Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 Fréttir_________________________________________________________x>v Fiskistofa kærir útgerðarmenn þriggja úthafsveiðitogara Tökum til varnar og förum með málið fyrir dóm - segir Óttar Yngvason, útgerðarmaður togaranna Eric og Can „Viö bregöumst við kærunum með þeim hætti að taka til varnar fyrir dómi. Ég tel raunar ágætt og nauðsynlegt að fá úr þessu deilu- máli skorið fyrir dómi,“ sagði Óttar Yngvason, útgerðarmaður úthafs- togaranna Eric og Can. Fiskistofa hefur kært hann og Snorra Snorra- son útgerðarmann fyrir að neita því að eftirlitsmenn Fiskistofu kæmu um borð í togara þeirra á Flæmska hattinum. Vegna þess máls hafa komið fram tvö lögfræðiálit um hvort Fiskistofa hafi lagalegan rétt til að senda eftir- litsmenn um borð og/eöa hvort út- gerðarmennirnirt geti neitað að taka við þeim. í lögfræðiáliti Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. og Hróbjarts Jónatanssonar hrl., sem þeir unnu fyrir Félag úthafsútgerða, komast þeir að þeirri niðurstöðu að laga- stoð skorti til þess að Fiskistofa geti skikkað útgerðirnar til að taka við og bera kostnað af eftirlitsmönnum. Hins vegar er svo til álit frá ríkis- lögmanni, Jóni G. Tómassyni hrl., og Einari Karli Hallvarðssyni hdl. um þetta sama. Þeir komast að gagnstæðri niðurstöðu. Þeir telja lagastoð fyrir því að senda eftirlits- menn um borð og það valdi sektum og jafhvel fangelsi að neita að taka við þeim. „Mér þykir lögfræðiálit ríkislög- manns afskaplega þunnt í roðinu. Það eina sem það segir í raun og veru og skilst í almennu máli er að fundarsamþykktir NAFO hafi gildi laga á íslandi. Slíkt var nú ekki talið til að mynda í samningum um Evrópska efnahagssvæðið. Enda hefur Alþingi verið á kafi í því síð- astliðin tvö ár að taka fyrir allar þeirra samþykktir til þess að þær fái gildi hér á landi,“ sagði Óttar Yngvason, útgerðarmaður og lög- maður. -S.dór Stuttar fréttir Spilafiklar í meðferð Bandarískur ráðgjafi fyrir spilafikla og fyrrverandi fikill verður með fjögurra daga hóp- meðferð fyrir spilafikla á göngu- deild SÁÁ á næstunni. Aukinn gjaldeyrisforði Gjaldeyrisforði Seðlabankans var 22,3 milljarðar í lok janúar og hafði aukist um 1,5 milljarða frá fyrra mánuði. Erlendar skammtímaskuldir jukust um milljarð þannig að gjaldeyris- staðan styrktist um 500 milljónir. Bærinn selur ÚA-hlut Meirihluti bæjarstjórnar Ak- ureyrar hyggst selja öll hlutabréf bæjarins í Útgerðarfélagi Akur- eyringa á þessu ári. Hlutur bæj- arins er metinn á 1,4 milljarða króna. Arkitektar andmæla Arkitektafélag Islands er á móti því að leggja embætti Húsa- meistara ríkisins niður en vill breyta því í grundvallaratriðum, samkvæmt frétt RÚV. Kvóti uppurinn Kvóti vegna svonefndrar línu- tvöfoldunar verður líklega upp- urinn hálfum mánuði áður en veiðitímanum lýkur. Samkvæmt RÚV hefur flotinn aldrei áöur náð að klára kvótann. Vatn á tímamótum Útflutningur á vatni frá ís- landi er á tímamótum, sam- kvæmt úttekt Viðskiptablaðsins. íslensk fyrirtæki eru að auka markaðshlutdeild sína í Banda- ríkjunum en tap er ennþá af rekstrinum. Útflutningstekjur hrundu niður í 182 milljónir í fyrra. Orverugróður Borið hefur á örverugróðri í húsnæði Tollvörugeymslunnar, starfsmönnum til mikillar mæðu, samkvæmt frétt Stöðvar 2. -bjb Sjúkrabílar virðast vera í tísku sem „fæðingardeildir" hjá fjölskyldunni úr Garðabænum. Hér eru amman, Kristín Magnúsdóttir, dæturnar Linda Bjþrk og Kristín Ósk Hlynsdætur og tvær eldri dætur Lindu Bjarkar, Lísa Rún og Silja Brá Guðlaugsdætur. Hlynur afi var heima að passa hin barnabörnin. DV-mynd GS Amman tók á móti 14. barnabarninu í bíl: Eignaðist sjálf barn í bíl „Læknirinn kom í veg fyrir sjúkrabfiinn þegar kollurinn var kominn. Þá voru bara tvær hviður eftir og sá stutti var kominn í heim- inn,“ segir Kristín