Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Qupperneq 24
24
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
Sviðsljós
Svo bregðast krosstré sem önnur tré, jafnvel í Hollywood:
Leðurblökumaðurinn
vondur við börnin sín
Bandaríski leikarinn Val Kilmer
virðist ekki hafa tileinkað sér neitt af
góðmennsku Leðurblökumannsins,
verndara smælingjanna, laga og
reglu, sem hann lék við miklar vin-
sældir. Að minnsta kosti gerði hann
það ekki ef eitthvað er að marka orð
fyrrum eiginkonu hans, þeirrar
bresku Joanne Whally-Kilmer. Hún
segir að bömin þeirra tvö séu nú
heimilislaus fyrir sakir þvergirðings-
háttar hans og nísku. Val fékk 400
milljónir króna fyrir að leika bjarg-
vættinn i skikkjunni.
Val og Joanne eru skilin að skipt-
um og hann neitar að verða við kröf-
um hennar um þrjátíu milljón króna
framlag fyrir nýju húsi.
„Það bendir allt til þess að Val vilji
ekki deila ríkidæmi sínu með eigin-
konu sinni og börnum og hann gerir
þeim eins erfitt fyrir og hann frekast
getur,“ segir ónefndur vinur Joanne.
Val Kilmer er ábúðarfullur í hlutverki
Leðurblökumannsins.
Aðeins einum mánuði eftir að
yngra bamið fæddist í júní síðastliðn-
Móðirin örvæntingarfulla, Joanne
Whalley-Kilmer.
um fór Val tO Evrópu til að kynna
nýjustu myndina um þá Bíbí og Blaka
sem þeir Robin og Batman gætu hæg-
lega heitið á ástkæra ylhýra málinu.
Hann sneri aldrei aftur heim í hús
fjölskyldunnar i Santa Fe í Nýju-
Mexíkó. Þess í stað hefur hann verið
orðaður við ýmsar glæsipíur svo sem
fyrirsætuna Cindy Crawford og.villig-
elluna Drew Barrymore.
Eins og nærri má geta var Joanne
alveg eyðilögð en á þessum tíma var
hún enn með barnið á brjósti. Hún
grátbað Val um að koma heim til
barnanna en hann mátti ekkert vera
að því fyrir kvennafari.
Joanne yfirgaf þá húsið í Santa Fe
og fór til Los Angeles þar sem hún
sagðist þurfa á andlegum stuðningi
vina sinna þar að halda. Hún hefur nú
fundið hús í borginni en vantar aura
frá Val til að geta keypt það. Á meðan
búa Joanne og börnin hjá vinum og á
hótelum og það gengur náttúrlega
ekki til lengdar fyrir börnin.
Allt virðist í himnalagi hjá þeim hjúum Liz Hurley og Hugh Grant en þau
komu til frumsýningar myndarinnar City Hall í New York í gærkvöldi. Virðist
gróið yfir þau sár sem urðu í fyrrasumar þegar Hugh var gripinn með vænd-
iskonunni Divine Brown í aftursæti bíls síns. Símamynd Reuter
Roseanne vill losna við Goodman:
Látinn deyja úr hjartaslagi
Roseanne Barr er orðin eitthvað
þreytt á meðleikara sínum, John
Goodman, í gamanþáttunum sem
bera nafn hennar. Hún hefur því
ákveðið að Goodman hætti og ætlar
semja handritið sérstaklega af því
tilefni. Á eiginmaðurinn að fá
hjartaslag og deyja. Flóknara þarf
það ekki að vera enda mörg for-
dæmi fy'rir slíkum starfslokum leik-
ara í sjónvarpsþáttum.
Sumum finnst Roseanne koma
illa fram við Goodman en hann
mun hafa verið manna fegnastur
þegar fréttir af endalokunum spurð-
ust út. Hann er fyrir löngu orðinn
dauðleiður á ráðríki og frekju Ros-
eanne og er víst ekki einn um það.
Starfslið þáttanna hefur ósjaldan
fengið að finna fyrir því og hugsa
henni oft þegjandi þörfina.
Síðustu orð Goodmans í þáttun-
um eru hins vegar í hróplegri mót-
sögn við veruleikann því hann styn-
Ceramiche
'tj: MARAZZI
Flísar - úti 09 inni
ÍÍÁlFAÐÖKGf
■ : KSiARnARVOGI 4 • g 566 6755
ur: „Þú veist að ég elska þig, Rosy.“
það er allt hægt í sjónvarpinu.
