Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 %e!kerínn Góðir pastaréttir Pastaslaufur með baunum, skinku, sveppum og osti Það eru til ótrúlega margar gerð- ir af pastaréttum og menn geta í raun látið hugmyndaflugið ráða þegar slíkir réttir eru útbúnir. Pasta hefur verið einn af vinsæl- ustu réttum ungu kynslóðarinnar á undanfórnum árum og það hefur ekkert breyst þó austurlenskir rétt- ir séu sífellt að verða fyrirferðar- meiri í matargerð hér á landi. Pasta er til í rnörgum gerðum fyr- ir utan spagettíið og makkarónurn- ar sem algengast var fyrr á árum. Nú fæst ravioli og tortellini, sem er fyllt pasta, slaufur, skrúfur og band- spagettí, svo að eitthvað sé nefnt. Hér koma uppskriftir að tvenns konar góðum pastaréttum sem ættu að vera fyrir alla. Hægt er að kaupa pastað annaðhvort ferskt eða í pökkum. Ravioli með ostasósu og beikoni Ravioli með ostafyllingu (soðið eftir leiðbeiningum) Ostasósa fyrir tvo 1 dl rjómi 100 g óðalsostur hálfur kryddostur, t.d. pipar eða eftir smekk 50 g gráðostur 50 g beikon steinselja Bræðið allan ostinn í rjómanum á pönnu. Steikið beikonið stökkt og saxið það niður og setjið í sósuna. Setjið ravioli á diska og hellið sósu yfir og skreytið með steinselju. Haf- ið gjarnan aukasósu á borðinu. Farfarette (slaufur) með baunum, skinku, svepp- um og osti Ætlið 100 g af pastaslaufum fyrir hvern mann. Sjóðið slaufurnar eftir leiðbeiningum á pakkanum og setj- ið örlítinn rjóma eða olíu yfir þegar pastað hefur verið sigtað frá vatn- inu. Ostasósa 2 msk. ólífuolía 1 skalottlaukur 1-2 hvítlauksrif 100 g ferskir sveppir 2 dl rjómi 1 tsk. maizena 100 g djúpfrystar baunir 100 g skinka 100 g óðalsostur Svissið lauk og hvítlauk á pönnu, bætið niðurskornum sveppunum út í. Hellið rjóma yfir og látið malla smástund. Þykkið með maizena ef með þarf. Bætið baunum, skinku og rifnum osti yfir. Setjið pasta á diska og hellið sósunni yfir. Gott er að krydda yfir með timian. -ELA Ravioli með ostasósu og beikoni. Blandað fondue Hér kemur uppskrift aö blönduðu fondue sem ætl- uð er bæði fyrir böm og fullorðna. Uppskriftin er miðuð við fjóra. 400 g nautafilet 250 g svinamörbráð 300 g lambafilet 200 g kokkteilþylsur 250 g sveppir 3/4 1 olía til steikingar Skerið kjötið í gúllas- bita, sirka 2 sm, og setjiö í skálar. Pylsurnar þarf ekki að skera niður. Hitið olíuna upp í potti og síð- an er henni hellt yfir í fonduepottinn. Steikið kjötið og sveppina eftir smekk, kryddið eftir steikingu og borðið tart- arsósuna með. Tartarsósa 1 harðsoðin eggjarauða 1 hrá eggjarauða 1 tsk. sítrónusafi salt á hnífsoddi smávegis sólblómaolía 1 msk. kapers 1 sýrð agúrka (suftuð) 3 msk. steinselja 2 msk. fínt hakkaður púrrulaukur 1 dl sýrður rjómi 18% salt nýmalaður hvítur pip ar Stappið harðsoðnu eggjarauðuna með gaffli og hrærið síðan með þeirri hráu, sítrónusafa og kryddið með salti. Setj- ið þá sólblómaolíu í dropatali þannig að hún hrærist vel með egginu. Hakkið kapers og sýrða gúrku og blandið í sósuna ásamt steinselju og púrrulauk. Þá er sýrðum rjóma bætt í og kryddað með salti og pipar. -ELA matgæðingur vikunnar Kálfasneiðar „figaro i smnepsrjomasosu „Ég er mikill sælkeri og elda tals- vert sjálfur. Matargerð er eitt af mín- um aðaláhugamálum," segir Björg- vin Halldórsson, söngvari og mat- gæðingur vik- unnar. Björgvin er í nokkrum matarklúbbum, m.a. Ítalíufélag- inu með Birni G. Björnssyni, mat- gæðingi siðustu viku, Randver Þorlákssyni og nokkrum heið- ursfélögum. „Þetta er óform- legt félag, við höfum gaman af að tala um mat og elda mat. Mér finnst það afslöppun að elda góðan mat,“ segir Björgvin. Hann ætlar að bjóða lesendum upp á kálfakjöt. „Þetta er ljóst kjöt en maður hefur verið að færa sig meira yfir í það.“ Björgvin segist oftast fara eftir uppskriftum, sem hann hafl lært af öðrum eða lesið í bókum, þegar hann matbýr en einnig hefur hann gaman af að breyta þeim eftir eigin höfði. „Þessi réttur varð þannig til,“ segir hann. „Þetta er mjög góður og fljót- legur ítalskur aðalréttur fyrir fjóra. Nú er loksins hægt að fá úrvals kálfa- kjöt í betri verslunum hérlendis. Sós- an byggist upp á góðu sinnepi, hvít- víni og rjóma en athuga þarf að nota bara besta og úppáhaldssinnepið í réttinn til að gera hann bragðbetri og persónulegri." 