Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Page 7
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
7
DV Sandkorn
Gamalt hús
Fundur sá sem
prestar lands-
ins héldu 1 Iðn-
aðarmannahús-
inu síðastliðinn
máhudag hótti
að vonum for-:
vitnilegur. Þeir
ákváðu að hafá
fulla leynd að
kalla yfir því
sem þar fór
fram. Samt
fengu nú göl-
miðlamenn að
vera í húsinu
en ekki í fundarsalnum. Snemma
tóku fréttir að berast í loftmiðlum
írá fundmum. Einhver fúndar-
manna uppgötvaði þetta, fór fram
og sá að fjölmiðlamenn voru fyrir
utan fundarsalinn. Hann fór aftur
inn á fundmn og fullyrti að einhver
læki fréttum af fúndinum í frétta-
mennina. Það var hms vegar ekki
rétt. Hið rétta er að húsið er gamalt
og hljóðbært og heyrðist vel það
sem fram fór á fundinum. Einn
fréttamanna sagðist hafa heyrt
orðaskipti á fundinum þegar hann
var staddur á hæðinni fyrir neðan
fundarsalmn.
Margir hafa
undrast hina
iniklu vel-
gengni Ólafs
Raghars Gríms-
sonar í skoð-
ahakönnunum
vegna forseta-
framboðsms.
Sumir telja
hann öruggan
orðinn um að
ná kjöri og eru
gárungar í
þeim hópi þeg-
ar famir aö velta ýmsu fyrir sér.
Margir segjast til aö mynda vilja
vera fluga á vegg ef Ólafur Ragnar,
sem forseti íslands, veitir Davíð
Oddssyni umboð til stjómarmynd-
unar. Einnig að handhafar forseta-
valds á næsta ári gætu orðið Davíð
Oddsson, Ólafur G. Emarsson og
Pétur Kr. Hafstein. Þeir fylgja for-
seta út á flugvöll, fari hann til út-
landa, og sækja hann þegar hann
kemur heim. Eins segjast margir
bíða í ofvæni eftir því að heyra
Davíð Oddsson forsætisráðherra
standa upp eftir þmgsetningu næsta
haust og segja: Heill forseta vorum
og fósturjörð, húrra ...
Bóndi einn
kom til prests
og bað hann að
skíra fyrir sig
barn. Þetta var
í 11. sinn sem
hann baö prest-
inn að skíra
fyrir sig barn.
Þau hjónm
voru fátæk af
veraldlegum
auði og því
spurði prestur
hvort þau ætl-
uðu ekki að láta hér staðar numið.
Bóndinn tók ekki vel í þessa óbeinu
ráðleggingu prestsins og svaraði:
„Er það ekki rétt hjá mér að í hinni
helgu bók, Biblíunni, standi ein-
hvers staðar: Verið fijósöm og upp-
fyllið jörðina?" „Jú, rétt er það,“
svaraði prestur, „en þaö stendur
hms vegar hvergi skrifað að þiö
hjónin eigið að gera það ein.“
Bragarbót
Nokkrar svo-
nefndar brag-
arbótaýísur
hafa orðið
landsfr ægar.
Hér á eftir fer
ein sem margir
þekkja. En
fyrst vísan sem
bragarbótin var
gerð við.
Margt er hér
sem miður fer
og mætti helst ei ber’ á.
Veiga í Skógum ólétt er
eftir Jón á Þverá.
Stúlkan reiddist vísunni og
krafðist bragarbótar þar sem eng-
inn fótur væri fyrir þvi að hún
væri ólétt. Höfundurinn varð við
þessari ósk og orti:
Vísunni skal verða breytt,
Yeigu ekkert sér á.
