Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Side 12
12 FMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Lömuð tollgæzla Tollstjórinn í Reykjavík hefur alla tíð verið á pólitísku framfæri Framsóknarflokksins í ýmsum embættum og hvergi gert garðinn frægan. Stofnun hans er full af silki- húfum, en virðist samt skorta mannskap til að halda uppi eðlilegum vörnum gegn innflutningi fikniefna. Tollstjórinn hefur ekki séð ástæðu til viðbragða, þótt fikniefiiasalar reyni að hræða tollverði tH hlýðni með því að valda þeim miklu fjárhagslegu tjóni með skemmdar- verkum á bHum þeirra og rúðubrotum á heimHum þeirra. Þetta gerist þó vegna starfs þeirra. Fíkniefnasalar vita, að toUverðir eru á lágum launum og hafa ekki ráð á að amast við mönnum, sem valda þeim persónulegu fjárhagstjóni í skjóli nætur. Ef þeir hafa ekki stuðning frá silkihúfunum í ToUstöðinni, eru þeir varnarlitlir og hætta að finna flkniefni. Ofan á þetta hefur toUstjóri tekið upp þá ógeðfeUdu stefnu að ógna toUvörðum með því að kaUa þá á teppið fyrir að segja fjölmiðlum frá ólestrinum í vörnum gegn innflutningi fíkniefna. Næsta skref á eftir teppinu er skrifleg áminning og hið þriðja er brottrekstur. Ekki er komið í ljós, hversu langt toUstjórinn mun ganga á þessari braut. ToUverðirnar hafa fengið sér lög- mann tU að gæta hagsmuna sinna gagnvart honum. Það segir raunar mikla sögu, að toUverðir í fíkniefnaleit telji sig þurfa lögfræðUega vernd gegn yfirmanni sínum. Komið hefur í ljós, að töluvert af þeim fíkniefnum, sem eru í umferð hér á landi, berst tU landsins í pósti. Samt er miUUandapóstur afar lítið toUskoðaður frá þessu sjón- armiði. Það er tU dæmis aðeins gert í dagvinnu, þótt póstur berist tU landsins á öUum tímum sólarhringsins. Nú síðast viðurkenndi maður fyrir fikniefnalögregl- unni að hafa látið senda sér kókaín í hraðpósti frá New York. Verðmæti sendingarinnar nam rúmlega einni miUjón króna á götunni. Það er því ljóst, að fíkniefhasal- ar hafa ráð á að mýkja toUgæzlima í landinu. Andvaraleysi og tvískinnungsháttur stjórnvalda gagn- vart fíkniefnavandanum er aUtaf að koma betur og betur í ljós. Lögreglumenn standa í vonlítiUi baráttu um grömm og miUigrömm á götunni á meðan lítið sem ekk- ert er gert tU að spoma gegn innflutningnum sjálfum. Starfsmenn toUgæzlunnar í Reykjavík og á Keflavíkur- flugveUi telja, að fíkniefnasmyglarar hafi nánast frjálsar hendur í innflutningi. Starfsmönnum við fíkniefnaleit hefur farið fækkandi, en stofnanimar notaðar tU að sjá pólitískum kvígUdum fyrir þægUegu íifibrauði. Ekkert vit fæst í baráttuna gegn innflutningi fíkniefiia fyrr en skipt hefur verið um toUstjóra í Reykjavík og á KeflavíkurflugveUi. Fá þarf tU mannaforráða menn, sem ekki eru á pólitísku framfæri, og beina starfsorku emb- ættanna í auknum mæli að fíkniefnaleit. Þetta er ekki spuming um aukin heUdarútgjöld hins opinbera, heldur tilfærslu á mannskap og skipti á mann- skap. Með því að skipta um toUstjóra og fækka sUkihúf- um á skrifstofum þeirra verður hægt að fjölga starfandi