4 msk. af sætu smjöri (smjör og 1 msk. sykur) 2 msk. jómfrúrolía 3 vorlaukar (grænir laukar) þvegn- ir og finskornir Matargerð er eitt af aðaláhugamálum Björgvins Halldórssonar. DV-mynd 1 1/2 pund af úrvals kálfasneiðum (8 sneiðar. Látið kaupmanninn til- reiða kjötið og berja það lítillega) salt og ferskur mulinn svartur pip- ar 1/3 bolli af þurru hvítvíni 1/3 bolli af úrvals frönsku sinnepi (forðist ódýru gerðina) 1/2 bolli af léttþeyttum rjóma 1 stór þroskaður tómatur, afhýdd- ur, fræin numin burt og finskorinn) „Bræðið smjörið og olíu saman á stórri pönnu. Bætið vorlauknum í og eldið á lágum hita í 5 mínútur án þess að brúna hann. Hækkið hitann töluvert og steikið kjötið og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Steik- ið kjötið í um það bil 1 mínútu á hvorri hlið. Varist að yfirsteikja það. Hafið ekki áhyggj- ur þó kjötið verði ekki brúnsteikt. Færið kjötið af pönnunni og hald- ið því heitu. Þá er víninu bætt á pönnuna og látið sjóða lítillega nið- ur þar til það þykknar örlítið. Hrærið sinnepinu og rjómanum í blönduna og sjóðið í tvær mínútur. Smakkið sósuna og kryddið eftir smekk. Leggið kálfasneið- arnar á fallega diska og hellið sós- unni yfir. Skreytið með niðursneidd- um tómatinum og borðið strax. Ég mæli með smjör- steiktu spergilkáli og ofnbakaðri kart- öflumús eða pönnusteiktu spínatpasta. Ekki skemmir að hafa gott þurrt og brak- andi hvítvín með. I eftirrétt mæli ég með heimalög- uðum ís „fragoli" með jarðarberjum og bláberjum." Björgvin ætlar að skora á Björgu Sigurðardóttur, eiginkonu Troels Bendtsen, að vera næsti matgæðing- ur. Hún hefur umsjón með Nýjum eftirlætisréttum Vöku Helgafells. „Björg og maður hennar eru heiðurs- félagar í Ítalíufélaginu. Hún er algjör snillingur í matargerð. Við Bjössi erum góðir áhugamenn en Björg er mjög klár.“ -ELA Fondue Þó að nú sé tími þorrablóta getur verið að einhverjir hafi gaman af að halda matarboð með öðruvísi mat. Fondue er vinsæll matur í litlum matarboðum enda skapast ákveðin stemning við matarborðið þegar gestir „mat- reiða“ sjálfir. Orðið fondue kem- ur af franska orðinu „fondre“sem þýðir að bræða og það var reyndar bráðinn ostur sem var hið upprunalega fondue. Svissneskir fjallabændur gerðu : sér glaðan dag með því að setja leifar af ostum í hvítvín, hituðu upp, dýfðu brauði í og fengu þannig hina bestu sælkeramál- tíð. Þessi siður þeirra breiddist hratt út og í dag eru til margar gerðir af fondue. Margar gerðir Ostafondue er ákaflega vinsæll matur en olíufondue hefur þó verið hvað vinsælast hér á landi. Þá er til rauðvínsfondue, súkkulaðifondue og nú síðast er það asískt fondue sem komið hef- ur í kjölfar vinsælda austur- lenskrar matseldar. í austur- lenskt fondue er yfirleitt notað : kjúklingasoð. Ýmsir í möguleikar í ostafbndue er notað vín, ost- ur og brauð. Ostinn skal kaupa I sérhæfðum ostabúðum eftir leið- beiningum afgreiðslufólks. Marga góða osta er hægt að nota í fondue og jafhvel blanda þeim saman. Þá er notað hvítvín, örlít- ið af sítrónusafa og kryddi. Yfir- leitt er hvítt brauð skorið í ten- inga og dýft í ostafondue. í súkk- ulaðifondue er súkkulaði uppi- staðan og ýmsir ávextir notaðir til dýfingar. Súkkulaðifondue er sett fram sem eftirréttur og það getur einnig átt við ostafondue. í olíufondue er hægt að nota nauta-, lamba-, svína- og fugla- ' kjöt og einnig margar fiskteg- undir og grænmeti. Það sama á við um austurlenskt fondue en í því er maturinn í raun soðinn. Þegar keyptur er matur til að nota í fondue skal fyrst og fremst hugsað um gæðin. ít I 1 I Ýmislegt meðlæti er hægt að nota með fondue, svo sem bakað- ar kartöflur og góðar kaldar sós- ur. Blómkál, gulrætur, sveppi og : fleira grænmeti er gott að steikja í fondueinu með kjötinu og nota sem meðlæti. Sósurnar eru þó mjög mikilvægar og best er að hafa nokkrar gerðir af þeim, t.d. karrísósu, agúrku- eða hvítlauks- sósu, avocadosósu eða hvað sem mönnum dettur í hug. Sýrður . rjómi er oftast uppistaðan og í hann er hægt að bæta kryddi, lauk, sinnepi, tómat eða hverju : því sem hugmyndaflugið býður upp á. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.