Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Page 48
r a f k ó p
samvirki
Skemmuvegi 30 - 200 Kóp.
Simi 5544566
Ókeypis heimsending
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Allhvoss eða hvoss norðlæg att
Á sunnudag verður sunnankaldi, slydda eða snjóél sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu norðan- og noroaustanlands.
Hiti verður 0 til 3 stig.
Á mánudaginn verður allhvöss eða hvöss norðlæg átt, úrkomulítið vestanlands en slydda eða snjókoma annars staðar, einkum suðaustan- og aust-
anlands, vægt frost.
Veðrið í dag er á bls. 53
Sunnudagur
*
*
* *
* *
* * *
* * * *
* Mánudagur
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
92 oktana blýlaust bensín:
Af markað-
inum
Innan raða olíufélaganna þriggja
hefur sú umræða fengið aukinn
meðbyr að hætta sölu á 92 oktana
bensíni. Bensinið þykir dýrt í inn-
kaupum en það er sérblandað í Nor-
egi fyrir íslensku félögin. Víðast í
Evrópu er bensíntegundin farin út
af markaðinum og 95 oktana blý-
laust bensín orðið algengasta teg-
undin. Þá eru bílaframleiðendur
farnir að mæla helst með 95 oktana
bensíni.
Eftir að 95 oktana bensín kom á
markað á íslandi í ársbyrjun 1991
hefur hlutur þess í sölu olíufélag-
anna stóraukist um leið og sala á 92
oktana bensíni hefur snarminnkað.
Á síðasta ári var hlutur 92 oktana
bensíns um 45-47% af bensínsölu fé-
laganna og hlutfall 95 oktana bens-
íns um 40%. Verðmunur á þessum
algengustu tegundum er lítill, ekki
síst eftir breytingarnar sl. fimmtu-
dag. Þá hækkaði 92 oktana bensín í
verði en 95 oktana lækkaði. Verð-
munurinn er nú aðeins 1 króna á
lítra.
Forráðamenn olíufélaganna, sem
DV ræddi við í gær, staðfestu allir
að rætt hefði verið um að hætta að
selja umrædda bensíntegund en
ákvarðanir um slíkt væru ekki
komnar upp á borðið. Ef tegundin
fer út af markaðnum er ekki ólík-
legt að í kjölfarið verði farið að selja
blýlaust 98 oktana bensín, líkt og
víðast er gert í dag í Evrópu. -bjb
Geðdeild ekki
lokað
Lyijafyrirtækið Pharmaco hefúr gef-
ið Barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans 5 milljónir króna til að koma
í veg fyrir lokun hennar í sumar.
Gjöfin gerir það og að verkum að
hægt er að auka þjónustu deildar-
innar og lýsti Valgerður Baldurs-
dóttir yfirlæknir í gær sérstakri
ánægju með þá lausn sem nú er
fundin á vandanum. -GK
rufverktakar
Ábúendur að Hvoli I ætla að láta bera sig út á mánudagsmorgun:
Tugir manna á bænum
þegar lögreglan kemur
Grunaöur um aðild að bankaráninu:
Gæsluvarðhald lengt um viku
- mikill hiti í sveitinni og bændur víða af landinu sýna ábúendum stuðning
„Við ætlum að láta útburðinn
ganga yfir okkur. Ef veður leyfir
koma embættismenn, sýslumaður
og löggæslumenn, hingað klukkan
ellefu á mánudagsmorgun og
munu bera okkur út með valdi. Ég
er blóðillur og sætti mig ekki við
þetta. Það hafa margir hringt í
okkur hjónin til að sýna okkur
stuðning. Ég býst við að margir
tugir manna komi hingað á mánu-
dagsmorgun," sagði Björgvin Ár-
mannsson, ábúandi á refabúinu
Hvoli I í Ölfusi, í samtali við
blaðamann DV á heimili sínu í
gær.
