Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
Stuttar fréttir Útlönd
i>v
Hert öryggi
Miklar öryggisráðstafanir eru
í miðborg Oklahomaborgar í dag
á ársafmæli sprengjutilræðisins
sem varð 168 manns að bana.
Berlusconi í ham
Silvio
Berlusconi,
fyrrum for-
sætisráð-
herra Ítalíu,
ætlar að gera
úrslitatilraun
í dagtilfáóá-
kveðna kjós-
endur á sitt band til að eiga
möguleika á að komast aftur til
valda eftir kosningarnar á
sunnudag.
Reynt að miðla málum
Sáttasemjarar frá Gana eru í
Líberíu að reyna að stilla til frið-
ar í höfuðborginni.
Átján skotnir
Hryggð og reiði ríkir í Grikk-
landi eftir að átján ferðamenn,
flestir Grikkir, voru skotnir til
bana í Egyptalandi og fimmtán
til viðbótar særðir.
Duidar
William
Perry, land-
varnaráð-
herra Banda-
ríkjanna, lét
að því liggja í
gær að
Bandaríkja-
menn kynnu
að grípa til hernaðaraðgerða
gegn Líbýu til að koma í veg fyr-
ir framleiðslu efnavopna í áburð-
arverksmiðju sem verið er að
reisa.
Digrir sjóðir
Clinton Bandaríkjaforseti átti
1300 milljónir króna í kosning-
asjóði í marslok, mun meira en
Bob Dole, helsti keppinautur
hans í forsetakosningunum í
haust. Reuter
hótanir
Eitt fórnarlamba árásar ísraela á flóttamannabúðir Sameinuðu þjóðanna í Líbanon er hér borið inn í sjúkrahús. Símamynd Reuter
Yfir 100 fórust þegar ísraelar sprengdu flóttamannabúöir SÞ í Líbanon:
Árásir halda áfram í
kjölfar blöðbaðsins
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Stillholti
16-18, Akranesi, sem hér segir,
á eftirfarandi eignum:
Akursbraut 22, efsta hæð, þingl. eig.
Selma Guðmundsdóttir, Bettý Guð-
mundsdóttir, Björgheiður Jónsdóttir
og Kristrún Guðmundsdóttir, gerðar-
beiðendur Jöfur hf., Landsbanki ís-
lands, lögfrdeild, og Lífeyrissjóður
starfsm. ríkisins, þriðjudaginn 23.
apríl 1996 kl. 11.00.___________
Bárugata 15, þingl. eig. Halldór J. Júl-
íusson, gerðarbeiðandi Akraneskaup-
staður, þriðjudaginn 23. apríl 1996 kl.
11.00.__________________________
Deildartún 7, neðri hæð, þingl. eig.
Svavar Hafþór Viðarsson og Kolbrún
Belinda Kristinsdóttir, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, þriðju-
daginn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Einigrund 6, 02.02., þingl. eig. Sigrún
Damelsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður verkamanna og sýslu-
maðurinn á Akranesi, þriðjudaginn
23. aprfl 1996 kl. 11.00.__
Jaðarsbraut 35, miðhæð, 02.01., þingl.
eig. Ingveldur M. Sveinsdóttir og
Guðni Jónsson, gerðarbeiðendur
Akraneskaupstaður, Amarfell sf., Líf-
eyrissjóður Akraneskaupstaðar og
sýslumaðurinn á Akranesi, þriðju-
daginn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Jaðarsbraut 7, efri hæð, þingl. eig. Eu-
femia Berglind Guðnadóttir og Davíð
Jón Pétursson, gerðarbeiðandi Bún-
aðarbanki íslands, Akranesi, þriðju-
daginn 23. aprfl 1996 ki. 11.00.
Kirkjubraut 58, efri hæð, þingl. eig.
Stefán Þorsteinsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudag-
inn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Krókatún 4a, neðri hæð, þingl. eig.
