Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 11 staðgreitt staðgreitt Menning Valgeröur Hauksdóttir: lofsverð til- raun til að víkka tjáningarsvið graf- íklistarinnar á sýningu í Hafnarborg. ’ Fimm I ’ Nú styttist í að Menningarverð- i laun DV 1996 verði afhent en athöfn- in fer fram yfir málsverði í Þingholti, Hótel Holti, fimmtudaginn 22. febrú- ar nk. Fram að þeim tíma verða birt- ar tilnefningar þeirra sjö dómnefnda sem hafa verið að störfum síðustu vikur. Verðlaun verða veitt í sjö list- greinum: myndlist, tónlist, leiklist, bókmenntum, byggingarlist, kvik- myndum og listhönnun. Verðlauna- hafar munu fá forláta gripi sem Tinna Gunnarsdóttir listhönnuður hefur gert. Dómnefnd um myndlist ríður á vaðið með tilnefningar sínar. Eftir- taldir fimm listamenn eru tilnefndir I fyrir markverðustu myndlistarsýn- ’ ingamar á landinu árið 1995: Leifur Breiðfjörð glerlistamaður, Valgerður a Hauksdóttir, grafiklistamaður og list- ■> málari, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, myndlistarmaður, Páll , Guðmundsson frá Húsafelli, mynd- J höggvari, og Helgi Þorgils Friðjóns- son listmálari. Hér fer á eftir rökstuðningiu' dóm- nefndarinnar: Leifur Breiðfjörð glerllstamað- ur er tilnefndur fyrir viðamikla yfir- litssýningu sína í Gerðarsafiii í Kópa- vogi þar sem sérstaklega voru kynnt þau oþinberu verkefhi, innlend sem erlend, sem listamaðurinn hefur unnið að á undanfornum árum. Yfir- litssýningin áréttaði sérstöðu og yfir- burði Leifs i listgrein sinni, jafnt hér á landi sem á Norðurlöndum, auk þess sem hún rímaði ákaflega vel við rými og birtuskilyrði í Gerðarsafiii. Valgerður Hauksdóttir hefur Ilengi verið meðal metnaðarfyllstu og vönduðustu listamanna i íslenskri grafíklist sem nú virðist í uppgangi eftir nokkra ládeyðu. Á sýningu sinni í Hafnarborg gerði Valgerður lofsverða tilraun til að víkka til muna tjáningarsvið grafiklistarinnar með skírskotun bæði til „installa- sjóna“ og tónlistar um leið og hún áréttaði gildi handbragðsins í list- grein sinni. Kristín Jónsdóttir frá Munka- þverá hefur á síðustu áriun gert markverðar tilraunir til að tefla sam- an íslenskri ull og ýmsum nútímaleg- um gerviefnum, svo sem plexígleri. Þessar tilraunir náðu hámarki með sýningu sem hún hélt að Kjarvals- stöðum en þar sló hún bæði á ljóð- ræna og þjóðlega strengi með eftir- minnilegum hætti. Páll Guðmundsson frá Húsa- Helgi Þorgils Friðjónsson: myndveröld hans, sér á parti í íslenskri nútíma- list, dregin saman á sýningu í Nýlistasafninu. Styttist í Menningarverðlaun DV 1996: tilnefningar í myndlist Leifur Breiðfjörð: viðamikil yfirljtssýning í Gerðarsafni sem áréttaöi sér- stöðu og yfirburði hans í glerlistinni. felli, myndhöggvari, er tvímæla- laust einn af sérstæðustu myndlistar- mönnum sinnar kynslóðar, í senn fom og nútímalegur, þjóðlegur og al- þjóðlegur. Sumarið 1995 fann Páll höggmyndum sínum stað í einu hrikalegasta náttúruvætti sunnan heiða, Surtshelli, og lét myndefhi sitt kallast á við sögu og jarðfræði staðar- ins. Þessi nýja „heilalist" Páls er hér með tilnefnd til menningarverðlaun- anna. Helgi Þorgils Friðjónsson list- málari hefur áður verið tilnefndur til Menningarverðlauna DV í myndlist og hlaut þau árið 1983. Sýningar hans hafa ætið sætt tíðindum, og svo var einnig um sýningu þá sem hann hélt í Nýlistasafninu á síðasta ári. Þar dró listamaðurinn saman myndir frá síð- ustu árum sem sýndu að hann leitar nú fanga í auknum mæli í sígildri málaralist, um leið og hann gerir góð- látlegt gys að meðvituðum hátíðleika Kristfn Jónsdóttir frá Munkaþverá: markverðar tiiraunir til að tefla saman ís- lenskri ull og gerviefnum náðu hámarki á sýningu á Kjarvalsstöðum. hennar. Myndveröld hans er eftir sem áður sér á parti í íslenskri nútímalist. Einn þessara listamanna hiýtur síð- an Menningarverðlaun DV fyrir myndlist. Dómnefhdina skipa Aðal- steinn Ingólfsson, listfræðingur við Listasafn íslands, Ólafur Engilberts- son, myndlistargagnrýnandi DV, og Gréta Mjöll Bjarnadóttir myndlist- armaður. -bjb 109.500. staðgreitt LOEWE. ÞY.SK HAGÆÐA SJONVÖRP LOEWE Profiie 870 Nicam 28" Fullkomin fjarstýring meö öllum aðgeröum á skjá. • Myndlampi (Super Black Line). Flatur skjár Beint inntengi (SCHART) sem gerir mynd frá myndbandstæki eða afruglara mun skarpari.* Hljóðmagnari Nicam víSóma (STEREO) 2 x 25 W.* Textavarp Tveir innbyggðir hátalarar eru í tækinu. ORION VH-1105 Tveggja hausa myndbandstæki 1 Fjarstýring með aðgerðaupplýsingum. * Scart inntenging • „ShowView" búnaður sem breytir upptökutíma ef breyting verður á dagskrá 1 Sjálfvirk hreinsun á myndhaus. 28"twin TLl Fullkomin fjarstýring með öllum aðgerðum á skjá. Islenskt textavarp • Myndllampi (BLACK MATRIX) flatur skjár. Hljóðmagnari Nicam víðóma (STERÍÓ) 2x15W eða 30W. Tveir hátalarar eru í tækinu. Hægt er að tengja auka hátalarasett við tækið. Beint inntengi (SCART) sem gerir mynd frá myndbandstæki og/eða afruglara mun skarpari. Páll Guðmundsson frá Húsafelli: höggmyndir á sérstæðri sýningu f Surts- helli sem kölluðust á við sögu og jarðfræði staðarins. VISA EUROogVISA raðgreiðslur BRÆÐURNIR D1ORMSSON HF Lágmúla 8, Sími 553 8820 Umbobsmenn um allt land Reykjavík: Heimskringlan, Kringlunni.Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Stál, Seyðisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfiröi. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.