Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996
9
Utlönd
Dole öruggur
um útnefningu
Hinn hægrisinnaði Pat Buchanan
játaði ósigur sinn í slagnum við Boh
Dole um útnefningu Repúblikana-
flokksins til forsetaembættisins í
nótt, eftir að Dole hafði unnið yfir-
burðasigur í Kaliforníu, Was-
hington og Nevada. Með sigri í rikj-
unum þremur hefur Dole tryggt sér
stuðning þeirra 996 fulltrúa sem
þarf til að hljóta útnefningu. Löngu
var orðið ljóst hvert stefndi. Þó Buc-
hanan hafi hrósað sigri í New
Hampshire ríki í upphafi kosning-
abaráttunnar hefur Dole haft sigur í
öðrum ríkjum. Þetta er í þriðja sinn
sem Dole berst um útnefningu
Repúblikanaflokksins, en hann
hafði áður tapað í þeim slag árin
1980 og 1988.
Buchanan tók ósigrinum vel og
óskaði Dole til hamingju með út-
nefninguna. Bob Dole er elsti maður
sem nokkurn tímann hefur boðið
sig fram í embætti Bandaríkjafor-
seta, 72 ára gamall. Hann er 23 árum
eldri en Bill Clinton og margir telja
að það veiki mjög stöðu hans í bar-
áttunni.
Aldursmunurinn veldur repúblik-
önum nokkrum áhyggjum og marg-
ir þeirra sem styðja hann hafa ekki
mikla trú á að hann muni sigra í
baráttunni við Clinton. Skoðana-
könnun meðal þeirra sem studdu
Dole í Kaliforníu bendir til þess að
52% þeirra telji Dole fremur hug-
myndasnauðan stjórnmálamann og
45% hefðu heldur kosið að hafa ann-
an fulltrúa til að etja kappi við Clin-
ton. Aðrar skoðanakannanir i Kali-
forníu benda til þess að Clinton hafi
20% forskot á Dole. Reuter
Oldungadeildarþingmaðurinn Bob Dole fagnar sigri sínum í forkosningum repúblikana í Kaliforníu en hann var þá
staddur á stuðningsmannafundi í Washingtonborg. Dole lýsti því yfir að hann hefði nú tryggt sér tilnefningu sem for-
setaefni Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum. Símamynd Reuter
,Morðiö á Olof Palme enn á síðum sænskra dagblaða:
Gefíð í skyn að Svíinn sem
sýknaður var sé hinn seki
Fjölmiðlar í Svíþjóð gáfu enn í
skyn í gær að Svíinn sem sýknaður
var af ákærum um að hafa myrt
Olof Palme, fyrrrnn forsætisráð-
herra, fyrir 10 árum væri hinn
seki. Sænska sjónvarpið sagðist
hafa haft samband við tvo aðila
sem sögðu að Christer Pettersson,
nú 48 ára gamall, hefði sagt þeim
að hann hefði skotið Olof Palme á
götu í febrúarlok 1986, þegar sá síð-
amefndi var á leið heim úr bíói
ásamt konu sinni.
Sænsk dagblöð tóku síðan upp
þráðinn i gær og endurtóku ásak-
anir sínar á hendur Pettersson.
Hann var sýknaður fyrir áfrýjunar-
dómi en áður hafði undirréttur
dæmt hann sekan rnn ódæðið. Pett-
ersson, sem sagðist saklaus af
morðinu á Palme, hefur ekki gefið
færi á viðtali vegna fréttanna.
Pettersson var sýknaður þar sem
traust sönnunargögn vantaði og
rétturinn taldi að Lisbet, eiginkona
Palme, sem þekkti hann sem morð-
ingjann, hefði farið mannavillt.
Vangaveltur um þátt Petterssons
í morðinu hófust á ný í síðasta
mánuði þegar deyjandi klúbbeig-
andi játaði að hafa látið Pettersson
hafa byssu rétt fyrir morðið. Það
var sams konar byssa og talið er að
hafi orðið Palme að bana. Hún hef-
ur ekki fundist.
Reuter
Flest morð í Kólumbíu
Nefnd bandarískra lögmanna
hefur krafist nánara eftirlits Sam-
einuðu þjóðanna með mannrétt-
indaástandinu í Kólumbíu en þar
sé hæsta morðtíðni í heiminum.
Kólumbía hefur notið þess vafa-
sama heiðurs síðastliðin fimm ár
að vera það land heims þar sem
Qest morð eru framin. Á árunum
1988-1995 voru að jafnaði 76 morð
framin árlega á hverja 100 þúsund
íbúa. Reuter
SAMTÖK GEGN ASTMA OG OFNÆMI
OFNÆMI
Davíð Gíslason læknir flytur erindi um tíðni of-
næmis á íslandi á fræðslufundi Astma- og of-
næmisfélagsins í Múlabæ, Ármúla 34 III hæð
fimmtudaginn 28. mars kl. 20.30.
Kaffiveitingar - allir velkomnir
STJÓRNIN
NÝI ÖKUSKÓLINN
KLETTAGÖRÐUM 11 SUNDAHÖFN
Námskeið til aukinna atvinnumöguleika
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
Kvöld- og helgarnámskeið hefst nk. fimmtudag
28. mars, kl. 17.30. Veitir öll réttindi á vinnuvélar.
MÆLINGANÁMSKEIÐ
Grunnnámskeið í landmælingum, 13. og 14. apríl.
AUKIN ÖKURÉTTINDI
Vörubíll, leigubíll, rúta, helgarnámskeið hefst 19. apríl.
UPPLYSINGAR
í SÍMUM
588 4500
80
Gildir aðeins í 3 dana.
Frábært
tilboð
Vegna fjölda
eftirspurna tókst
okkur að útvega aðra
sendingu afhinum
vinsælu Undrabijósta-
höldurum.
Ég Og PÚ
Laugavegi 66 ♦ Sími 551 2211
Starlite CD-105
Ferðageislaspilari með Ferðageislaspilari m/útvarpi
heyrnartólum, straumbreyti o.fl. og kassettutæki.
Verð kr. 13.900 stgr. Verð kr. 14.989 stgr.
. <***. B R Æ D U R N I R
H (m ORMSSON HF
” Lágmúla 8, s. 553 8820
Lenco PPS 2024
1 disks geislaspilari, útvarp með 20
stöðva minni, segulband, fjarstýring
með öllum aðgerðum, 200 W pmpo.
Verð aðeins kr. 29.900
ONWA Mini 3248
Hljómtækjasamstæða með útvarpi,
magnara. tvöföldu kassettutæki,
geislaspilara, stöðvaminni í útvarpi,
fullkominni fjarstýringu og plötuspilara.
Kr. 31.887 stgr.
Midi Denver MC88
1 disks geislaspilari, útvarp og
segulband.
Verð Kr. 14.996 stgr.