Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Síða 21
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
33
Menning
Dýrslegt eðli í
M.H. og Verzló
Um þessar mundir birtist hér og þar um landið af-
raksturinn af óhemju puði nemenda framhaldsskól-
anna, sem allt frá því í haust hafa glímt við galdur
leikhússins.
Verkefnin eru margvísleg og mismikið í lagt, en það
er óhætt að fullyrða að öll þessi vinna kemur þátttak-
endum til nokkurs þroska, ekkert síður en hefðbund-
inn skólabókalestur.
Um helgina sá ég tvær sýningar framhaldsskóla í
Reykjavík, M.H. og Verzlunarskólans. Svo skemmti-
lega vill til að í báðum sýningunum spila dýrin, stór
og smá, mikla rullu og textarnir eru byggðir á þekkt-
um bókmenntaverkum, þó uppsetningamar séu harla
ólíkar að flestu öðru leyti.
Báðir skólarnir frumflytja verk sem ekki hafa verið
áöur sýnd hér á landi.
Glæsikötturinn Gyða Rún
og allir hinir Týkettirnir í Verzló
Nemendur Verslunaskóla íslands sýna um þessar
mundir hinn vinsæla söngleik Cats eftir Andrew Lloyd
Webber.
Söngleikinn Cats er varla þörf að kynna. Hann var
frumfluttur 1981 og telst nokkurn veginn vinsælasti
söngleikur allra tíma, þó að hann hafl ekki ratað upp
á leiksvið hér á landi fyrr en nú, er V.í. flytur valin at-
riöi úr honum.
Tónlist Andrews Lloyds Webbers er löngu alþekkt,
en hitt vita ef til vill færri að textinn er byggður á ljóð-
um T.S. Eliots, þar sem hann lýsir á óborganlegan hátt
persónugerðum kattanna og samfélagi þeirra. Það þarf
ekki mikið hugmyndaflug til að draga líkingar á milli
sögunnar og þess sem við þekkjum úr mannheimum.
Æðstur Týkatta er hinn aldni Suðurlandsgoði sem
allir virða. Hann er vitur og vill frið og eindrægni
meðal ræsiskattanna. En eins og alls staðar leynast
miður þokkalegir og útsmognir einstaklingar inn á
milli auk þess sem sumir hafa orðið undir í lífinu, eins
og fyrrum glæsikötturinn Gyða Rún, sem Valgerður
Guðnadóttir leikur.
Frægasta lagið í verkinu (Memories) er einmitt
hennar og kemur ekki á óvart þeim sem fylgst hafa
með Valgerði á sviði, að hún syngur það með glæsi-
brag. En fleiri standa sig með ágætum í dansi og söng,
Þórunn, Kjartan Örn, Bjartmar, Árni, Hildur Pála og
Georg, svo einhver séu nefnd.
Það er í senn ánægjulegt og ótrúlegt að sjá hæfileika
og fæmi þessa unga fólks. Sýningin einkennist af
æskufjöri og orku, sem leikstjórinn hefur agað án þess
að slá um of á ferskleikann.
Förðun og búningahönnun er geysilegt verk og vel
unnið.
Tónlistarstjórn er í ömggum fagmannshöndum Þor-
valds B. Þorvaldssonar, sem tekur nú í fjórða sinn þátt
í uppsetningu hjá V.í. og sýningin er skemmtilega
hönnuð inn í rými Loftkastalans.
Hópatriði og sólódansar fara í raun fram úr því sem
hægt er að búast við af amatörum og ekki er ólíklegt
að einhverjir úr hópnum eigi framtíð fyrir sér á söng-
eða danssviði.
Nemendamótsnefnd Verzlunarskóla íslands sýnir í
Loftkastalanum:
Cats
Höfundur laga: Andrew Lloyd Webber
Textar byggðir á Ijóðum T.S. Eliot úr bókinni „Old Poss-
um's Book of Practical Cats"
Þýðing: Magnea Matthíasdóttir
Tónlistarstjórn: Þorvaldur B. Þorvaldsson
Hljómsveit: Tweety
Danshöfundar: Selma og Birna Björnsdætur
Leikstjóri: Ari Matthíasson
Svínin taka stjórnina í Dýrabæ
Leikfélag M.H. ræðst ekki heldur á garðinn þar sem
hann er lægstur.
Þau setja á svið leikgerð Peters Halls á margfrægri
skáldsögu Georges Orwells, Animal Farm, eða Dýra-
bæ, sem fyrst kom út árið 1945.
Á dögum stalínismans og kalda stríðsins virkaði
þessi skáldsaga eins og spréngja framan í sanntrúaða,
því að Orwell var jú einn úr þeirra hópi, hafði tekið
þátt í borgarastyrjöldinni á Spáni og hvaðeina.
í sögunni lýsir höfundur á sinn makalausa hátt
hvernig dýrin á Miklabæ undir forystu svínanna
hrekja manninn (arðræningjann) frá völdum og taka
við stjórn. En þrátt fyrir háleitar hugsjónir fer bylting-
in á allt annan veg en ætlað var og verkalýðurinn sit-
ur uppi með nýjan harðstjóra engu skárri en þann sem
fyrir var.
Leiklist
Auður Eydal
Andrés Sigurvinsson (leikstjóri) og Lára Stefáns-
dóttir (hreyflngahönnuður) leiða sviðsetninguna og
skapa einstaklega kostulegt samfélag dýranna á bæn-
um. Hver dýrahópur hefur sínar einkennishreyfingar,
hátterni þeirra er skemmtilega útfært og gervin gerð
af hugkvæmni.
