Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Vlmuefnameðferð unglinga skreppur saman á tíma E-taflna og amfetamlns:
Plássum fyrir unglinga
fækkar um helming í sumar
- allir fara á nýju meðferðarstöðina sem verður opnuð að Fossamýri í haust
Meðferðarplássum fyrir unglinga
í áfengis- og vimuefnavanda fækkar
um allt að helming, eða úr 18 pláss-
um í átta til tólf, þegar unglinga-
meðferð Meðferðarstöðvar ríkisins
við Sólheima og Efstasund verður
hætt í sumar. Stefnt er að því að
opna nýja meðferðarstöð með tíu til
tólf plássum á Stuðlum að Fossa-
mýri um miðjan ágúst og taka
fyrstu unglingana í meðferö þangað
í byrjun september. Þá verða allir
unglingar, sama við hvaða vanda
þeir eiga að stríða, teknir til grein-
ingar að Fossamýri en verða svo
sendir annað í frekari meðferð.
„Þessi hreina aðgreining á ung-
lingum innan 16 ára í vímuefnameð-
ferð og aðra meðferð verður ekki
haldið áfram og ekki verður hægt
að halda þessum hópum aðskildum.
Það er gert ráð fyrir að Stuðlar hafi
möguleika á að taka á móti öllum
unglingum i vanda. Eftir greiningu
þar er gert ráð fyrir að þeim sem
þurfa á því að halda verði komið í
framhaldsgreiningu," segir Áskell
Örn Kárason, forstöðumaður Með-
ferðarstöðvar ríkisins.
- Eru krakkar ekki fljótir að læra
af þeim sem eru dýpra sokknir en
þeir sjálfir?'
„Það er alveg ljóst í þessum breyt:
ingum að það er í raun verið að
fækka vistunarplássum, sérstaklega
Stefnt er að því að opna nýja meðferðarstöð með tíu til tólf plássum á Stuðlum að Fossamýri um miðjan ágúst og
taka fyrstu unglingana í meðferð þangað í byrjun september. DV-mynd GS
þegar Tindar verða lagðir niður, þá
fara tíu pláss þar á einu bretti. Það
er gert í hagræðingarskyni," segir
hann en að undaníornum hefur ver-
ið starfrækt göngudeild fyrir ung-
linga í vimuefnavanda undir heit-
inu Tindar.
Samkvæmt heimildum DV sparar
ríkið um 30 milljónir króna við að
leggja vistunarmeðferðina að Tind-
um niður. Athygli vekur að á sama
tíma og meðferðarpláss að Tindum
eru lögð niður fer svipuð upphæð til
nýstofnaðrar Barnavemdarstofu, í
stjómsýslu og eftirlit við barna-
verndarnefndir.
„Við erum með mjög langa'
biðlista og mikil óánægja með að
ekki sé hægt að vista unglinga sem
þurfa að fara í vímuefnameðferð
þannig að það stendur mjög illa á.
Ef ekki fæst meira fé verða menn að
horfast í augu við það aö þessi for-
gangsröðun hefur verið ákveðin,"
segir Áskell Öm.
Fjögur pláss eru á móttökudeild
Meðferðarstöðvar ríkisins en á bið-
lista eftir plássi í meðferðarvistun
eru 10 unglingar. Þeir hafa beðið frá
því í september og geta þurft að
bíða fram á sumar.
Búist er við að það kosti 70-80
milljónir króna að reka Stuðla á ári
en um 20 milljónir að reka heimili
fyrir 5-6 unglinga. -GHS
Vímuefnavamir:
Unglingageðdeild
fær 12 milljónir
- óskiljanlegt, segir meðferðaraöili
„Þetta er algjörlega óskiljanleg
ákvörðun og sýnir skort á heild-
arsteínu eða heildarsýn hjá ríkis-
stjóminni,“ segir Áskell öm
Kárason, forstöðumaður Meðferð-
arstöðvar ríkisins.
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
setja 12 miiljónir króna í ráðgjaf-
arstöð fyrir foreldra við bama- og
unglingageðdeild eða í svipað
starf og unnið er að á dagdeild-
inni að Tindum og á fræðslumið-
stöö í fikniefnavörnum sem
menntamálaráðuneytið styrkir.
Áskell Örn segist vera mótfall-
inn því að dreifa fé til ráðgjafar
og vímueínavarna á marga staði
því að þannig nýtist það mun
verr en þyrfti. Hann vill frekar
sjá stjórnvöld beina því á einn
stað því þannig nýtist það betur.
„Þó að börn og unglingar komi
ekki til meðferöar á barna- og
unglingage'ðdeild þá em starfandi
þama sérfræöingar, til dæmis
sálfræöingar, geðhjúkmnarffæð-
ingar og geðlæknar, og ráðgjafar-
þjónustan á að vera hjá þeim.
Þetta fólk getur leitt viðkomandi
í áframhaldandi meðferð," segir
Ingibjörg Pálmadóttir hefibrigðis-
ráðherra.
