Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
Spurningin
Hvernig líst þér á
að sjónvarpsfréttatímum
verði fjölgað?
Guðlaugur Lárusson, fyrrverandi
sjómaður: Það er ágætt mál bara.
Jóhann Ingi Benediktsson sveita-
maður: Bara vel.
Sandra Kjartansdóttir nemi: Mér
líst bara vel á það.
Sigrún Lilja Sigmarsdóttir nemi:
Mér finnst það bara allt í lagi, ég
horfi einstaka sinnum á fréttir.
Halla Hauksdóttir hjúkrunar-
fræðingur: Bara ágætlega, það er
misjafnt hvenær fólk getur horft á
fréttir.
Ólafur Sigurðsson
Það ætti að dreifa þeim yfir daginn.
Lesendur______________________
Ónothæfar reglur
fyrir handfærabáta
- trillukarlar greiða 15 milljónir fyrir eftirlit með sjálfum sér
„Venjulegir handfærabátar eru aftur á móti svo múlbundnir af þessum regl-
um að þeir geta með engu móti notað þær óbreyttar."
Eðvald Eðvaldsson skakkarl
skrifar:
Flestir, sem hafa kynnt sér nýj-
ustu reglur sjávarútvegsráðuneytis
um handfæraveiðar (sem reyndar
eru aldrei nefndar á nafn), eru sam-
mála um að þær séu ónothæfar
nema fyrir stærstu og kraftmestu
bátana sem reyndar flestir eru á
línuveiðum. Enda hafa eigendur
nýjustu og dugmestu bátanna fjár-
fest ótæpilega í línuútbúnaði því
sþessar reglur eru sniðnar fyrir þá.
Venjulegir handfærabátar eru aft-
ur á móti svo múlbundnir af þess-
um reglum að þeir geta með engu
móti notað þær óbreyttar. Víða hag-
ar svo til að 2 til 3 klukkustunda
sigling er á miðin fyrir alvöruhand-
færabáta og engin veginn hæt að
vita hvort veiðiveður eru á svæðinu
nema fara þangað.
Maður í bát sínum í Sandgerðis-
höfn getur ekki vitaö hvort veiði-
veður er suður af Eldey eða ekki þó
blíðuveður sé í höfninni. Allir
þekkja slikt. En samkvæmt reglun-
um getur maður haldið af stað á bát
sínum og siglt áleiðis í 1 klukk-
stund. Þá er venjulegur skakbátur
kominn vel suður á Leirinn eða
tæplega hálfnaður suður í Röst. Á
þeirri mínútu verða menn aðtaka
ákvörðun um hvort þeir haldi
áfram og eyði þá sóknardegi hvem-
ig sem viðrar suðurfrá eða snúi við
hið snarasta og séu þá komnir til
hafnar 2 klukkustundum eftir brott-
för. Séu þeir ekki komnir til hafnar
innan 2 klukkustunda telst sá dagur
notaður þó að veiðarfæri hafi ekki
verið bleytt eða eitthvað hafi bilaö.
Ekki þarf að taka fram að engin
tök em fyrir menn sem svona er
ástatt fyrir að veita öðrum neina að-
stoð af neinu tagi. Þeir hafa einfald-
lega engan tíma til slíks því þá telst
dagurinn notaður sem sóknardagur.
En margvísleg aðstoð og samvinna
trillukarla hefur jafnan viðgengist
og talist sjálfsögð og eðlileg. Þessar
aðstæður eins og í Sandgerði eiga
við um fjölmargar verstöðvar og
veiðisvæði umhverfis landið.
Eins er með ákvæðið um nýjan
sóknardag. Séu menn ekki komnir í
höfn klukkan 2 að nóttu hefst nýr
sóknardagur hvað sem valdið hefur:
vélarbilun, veður eða það sem ólík-
legast er, aðstoð við aðra báta en
það gerir auðvitað enginn óvitlaus
maður undir þessum reglum. Hafi
eitthvaö af þessu orðiö geta menn
sent skriflega skýrslu um málið til
Fiskistofu og fer þá auðvitað eftir
atvikum hvort sú skýrsla er tekin
gild eða ekki.
Og þá er ótalið eitt mesta ruglið.
í þessu kerfi eru tæplega 700 bátar
og hver má nota 47 sóknardaga.
