Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 J3"V
erlend bóksjá
Ættarsagan sem ýtti
Rushdie til hliðar
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Charles Grant:
X-Flles 1: Gobllns.
2. Charles Grant:
X-Files 2: Whlrlwind.
3. George Dawes Green:
The Juror.
4. Davld Guterson:
Snow Falling on Cedars.
- 5. Kate Atkinson:
Behind the Scenes at the Museum.
6. Michael Ridpath:
Free to Trade.
7. Colln Forbes:
Fury.
8. Pat Barker:
Regeneration.
9. Peter Hoeg:
Mlss Smill'as Feeling for Snow.
10. Dlck Francis:
Wild Horses.
Rit almenns eölis:
1. Wlll Hutton:
The State Welre In.
2. Alan Bennett:
Writing Home.
3. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
4. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
5. S. Blrtwistle & S. Conklln:
The Making of Pride and Prejudlce.
6. Ranfurly:
To War with Whitaker.
7. Jung Chang:
Wlld Swans.
8. N.E. Genge:
The Unofficlal X-Files
Comnpanion.
9. S. Nye & P. Dornan:
The A-Z of Bahaving Badly.
10. I. Botham & P. Hayter:
My Autobiography.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Mary Wesley:
Forestllllng om kærllghed.
2. Llse Norgaard:
Kun en pige.
3. Llse Norgaard:
De sendte en dame.
4. Jung Chang:
Vllde svaner.
5. Klrsten Thorup:
Elskede ukendte.
6. Ken Hoime:
Marvfolket.
7. Robert Goddard:
Hábet var en fremmed.
(Byggt á Politiken Sendag)
vísindi
Gott fyrir grjónin
Erfðaverkfræðingar hafa nú
beint sjónum sínum að hrísgrjón-
um, sem eru helsta fæða um
helming mannkynsins. Þeim hef-
ur tekist að finna gen sem veitir
hrísgrjónum mótstöðukraft gegn
bakteríu einni sem getur gert
mikinn usla.
Vísindamennimir, sem starfa í
Kalifomíu, hafa splæst geninu í
hrísgrjónafrumur í tilraunastof-
unni. Þeir ræktuðu 1500 plöntur
og skáru þær síðan með skærum
sem báru óværuna. Tíu dögum
síðar voru 50 þeirra enn við góða
heilsu.
Búist er við að hrísgrjónaupp-
skera muni aukast mikið, í
fyrstu að minnsta kosti, þegar til-
raunirnar flytjast út á hris-
I gijónaakrana.
Fyrsta
glasagórillan
Górilluynjan Rosie í dýragarð-
inum í Cincinnati í Bandaríkj-
unum eignaðist nýlega 7 marka
dóttur, fyrstu glasagórilluna sem
fæöst hefur. Litla dóttirin fædd-
ist fimm vikum fyrir tímann.
Vísindamenn tóku 12 egg úr
Rosie í mars í fyrra og frjóvguðu
þau með sæði úr górillu dýra-
garðsins í Omaha og reyndust
átta þeirra nothæf eftir það. Þrjú
voru sett í móöurlíf Rosie og
fimm eru varðveitt í dýragarðin-
um en þau verða notuð siðar.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Kvenrithöfundar hafa oft kvartað
undan því að konur hafi í reynd
ekki sömu möguleika og karlmenn
til að vinna til þekktustu bók-
menntaverðlauna Bretlands. Þótt
tölur frá liðnum árum virðist styðja
þá fullyrðingu er ljóst að nú í vetur
hafa kvenkynsrithöfundar heldur
betur slegið karlpeningnum við að
þessu leyti.
Undir lok síðasta árs hlaut Pat
Barker Booker-verðlaunin fyrir
skáldsögu sína The Ghost Road sem
ijallar um fórnarlömb villimennsku
fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þessi
þekktustu bókmenntaverðlaun
Breta færa yinningshafanum meira
en tvær milljónir króna í aðra hönd
og stóraukna sölu þeirrar bókar
sem verðlaunin hlýtur hverju sinni.
Bók ársins
Verðlaun sem kennd eru við
Whitbread-fyrirtækið gefa nokkru
hærri fjárhæð en Bookerinn en hafa
hins vegar ekki hlotið sömu virð-
ingarstöðu í breskum menningar-
heimi. Þau einskorðast ekki við
skáldsögur - ná einnig til fræðibóka
og ævisagna.