Guðrún Birgisdóttir og Guðlaugur J.
Ragnarsson, gerðarbeiðendur Heim-
ilistæki hf., húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar og Tryggingamiðstöðin hf.,
þriðjudaginn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Presthúsabraut 24, þingl. eig. Bára
Kolbrún Guðmundsdóttir og Þor-
steinn Hermannsson, gerðarbeiðandi
húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar,
þriðjudaginn 23. apríl 1996 kl. 11.00.
Presthúsabraut 31, þingl. eig. Ragn-
heiður Gunnarsdóttir, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, þriðju-
daginn 23. apríl 1996 kl. 11.00.
Skagabraut 26, þingl. eig. Helga Þór-
isdóttir og Hans Þorsteinsson, gerð-
arbeiðendur Akraneskaupstaður og
Lífeyrissjóður Vesturlands, þriðju-
daginn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Skagabraut 5a, efri hæð og ris, þingl.
eig. Sigurður Þór Gunnarsson, gerð-
arbeiðendur Akraneskaupstaður og
Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudag-
inn 23. aprfl 1996 kl. 11.00.
Skarðsbraut 13, 03.01., þingl. EIG.
Þóra Jónsdóttir og Oddur Pétur Ott-
esen, gerðarbeiðandi húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar, þriðjudaginn 23.
aprfl 1996 kl. 11.00.
Skarðsbraut 9,01.02., þingl. eig. Krist-
ín Svavarsdóttir, gerðarbeiðandi Al-
þjóða líftryggingarfélagið hf., þriðju-
daginn 23. apríl 1996 kl. 11.00.
Sóleyjargata 6, neðri hæð, þingl. eig.
Valdimar Bjami Guðmundssson,
gerðarbeiðandi húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar, þriðjudaginn 23.
aprfl 1996 kl. 11.00._____________
Suðurgata 111, þingl. eig. Steindór Óli
Ólason og Sigurrós Allansdóttir,
gerðarbeiðendur húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar, Lífeyrissjóður verk-
stjóra og Sameinaði Lífeyrissjóður-
inn, þriðjudaginn 23. aprfl 1996 kl.
11.00.
Vallarbraut 9, 02.02., þingl. eig. Helga
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyris-
sjóður sjómanna, þriðjudaginn 23.
aprfl 1996 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Ekkert lát var á átökum ísraela
og Hisbollah-skæruliða í Líbanon í
nótt og í morgun þrátt fyrir mikinn
alþjóðlegan þrýsting um að báðir
aðilar láti af vopnaskaki sínu. Eld-
flaugum rigndi yfir norðurhéruð
ísraels og ísraelar svöruðu árásun-
um strax með loftárásum.
Það vakti hrylling og fordæmingu
um allan heim þegar ísraelar
sprengdu flóttamannabúðir Samein-
uðu þjóðanna í þorpinu Quana
nærri Tyros í Líbanon í gær.
Sprengjur þeirra urðu yfir 100 lí-
bönskum flóttamönnum að bana,
þar á meðal mörgum konum og
börnum. Fórnarlömbin tættust í
sundur eða brunnu til bana þegar
skýli þeirra sprungu. Israelar segja
að árásin á flóttamannabúðirnar
hafi verið mistök og hörmuðu
mannfallið.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti samhljóða að hvetja til
vopnahlés í Líbanon í gærkvöldi en
lét vera að fordæma hina stríðandi
aðila. Áður hafði ályktun frá araba-
þjóðunum, sem fordæmdu aðgerðir
ísraelsmanna, verið felld.
Leiðtogar stærstu iðnríkja heims,
sem koma saman til kjarnorkuráð-
stefnu í Moskvu á morgun, munu
ræða átökin í Líbanon sem kostað
hafa yfir 130 manns lífið, aðallega
óbreytta borgara. Engir Israelar
hafa látið lífið í átökunum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti,
sem hefur gefið þegjandi samþykki
fyrir aðgerðum ísraela síðustu daga,
hvatti strax til vopnahlés og sendi
fulltrúa sinn til svæðisins. Warren
Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, var síðan væntan-
legur þangað í dag.