Ekki er undirrituðum kunnugt um
að handfærabátar hafi nokkurn
tíma róið á banndögum á undan-
fömum árum. Samt er svokölluðum
„símkrók" skellt á trillukarla en
það er enn eitt eftirlitskerfiö til við-
bótar því sem fyrir er, það er til-
kynningaskyldu, veiðieftirliti og al-
mennu eftirliti sjómanna sjálfra
sem hefur farið mjög vaxandi.
Vægt áætlað mun þessi „símkrók-
ur“ kosta trillukarla 15 milljónir
fyrir þessa 47 daga. Trillukarlar
greiða 15 milljónir fyrir óþarft eftir-
lit með sjálfum sér á 47 dögum.
Hvert var aftur álit lögfróðra
manna um eftirlit á „Flæmska hatt-
inum“. Er ekki mál að linni?
Helgistundina aftur í Sjónvarpið
F.H. hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
gagnrýni á Sjónvarpið. Ég er
hneyksluð á því að helgistundin á
sunnudögmn skuli hafa verið felld
niður og biskupinn látinn koma
með sinn þátt í staðinn. Ég er ekki
að segja að biskupinn eigi ekki að
vera með sinn þátt. Ég hef ekkert á
móti biskupnum og þættirnir hans
eru ágætir. Það hefði hins vegar
mátt velja annan tíma til þess að
sýna þá.
En það var dapurlegt að taka
þessa helgistund af okkur sem eig-
um svolítið bágt hér heima. Það eru
margir sem alltaf hafa hlustað á
helgistundina og hlotið huggun við
það. Þeir eru ófáir sem eiga um sárt
að binda og helgistund Sjónvarpsins
hefur verið þeim huggun harmi
gegn. Ég er ein af þeim sem mat
mikils þennan þátt og vona aö hann
verði aftur á dagskrá Sjónvarpsins
innan tíðar.
Stúlkubörnin í Kína
„Ég trúi allavega þeim stjórnvöldum til að svelta stúlkubörn til dauða sem fá
það af sér að slátra þúsundum ungmenna með stórvirkum vopnum fyrir það
eitt að krefjast endurbóta á úreltu stjórnskipulagi.“
Konráð Friöfinnsson skrifar:
Enn berast okkur fregnir frá
Kína um vonda meðferð á stúlku-
bömum sem lenda inni á munaðar-
leysingjahælum í eigu hins opin-
bera. Samkvæmt fregnum virðist
svo vera að á þessum hælum séu
blessuð bömin svelt til bana, hægt
en ömgglega.
Líkt og fyrri daginn þegar komm-
ar eiga í hlut og einhver reynir að
benda á staðreyndir um „bolsa-
drauminn“ bregðast valdhafar
ókvæöa við og gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að gera þann sem
fréttina flutti að ódreng sem engin
ástæða sé fyrir fólk að taka mark á.
Sannleikurinn er hinsvegar sá að
manni ber að taka svona fréttir al-
varlega, sérflagi þegar um ítrekaðar
birtingar er að ræða líkt og í þessu
tilviki. Og maður spyr hví í ósköp-
unum hlutlausir erlendir frétta-
menn ættu að ljúga um ástand mála
í landinu sem þeir eru staddir í, á
þessum og hinum tímanum. Altént
sér maður ekki skynsemina í slíku.
Hverfum nú ögn aftur í tímann og
rifium upp Sovéttímann og hvernig
ástandið var þar í þessum „frétta-
málum“. Menn sem dirfðust að tala
á skjön við vilja valdhafanna voru
yfirleitt úthrópaðir niðurrifsmenn
og oft fangelsaðir, drepnir eða
dæmdir í útlegð. Fólk á borð við
Solzhenitsyn, Sakharow og fleiri
voru reknir frá heimalandi sínu fyr-
ir að segja heimsbyggðinni sann-
leikann. Og er sovéska „spilaborg-
in“ hrundi kom í ljós sannleiksgfld-
ið hjá þessum mönnum. Og frekar
var að þeir drægju úr ástandinu í
landinu en að þeir bættu þar ein-
hverju við.
Ég trúi allavega þeim stjórnvöld-
um til að svelta stúlkubörn til
dauða sem fá það af sér að slátra
þúsundum ungmenna með stórvirk-
um vopnum fyrir það eitt að krefj-
ast endurbóta á úreltu stjórnskipu-
lagi eins og viðgengst í þessu fjöl-
menna ríki Kína. Og núna er ég að
tala um atburðina er áttu sér stað á
Torgi hins himneska friðar fyrir fá-
einum árum.