Átti sem sé aldrei neitt
undir Jónl á Þverá._________
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Kveðjan
Fréttir
Einar Kristbjörnsson kafari 1 eldlínu átakanna í Líbanon:
Heldur kyrru fyrir 500
metra frá fallbyssunum
- bíöum í viku og sjáum hvaö setur, segir Einar og segist vera á öruggum stað
Beirútborg er mj'ög illa farin eftir átök í meira en fimmtán ár. Nú er enn verið að sprengja í borginni.
„Hér heyrist núna ekki mannsins
mál fyrir skothríðinni. Líbanski
herinn kom núna í morgun upp fall-
byssum í um 500 metra fjarlægð frá
íbúðinni þar sem ég bý. Þeir eru
núna að skjóta á ísraelskan tundur-
spilli hér rétt fyrir utan,“ sagði Ein-
ar Kristbjörnsson kafari þegar DV
ræddi við hann þar sem hann held-
ur nú til í Beirút í Líbanon.
Þegar DV náði tali af Einari var
mikil heift í átökunum milli ísraels-
manna og skæruliða Hisbollah. Lí-
banski stjórnarherinn virtist einnig
hafa blandað sér í átökin því EinaT
taldi að falibyssurnar, sem mestum
hávaða ollu við íbúð hans, væru frá
hernum.
„Ég hef ágæta yfirsýn yfir það
sem er að gerast hér sunnan við
Beirút og eins út á hafið. Ég sé ísra-
elska tundurspillinn í kíki og það er
ekki að sjá að fallbyssuskotin hafi
Einar Kristbjörnsson kafari hefur í
vetur unnið við stækkun alþjóða-
fiugvallarins í Beirút.
hæft hann í morgun. Ég sé líka
reykinn sem stígur upp frá borginni
en þar er erfiðara að átta sig á því
sem er að gerast," segir Einar.
Einar hefur verið í Beirút frá því
í mars og sér þ’ar um vinnu við leng-
ingu flugbrautar við alþjóðaflugvöll-
inni í borginni. Brautin verður
lengd út í sjó og hefur Einar umsjón
með sjóvinnunni. Það er þýskt-lí-
banskt fyrirtæki sem annast fram-
kvæmdirnar.
„Við ætlun að sjá til í viku til tíu
daga. Ef ástandið batnar ekki á
þeim tíma förum við sjálfsagt í frí
og byrjum svo aftur þegar átökun-
um er lokið, í dag var byrjað að
vinna á venjulegum tíma en örygg-
isins vegna var ákveðið að hætta
um hádegið þegar þeir fóru að
skjóta af fallbyssunum hér við hlið-
ina. Það má búast við loftárás á
byssurnar hvenær sem er,“ sagði
Einar.
Hann sagðist vera á öruggum stað
en halda kyrru fyrir innan dyra
meðan skotið væri. Aðstæður væru
í raun góðar og heimamenn tækju
þessum atburðum með mikilli ró.
„Það er greinilegt að þetta er
stríðsvön þjóð. Núna þegar byrjað
var að skjóta af fallbyssunum við
flugvöllinn stoppaði ekki einu sinni
umferðin á veginum við þær,“ sagði
Einar. -GK
Kaupfélag Skagfirðinga:
Hagnaður vegna
togarasölu
DV; Fljótuiu:
Hagnaður af rekstri Kaupfélags
Skagfirðinga á síðasta ári nam 20,3
milljónum króna og var 114,8 millj-
ónir króna af rekstri dótturfélags
KS - Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.
Sá hagnaður er að mestu tilkominn
vegna sölu togarans Drangeyjar.
Heildarvelta KS og Fiskiðjunnar
nam 5.400 milljónum 1995. Þar af
velti sjávarútvegurinn 3.000 miiljón-
um.
Fjárhagsstaða kaupfélagsins er
sterk eins og undanfarin ár. Eignir
í árslok námu 2.200 milljónum og
eiginfjárhlutfall í fyrirtækinu er
55,15%. Hafði það hækkað um 2,8%
á árinu.