Magnúsdóttir, amma úr Garðabænum, en hún tók í fyrradag á móti fjórtánda barna- bami sínu í sjúkrabíl á leið á fæð- ingadeildina. Linda Björg Hlynsdóttir heitir móðir stráksins sem kom í heiminn við þessar óvenjulegu aðstæður. Honum lá mikið á og þvi brá amm- an sér í ljósmóðurhlutverkið. Krist- in klippti sjálf á nafnastrenginn en það fékk maður hennar, Hlynur Ingimarsson, ekki að gera fyrir nær þrjátíu árum þegar hún eignaðist sjálf barn í sjúkrabíl. Hlynur tók þá á móti Kristínu Ósk Hlynsdóttur en Kristín segir að hugsunarhátturinn hafi verið annar á þeim tímum. Karlar áttu ekki að koma nærri barnsfæðingum. Reyndar fór svo að Guðlaugur Heimir Pálsson, faðir drengsins sem nú fæddist, gat ekki verið viðstadd- ur því hann þurfti að bregða sér til Kamtsjatka og kemur ekki heim aft- ur fyrr en á fóstudag. Hann er þó búinn að frétta af komu fjórða bams þeirra hjóna en fyrir eiga þau þrjár dætur. -GK Forstjóri Ríkisspítala: Ekki hægt að opna Fæð- ingarheimilið nema fé fáist Vigdís Magnúsdóttir, forstjóri Ríkisspítalanna, segir að ákveðið hafi verið að loka Fæðingarheimili Reykjavíkur út þetta ár í sparnaðar- skyni og aö Fæðingarheimilið verði ekki opnað aftur undir nokkrum kringumstæðum nema til komi aukaSárveiting. Hún hefur þó áhuga á því að reka sjúkrahótel í húsinu fyrir konur utan af landi með börn á vökudeild eða flytja svo- kallaðan MFS-hóp í Fæðingarheim- ilið í framtíðinni. „Þetta hefur verið í umræðunni og það myndi einnig breyta stöð- unni ef ljósmæður tækju við heimil- inu en við myndum samt ekki geta opnað það í neinni mynd aftur fyrir áramót nema við fengjum fjárveit- ingu. Ef við flyttum MFS-hópinn þangað væri það kannski möguleiki en þá yrðum við að skoða það dæmi,“ segir Vigdís og telur sig þurfa sjö stöður og ótilgreinda upp- hæð til að opna og reka Fæðingar- heimilið. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra segist taka það til vinsam- legrar athugunar ef beiðni berst frá ljósmæðrum um rekstur Fæðingar- heimilisins. Enn sem komið er hef- ur engin beiðni borist en formaður stjómarnefndar Ríkisspítala hefur lýst yfir að komi til þess skili Ríkis- spítalar Fæðingfarheimilinu aftur tU borgarinnar. MFS-hópur er ný starfsemi á Landspítalanum, að mörgu leyti í anda Fæðingarheimilisins, þar sem ljósmóðir fylgist með þungaðri konu í mæðraeftirliti og svo fæð- ingu og sængurlegu í heimUislegu húsnæði. -GHS Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringia í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já Jj Nei 2] ,r ö d d FOLKSIN 904-1600 Á Davíð Oddsson að gefa kost á sér í forsetaframboð? ^ ASI hefur keypt Ásmundarsal undir Listasafn ASÍ Borgarráð hefur samþykkt að selja Listasafni ASÍ húseignina að Freyju- götu 41 í Reykjavík, Ásmundarsal, og verður söluverö 19,2 milljónir króna eða það sama og þegar borgin keypti húsið af Arkitektafélagi íslands i haust. Gengið verður frá kaupsamn- ingi á næstunni með fyrirvara um samþykki miðstjórnar ASÍ. Stefnt er að því að húsnæðið verði afhent í lok febrúar og listasafnið flytji inn eftir nokkra mánuöi. „Það þarf að ganga frá þaki og svölum, huga að gólfefnum og svo höfum við hugsað okkur að gera húsið aðgengilegt fyrir börn, með góðri hreinlætisaðstöðu, og taka á móti þeim á heimilislegan og þægi- legan hátt þannig að þau geti upplif- að myndlist í notalegu umhverfí. Við erum ekki að tala um breyting- ar á innviðum hússins," segir Ólaf- ur Jónsson, forstöðumaöur Lista- safns ASÍ, en gert er ráð fyrir að endurbæturnar nemi 3-4 milljónum króna. Listasafn ASl mun reka sýningar- sal í Ásmundarsal og mun Alþýðu- samband Islands nýta núverandi húsnæði Listasafnsins undir Tóm- stundaskólann og fundahöld, auk þess sem Listasafnið mun halda áfram standa þar fyrir sýningum öðru hvoru. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.