Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Page 21
LAUGARDAGUR 3. FEBRUAR 1996
iskák
21
Einvígið um íslandsmeistaratitilinn í atskák:
Eins og svo oft áður réðust úrslit
á íslandsmótinu í atskák ekki fyrr
en báðir keppendur voru u.þ.b. að
falla á tíma. Að þessu sinni áttust
við stórmeistararnir Helgi Ólafsson
og Hannes Hlífar Stefánsson. Hann-
es Hlífar átti titil að verja en hann
smó honum úr greipum í darraðar-
dansinum.
í undanrásum vann Helgi Mar-
geir Pétursson og Hannes Hlífar
vann Þröst Þórhallsson, eftir bráða-
bana. Úrslitaeinvígið er orðinn fast-
ur liður í Sjónvarpinu og aldrei
hafa skákmeistararnir valdið von-
brigðum. Fyrri skák Helga og Hann-
esar Hlífars var raunar tíðindalaus
en þeir bættu það margfalt upp með
æsilegri úrslitaskák. Sá hængur var
einn á að svo hratt léku þeir að tafl-
mennirnir vildu ekki festast sem
skyldi á skákborðinu - þ.e. tölvu-
borðinu gekk illa að nema hvar
mennirnir áttu að vera. Þeim tókst
þó í sameiningu og með aðstoð
Hemma Gunn að rekja síðustu leik-
ina áður en útsendingunni lauk.
Atskákmótin í Sjónvarpinu hafa
sýnt hve skáklistin er í raun og
veru gott sjónvarpsefni og tækni-
lega séð eru þessar útsendingar
orðnar mjög skemmtilegar undir
stjóm Egils Eðvarðssonar.
Víkjum nánar að skák Helga og
Hannesar Hlífars. Það eru engin ný
sannindi að til þess að vinna skák
gefur oft góða raun að leika ekki
besta leikinn. Hróksleikur Helga í
14. leik bauð hættunni heim því að
með honum var sýnt að kóngurinn
yrði á hættusvæði. Þessi vafasami
leikur gerði skákina hins vegar afar
vandteflda á báða bóga og þótt
Hannes hefði staðið með pálmann í
höndunum allt undir það síðasta
var það skákklukkan sem á endan-
um tók sinn toll - þökk sé hróks-
leiknum „slæma“?
Hvítt: Hannes Hlifar Stefáns-
son
Svart: Helgi Ólafsson
Caro-Kann vöm.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4.
Rxe4 Rd7 5. Rg5 Rgf6 6. Bd3 e6 7.
Rlf3 Bd6 8. De2 h6 9. Re4 Rxe4
10. Dxe4 Rf6 11. De2 b6 12. Bd2
Bb7 13. 0-0-0 Dc7 14. Hhel Hd8?
15. Re5 c5 16. Bb5+ Ke7 17. Bf4
Be4 18. Dc4 Bd5 19. Dc3 c4 20.
Bg3 Hc8 21. Ba6 Re4 22. Hxe4
Rxe4 23. d5 exd5 24. Bxc8 Hxc8
25. f3 f6 26. fxe4 Bxe5 27. Bxe5
Dxe5 28. Da3+ Dd6 29. Dxa7+ Hc7
30. Db8 d4 31. Dg8 g5 32. Dh7+
Ke6 33. Dxh6 Df4+ 34. Kbl Dxe4
35. Dh3+ g4 36. Dg3 Kd7 37. Df2
d3 38. cxd3 cxd3 39. Dd2 Ke6? 40.
Dxd3? f5 41. g3? Hb7 42. Dxe4+?
fxe4 43. Hd2 Ke5 44. Kc2 e3 45.
Hd8 Hxh2+ 46. Kdl Ke4 47. b4
Hxa2 48. Hf8 Kd3 49. Hd8+ Ke4
50. Hf8 Hg2 51. Hf4+ Kd3
- Og Hannes lagði niður vopn.
