Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1996, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1996
IÞROTTIR
Getraunir:
Enski boltinn
1?1 211 11x2221
Italski boltinn
x211121x1 xx1x
Lottó 5/38:
10 14 17 25 26 (4)
iíifiii/iíiíi/iíiii/iiiiiiiiiiiiiifi
'
Œfg ÍSlANDSMEIhTAHAH
6*f«n4!
Gullverðlaun á Ítalíu:
Ólafur
tryggði
íslandi
sigurinn
- og var kjörinn maður mótsins
Belgía og Rúmenía og þá voru
þarna lið Japans, Marokkó og
Chile.
Sextán þjóðir tóku þátt í mót-
inu og léku í fjórum riðlum. ís-
land sigraði í sínum riðli, tapaði
reyndar fyrst 2-1 fyrirSviss en
vann síðan Tyrkland, 4-1, og
Noreg, 3-0.
Á laugardaginn vann ísland
sigur á Ungverjalandi, 3-1, í und-
anúrslitum mótsins. Edilon
Hreinsson, ívar Ingimarsson og
Haukur Hauksson skoruðu
mörkin en staðan var 1-1 í hálf-
leik.
Þorbjörn markakóngur og
vakti mikla athygli
Þorbjörn Atli Sveinsson úr
Eram varð markakóngur móts-
ins en hann gerði 5 mörk fyrir ís-
lenska liðið. Þorbirni var hrósað
mikið fyrir frammistöðu sína og
íþróttafréttamaður ítalska sjón-
varpsins sagði í lýsingu sinni á
leiknum í gær að hann gæti hæg-
lega leikið í ítölsku 1. deildinni.
Mikið af útsendurum erlendra fé-
laga fylgjast jafnan með þessu ár-
lega móti og eflaust hafa Þor-
björn og fleiri leikmenn íslenska
liðsins vakið athygli þeirra.
-VS
ísland sigraði Slóvakíu, 4-3, í
úrslitaleik á alþjóðlegu knatt-
spyrnumóti unglingalandsliða á
Ítalíu í gær. Ekkert mark var
Iskorað í venjulegum leiktíma eða
í framlengingu en úrslitin réðust
í vítaspymukeppni.
Ólaáir Gunnarsson, markvörð-
ur úr ÍR, var hetja íslenska liðs-
ins í gær. Á síðustu sekúndu
framlengingarinnar forðaði hann
íslenska liðinu frá tapi með því
að verja frá sóknarmanni
Slóvaka sem var kominn einn
upp að markinu. í vítaspymu-
keppninni varði síðan Ólafur
tvær spymur, þá fyrstu og þá síð-
ustu. Eftir leikinn var Ólafur síð-
an útnefndur besti leikmaður
mótsins.
Það voru Valur F. Gíslason,
Arnar Viðarsson, Jóhann B.
Guðmundsson og Sigurður Elí
Haraldsson sem skoruðu fyrir ís-
land í vítaspyrnukeppninni en
Heiðar Sigurjónsson nýtti ekki
sina spymu.
Þetta er einhver glæsilegasti
árangur sem ísland hefur náð i
knattspyrnunni frá upphafi en
mótið var mjög sterkt og margar
'% af fremstu knattspyrnuþjóðum
Evrópu voru á meðal þátttak-
Ítalía, Spánn,
enda, svo sem
Eiður átti stór-
leik gegn Ajax
Eiður Smári Guðjohnsen átti
stórleik með PSV Eindhoven í gær
þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, við
Evrópumeistara Ajax í toppslag hol-
lensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu.
Eiður kom inn á sem varamaður
á 50. mínútu og lét fljótlega til sín
taka. Hann lagði upp besta færi PSV
í seinni hálfleik fyrir Luc Nilis og
var tvívegis nærri því að skora
sjálfur. Það var Nilis sem kom PSV
yfir á 41. mínútu en Hoekstra jafn-
aði fyrir Ajax á þeirri 53.
Eiður, Nilis og Jan Wouters vom
bestu menn PSV í leiknum. Þulur
sjónvarpsstöðvarinnar Supersport,
sem sýndi leikinn beint, sagði að
Eiður væri eitt mesta efni sem kom-
ið hefði fram í hollensku knatt-
spyrnunni og þessi 17 ára piltur
væri hreint ótrúlega góður.
Stigið var ákaflega mikilvægt fyr-
ir Ajax sem heldur fimm stiga for-
ystu i deildinni en staðan er á bls.
29. -DÓ/VS
Einar áfram með Aftureldingu
Einar Þorvarðarson mun þjálfa áfram lið Aftureldingar úr Mosfellsbæ
á næsta keppnistímabili og var gengið frá því um helgina. Að sögn
Jóhanns Guðjónssonar, formanns handknattleiksdeildar Aftureldingar,
er mjög liklegt leikmannahópurinn verði lítið breyttur og reynt verður
að styrkja hann. Sá eini sem er óvíst um er Róbert Sighvatsson,
línumaðurinn öflugi, en þýska 2. deildarliðið Fredenbeck hefur borið
víumar í hann og ætlar Róbert að kanna málið frekar. -GH
r