fólki við vamir gegn innflutningi fíkniefna. Stóm fíkniefhasendingarnar tU landsins fara um hend- ur toUgæzlunnar, yfirleitt í Reykjavík eða á Keflavíkur- flugveUi. Af því að sambandið við útlönd verður annað hvort að vera á sjó eða í lofti, á að vera hægt að hafa strangt eftirUt á hinum fáu innflutningspunktum. En fyrst þarf að ryðja þeim frá, sem standa í vegi þess, að eyja í miðju Atlantshafi geti notið þeirra fíkniefiia- vama, sem landfræðUegar kringumstæður leyfa. Jónas Krisfjánsson i * nfíi £SHi tMiXA T03i i ■ ■ ■ 6134 ii „Það virðist þannig t.d. augijóst að eigendur smábáta með 86 vinnudaga á ári eiga skaðabótakröfu vegna slíkr- ar mismununar þegar aðrar greinar fiskveiða hafa fuilan aðgang að veiðunum alit árið.“ Fögnuðurinn í fiskiráðuneytinu Hvorugkynsorðið flski í merk- ingunni fiskveiði og verkun fisks er gamalt og gilt í íslensku, sbr. d. fiskeri, e. fishing. Einhver bögu- bósi hefir gert ónefnið sjávarút- vegur og samsetningarnar sjávar- útvegsmálaráðuneyti, sjávarút- vegsmálaráðherra o.s.frv., sem er ónothæf íslenska og menn hafa síðan búið við alltof lengi. Það leynir sér ekki, að mikill fögnuður hefir ríkt í fiskiráðu- neytinu að undanförnu. Gleðiefnið er það að þeim hefir tekist að halda smábátaflotanum í höfn nú samfellt í tvo mánuði, bæði desem- ber og janúar, í sjaldgæflega góðu veðri og ágætum þorskafla. Fiski- ráðuneytið hefir komið því í kring, með aðstoð taglhnýtinga á Alþingi, að smábátar mega nú róa til fiskjar í 86 daga ársins, þ.e. þeir mega fara á sjó á eigin skipum og fyrir eigin kostnað að meðaltali einn og hálfan dag í viku. Lítil samstaða hefir verið með eigend- um eða forystumönnum smábá- taflotans og hafa þeir fram til þessa látið þetta yfir sig ganga þótt það gangi þvert á rétt allra íslend- inga til veiða í fiskilögsögu lands- ins frá upphafi byggðar hér. Nú hefir örlað smávegis fyrir andófi hjá þessum aðilum og hefir það leitt til þess að fiskiráðherrann hefir sent aðstoðarmann sinn í sjónvarp til að segja fólki að fiski- ráðuneytið hafi sýnt þessu vand- ræðafólki þá náð og miskunn að reglugerðum verði nú breytt þannig að það skuli ekki teljast róðrardagur þegar smábátur snýr til lands vegna bilunar eða veðurs. Fiskiráðuneyti eða vinnu- veitendasamband? Það fer vart á milli mála að stefna fiskiráðuneytisins hefir ver- Kjallarinn fyrrv. forstjóri Olís ið að byggja upp stóran djúpveiöi- flota og að unnið hefir verið mark- visst að þessu allt kvótatímabilið síðan 1984. Fiskiráðuneytið er þannig bert að því að mismuna veiðiaðferðum og útgerðarmönn- um innan fiskveiðanna og láta það viðgangast að veiðin safnist á fárra manna hendur. Þetta gengur þvert á eðlilega stefnu slíks stjórn- valds sem ber að sýna hlutleysi og ekki gera einum í vil á kostnað annars. Hlutverk ráðherra, sem ber að vera eins og góður heimilis- faðir allra, er þannig allt annað en forstjóra vinnuveitendasambands sem leitast við að tryggja hag um- bjóðenda sinna sem best. Þróun undanfarinna ára sýnir að fiski- ráðuneytið hefir ekki komið fram