Helgi Áss í
miðjum hópi
Vassily Ivantsjúk slapp taplaus
frá stórmótinu í Wijk aan Zee og
hreppti efsta sætið, með vinningi
meira en Viswanathan Anand, sem
varð einn í 2. sæti. Anand vann
fimm skákir, eins og Ivantsjúk, en
töp fyrir Búlgaranum Topalov og
Ivan Sokolov, settu strik í reikning-
inn.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Lokastaðan varð þessi:
1. Ivantsjúk 9 v.
2. Anand 8 v.
3. Topalov 7,5 v.
4. -7. Adams, Sokolov, Tivjakov og
Dreev 7 v.
8.-9. Piket og Sirov 6,5 v.
10. Leko 6 v.
11. Gelfand 5,5 v.
12. -13. Húbner og Van Wely 5 v.
14. Timman 4 v.
í B-flokki tefldi Helgi Áss Grétars-
son og hafnaði hann í miðjum hópi
keppenda með 5,5 v. af 11 möguleg-
um. Sigurvegari var úkraínski stór-
meistarinn Alexander Onischuk,
sem hlaut 8 v.
Helgi Áss tefldi frísklega, vann
þrjár skákir - gegn portúgalska
stórmeistaranum Antunes og Hol-
lendingunum Kuijf og Van de
Mortel - tapaði fyrir Onischuk,
Stripunsky (báðir frá Úkraínu) og
Hollendingnum Delemarre en gerði
fimm jafntefli, við Bologan, Nijboer,
Van der Wiel, Garcia og Miles. Á
þessari upptalningu sést að flokkur-
inn var skipaður sterkum skák-
meisturum og árangur Helga Áss er
því vel viðunandi.
Hér er skemmtileg skák úr A-
flokki þar sem efsti og neðsti maður
eigast við. í miðtaflinu verða
skemmtilegar flækjur uppi á teng-
ingnum. Ivantsjúk leggur kröftug-
lega til atlögu í því skyni að opna
hornalínu biskups síns að hvíta
kónginum. Timman tekst að ein-
falda stöðuna og sleppa út í endatafl
en illu heilli á hann þar í höggi við
mannýg peð.
Undirlagskorl
töflukorki
.
gúmmí
Undirlagskorkur fæst í
meters breiðum rúllum,
Þykkt: 2mm____________
Það besta jndir öll fljótandi
Gúmmíkorkur fæst I
meters breiðum rúllum
Töflukorkurfæstí meters
breiðum rúllum. Þykktir:
5mm & 8mm.
Og minnisblöðin á siniJstað.
Komið og skoðið í sýningarsal okkar
ÁRMÚU 29-108 REYKJAVIK - S: 553-8640 & 568-6100
WICANPi f
Hvítt: Jan Timman
Svart: Vassily Ivantsjúk
Meran-vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3
e6 5. Rf3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4
b5 8. Bd3 Bb7 9. 0-0 a6 10. e4 c5
11. d5 Dc7 12. De2 Bd6 13. Bg5 0-0
14. Bxf6 gxf6 15 Hadl Re5 16.
Rxe5 Bxe5 17. f4 Bd4+ 18. Khl
Kh8 19. Bbl Hg8 20. Dc2
20. - f5! 21. Rxb5 axb5 22. Hxd4
fxe4 23. Dc3 Hg7 24. Bxe4 exd5
25. Bf3 Db6 26. Hd2 d4 27. Dd3
Hd8 28. Bxb7 Dxb7 29. Hel Hg6
30. h3 c4 31. De4 Dxe4 32. Hxe4
d3 33. Kgl He6 34. Hxe6 fxe6 35.
Kf2 e5 36. fxe5 Hd5 37. Kel b4 38.
H£2 c3 39. bxc3 bxc3 40. Hf8+ Kg7
41. Hc8 d2+ 42. Kdl Hd3
- Og Timman gafst upp. Svartur
hótar He3-el+ o.s.frv.
Villi karlinn veit ekki að hann þarf aðeins að nýta sér
Hann ýtir bara á © fær staðfestingu,
leggur á og notar timann til annars.
Þegar hitt simtalið er búið, hringir
siminn hjá Villa og brátt er hann
kominn i samband. Simtalspöntun
kostar aðeins 9,97 krónur.
PÓSTUR OG SÍMI