Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Fréttir Heilsuhornið: Nýtt bæti- efni úr ostrum Heilsuhornið á Akureyri hef- ur hafið innflutning á nýju bæti- efni úr ostrum. Þær hafa löng- um þótt mikill sælkeramatur og í gegnum tíðina hafa þær þótt búa yfir ýmsum eiginleikum. Nýja bætiefnið kallast Ostrin Plus GTZ 611 og er það blanda ýmissa efna á borð við ginseng, niacin, sink en þó fyrst og fremst taurin. Taurin er einnig til staðar í mannslíkamanum, sérstaklega í hjartavöðvanum, taugavef og heilanum. Það hefur eitt og sér áður náð vinsældum sem bætiefni fyrir íþróttamenn þar sem það hefur verið talið búa yfir styrktaraukandi eigin- leikum. Útsölustaðir eru, auk Heilsuhornsins á Akureyri, Heilsuhúsið í Kringlunni, Korn- markaðurinn á Laugavegi og Hollt og gott á Skagaströnd. Smjörvinn: Vinsælasta viðbitið í Mjólkurfréttum frá Osta- og smjörsölunni kemur fram að heildarsala viðbits á öllu land- inu 1995 var 6,2 kg á hvern íbúa Feitmetisneysla - landsmanna 1994 - 15,7% smjör 15,1% Smjörvi 8,2% Létt og laggott 2,3% Klípa 59% smjörllki nw. og minnkaði um 0,25 kg frá ár- inu áður. Þar af er smjör 2,36 kg, Smjörvi 2,26 kg, Létt og laggott 1,23 kg og Klípa 0,35 kg. Smjörvinn er vinsælastur og hélst neysla á honum í jafnvægi en neysla á hinu dróst saman. Af Smjörva seldust 530 tonn hjá Osta- og smjörsölunni, 493 tonn af smjöri, 307 tonn af Léttu og laggóðu og 88 tonn af Klípu. Heildarsamdráttur á viðbiti frá 1994 nam 61 tonni. Aukin ostasala - þrátt fyrir innflutning I Mjólkurfréttum kemur fram að ostasala jókst á árinu 1995 eins og svo mörg undanfarin ár. Söluaukningin nam alls 121 tonni og meðalneysla á hvern íbúa iandins 1995 var 13,3 kg á móti 12,9 kg árið 1994. Að með- töldum innfluttum ostum var neyslan tæplega 13,5 kg á íbúa en innflutningur nam 45 tonn- um. Heildarsala osta hér innan- lands á árinu 1995 var 3.556 tonn. Ekkert var flutt út af ost- um á árinu frekar en á árinu áður þar sem framleiösla á hon- um dugði rétt til þess að full- nægja þörfum innanlandsmark- aðarins. -sv I>V DV kannar verö á níu lausasölulyfjum í nokkrum apótekum: Allt að fjorðungsmunur á höfuðborgarsvæöinu - ódýrasti pakkinn í Keflavík, engin samkeppni á Akureyri Mikil umræða hefur átt sér stað í landinu að undanförnu um sam- keppni á lyfjamarkaðnum. Sitt sýn- ist hverjum um ágæti nýrra laga um frjálsa verðlagningu á lausa- sölulyfjum og að nýjum aðilum skuli hafa verið heimilað að hefja rekstur lyfjaverslana. Samkvæmt niðurstöðu verðkönnunarinnar sýn- ist þó ljóst að þessar breytingar séu neytendum í hag. Menn hafa keppst við að lýsa því yflr að þeir væru að bjóða ódýrustu lyfin á markaðnum og til þess að kanna hvað rétt væri í því skoðaði DV verð á níu lyfjateg- undum í sjö apótekum á höfuðborg- arsvæðinu og sjö á landsbyggðinni. Rétt er að geta þess að hér eru að- eins tekin nokkur apótek, nokkurn veginn af haridahófi, og því aðeins verið að sýna dæmi um verðlagn- ingu en ekki að gera einhverja tæm- andi úttekt. Ekkert mat var lagt á þjónustu apótekanna sem farið var í. Lausasölulyf Lyfin sem skoðuð voru hjá öllum apótekunum voru eftirfarandi lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils: Nicorett tyggjó, 2 mg, 30 stk., Nicor- ett plástur, 10 mg, 7 stk., Parkódín (verkjalyf), 10 stk. Paratabs (verkja- -11 ■ W&pMif, i I é' £ém} á | Nú keppast sumir tyfsalar við að bjóða afslátt af lyfjum. Með tilkomu nýrra laga um lyfjasölu hefur komið titringur á markaðinn. Ekki er séð fyrir endann á afleiðingum þess. Myndin er tek- in í Lyfju, nýju lyfjabúðinni sem opnuð var á dögunum. DV-mynd GVA Verð úti á landi Apótek Suðurnesja lyf), 500 mg, 20 stk., Ein á dag (fjölvítamín), 100 töflur, Lactúlósa (hægðalyD 100 ml, Teldanex (of- næmislyf), 60 mg, 20 stk. Hýdró- kortisón (exemkrem), 20 g, og Otri- vin (nefúðalyf - skammtari fyrir börn), 10 ml. Mikill munur á höfuðborgarsvæðinu Á höfuðborgarsvæðinu var farið í Laugavegsapótek, Reykjavíkurapó- tek, Lyfiu, Borgarapótek, Ingólfs- apótek, Apótek Kópavogs og Apótek Norðurbæjar í Hafnarfirði. Með því að bera verðið saman á þessum stöðum kom í ljós að 23,3 prósenta munur er á verðinu i Laugavegsapó- teki þar sem það er lægst og í Apó- teki Norðurbæjar