„Það er ekki ætlunin að þarna
verði allsherjar meöferðarstöð,1*
segir hún.
-GHS
Einkaútgáfa á bæklingi um fíkniefni í 95 þúsund eintökum:
Stjórnvöld bregðast
vegna skorts á áhuga
- útgáfan kostar þrjár millljónir króna
„Þetta ætti auðvitað að vera verk-
efni stjórnvalda en þau virðist
skorta áhugann. Þess vegna hef ég
ráðist i útgáfuna," segir Svavar Sig-
urðsson, áhugamaður um baráttuna
gegn fíkniefnavandanum.
Svavar er þessa dagana að leggja
síðustu hönd á útgáfu bæklings sem
dreift verður í 95 þúsund eintökum
á öU heimUi landsins. Útgáfan kost-
ar um þrjár mUljónir og þá peninga
sækir Svavar í eigin vasa eða fær fé-
lög, fyrirtæki og einstaklinga tU að
leggja sér lið.
Ætlunin er að bæklingurinn
Svavar Sigurðsson, áhugamaður
um baráttuna gegn fíkniefnavand-
anum. DV-mynd ÆMK
komi út 1. mars. Upphaflega var
hann gefinn út af breska heilbrigð-
isráðuneytnu en Svavar hefur látið
þýða hann á íslensku og gefur út
undir nafninu Þú og barnið þitt.
Efni bæklingsins er einkum mið-
að við uppfræðslu foreldra um flkni-
efnavandann og hvernig þeir eiga
að nálgast vandamálið í samræðum
við börn sín.
„Stjórnvöldum hér ber í raun og
veru skylda tU að gefa efni af þessu
tagi út. En þau virðast hafa öðru að
sinna og þess vegna er ég að berjast
í þessu," segir Svavar. -GK
Embætti Húsameistara ríkisins lagt niöur frá áramótum:
Forsendur eru ekki leng-
ur fyrir rekstrinum
Embætti Húsameisiara ríkisins
verður lagt niður um næstu áramót
og hætta þá um 16 starfsmenn.
Ákvörðunin er kynnt með nokkrum
fyrirvara til að starfsfólk embættis-
ins geti með góðu brugðist við þess-
ari ráðstöfun.
Forsætisráðuneytið hefur um
nokkurt skeið unnið að því að end-
urmeta embætti Húsameistara rík-
isins, en strax eftir að sú athugun
hófst var ákveðið að hætta þeirri
hönnunarvinnu sem þar fór fram og
færa hana yfir til sjálfstætt starf-
andi arkitekta. Hugmyndir eru hins
vegar uppi um aö embættið sinni
öðrum verkefnum, svo sem ráðgjöf
um húsnæðismál ríkisins, forhönn-
un og yfirstjórn hönnunarvinnu við
mannvirki og eftirliti meö tiltekn-
um húseignum ríkisins.
Til að tryggja samfellda fram-
kvæmd mála skipaði forsætisráðu-
neytið í ágúst síðastliðnum húsnæð-
isnefnd Stjórnarráðsins, en megin-
verkefni þeirrar nefndar er að
tryggja heildarsýn í húsnæðismál-
um Stjómarráðsins og undirbúa
stefnu og ráðstafanir, sem m.a. snúa
að viðhaldi, breytingum og nýbygg-
ingum. í þessari nefnd eru ráðu-
neytisstjórar forsætisráðuneytis og
fjármálaráðuneytis og húsameistari
ríkisins, sem annast embættis-
færslu fyrir nefndina.
Þykir hvorki
ráðlegt né hagkvæmt
„Forhönnun og yfirstjórn hönn-
unarvinnu eru mikilvægir þættir í
allri mannvirkjagerð og nauðsyn-
legt að þeim sé vel sinnt. Á undan-
förnum ámm hefur þróunin verið
sú að þessum verkefnum er í vax-
andi mæli sinnt á vegum einstaka
ráðuneyta eða stofnana, sem leita
eftir sérfræðiþjónustu starfandi fyr-
irtækja. Að athuguðu máli þykir
hvorki ráðlegt né hagkvæmt að
færa öll verk á þessu sviði til einn-
ar stofnunar. Þau geta því ekki orð-
iö grundvöllur fyrir starfsemi emb-
ættis húsameistara ríkisins," segir í
fréttatilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu.
Hluti þeirrar starfsemi sem Húsa-
meistari ríkisins hefur meö hönd-
um verður áfram sinnt í forsætis-
ráðuneytinu. Það á einkum við um
ráðgjöf um húsnæðismál Stjórnar-
ráðsins og umsjón með tilteknum
eignum ríkisins sem ráðuneytinu er
skylt að sinna. Þessi verkefni verða
framvegis í höndum þriggja starfs-
manna.
Garðar Halldórsson, húsameist-
ari ríkisins, vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
-brh