Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Blaðsíða 32
K I IV
L«TT«
til w*|kfls að
i mm
\ >
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
Hafnbannið í Kanada:
Sjávarút-
vegsráðu-
- neytið bað
Kanadamenn
um hafn-
bannið
- segir Óttar Yngvason
„Við leituðum til sjávarútvegs-
ráðuneytisins og báðum það að
beita sér fyrir því að hafnbanninu,
sem Kanadamenn settu á skip án
eftirlitsmanna um borð, yrði aflétt
og að hvert ríki fyrir sig sæi um
framkvæmd NAFO-samningsins.
Þessari ósk okkar var svarað út í
—iiött. Sjávarútvegsráðuneytið fékkst
ekki til að verða við þessari beiðni
um aðstoð við islensk skip erlendis
sem eru að reyna að draga björg í
bú. Við höfum ákveðnar og sterkar
grunsemdir um að þessar aðgerðir
Kanadamanna séu að frumkvæði ís-
lenska sjávarútvegsráðuneytisins.
Þetta er ekkert sem Kanadamenn
taka upp hjá sjálfum sér. Þetta er
aðferð sjávarútvegsráðuneytisins til
að þvinga íslensku útgerðirnar und-
ir þær reglur sem því hefur þóknast
_jð setja,“ sagði Óttar Yngvason, út-
gerðarmaður togaranna Kans og Er-
ics, í morgun.
Kan er á leið til hafnar í Kanada
með bilaðar ljósavélar. Það telst
neyðartilfelli og því fær skipið að
koma til hafnar.
Óttar sagði að ákveðið hefði verið
að taka eftirlitsmennina um borð í
togarana en með fyrirvara um mála-
ferli og skaðabætur vegna málsins.
-S.dór
Kofri til Ísaíjarðar:
Allt brunniö
stafna
a milli
DV, ísafirði:
Togarinn Bessi kom með rækju-
skipið Kofra í togi til ísafjarðar í
gærmorgun eftir brunann úti fyrir
Norðurlandi á sunnudagsmorgun.
Slökkvilið ísafjarðar fór strax um
borð í Kofra til að reykræsta skipið
og uppgötvaðist þá að ljósavélin var
enn í gangi. Allur eldur var hins
vegar slokknaður.
Við skoðun á skipinu kom í ljós
að það var allt meira og minna
brunnið neðan þilja stafna á mílli,
sem og brúin. Menn frá RLR komu
til ísafjarðar og munu reyna að graf-
ast fyrir um eldsupptök ásamt rann-
sóknarlögreglunni á ísafirði.
-HK
L O K I
Fjórir tollverðir ávíttir af tollstjóra eftir fréttir í DV:
Við sögðum ekkert
nema sannleikann
- segir einn úr hópnum sem kallaður var inn á teppið hjá tollstjóra
„Við sögðu ekkert annað en
sannleikann við DV,“ segir Þórir
Ragnarsson, yfirtollvörður í Sunda-
höfn, en hann var einn fjögurra
tollvarða sem í gær voru kallaðir
inn á teppið hjá Bimi Hermanns-
syni tollstjóra og krafðir skýringa á
ummælum í DV í síðustu viku.
Tollverðirnir fjórir, sem eru
deildarstjóri og yfirtollvörður i
Tollpóststofunni og deildarstjóri og
vfirtollvörður í Sundahöfn, sögðu í
viðtölum við DV síðastliöinn mánu-
dag og miðvikudag að Tollgæslan
gæti vart sinnt starfi sínu vegna
mannfæðar og að opin leið væri til
að smygla eiturlyfjum inn í landið.
Kom m.a. fram að tollpóstur
væri aðeins skoðaður í dagvinnu
þótt hann bærist inn í landið á öðr-
um tímum. í Sundahöfii eru, þegar
best lætur, tveir menn við tollskoð-
un á hundruöum gáma og ná að-
eins að skoða lítið hrot af þeim.