þar sem það er hæst. í Laugavegsapóteki er 10% af- sláttur af öllu í apótekinu og þar virðist miðað við lægri gjaldskrá en annars staðar. Öryrkjar og félagar í Félagi eldri borgara fá 15% stað- greiðsluafslátt. Þar kostuðu lyfin öll 4.675 kr. en í Hafnarfirði kostuðu þau 5-765 kr. og þar er veittur 20% afsláttur af hluta sjúklings af lyf- seðlaskyldum lyijum og 10% afslátt- ur af öllu til ellilífeyrisþega og ör- yrkja. Athygli er vakin á því að hlutur sjúklings af lyfseðlaskyldum lyfjum er um 30% af heildarverðinu þannig að þegar um slíkan afslátt erv að ræða er verið að veita 20% afslátt af 30%. Af lyfi sem kostar 100 kr. er veittur 20% afsláttur af um 30 krón- um. Lítill munur hjá grönnunum Ef verðið er borið saman hjá ná- grönnunum í Lyfju og Borgarapó- teki kemur í ljós að hvergi munar meira en einni krónu á yerði þeirrar vöru sem til er á báðum stöð- um. Fjölvítamínið Ein á dag var ekki til í Lyfju og því er reiknað meðal- verð þar. Lyfja veitir 20% af- slátt af lausa- sölulyfjum en Borgarapótek er með 20% afslátt af öllum lyfjum, sumum vítamínum og að auki 10% afslátt af öðrum vörum til handa félögum í Félagi eldri borgara, ellilífeyrisþegum og ör- yrkjum. Þar er gefinn 3% stað- greiðsluafsláttur af öðrum vörum. Rétt er að geta þess að þegar könnunin var gerð, 17. apríl síðast- liðinn, var Apótek Kópavogs með 20% tilfallandi afslátt þann daginn. Slíkur afsláttur verður veittur ann- að veifið en ekki alla daga. Verðið sem gefið er upp í töflunni miðast við afsláttarverðið. Þar er örorku- og elllífeyrisþegum veittur 10% staðgreiðsluafsláttur og 5% afslátt- ur fyrir þá sem borga með greiðslu- korti. í Reykjavíkurapóteki er alltaf gefinn 10% staðgreiðsluafsláttur af nikótínvörunum og verðið hér er miðað við það. Þar er enn fremur veittur 5% staðgreiðsluafsláttur og ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá 10% afslátt, hvort sem borgað er með peningum eða greiðslukorti. I Ing- ólfsapóteki er veittur 20% afsláttur af hluta sjúklings af lyfseðlaskyld- um lyfium. Ódýrast og dýrast á landsbyggðinni Ef borið er saman verðið á öllu landinu kemur í ljós að 26 prósenta verðmunur er á öllum pakkanum þar sem hann var dýrastur og þar sem hann var ódýrastur. I Apóteki Keflavíkur fékkst pakkinn á lægsta verðinu, 4.588 kr., en dýrastur var hann í Akureyrarapóteki á 5.777 kr. Suðurnesjamenn hella sér út í verðslaginn en á Akureyri virðast menn enn bíða átekta. Bæði apótek- in þar miða við taxta. Þar í bæ eru engir afslættir gefnir, staðgreiðslu- afslættir eða afslættir fyrir aldraða og öryrkja. i Egilsstaðaapóteki, Sel- fossapóteki og í apótekinu á Siglu- firði var miðað við taxta eins og á Akureyri og eini verðmunurinn í öllum pakkanum var á fjölvítamín- inu, Ein á dag. Á Egilsstöðum er ellilífeyrisþegum og öryrkjum boð- inn 10% afsláttur af öllum vörum. Apótek Keflavíkur býður 20% af- slátt af öllu, lyfjum og vítamínum og sjúklingshluta lyfseðlaskyldu lyfjanna. Apótek Suðurnesja er með 20% afsl. fyrir aldraða og öryrkja af lyfseðlaskyldum lyfjum og 10% af- slátt af öllum lyfjum fyrir aðra. Ekki langvarandi Lyfjafræðingum sem DV hefur talað við sýnist sitt hverjum í sam- bandi við hver þróunin verði. Marg- ir eru á því að þessi afsláttarhrina muni ekki verða langlíf en aðrir segja verðið enn geta lækkað. Landsbyggðarmenn bíða og sjá hver þróunin verður. Enn sem komið er sýnist mönnum lægra verð á höfuð- borgarsvæðinu og á Suðurnesjum ekki hafa haft áhrif á sölu í apótek- um úti á landi. -sv Verðkönnun á lyfjum Laugav- apótek Borgar- apótek Lyfja Apótek Norðurb. Rvíkur- apótek Apótek Kópav. Ingólfs- apótek Nicor. tygg, 2 mg/30 stk. 592 558 558 698 628 558 698 Nicor. plást, 10 mg/7 stk. 1717 1746 1745 2182 1964 1745 2182 Parkódín, 10 stk. 149 170 169 212 212 170 212 Paratabs, 500 mg/20 stk. 113 142 141 217 177 140 177 Ein á dag, 100 töflur 515* 527 515* 513 511 515 498 Lactúlósa, 100 ml 244 254 254 318 318 254 318 Teldanex, 60 mg/20 stk. 564 534 533 667 667 534 667 Hýdrókortisón, 20 g 455 440 440 550 550 440 550 Otrivin 326 326 326 408 408 326 408 Samtals kr: 4675 4697 4681 5765 5435 4682 5710 *Ekki til, reiknaö meöalverö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.