Árið 1994 var hagnaður af rekstri
KS 24,8 milljónir. Þá var hins vegar
tap á sjávarútvegsfyrirtækinu lið-
lega 11 milljónir. Fyrirtækið í heild
var þá með 13,5 millj. króna hagnað.
-ÖÞ
Tvær skólaskrifstof-
ur á Vesturlandi
DV, Akranesi:
Nýverið var stofnað byggða-
samlag um rekstur Skólaskrif-
stofu Vesturlands og verður hún
að öllum líkindum í Borgamesi.
Sveitarfélögin, sem standa að
skrifstofunni, eru 23 talsins frá
Hvalfirði að Sauðbæjarhreppi í
Dölum. Á svæðinu búa níu þús-
und manns.
Búið er að kjósa stjórn fyrir
skólaskrifstofuna og er Guðjón
Petersen, bæjarstjóri í Snæfells-
bæ. formaöur hennar. Gengiö
verður frá ráðningu forstjóra
skólaskrifstofunnar á næstu dög-
um. Sjö sóttu um stöðuna.
Akumesingar taka ekki þátt í
þessari skólaskrifstofu því á
Akranesi verður sér skólaskrif-
stofa. Búist er þó við að samstarf
verði milli skrifstofanna. -DÓ
Framsóknarflokkurinn mótar eigin stefnu í ferðamálum:
Hef beðið eftir opinberri
stefnu í tíu ár
- segir Unnur Stefánsdóttir sem er í forsvari ferðamálahóps flokksins
„Það er fullt af duglegu fólki sem
hefur rutt ferðamálum áfram en
það hlýtur að vera ýmislegt sem
ríkið getur lagfært þannig að það
verði enn betra. Þar sem ríkið hef-
ur ekki mótað neina stefnu í þessu
hefur þetta gengið einhvern veg-
inn,“ segir Unnur Stefánsdóttir sem
er i forsvari fyrir'ferðamálahóp
Framsóknarflokksins. Flokkurinn
hefur hafið fundaröð með yfirskrift-
inni Stendur islensk ferðaþjónusta
á brauðfótum?
„Þetta er ekki bara pólitískt held-
ur líka faglegt. Það tekur margt fólk
þátt í þessu sem hefur unnið í
ferðaþjónustunni,“ tekur Unnur
fram.
Hún getur þess aö ferðaþjónusta
og vöxtur hennar hafi alltaf verið
til umræðu á þingum Framsóknar-
flokksins. Nú sé ætlunin að leggja
fram stefnumörkun flokksins í
ferðamálum á flokksþingi í haust
og verði unnið úr því efni sem fram
kemur á fundunum um málefni
ferðaþjónustunnar.
Þegar Unnur var varaþingmaður
Framsóknarflokksins 1987 flutti
hún þingsályktunartillögu um að
mótuð yrði opinber stefna í ferða-
málum. „Það hafði aldrei fyrr kom-
ið tillaga um slíkt á þingi. Tillagan
var samþykkt og þáverandi sam-
gönguráðherra, Steingrímur J. Sig-
fússon, skipaði starfshóp sem vann
í eitt og hálft ár að þessari stefnu-
mótun. Sú tillaga var lögð fram á
þingi rétt áður en rikisstjórnin fór
frá 1991 þannig að það tókst ekki að
samþykkja hana. Síðan hefur máliö
legið niðri í skúffu. Það var ekkert
gert síðasta kjörtímabil en Halldór
Blöndal samgönguráðherra ákvað
síðastliðið sumar að skipa stefnu-
mótunarnefnd sem tekin er til
starfa."
Unnur segist vera búin að bíða
eftir því í 10 ár að eitthvað gerist í
þessum málum. „Það er mjög gott
að stefnumótun sé í vinnu fyrir al-
þingi. Ferðaþjónusta hefur vaxið
rosalega á hverju ári og það eru
margir farnir að horfa til þess að fá
atvinnu í þessum geira," segir Unn-
ur. -IBS