„Við vorum kölluð eitt og eitt
inn til tollstjóra í gær og krafin
skýringa á þessum ummælum og
iwnUrtttsr.<•{.».* ftiii ..niii.Ed'i'.-W » tufMue'
Engin toilskoðun
háifan sólarhringinn
Aukablað um skatta og fjármál
Forsíöufréttir DV þar sem sagt var frá ástandinu i tollþjónustunni. Starfs-
menn greindu frá því, í varnaðarskyni, að Tollgæslan gæti vart sinnt starfi
sínu vegna mannfæðar og að opin leið væri til að smygla eiturlyfjum inn í
landið. Við sögðum sannleikann, segja starfsmenn, en vegna þessa hafa
þeir verið kallaðir á teppið hjá tollstjóra.
hótað áminningu. Okkur var les-
inn réttur okkar og starfsreglur,"
segir Jóhanna Guðbjartsdóttir,
deildarstjóri hjá Tollpóststofunni.
Tollverðirnir fjórir réðu sér lög-
mann til að vinna að greinargerð
til tollstjóra. Þar kemur fram að
tollverðirnir telja sig hafa fengið
leyfi yfirmanns síns tfi að ræða
við fjölmiðla um ástandið í toll-
gæslunni. Auk þess hafi þau ekki
sagt annað en það sem var á allra
vitorði sem vildu vita. Því hafi
fréttir af þessu tagi ekki átt að
koma tollstjóra á óvart. í greinar-
gerðinni er m.a. vísað í fyrri frétt-
ir af sama toga.
Enn er óljóst hvort mál fjór-
menninganna á eftir að hafa frek-
ari afleiðingar. Tollstjóri hefur
ekki gefið svar við greinargerð-
inni en mál toUvarðanna gæti
hafnað inni á borði hjá fjármála-
ráðherra og endað með áminn-
ingu sem er undanfari brottrekstr-
ar. Ekki náðist í hann í morgun
vegna þessa máls. -GK
Fimm skipverjar af rækjuskipinu Kofra ÍS á hafnarkantinum eftir að þeir voru búnir að binda skipið við bryggju á ísa-
firði í gærmorgun. Áhöfnin var að vonum ánægð að komast loks í land til sinna nánustu. Eins og sjá má í baksýn er
Kofri kolbrunninn. Frá vinstri eru Þröstur Ólafsson, fyrsti vélstjóri, Pálmi Halldórsson, Jónas Jónbjörnsson, Eyþór
Scott og Jón Egilsson skipstjóri. Á myndina vantar Gyifa Þórðarson yfirvélstjóra. DV-mynd Hörður Kristjánsson
Veðrið á morgun:
Él um
mestallt
land
Á morgun verður hæg sunn-
an- og suðaustanátt og él um
mestallt land. Helst verður úr-
komulaust á Norðurlandi
vestra.
Veðrið í dag er á
bls. 28
Maður rotað-
ist í brotsjó
Háseti á línubátnum Jóhannesi
ívari frá Flateyri rotaðist og marð-
ist þegar báturinn fékk á sig brotsjó
á Vestfjarðamiöum í gær.
Bátnum var haldið til lands frá
ódreginni línu og hásetanum komið
undir læknishendur. Hann reyndist
þó ekki alvarlegar slasaður en svo
að hann reri með félögum sínum í
dag. -GK
Málverk skorin
og tækjum stoliö
Brotist var inn í mannlausa íbúð
við Réttarholtsveg í gær og þar unn-
in skemmdarverk auk þess sem
heimilistækjum var stolið. Ná-
grannar uppgötvuðu innbrotið um
kvöldmatarleytið og létu lögreglu
vita.
í íbúðinni höfðu málverk verið
skorin og einnig sófasett. Þá var
sjónvarpi og hljómflutningstækjum
stolið. Lögreglan vinnur að rann-
sókn málsins en í morgun voru inn-
brotsþjófarnir enn ófundnir. -GK
rafverktakor
samvirki
Skemmuvegi 30 - 200 Kóp.
Sími 5544566
Hlaðborð í hádeginu