Sýslumannsembættið á Selfossi
hefur tilkynnt Björgvini að hann
og fjölskyldan verði borin út á
mánudag. Búast má við að þá
verði heitt í kolunum við bæinn
því hjónin búast við að tugir
manna úr sveitinni komi þá „í
heimsókn" til að sýna þeim stuðn-
ing. „Gestimir verða þá væntan-
lega bömir út líka,“ sagði Hrönn
Bergþórsdóttir, eiginkona Björg-
vins.
Hjónin seldu jörðina á sínum
tíma þegar hallaði undan fæti í
refabúskap en vildu fá að sitja
áfram á henni, annaðhvort með
því að leigja hana eða kaupa þegar
rekstur loðdýrabúsins batnaði
með hækkandi afurðaverði. Þessu
hefur ráðuneytið hafnað og var
höfðað útburðarmál sem ríkið
vann síðan með dómi Hæstaréttar
í nóvember.
„Það er mikill hiti hér í sveit-
inni,“ sagði Hrönn „Fjöldi bænda
hefur hringt í okkur, m.a. frá öðr-
um landshlutum. Þeir kalla þetta
„ljótasta dæmið úr landbúnaðar-
ráðuneytinu“,“ sagði Hrönn.
„Ég vil færa Halldóri Blöndal,
fyrrum landbúnaðarráðherra,
hamingjuóskir með að vinna þetta
mál,“ sagði Björgvin. „Það væri þó
gott ef hann hætti að fela sig á bak
við tjöldin - það sem hefur komið
frá hans mönnum er hálfsannleik-
ur eða lygi. Það gæti verið að Hall-
dór skammaðist sín. Guðmundur
Bjarnason virðist vera sporgöngu-
maður Halldórs - hann hefur ver-
ið atkvæðalítill í þessu máli.“
Björgvin sagði að sér fyndist að
héraðsdómarinn í máli hans heföi
„búið sér til forsendur". „Þetta lýs-
ir þýlyndi dómarans. Það er hart
að slíkir menn skuli geta kippt
lífsafkomunni frá fólki,“ sagði
Björgvin.
Hrönn sagði jafnframt að þó
stuðningur bænda væri mikill og
augljós hefði hún viljað sjá meiri
stuðning frá bændasamtökunum
og stéttarsambandi bænda.
„Til hvers eru þau ef þau styðja
ekki bændur í landinu,“ sagði
Hrönn. -Ótt
Embættismenn munu bera út hjónin og börnin á Hvoli I á mánudagsmorgun
ef að líkum iætur. Tugir manna, sveitungar þeirra og stuðningsfólk, eru hins
vegar væntanlegir á bæinn um það leyti sem von er á löggæslufólki. Á
myndinni eru hjónin Björgvin Ármannsson og Hrönn Bergþórsdóttir ásamt
Sturlu Þorgeirssyni, 14 ára uppeldissyni, og barnabarninu Heru Líf.
DV-mynd GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í
gær á kröfu Rannsóknarlögreglunn-
ar um að framlengja um eina viku
gæsluvarðhald yfir manni sem
grunaður er um aðild að bankarán-
inu í Búnaðarbankanum á Vestur-
götu þann 18. desember.
Um leið og gæsluvarðhaldið var
lengt var umræddur maður ákærð-
ur og dæmdur fyrir eldri trygginga-
svik sem sönnuð voru á hann.
Varðhaldsvist mannsins átti að
renna út í gær en gildir nú til 9.
febrúar. Þremur mönnum sem
grunaðir voru um sömu sakir var
sleppt í vikunni vegna ónógra sann-
ana. Allir eru mennirnir og grunað-
ir um að hafa staðið fyrir stórfelld-
um tryggingasvikum undanfarin ár.
-GK
Vertu viðbúin(nj vinningi
Föstudagur
2.2/96
(25) (27)(28)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
a550 5555
'Hut,
Sími 533 2000
ÞAÐ VERÐUR
ÞÁ HAMAGANGUR
Á HVOLII