Allar yfirlýsingar frá þessum
mönnum um þetta mál getur maður
því miður ekki tekið alvarlega. Þær
ná því ekki mínum eyrum. Kín-
versk stjórnvöld hafa enda margt á
samviskunni sem þolir hvorki of
mikið umtal né sterkt dagsljós.
Efnum
til útifundar
Gunnar Halldórsson skrifar:
Árið 1995 kom viðtal við Guð-
mund J. Guðmundson, formann
Dagsbrúnar, þar sem hann segir
niðurskurði mætt af hörku. Guð-
mundur segir að það muni ekki
ganga hávaðalaust fyrir sig ef
bæði ríki og borg draga úr fram-
kvæmdum í atvinnumálum og
ekkert annað kemur í staðinn.
Nú hefur borgarstjóri lýst því
yfir að Reykjavíkurborg ætli sér
að draga úr átaksverkefnum. Ég
skora á öll verkalýðsfélög á höf-
uðborgarsvæðinu að efna tfl úti-
fundar á Austurvelli vegna vax-
andi atvinnuleysis.
Ólaf Egilsson
fyrir forseta
María Jónína Sigurðardóttir
hringdi:
Ég vil fá Ólaf Egilsson í emb-
ætti forseta íslands. Mér finnst
hann hafa allt til að bera tfl að
gegna embættinu með sóma.
Ólafur er einstakur maður,
ópólitískur, hann hefur unnið í
utanríkisþjónustunni og vill öll-
um gott gera. Konan hans,
Ragna Ragnars, er einnig alveg
einstök. Ólafur hefur haft hljótt
um sig í umræðunni um forseta-
embættið en ég get ekki hugsað
mér betri forseta.
Skelfilegt píp
Jórunn hringdi:
Ég varð fyrir þeirri leiðinlegu
reynslu um daginn í Hagkaupi á
efri hæð Kringlunnar að það
pípti er ég gekk inn um hliðið.
Mér brá ónotalega og sá mér til
skelfingar að allra augu beindust
að mér eins og ég væri þjófur.
Stúlkan í upplýsingunum kom
og vildi fá að kikja í töskuna
mína. í henni var enginn „ráns-
fengur" úr öðrum verslunum.
En það var dagbók sem ég hafði
keypt í bókabúð um áramótin
sem var sökudólgurinn. Það
pípti ekki í hliði bókabúðarinnar
því stúlkan við kassann þar
beindi einhverju apparati að
bókinni. Það er mjög óþægilegt
fyrir viöskiptavini þegar svona
kemur fyrir og manni finnst
erfitt að „sanna“ sitt mál. Stúlk-
an í Hagkaupi sagði hlið verslan-
anna misnæm og að svona kæmi
oft fyrir. Þetta er samt skelfilega
leiðinlegt.
Hringsólið með
Fæðingarheimilið
Ingunn hringdi:
Hringsólið með Fæðingar-
heimilið er að verða að skrípa-
leik ef það er ekki þegar orðið
það. Það er ýmist veriö að til-
kynna um opnun eða lokun,
þessa starfsemina og hina. Þó
svo að ég sé enginn aðdáandi
heimflisins, ég fékk ekkert betri
þjónustu þar en á Landspítalan-
um þegar ég fæddi mín börn, þá
er ég sammála borgarstjóra um
það að allt þetta mál er skýrt
dæmi um stefnuleysi og ráðleysi
í heilbrigðismálum.
Ólaf Ragnar til
Bessastaöa
Hulda hringdi:
Ólafur Ragnar Grímsson er
kjörinn í embætti forseta ís-
lands. Hann er vel gefinn, vel
menntaður, reffflegur, ákveðinn
og kemur vel fram. Hann hefur
sýnt það á erlendum vettvangi
að hann er viröulegur fulltrúi ís-
lands í hvaða samhengi sem er.
Það má vel vera að einhverjir
láti hann fara í taugamar á sér
frá því að hann var fjármálaráð-
herra en það er liðin tíð. Við eig-
um að fylkjast um hæfan mann í
forsetaembættið og sá er Ólafur
Ragnar.