Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 13 Fréttir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar: Þrír í framboði til formanns Þrír gefa kost á sér til formanns í Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar þegar stjómarkjör fer fram i félaginu 18. og 19. febrúar. Marías Sveinsson, vagnstjóri hjá SVR, skil- aði inn framboði sínu skömmu áður en frestur rann út síðdegis á mánu- dag en áður hafði Sjöfn Ingólfsdótt- ir, núverandi formaður, boðið sig fram. Þau era því tvö sem etja kappi við Grétar J. Magnússon, starfs- mann Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hann er á lista uppstillingamefhd- ar. Marías segir að hann hafi ákveð- ið á sunnudaginn að bjóða sig fram þar sem hann hafí fengið margar áskoranir. Mikil óánægja sé meðal vagnstjóra og almennt innan félags- ins með störf núverandi formanns sem hafi litið á vagnstjóra sem „homrekur" og „órólegu deildina", eins og Marías orðar það. Launa- taxtamir séu ekkert til að hrópa húrra fyrir og óánægja sé með sam- flot í kjarasamningum og hann vilji herjast fyrir hag gamla fólksins. Þegar ummæli Maríasar voru borin undir Sjöfn Ingólfsdóttur sagðist hún vísa þeim til föðurhús- anna. Grétar J. Magnússon sagðist telja framboð Maríasar undirstrika þá óánægju sem væri í félaginu. -GHS Kjarkur frá Egilsstöðum er einn þeirra stóðhesta sem hafa vakið athygli á sýningu Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti. Knapi er Vignir Siggeirsson. DV-mynd E.J. Graðhesta- skeið í augsýn Næstkomandi sunnudag verður opiö hús i Stóðhestastöðinni í Gunnarsholti frá klukkan 14.00 til 16.00. Þorkell Bjarnason hrossaræktar- ráðunautur mun kynna starfsem- ina, tamningamenn stöðvarinnar sitja fyrir svörum og ríða hugsan- lega nokkrum stóðhestanna. Kafíi- veitingar verða á borðum. í apríl er fyrirhugað að brydda upp á nýjungum, svo sem graðhesta- skeiði og tölti úrvalsgraðhesta og verður eigendum allra graðhesta landsins velkomið að vera með. Sú keppni verður kynnt síðar. -E.J. Deila um hund tekur nýja stefnu: Dagsljósmaður kærður til Útvarpsráðs Runólfur Oddsson, hundaeigandi í Reykjavík, hefur sent Útvarpsráði bréf þar sem Þorfinnur Ómarsson, dagskrárgerðarmaður hjá ríkissjón- varpinu, er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína með viðtali við Ólaf Benediktsson, nágranna Runólfs, sama dag og málflutningur fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Runólfur hefur barist fyrir því að fá að halda hund við Álakvísl í Reykjavík en Ólafur hefur viljað fá hann sviptan hundaleyfi. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, formaður útvarpsráðs, staðfesti í samtali við DV að hafa fengið kærabréf frá Runólfi og segist hafa séð umræddan sjónvarpsþátt. Hann segist munu ræða við Þorfinn og senda Runólfi svarbréf nú í vikunni en í bréfi sínu sakar Runólfur Þorf- inn m.a. um persónunjósnir. „Ég hef ekki séð þetta bréf en eitt- hvað heyrt af því. Mér fannst þetta eins og hver annar brandari. Ég held að enginn taki þetta alvarlega," segir Þorfmnur Ómarsson. Hann segist aldrei hafa séð um- rætt viðtal og -beri ekki ritstjómar- lega ábyrgð því hann sé ekki rit- stjóri þáttarins. Annar umsjónar- maður hafi tekið viðtalið án þess að hann vissi af því. -GHS Grindavík: Flutningabíll gjöreyðilagðist í eldi DV, Suðurnesjuni: Eldur kom upp í vörabíl i Grinda- vík um helgina og skemmdist bíllinn svo mikið að hann er talinn gjörónýt- ur. Bílstjórinn stöðvaði bílinn um leið og hann varð reyks var og forð- aði tveimur bömum sínum úr bíln- um. Slökkvilið Grindavíkur var á branaæfmgu og var eldsnöggt á vett- vang en þrátt fyrir það stóð bíllinn í ljósum loga þegar að var komið og allt brann sem brunnið gat. Bíllinn, Scania, árgerð 1984, er i eigu fiskvinnslufyrirtækisins Hóps hf. í Grindavík og atvikið átti sér stað á gatnamótum Ægisgötu og Seljabótar. -ÆMK AEG fltlas Copci Q PES 12 T Hleðsluborvél • 12 V hleðsluborvél. me& aukarafhlöSu og skrúfbitasetti í tösku • Tveggja þrepa gír 0-360 sm./mín. 0-1100 sm./mín. • Nítjón þrepa ótaksstilling • Bremsa ó mótor • Seigla (TORQUE) 14,9/31,7 SBE 480 Borvél VERÐ STGR.: H.300,-) & • 480 W heimilisborvél með höggi ófram/afturóbak. • Stiglaus rofi. • Er í tösku • Borasett fyrir stein fylgir WSCE 800/115 ibnabarslípirokkur • 800W slípirokkur • Léttur og meðfærilegur meS 115 mm skifu • GangróSur sem heldur snúnings- hraSanum BRÆÐ U R N Lágmúla 8, Sími 553 8820 R AEG Umbobsmenn um allt land Reykjavfk: Ellingssen. Byggingavöruversl Nethyl Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi.Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð, Sauðárkróki. KEA Siglufirði. KEA Ólafsfirði. KEA, Lónsbakka Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Vopnfirðinga,Vopnafirði Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Stál, Seyðisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. BILASALAN BLIK SKEIFUNNI 8 - SÍMI 568-6477 Toyota Landcrusier '95, ssk., ek. 25.000 km, með öllu. Range Rover Vogue '90, ssk., ek. 140.000 km, nýtt lakk. Ford Econoline '93, bensín, ssk., 15 manna, ek. 112.000 km. Nissan Sunny 1600 SLX '90, ssk., ek. aðeins 44.000. VW Golf GL1600 '93, 5 g., vínr., ek. 33.000 km. Toyota Carina E '93, 5 g., ek. 73.000 km. Volvo 740 GLE '85, 5 g., ek. 143.000 km, gott eintak. Toyota HiLux Extra Cab V6 '90, 5 g., ek. 118.000 km. Chevrolet Monza '88, 5 g., ek. 83.000 km, mjög gott eintak. Subaru Legacy '90, ssk., ek. 99.000 km. Toyota Corolla Sl 1600 '93, 5 g., ek. 71.000 km. ÓSKUM EFTIR HONDU CIVIC LSI '92, STAÐGREIÐSLA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.