af hlutleysi í stjórnun veiðanna og að þetta stefnir nú í algert stjórn- leysi því að gera verður ráð fyrir að aðrar greinar fiskveiða muni ekki lengur sætta sig við slíka mismunun. Það virðist þannig t.d. augljóst að eigendur smábáta með 86 vinnudaga á ári eiga skaðabóta- kröfu vegna slíkrar mismununar þegar aðrar greinar fiskveiða hafa fullan aðgang að veiðunum allt árið. Smábátaeigendur eiga ekki að sætta sig við þessa ofbeldisað- gerðir fiskiráðuneytisins. Samanburður við danskar fiskveiðar Danir veiða að jafnaði meira en tvöfalt meira af fiski árlega en ís- lendingar eða um 3,5 milljónir tonna. Engum dönskum fiskiráð- herra myndi koma tU hugar að ráðast gegn danska smábátaflotan- um í því skyni að auka veiðar djúpveiðiskipa. Slíkt myndi teljast augljós árás á hagsmuni hinna smáu. Þegar aðstoðarmaður fiski- ráðherrans hér gerir opinberlega í sjónvarpi kröfu til fækkunar um 300 skip í smábátaflotanum, þ.e. úr um 1100 í 800 báta, en minnkun kvótans gangi til djúpveiðiflotans innan fiskilögsögunnar, þá er kominn tími tU að talsmenn smá- bátanna svari fyrir sig. Önundur Ásgeirsson „Engum dönskum ráðherra myndi koma til hugar að ráðast gegn danska smábáta- flotanum í því skyni að auka veiðar djúp- veiðiskipa.“ Skoðanir annarra Dýrir flutningar „Byggingin við Efstaieiti hefur lengi verið um- deild og ótrúlegt er til þess aö hugsa, að upphaflega hafi hún einungis verið ætluð fyrir Rás 1 og áform verið um að byggja tvær áþekkar byggingar til að hýsa Ríkissjónvarpið, að þvi er núverandi formaður útvarpsráðs hefur upplýst. Um 800 miUjónir hafa runnið tU sjónvarpshlutans og skiptar skoðanir eru um hversu vel sú bygging hentar nútíma sjónvarps- rekstri. Að minnsta kosti er ljóst að verja verður hundruðum mUljóna króna í frágang á húsinu áður en hægt veröur að flytja starfsemi Ríkissjónvarpsins þangað." Úr forystugrein Morgunblaðsins 6. febrúar. Veiðileyfagjald „Umræðan um veiðUeyfagjald er ruglingsleg, einkum tenging þess við eignarrétt á auðlindinni og stjórnunarkerfi fiskveiða. Skoðanakannanir um þetta mál, eins og þaö hefur verið lagt upp, eru einn- ig vafasamar og varast ber að draga af þeim of algUd- ar ályktanir. Umræðan um veiðUeyfagjald á að fara fram á réttum forsendum. Þær forsendur eru hvort rétt sé að leggja skatt á sjávarútveginn umfram það sem nú er og veiðiheimUdir séu grunnurinn fyrir skattlagningunni." Úr forystugrein Tímans 6. febrúar. Viðtal við Davíð „Alþýðublaðið átti á föstudag ítarlegt viðtal við Davíð Oddsson. Þar var hann við sama heygarðs- hornið og vUdi hvorki segja af né á um möguleika á forsetaframboði. Skýringarnar sem Davíð gaf eru einkar athyglisverðar. Hann sagði að kosningabar- átta ætti bara að standa í mánuð, annað væri óþarfi. í annan stað segir Davíð Oddsson að sér finnist dónaskapur gagnvart embættinu að útiloka fram- boð! Þetta lýsir vægast sagt mjög undarlegum skiln- ingi Davíðs Oddssonar á sjálfum sér og forsetaemb- ættinu.“ Úr forystugrein Alþýðublaðsins 6. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.