Að þessu sinni stóð valið á milli
ritverka, ýmist eftir óþekkta eða
heimsfræga höfunda. Þar fór
fremstur í ílokki Salman Rushdie
» með skáldsöguna Síðasta andvarp
Márans sem varð undir í samkeppn-
inni við The Ghost Road um
Bookerinn. Ný bók um stjórnmála-
skörunginn Gladstone eftir Roy
Jenkins var einnig af mörgum talin
líkleg til að hljóta titilinn „Bók árs-
ins“ hjá Whitbread-dómnefndinni.
Það fór á annan veg. Kate Atkin-
son, sem er 44 ára, sló þessum köpp-
Loftslag
skoðað á
suðurskautinu
Vísindamenn frá sex löndum eru
að undirbúa jarðboranir á Suður-
skautslandinu til að kanna lofts-
lagsbreytingar sem urðu á jörðinni
fyrir rúmum 40 milljónum ára. Ætl-
unin er að reyna að komast að því
hvort ísbreiða hafi hulið Suður-
skautslandið á þessum tíma. Með
því að rannsaka hver áhrif tímabil
þiðnunar og frystingar höfðu á
sjávarhæð gera þeir sér vonir um
að öðlast innsýn í áhrifin af gróður-
húsaáhrifunum sem nú er mikið
talað um.
„Ég held ekki að við munum
komast að niðurstöðu með þessu
eina verkefni en ég tel það vera
nokkuð mikilvægan áfanga. Þetta
er leiðin sem við verðum að fara til
að auka þekkingu okkar á fortíð-
inni,“ segir Peter Bárrett, jarðfræð-
ingur við Victoria háskólann á
Nýja-Sjálandi.
Steingervingar, sem sumir hverj-
ir eru 200 milljóna ára gamlir, sýna
að Suðurskautslandið var eitt sinn
skógi vaxið og að risaeðlur vöpp-
uðu þar um.
Barrett segir að vísindamenn séu
ekki einhuga um hvort ísbreiður
þöktu Suðurskautslandið öðru
hverju fyrir meira en 36 milljónum
ára þegar loftslagið kólnaði mjög.
Vísindamennirnir ætla að reyna
að komast að því með því að bora
niður og leita að vísbendingum um
ísmyndun þar sem ísinn hefur
mulið grjótið og skilið eftir sig
blöndu sands, steina og leðju.
Boranir hefjast í október og vega
bortækin 150 tonn. Hópar vísinda-
manna munu vinna allan sólar-
hringinn við að rannsaka borkjarn-
ana á borsvæðinu, í nærliggjandi
WHITBREAD
Kate Atkinson við afhendingu verð-
launanna fyrir Bók ársins í Bret-
landi.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
um báðum við með frumraun sinni
sem skáldsagnahöfundur, Behind
the Scenes at the Museum. Formað-
ur dómnefndar hefur skýrt svo frá
að bók hennar hafi fengið flögur at-
kvæði en þrír nefndarmanna hefðu
verið á bandi Rushdies.
Furðu lostin
„Ég er furðu lostin," sagði Atkin-
son þegar úrslitin lágu fyrir og það
voru reyndar fleiri. Sagan hennar
hafði hins vegar þegar komist á
metsölulista í Bretlandi og er líkleg
til vinsælda. Þetta er ættarsaga sem
bækistöðvum og í bandarískri rann-
sóknarstofu á Suðurskautslandinu
segir frá alþýðufjölskyldu í York,
þar sem Átkinson ólst reyndar upp
í einsemd, frá því fyrir síðustu alda-
mót og langt fram á tuttugustu öld-
ina.
Atkinson er fráskilin og býr með
tveimur dætrum sinni úr hvoru
hjónabandinu. Þær eru 13 og 20 ára.
Um þrítugt sagði hún skilið við eig-
inkonuhlutverkið, tók þátt í mót-
mælaaðgerðum kvenna við Green-
ham Common og fór að skrifa smá-
sögur. Hún vann í smásagnasam-
keppni bresks kvennablaðs árið
1988 og hóf fljótlega eftir það að
vinna að skáldsögunni sem nú hef-
ur fært henni frægð og frama.
Hún er ófeimin að láta í Ijósi
óhefðbundnar skoðanir sínar á fjöl-
skyldunni: „Fjölskyldan er ofmetin .
.. Hún eru í sjálfu sér óeðlileg. Okk-
ur er ætlað að vera hluti af mun
stærri heild . . . Karlmenn hafa
brugðist mér og ég hef brugðist
þeim. Karlar þola ekki snjallar kon-
ur, eða konur sem hafa kímnigáfu,"
segir hún.