Áætlun Roseanne um að láta
hjartað í manni sínum bila varð til
eftir að hún henti fyrri áætlunum í
ruslafótuna. Þær hljóðuðu upp á að
eiginmaðurinn hlypist á brott með
samkynhneigðum manni. Það þótti
bara ekki nógu sniðugt. En hvernig
sem endalokin verða þá lýkur átt-
undu vertíð þáttanna með Roseanne
með því að Goodman hætti.
John Goodman á að látast úr
hjartaslagi i þáttunum um Rose-
anne.
Leikkonurnar Bridget Fonda, t.v., og Mia Farrow koma til frumsýningar kvik-
myndarinnar City Hall í New York í fyrrakvöld. Fonda fer meö eitt hlutverk-
anna í myndinni sem byrjað verður að sýna almenningi í næstu viku.
Símamynd Reuter
Fyrrum Prince ætlar að kvænast:
Tilkynningin send
út á Internetinu
Nú þarf ekki lengur vitnanna við.
Prince er enginn nútima Casanova,
eins og hann hefur sjálfur viljað
vera láta, heldur bara enn einn
tölvunördinn sem finnst skemmti-
legra að skiptast á fáfengilegum
upplýsingum um Star Trek en að
leggjast kylliflatur með einhverri
þokkadísinni.
Þetta er niðurstaða sérfræðinga
úti í hinum stóra heimi sem hafa
sökkt sér ofan í feril þessa mikla
listamanns.
Hvað sem því líður, þá hefur
Prince ákveðið að ganga í það
heilaga og sú lukkulega er fyrrum
magadansmær hjá hljómsveit popp-
arans og nektardansmær i frístund-
um. Hún heitir Mayte Garcia en
enginn veit lengur hvað Prince heit-
ir því hann skipti um nafn einhvern
tíma í fyrra eða á árinu þar á und-
an.
Prince, eða þannig.
En aftur að tölvuáhuga poppgoðs-
ins. Fyrrum Prince tilkynnti um
væntanlegt hjónaband sitt og fröken
Mayte á sjálfu Internetinu. Og han-
anú.
Pelé ætlar
í forseta-
framboð
Brasilíski knattspyrnusnilling-
urinn Pelé hefur ákveðið að taka
áskorun samtaka sem berjast fyrir
auknuni réttindum blökkumanna
og bjóða sig fram til embættis for-
seta Brasilíu. SniOingurinn hefur
lofað að gera sitt besta til að upp-
ræta spillingu, verði hann kjörinn.
Pelé er 55 ára gamall og gegnir
embætti íþróttamálaráðherra, í
heimaiandinu.
Kirk kemur
enn á óvart
Harðjaxlinn Kirk Douglas er
ekkert að linast þótt aldurinn fær-
ist yfir hann. Leikarinn kom lækn-
um svo sannarlega á óvart um dag-
inn þegar hann gekk út af sjúkra-
húsinu aöeins þremur dögum eftir
að hann gekkst undir skurðaögerð
við eymslum i baki. Kirk hafði
þjáðst mikið í bakinu í fimm ár
eða frá því hann lenti í þyrluslysi.
Það kom sér bagalega fyrir gamla
manninn sem situr nú alla daga
við skrifborðið sitt og skrifar bæk-
ur.
Kirstie berst
við aukakílóin
Kirstie Alley, geðþekka leikkon-
an úr Staupasteini, hefur heldur
bætt utan á sig á síðustu misser-
um, eða rúmlega tíu kílóum. Hún
er þó staðráðin í að ná þessum
aukakílóum af sér við fyrsta tæki-
færi. Allt frá því upptökum á síð-
asta þætti Staupasteins lauk fyrir
þremur árum hefur Kirstie reynt
að vera sem mest með eiginmann-
inum og börnunum tveimur. Því
fór sem fór.
Kylie með
karli á strönd
Poppstjaman Kylie Minogue
sást á hinni vinsælu Bondi bað-
strönd í Ástralíu um daginn með
nýja hárgreiðslu og tvo nýja karl-
menn í eftirdragi. Annar þeirra er
Fransmaður en hinn leikur á móti
henni í kvikmyndinni Street
Fighter. í fyrra sagðist hún ekki
hafa fundið draumaprinsinn en
það hefur kannski breyst.