Simon Peres, forsætisráðherra
ísraels, sagði að hann mundi verða
Gerum heiminn eins
öruggan og við getum
- segir Bill Clinton Bandaríkjaforseti
Mikill fjöldi þjóðarleiðtoga kemur
saman til tveggja daga fundar í
Moskvu í dag til að ræða öryggi í
kjarnorkumálum en drjúgur hluti
fundartímans mun þó fara í tilraun-
ir til að finna leiðir til að leysa
ófremdarástandið fyrir botni Mið-
jarðarhafsins.
Boðað var til leiðtogafundarins
tíu árum eftir kjarnorkuslysið
mikla í Tsjernobýl. Á fundinum
verða samþykktar áætlanir um að
loka kjarnorkuverinu í Úkraínu fyr-
ir árið 2000, aðgerðir til að koma í
veg fyrir smygl á efni í kjarna-
sprengjur og ýmislegt annað sem
við kemur kjarnorkuöryggi.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti og
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sitja í forsæti fundarins, sem Jeltsín
vonar að verði til að auka líkurnar
á endurkjöri hans í forsetakosning-
unum í júní. Fundinn sækja leiðtog-
ar sjö helstu iðnríkja heimsins, auk
Bill Clinton Bandaríkjaforseti.
Símamynd Reuter
leiðtoga Rússlands og Úkraínu.
„Við erum bara að reyna að gera
það sem í okkar-valdi stendur til að
gera heiminn eins öruggan og hægt
er og ganga frá nokkrum kalda-
stríðsmálum sem ekki var búið að
ljúka við,“ sagði Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti í gær. Reuter
tafarlaust við óskum Clintons svo
fremi sem Hisbollah-skæruiliðar
hættu að senda elflaugar sínar yfir
landamærin. Talsmenn Hisbollah
kröfðust á móti að friðarsamningar
frá 1993 yrðu virtir en þar er lagt
bann við árásum á óbreytta borgara
beggja vegna landamæranna.
Peres þykir í vanda en árásirnar
á Hisbollah-skæurliða áttu að vinna
honum fylgi fyrir þingkosningarnar
29. maí. Hafði hann vonast til að
árásirnar neyddu stjórnvöld í Lí-
banon og Sýrlandi til að hemja
Hisbollah- skæruliða. En hætti
hann árásunum nú mun líta út fyr-
ir að hann hafi látið undan alþjóð-
legum þrýstingi. Er því talið að
hann þarfnist vopnahléssamninga
sem tryggja algera stöðvun eld-
flaugaárása Hisbollah fram yfir
kosningar.
Reuter
Breskir sjómenn
mótmæla við
þinghúsið
Á annað þúsund breskir sjó-
menn söfnuðust saman við þing-
húsið í Lundúnum í gær til að
mótmæla fiskveiðistefnu Evrópu-
sambandsins og krefjast þess að
bresk stjórnvöld höfnuðu henni.
Reiðir sjómenn veifuðu kröfu-
spjöldum sem á stóð „Bjargið
breskum fiski“ .
„Þeir hafa svikið okkur alla og
fómað okkur á Evrópualtarinu."
sagði skipstjórinn George Steven
sem kom alla leið frá Skotlandi til
að taka þátt í fundinum. „Fiskur
er síðasta náttúrulega fæðuteg-
undin í þessu landi sem óhætt er
að borða.“
Sjómennirnir eru andvígir
þeirri stefnu ESB að skip allra
landa bandalagsins skuli hafa
jafnan aðgang að breskum fiski-
miðum. Fjórir togarar sigldu upp
Thames að Tower-brúnni þar sem
áhafnir þeirra vildu ekki missa af
fundinum. Reuter