
hverfin í New York,“ sagði Spike
í viðtali við dagblaðið O Globo.
„Michael dáir BrasUíu og ég
líka. Það er engin ástæða tU að
hafa áhyggjur af því að imynd Rio
bíði hnekki.“ Reuter
■
Veiðimaður í Kasakstan býr sig undir að sleppa glæsilegum sérþjálfuðum erni sínum á eftir einhverri bráðinni nærri bæn-
um Almatf. Gömul hefð er fyrir því í Kasakstan að nota erni við veiðar á smádýrum af ýmsu tagi. Símamynd Reuter
Tony Blair og menn hans í Bretlandi kátir eftir sigur:
Verkamannaflokkurinn býst
við óvæginni kosningabaráttu