Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
7
DV Sandkorn
Stærðfræðiþraut
Aftur sækjum
viö sögu sem
Eiríkur Her-
mannsson
segir i ritinu
Ný mennta-
mái. Hann
sagðist hafa
verið aö
kenna, stærð-
fræði i 12 ára
bekk í Lauga-
landsskóla í
Holtum. Við-
fangsefnið var
Ðatarmál og ummáL Ekki sóttist öll-
um nemendum það erindi greiðlega.
Loks kom að hinni óhjákvæmilegu
spurningu: „Eiríkur, af hveiju þurf-
um við að læra þetta?“ Ég sneri
vörn í sókn og spurði á móti: Hvað
ætlar þú að verða þegar þú ert orð-
inn stór?“ Svarið var hiklaust:
„Bóndi, auðvitað." Og þá sýndi ég
snilldartilþrif í kennslufræði og
stillti upp raunhæfu dæmi: „Setjum
svo að þú þurfir að girða nýræktina
þína, hvemig veistu hvað þú þarft
mikið girðingarefhi?" Ekki stóð á
svarinu: „Ég fer bara í kaupfélagið
á Rauðalæk, tek bara út nóg girð
ingarefhi hjá Jónasi og skila svo af-
gangnum!"
Tveggja ára lakk
í nýjum vest-
firskum þjóð-
sögum í Vest-
firska frétta-.
blaðinu segir
frá því aö
Benedikt
Bjamason,
kaupmaður í
Bolungarvík,
sé vandaður
maður og ná-
kvæmur sem
fari vel með
alla hluti og
vilji hafa þá í fullkomnu lagi. Fyrir
nokkrum áratugum átti hann Opel
bifreið. Eitt sinn þegar hann var að
bakka út úr bílskúmum nuddaðist
annað frambrettið við dyrakarminn
og rispaðist smávegis. Benedikt gat
ekki hugsað sér að hafa bílinn
rispaðan og fór niður í vélsmiðju til
Tana Sveina, sem var boddíviðgerð
armaður, og bað hann gera við bfl-
inn. Þegar Benedikt kom að sækja
bílinn sá hann að blæmunur var á
brettinu og bílnum sjálfúm. Hann
gerði athugasemd við þetta en Tani
Sveina gaf þá skýringu að bfllinn
væri orðinn tveggja ára gamall og
lakkið upplitað. Þetta sé því eðli-
legt. Benedikt undi þessu illa og
sagðist ætla að hafa samband við
umboðið. Stuttu síðar kemur hann
aftur tfl Tana og segist verða að
una þessu. Umboðið telji sig ekki
geta útvegað honum tveggja ára
gamalt upplitað lakk.
Hljóðnað orgel
Enn yrkja ha-
gyröingar um
deilumar í
Langholts-
kirkju, enda
ekkert lát á
þeim. Nú
styttist í að
biskup ís-
lands taki þar
í taumana en
hann gaf
defluaðilum
frest tfl 15.
febrúar að
skfla greinargerð um stöðu málsins.
En á meðan yrkja hagyrðingar um
málið. Þorvaldur Guðmundsson,
skipstjóri á Akranesi, orti þessa
vísu:
S Langholtskirkju er leiðindatuð
og lasin kenning.
Hljóðnað orgel, horfinn guð
og heilög þrenning.
Hljóður kór
Og jafnvel
prestar lands-
ins yrkja um
stöðuna í
Langholts-
kirkju og þá
erfiðleika sem
yfirmaöur
þeirra, herra
Ólafur Skúla-
son biskup,
hefur haft af
málinu. Séra
Hjálmar Jóns-
son alþingis-
maður orti þessa vísu:
Þagnar Langholtskirkjukór
kvörtun Jón lét bóka.
Biskup þreyttur þangað fór
þurfti að greiða (F)flóka
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Nýja lögreglufrumvarpið:
Efum stórlega
að þetta
leiði til betri
löggæslu
- segir rannsóknarlögreglumaður
„Við erum að vinna í þessari um-
sögn. Það er alveg ljóst að viö mtm-
um finna að ýmsum þáttum. Við
erum ekki á móti breytingum sem
leiða til styrkari löggæslu en viö ef-
um stórlega að það leiði til betri ár-
angurs að leggja RLR niður því að
sérfræðiþekkingin mun þá dreifast
á hin ýmsu embætti. Við viljum sjá
skipulag sem fullnægir því gamla.