Það er ekki síður ánægjulegt að sjá vinnubrögðin í
þessari sýningu en hjá Verzló, hópúrvinnslan er vönd-
uð og einstakir leikendur standa sig vel, þó að mest
mæði á þeim Ragnari Frey Ingvarssyni, Birni Thors,
Kristjáni Guðjónssyni og Hauki Halldórssyni.
Lifandi tónlistin er flutt af ágætri hljómsveit á svið-
inu og tæknivinna var góð.
Leikfélag M.H. sýnir í Tjarnarbæ:
DÝRABÆR (Animal Farm)
Höfundur skáldsögu: George Orwell
Leikgerð: Peter Hall
Tónlist: Richard Peaslee
ísi. þýðing: Melkorka Tekla Ólafsdóttir
Þýðing söngtexta: Kristján Þ. Hrafnsson
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson
Hreyfingahönnuður: Lára Stefánsdóttir
Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson
Frá uppfærslu nemenda við Menntaskólann í Hamrahlíð á Dýrabæ.
DV
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ:
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Föst. 9/2, fáein sæti laus, lau 10/2,
fáein sæti laus, lau. 17/2.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Laugard. 10/2., fáein sæti laus, sun.
18/2, uppselt, sun. 25/2, fáeln sæti
laus.
STÓRA SVIÐ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fimmt. 8/2, fösd. 16/2, aukasýningar.
Þú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavikur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviöi kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Föst. 9/2, uppselt, lau. 10/2, uppselt,
aukasýning fld. 15/2, föd. 16/2, uppselt,
laud. 17/2, uppselt, aukasýning
fimmtud. 22/2.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Fimmtud. 8/2, uppselt, 30. sýn. laud.
10/2 kl. 23.00, fáein sætl laus, föst.
16/2, örfá sæti laus, lau 17/2 kl. 23.00,
fáeln sæti laus.
Tónleikaröð L.R.
Á STÓRA SVIÐI
Þriðjud. 13. feb.
Stórsveit Reykjavíkur ásamt
söngkonum. Miðaverð kr. 1.000.
Fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og
Linu-púsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum I síma
568-8000 alia virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Bæjarleikhúsið
Mosfellsbæ
LEIKFÉLAC
MOSFELLSSVEITAR
sýnir
gamanleikinn
Deleríum Búbónis
eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni
í Bæjarleikhúsinu.
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Flmmtudaglnn 8. febr.
Föstudaglnn 9. febr.
Laugardaglnn 10. febr.
Föstudaginn 16. febr.
Sunnudaglnn 18. febr.
Föstudaginn 23. febr.
Sunnudaglnn 25. febrúar.
Miðaverð kr. 1200.
Miðapantanir í síma 566 7788
allan sólarhringinn.
Miðasala í leikhúsi frá kl. 17
sýningardaga.
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
I kvöld, uppselt Id. 10/2, uppselt, fid.
15/2, uppselt, föd. 16/2, uppselt, fid.
22/2, uppselt, Id. 24/2, uppselt, fid.
29/2, nokkur sæti laus.
GLERBROT
eftir Arthur Miller
Sud. 11/2, Id. 17/2, sud. 25/2.
DONJUAN
eftir Moliére
Á morgun, sun. 18/2, föd. 23/2.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 10/2, uppselt, sd. 11/2, uppseit, Id.
17/2, uppselt, sud. 18/2, uppselt, Id.
24/2, nokkur sæti laus, sud. 25/2,
uppselt.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30:
KIRKJUGARÐSKLÚBBURNN
Á morgun, uppselt, sud. 11/2, uppselt,
Id. 17/2, uppselt, sud. 18/2, nokkur
sæti laus, mvd. 21/2, laus sæti, föd.
23/2, uppselt, sud. 25/2, uppselt.
Athugið að ekki er hægt aö hleypa
gestum Inn í salinn eftir að sýning
hefst.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.00:
Leigjandinn
eftir Simon Burke
9. sýn. á morgun, föd., nokkur sæti
laus, sud. 11/2, Id. 17/2, sud. 18/2, föd.
23/2, sud. 25/2.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
ÁSTARBRÉF
með sunnudagskaffinu.
kl. 15.00 í Leikhúskjallaranum.
Cjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími
skrifstofu 551 1204.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSID!
ÍSLENSKA ÓPERAN
b=!im Sími 551-1475
MADAMA BUTTERFLY
eftir Giacomo Puccini
Fös. 9/2 kl. 20, næstsíðasta sýning,
sun. 11/2 kl. 20, síðasta sýning.
HANS OG GRÉTA
eftir Engilbert Humperdinck
Sun. 11/2 kl. 15.00, síðasta sýning.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga fra kl. 15-19, laugar-
daga og sunnudaga kl. 13-19 og
sýningarkvöld er opið til kl. 20.
SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Tilkynningar
Félag kennara á eftirlaunum
Spila- og skemmtifundur verður í
Kennarahúsinu við Laufásveg laug-
ardaginn 10. febrúar kl. 14.00.
Tsapaév í bíósal MÍR
Sunnudagjnn 11. febrúar kl. 16
veröur rúmlega 60 ára gömul sovésk
kvikmynd sýnd í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 19. Þetta er myndin „Tsapaév"
frá árinu 1934. Aðgangur er öllum
heimill og ókeypis.
Tilkynningar
Tapað fundið
Tapast hafa svartir útprjónaðir
fingravettlingar með hvítri átta
blaða rós. Nafnið Hanna er prjónaö
í stroffið ásamt ártalinu 1993. Vins-
aml. hringið í síma 554-3482 e. kl. 17.
Jóhanna.
GSE1‘
Viðskiptatengsl - GSMÍhlutir
Borgartúni 29 Sími/Fax 552 6575
hleðslutæki
fjölbreyttasta úrval landsins
^ISPINE -The Art ofPower Meiri orkai-Aukin ending!-(jœði í fyrirrúmi!