Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Fréttir 13 „Landsins forni Qandi“ nálgast: Iskyggilega nærri og nálgast enn - full ástæða til að vara skipstjómendur við, segir Þór Jakobsson veðurfræðingur „Hafísinn er ískyggilega nærri landi og vegna þess aö vindáttir hafa verið og verða sennilega áfram mjög óhagstæðar - vestlægar og norðvestlægar. Það er því full ástæða til að vara skip við á sigl- ingaleiðum norður með Vestfjörð- um og fyrir Horn,“ segir Þór Jak- ohsson veðurfræðingur. Veðurspá út þessa viku gerir ráð fyrir áfram- haldandi stöðugri vest- og norðvest- lægri vindátt sem mun halda áfram að hrekja ísinn nær landi. Landhelgisgæslan sendi í fyrra- dag flugvélina SYN í ískönnunar- flug yfir Dohrnbanka og norður fyr- ir Vestfirði. Meginísinn var næst landi 18 sjómílur norðvestur af Barða, 22 sjómílur norðvestur af Straumnesi og 17 sjómílur norðaust- ur af Horni. Þá var íshrafl allviða út frá meginísnum og næst landi var það um 15 sjómílur frá landi. Þá var um fjögurra sjómílna langur og 0,5 sjómílna breiður ísfláki um fimm sjómílur út af Gelti. Þéttleiki ísjað- arins reyndist víðast hvar vera 1-2/10 næst brúninni en 4-6/10 inn- an hennar. Þór segir það fullsnemmt að spá um hvort hætta sé á að ísinn verði landfastur á Vestfjörðum. Hins veg- ar séu stakir jakar þegar komnir mjög nærri og alls ekki útilokað að þá taki að reka á land og ýmislegt getur borist með þeim eins og dæm- in sanna, þar á meðal hvítabirnir. „Það er spáð hægum áttum fram yfir helgi, en þær eru mjög óhag- stæðar þannig að ísinn rekur jafnt og þétt nær.“ Þór Jakobsson vill að lokum beina því til skipstjómenda á siglingu út af Vestfjörðum að senda Veðurstofunni upplýsingar um haf- ísinn. -SÁ Wýip varahlutir Rosuklemmur • Vatnshosur • Tímareimar og strekkjarar • Bensíndælur • Bensínlok • Bensínslöngur • Álbarkar • Kúplingsbarkar og undirvagns- gormar. ...í bifreiðina þína Við erum aðalumboðsaðilar fyrir bifreiðavara- hlutina TRIDON Skandinavia A/S. Varahlutir sem við erum stolt af. Markvisst þjónum við ykkur enn betur! BRÆÐURNIR Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807 BOSCH verslunin, aðkeyrsla frá Háaleltlsbraut TRIDON^- Söluaðilar: GH verkstæðið, Borgarnesi. Þórshamar, Akureyri. Víkingur, Egilsstöðum. Vélsmiðja Homatjarðar, Hornafirði. Tígri stendur í stórræðum: Frá heimsókn krakk- anna í Leikgarði á DV. DV-myndir BG Leikskólakrakkar heimsækja DV Krakkar úr leikskólanum Leik- garði í Reykjavík komu í heimsókn á DV nú í vikunni. Tígri, lukkudýr krakkaklúbbsins, kom og heilsaði upp á krakkana og sungu þeir sam- an fyrir ljósmyndara og blaðamenn blaðsins. Krakkarnir eru um þessar mundir að heimsækja fyrirtæki og skoða samfélagið í nærmynd. Tígri, lukkudýr krakkaklúbbsins, stendur í stórræðum þessa dagana. Nú í vikunni er að hefjast Smásagn- asamkeppnin Tígripenninn ’96. Við- fangsefni samkeppninnar að þessu sinni er Tigri í umferðinni. Hann er núna að læra umferðarreglurnar, hvernig fara á yfir götu og hvernig útbúa á reiðhjólið fyrir vorið. I sögu, sem ekki á að vera lengri en 3 síður, eiga krakkar á aldrinum 6-12 ára að skrifa um Tígra og æv- intýri hans í umferðinni. Allir krakkar sem senda inn sögu fá tei- naglit á reiðhjólið. Valdar verða sið- an 50 sögur sem gefnar verða út i einni bók, Tígrabókinni. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um sam- keppnina geta haft samband við Krakkabklúbb DV í sima 550-5000. Síðasti skiladagur er 6. maí. Hægt er að senda sögurnar til Krakkakl- úbbs DV, Þverholti 14,105 Reykjavík. Pátlía*flfl)apofiyr mi WS0 Pátkcwggjapottur 96 i m m Hringdu í síma 904 1750 og taktu þátt í skemmtilegum leik með Sparihefti heimilanna. 300 heppnir þátttakendur sem svara réttþremurspurningumúrtlrf sparihefti heimilanna fá gómsœtt páskaegg frá Nóa JL - Síríusi í verðlaun. SparihefH heimilanna Nöfn vinningshafa verða birt í DV miðvikudaginn 3. apríl. Páskaeggin verða afhent á 4. hœð í Perlunni laugardaginn 6. apríl, frá klukkan 14-17. Vinningshafar eru beðnir að hafa persónuskilríki meðferðis þegar eggin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.