í samræmi við þessi viðhorf hef-
ur fátt verið um karla á heimili
þeirra mæðganna hin síðari ár:
„Stúlkur þurfa ekki á feðrum að
halda. Af hverju ættu þær að hafa
karlmenn í kringum sig? Dætur
mínar hafa aðeins örsjaldan hitt feð-
ur sína. Ég hef reynt að gera þær
hæfar til að bjarga sér sjálfar, til að
þurfa ekkert á körlum aö halda. Það
hafa ekki fallið fyrir þessari hræði-
legu goðsögn um rómantíkina," seg-
ir Kate Atþinson.
Hún hefur þegar lokið við næstu
skáldsögu. Sú heitir Human
Croquet og fjallar um „tré og tíma“
að sögn höfundarins.
til að fá sem mest af gögnum á með-
an sýnishornin eru enn fersk.
•0RAÐ Á SUÐURSKAUTINl
ítalskt skip er á leið til Suðurskauts-
(andsins með 40 tonna borpali fyrir
vísindamenn sem rannsaka lofts-
lagsbreytingar
Boranir hefjast ioktóber, þegar vorar
á Suðurskautstandinu
Borað verður á fjt
mismunandi stöðum á
500 metra dýpi undir 1500
þykkum jarðiögunum undan
Roberts-höi'
, sem næst upp, verður sneiddur,
: honum myndir og honum lýst1
nm
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Terry McMliIan:
Waltlng to Exhale.
2. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
3. Rlchard North Patterson:
Eyes of a Child.
4. Nora Roberts:
Born in Shame.
5. Rlchard Paul Evans:
The Christmas Box.
6. James Patterson:
Klss the Girls.
7. Mary Higgins Clark:
The Lottery Winner.
8. Tom Clancy & Steve Pieczenik:
Mlrror Image.
9. Carol Shields:
The Stone Diaries.
10. V.C. Andrews:
Hiddel Jewel.
11. Jonathan Kellerman:
: Self-Defense.
12. Judith Pinsker:
Robin’s Diary.
13. Dean Koontz:
Dark Rlvers of the Heart.
14. Nancy Taylor:
California Angel.
15. Tami Hoag:
NightSins.
Rit almenns eölis:
1. Tim Allen:
Don’t Stand to Close
To a Naked Man.
2. Paul Relser:
Copplehood.
3. Richard Preston:
The Hot Zone.
4. H. Johnson & N. Rommelmann:
The Real Real World.
5. David Wild:
Frlends.
6. Doris Kearns Goodwin:
No Ordinary Time.
7. Brlan Lowry:
The Truth is out there.
8. Mary Plpher:
Reviving Ophelia.
9. Clarissa Plnkola Estés:
Women Who Run wlth the Wolves.
10. Thomas Moore:
Care of the Soul.
11. Delany, Delany & Hearth:
Having Our Say.
12. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
13. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
14. Tom Clancy:
Fighter Wing.
15. Butler, Gregory & Ray:
America’s Dumbest Criminals.
(Byggt á New York Tlmes
Book Revlew)
Hrotur raska
svefnrónni
Fullorðnir karlmenn, sem
| vakna oft á nóttunni til að pissa
óttast margir hverjir að þeir séu
I komnir með krabbamein í
í blöðruhálskirtilinn. Svo þarf þó
| alls ekki að vera, heldur hitt að
þeir hrjóti ótæpilega og að það
s séu hroturnar sem veki þá.
Þetta eru niðurstöður lækna
| við Sahlgrenska háskólasjúkra-
| húsið í Gautaborg. Christer Dahl-
| strand og aðrir þvagfærasérfræð-
ingar komust að því að allt að 30
| prósent karlmannanna í rann-
: sókn þeirra voru ekki með
I stækkaðan blöðruhálskirtil sem
| hrjáir ílesta karla þegar aldurinn
j færist yfír þá.
Allt að 78 prósent fullorðinna
| karla segjast vakna á nóttunni til
að pissa.
í rannsókn Svíanna reyndust
| þeir 23 karlar sem hrutu reglu-
í lega vakna allt að þrisvar sinn-
| um oftar en þeir sem ekki hrutu.
Og þeir pissuðu líka meira.
Ofursterkur vefur
Bandarískir vísindamenn hafa
komist að því að kónguló ein
, spinnur vef sem er jafn sterkur
og gerviefnið kevlar sem fram-
leitt er af DuPont-samsteypunni
j og er m.a. notað í segl á skútur
| og í skotheld vesti.
Sterkasti þráður kóngulóar-
innar er sá sem hún notar þegar
| hún lætur sig falla niður.
Með rannsóknum sínum eru
vísindamennirnir skrefinu nær
því að herma eftir kóngulónni og
búa til firnasterkt efni.