Við sjáum ekki að þetta verði til
lausnar,“ segir Bjamþór Aðalsteins-
son hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, RLR.
Eins og fram hefur komið í DV
hefur dómsmálaráðuneytið sent lög-
regluyfirvöldum um allt land og
samtökum lögreglumanna drög að
frumvarpi um ný lögreglulög. Sam-
kvæmt þeim verður RLR lögð niður
og embætti ríkislögreglustjóra
stofnað auk þess sem landinu verð-
ur skipt í tíu rannsóknarumdæmi
með tíu lögreglustjórum.
„Við viljum benda á að eðlilegra
væri að byija á því að skipuleggja
yfirstjóm löggæslumála í landinu.
Þar á ég við sýslumannsembættin.
Fyrst ekki tekst að fækka þeim eða
reka þau á hagkvæmari hátt þá
finnst mér skrýtið ef það á að
tvístra lögreglunni,“ segir hann og
telur ljóst að ekki sé gert ráð fyrir
að neinir fjármunir komi aukalega
til lögreglumála þrátt fyrir að stofn-
un nýs embættis kosti peninga.
„Ég er nýbúinn að fá þetta en ég
held að þetta hljóti að vera til bóta,“
segir Jónas Guðmundsson, sýslu-
maður í Bolungarvík.
Stefnt er að því að leggja frum-
varp til nýrra lögreglulaga fram á
vorþingi og lögin taki gildi 1. júlí
1997. -GHS
Verið er að hækka upp og laga veginn í Bláfjöll. Kröpp beygja í brekku upp
af Sandskeiði hefur verið lagfærð og einnig er verið að hækka veginn. Um
er að ræða 5,5 km kafla. Háfeil hf. er verktakinn sem sér um verkið og verð-
ur samtals 60 mifljónum króna veitt í framkvæmdina. Áætlað var að verktak-
inn skilaði af sér fyrir september en talið er Ijóst að vegna hagstæðs tíðar-
fars muni framkvæmdunum öruggléga Ijúka fyrr. DV-mynd BG
Framkvæmdirnar á Landakoti ekki boðnar út:
Of ódýrt
til útboðs
„Það er visst traust á milli Borg-
arspítalans og Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar og verkið kom
aldrei til útboðs. Þeir sem vinna í
viðhaldsdeild spítalanna sjá um
endurbætumar á Landakoti," segir
Gísli Hermannsson, forstöðumaður
rekstrar- og viðhaldsdeildar Sjúkra-
húss Reykjavíkur. DV hefur fregnir
af að endurbætur á Landakoti upp á
rúmar þrjár milljónir hafi ekki ver-
ið boðnar út hjá Innkaupastofnun
Reykjavikurborgar eins og reglur
segja fyrir um.
„Samkvæmt reglunum á að bjóða
út verk innan borgarinnar. Það var
ekki gert í þessu tilfelli og kom aldr-
ei inn á borð til okkar. Það voru
engin lög brotin en samkvæmt regl-
um okkar hefði verkið átt að koma
til Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar og þar hefði verið fjallað um
og ákveðið hvort það yrði boðið út,“
segir Alfreð Þorsteinsson, formaður
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar.
„í þessu tilfelli mat ég stöðuna
þannig að það yrði dýrara að bjóða
út svona lítið verk. Ef ég ætti að
fara með öll svona verk í gegnum
Innkaupastofnun Reykjavíkurborg-
ar þyrfti ég að borga fyrir útboðs-
gögn, 3-5% ofan á allt saman til Inn-
kaupastofnunar og útboðsgögnin
væru takmörkuð. Okkur finnst
betra að okkar maður vinni starfið.
Við höfúm reglumar á hreinu en
reynum fyrst og fremst að hugsa um
hagsmuni sjúkrahússins. Ég á von á
þvi að þetta verði mjög ódýrt verk,“
segir Gísli.
Samkvæmt heimildum DV hefur
viðhaldsdeildin ekki fengið neinar
athugasemdir um málið frá Inn-
kaupastofnun Reykjavíkurborgar.
-em
síðustu dagar!
þeir hagsýnu kaupa
fermingargjöfina núna
af hennil