Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Fréttir Snubbóttur endir á tónlistarnámi 18 ára íslendings í Noregi: Rekinn úr landi fýrir að reykja hass í skólanum - rektorinn hefur sagt af sér vegna ástandsins í skólanum Ungur íslendingur slapp með væga sekt en var rekinn úr skóla og úr landi í Noregi fyrir að reykja hass í skólanum þar sem hann var við tónlistamám. íslendingurinn er nú kominn heim og til vinnu í heimabyggð sinni. Hann fær ekki að koma til Noregs næstu tvö árin. íslendingurinn er 18 ára gamall og var hann við nám í lýðhá- skólanum í Holtekilen skammt frá Ósló I vetur. í skólanum eru aðeins um 40 nemendur og voru fimm þeirra reknir fyrir að neyta eitur- lyQa. Lögreglan réðst til inngöngu í skólann föstudagskvöld nokkurt í mars og lagði þá hald á 3 grömm af hassi og ýmis tæki tU neyslunnar. Þrír nemendur á tónlistarbraut voru handteknir og þeir síðan rekn- ir úr skólanum fyrir að eiga og neyta efnanna. Tveir nemendur voru síðar einnig reknir fyrir sömu sakir. Skömmu eftir brottreksturinn úr skólanum var íslendingurinn aftur handtekinn og nú að kröfu útlend- ingaeftirlitsins í Noregi. Þrátt fyrir mótmæli lögfræöings hans var hon- um vísað úr landi og hann fluttur þann 14. mars út á Fomebuflugvöll og um borð í Flugleiðavél á leið til íslands. Norsk lög heimUa svo harkalegar aðgerðir við brotum á fíkniefnalög- gjöfínni. Þeim mun þó ekki oft beitt. Aðrir nemendur við skólann sleppa með 20 þúsund íslenskar krónur í sekt. Mál þetta vakti nokkra athygli í Noregi, einkum vegna brottvísunar- innar og eins þess að fíkniefna- neyslan kom upp í skóla sem trúfé- lag baptista rekur. Voru uppi sögu- sagnir um að í skólanum væri fíkni- efnanotkun útbreidd og fór svo í síð- ustu viku að rektorinn, Knut Duesund, sagði af sér. íslendingurinn, sem hér um ræð- ir, vildi ekki ræða mál sitt við DV. -GK Stuðningur við forsetaefni eftir stjórnmálaflokkum: Fýlgi Olafs Ragnars kemur úr öllum áttum - bláleitt fylgi Péturs og Guðrúnar P. Ólafur Ragnar Grímsson hefur stuðning úr öllum stjórnmálaflokk- um sem næsti forseti íslands. Mest er fylgið úr Sjálfstæðisflokki, Fram- sóknarflokki og Alþýðubandalagi en ópólitískir kjósendur eru fjölmennir í stuðningsmannahópi Ólafs. Þetta má m.a. lesa úr nýrri skoðanakönn- un DV um fylgi við forsetaframbjóð- endur sem birtist í blaðinu á mið- vikudag. Sem kunnugt er varð Ólaf- ur Ragnar langefstur með 61% fylgi þeirra sem tóku afstöðu, fjórfalt meira fylgi en næsti frambjóðandi. Tekið skal fram að þessi greining er meira til gamans gerð. Frekar skal líta á þessar niðurstöður sem vís- bendingu, sérstaklega hvað Ólaf Ragnar varðar vegna mikils fylgis við hann. Þrír fjórðu úrtaksins tók afstöðu í könnuninni sem er besta svörun frá því forsetakannanir hóf- ust í haust. Þegar fylgi fjögurra vinsælustu forsetaefnanna er skoðað eftir stjórnmálaflokkum kemur fljótlega í ljós að stuðningsmenn Guðrúnar Pétursdóttur og Péturs Kr. Hafstein koma einkum úr Sjálfstæðisflokkn- um. Stuðningsmenn Guðrúnar eru næstflestir óákveðnir í stjórnmálum og þar á eftir koma stuðningsmenn Alþýðuflokksins, ef marka má könnunina. Bláleitast er fylgi Péturs eða 57 prósent úr Sjálfstæðisflokknum. Næst koma óákveðnir og framsókn- armenn. Minnst er að marka flokka- skiptingu stuðningsmanna Guðrún- ar Agnarsdóttur sökum lítils fylgis við framboð hennar. Stuðningur úr Kvennalistanum kemur þó í ljós og óákveðnir kjósendur í pólitík virð- ast fjölmennir með Guðrúnu. Fylgisskipting eftir flokkum sést nánar á meðfylgjandi grafi. Sem kunnugt er stendur A fyrir Alþýðu- flokk, B fyrir Framsóknarflokk, D fyrir Sjálfstæðisflokk, G fyrir Al- þýðubandalag, J fyrir Þjóðvaka og V fyrir Kvennalista. -bjb Karfaveiðarnar: Á sjötta tug fiski- skipa þeg- ar kominn - spænurok og afli dræmur Samkvæmt upplýsingum stjórn- stöðvar Landhelgisgæslunnar eru nú um 56 skip að karfaveiðum á Reykjaneshrygg. Af þeim eru 20 rússnesk en af öörum þjóðernum má nefna Eista, Þjóðverja, Spán- verja, Litháa, Færeyinga og Norð- menn. I gær voru 12 íslensk skip að veiðum og hafði fækkað nokkuð en flest voru þau 16. Afli hefur verið fremur dræmur, eða um eitt tonn á togtimann og í gær hafði flotinn fært sig nokkru utar og fjær 200 mílna mörkunum en fyrir helgina. Varðskipið Ægir er á þessum slóðum og eru stjórnendur íslensku togaranna á svæðinu mjög á verði gagnvart því hvort erlendir togarar fari inn fyrir landhelgislínuna. í gær voru 10 vindstig á þessum slóðum og ekki veiðiveður. -SÁ Sléttanes ÍS hefur verið að veiðum á Reykjaneshrygg og hér er verið að taka inn trollið, fullt af karfa. DV-mynd Aðalsteinn Danskeppnin í Blackpool Úrslitin tvo síðustu dagana íslensk danspör náðu góðum árangri í óopinberri heimsmeist- arakeppni í samkvæmisdönsum í Blackpool i Englandi nýlega. Hér koma úrslitin úr keppninni tvo síðustu keppnisdagana. Davíð Jónsson og Halldóra Halldórsdóttir náðu 5. sæti í riðli 12 ára og yngri í suðuramerísk- um dönsum. Þau komust líka í undanúrslit í enskum vals. Brynjar Þorleifsson og Sesselja Sigurðardóttir náðu 1. sæti í jive í flokki 12-16 ára og 3. sæti í QuickStep. Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdótth- lentu í 2. sæti í sama flokki í jive. Þau komust einnig í undanúrslit í QuickStep. -GHS/Þröstur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.